Jólaljós á aðventu...eða stórbruni.

316px-candleburning  Húsfreyja var mætt niður

  á Austurvöll með 8 ára djásnið

  og Rakel bestu vinkonu.

  Kona mælti á norska tungu og

  kona "mælti" á táknmáli við hlið hennar.

  Sú norska var með hland fyrir hjartanu

  yfir kreppuörlögum sinna frónversku frænda,

  og óskaði að við næðum okkur fljótt á strik afturHalo.

  Falleg ósk það, þó norskir frændur vorir hafi

  ákveðið að bíða með lán til litla Fróns, þar til

  "Ísbjargarklafinn" væri kyrfilega festur á frónverksa þjóð,

  og Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn hefði lokið sinni blóðtökuGetLost.

  Jamm!

  Íslensk kona, Hanna Birna, titluð borgarstjóri rabbaði

  næst um ljósið og vonina.

  Verið í embætti borgarstjóra "óvenju lengi", sú góða kona,

  mun lengur en síðustu fyrirrennarar hennar sem dúlluðu

  sér við að stjórna borginni nokkra mánuði í sennDevil.

  En ljómandi góð ræða hjá "þaulsætnum" borgarstjóra,

  stutt og "vongóð"LoL!

  Jólatréð var glæsilegt.

  Húsfreyja reyndi að koma djásninu og Rakel í sjónmál,

  svo þær sæju þegar tréð tendraðist upp.

  Var töluvert mál, því feður í kringum 190 til tveir metrar

  á hæð, tróðu sér stöðugt fram fyrir 8 ára skvísurnar...

  og með börn á aldrinum 1-5 ára á herðunumErrm.

  Húsfreyja náði þeim loks á svæði þar sem þær náðu að

  berja hálfan metra af toppi trésins augum....talið niður...

  BINGÓ og það varð ljós!

  "Noh"!

  "Bara eins og í sköpunarsögunni", húsfreyja glotti

  góðlátlega að hugsun sinni.

  Myndir teknar af djásni og Rakel undir trénu,

  við hliðina á þremur "sænskusyngjandi" túristum,

  sem þurftu að fá 25 myndir af sér undir trénu.

  Húsfreyja tók tværWhistling.

  Þá vildu 8 ára skvísur heim hið snarasta.

  Enda töluvert kalt fyrir grannvaxnar 8 ára dömur í

  blautum snjógöllum.

  Húsfreyja reyndi að freista þeirra með upplestri

  Gerðar Kristnýjar, jólasveinum og bangsanum úr

  Dýrunum úr Hálsaskógi.

  Neipp!

  Svo húsfreyja hélt heim á leið, með dynjandi söng

  jólasveina í eyrunum.

  Á árum áður bjó húsfreyja á Heimaey,

  "næst-stærstu" eyjunni í Vestmannaeyjaklasanum....

  litla Frón að sjálfsögðu sú stærsta samkvæmt

  hógværum og lítillátum EyjamönnumTounge.

  Heldur var minna umstang í kringum jólatré

  á Stakkó, kirkjuna og víðar í Eyjum þá, en var í dag niðri á

  Austurvelli.

  Gott ef Eyjamenn voru yfir höfuð nokkuð látnir vita,

  þegar tendra skyldi ljós á bæjarjólatrjám.

  Allt í einu voru bara sprottin upp upplýst jólatré

  hist og her um bæinn.

  HALLELÚJA!

  Bara sisona.

  Lítið gert úr málinu, þótt trén væru falleg í svartasta skammdeginum.

  Húsfreyja man ekki eftir einni jólatrésræðu hjá

  Magga bæjó.

  Ekki einni.

  Mun meira spennandi og meira að gera hjá krökkum að fá að skreyta

  aðventukransinn á heimilunum, og systkini börðust

  jafnvel um að fá að kveikja á fyrsta kertinu.

  Þá voru "rauðar" lafandi slaufur og hangandi upp

  eftir grannri spýtu í tísku á aðventukrönsumPinch.

  Húsfreyja lítil skotta þá, náði að kveikja í a.m.k.

  tveimur aðventukrönsum, og systur hennar

  náðu að brenna einn til kaldra kolaHalo.

  Móðir húsfreyju stillti sínum aðventukrönsum

  ætíð upp í "mest 70 cm fjarlægð" frá svalahurðinni

  í borðstofunni, og faðir húsfreyju var orðinn

  æði snjall í að sveifla "logandi" kransakyndli

  á innan við sekúndu út um dyrnarLoL.

  Jamm, aðventukransar voru sko hasar.

  Faðir húsfreyju bauð móðurinni ein jólin

  að brenna bara helvískar "slaufurnar" STRAX,

  úti á svölum, áður en þær færu á kransinnDevil.

  Og málið væri þar með dautt!

  Móðirin afþakkaði pent, en sleppti slaufum

  að mestu, bara svona smávegis á milli kerta.

  En þá héldu systur húsfreyju, þá pínulítil peð

  með ljósa slöngulokka, að þær gætu aldeilis kveikt sjálfar

  á aðventukransinum!

  Brann til kaldra kola....úti á svölum.

  Faðirinn með brunasár á handarbaki í 4 vikur.

  Síðan lítið verið notað af slaufum á aðventukransa

  í stórfjölskyldu húsfreyjuWhistling.

  Það er ENGIN slaufa á aðventukransi húsfreyju þetta árið.

  Aðeins greni, keramíksveinar, kuðungar og jólasnjókarl.

  Átta ára djásnið kveikti á fyrsta kertinu seinni

  partinn í dag undir vökulum augum húsfreyju sem

  stóð 10 cm frá kransi og 30 cm frá svalahurðinniTounge.

  En allt fór vel, og það eina sem brann var kertið

  sem átti jú að loga.

  Átta ára djásnið svo alsælt með snjóinn, og er búin

  renna sér á rassaþotu allan liðlangan daginn,

  fyrir utan "skreppelsið" á "upptendrunina" niður

  á Austurvelli.

  Húsfreyja hins vegar að jafna sig af ellihrumleika í baki,

  og eftir tvö andlát hjá hennar yndislegu öldungum á deildinni

  hennar.

  Annð andlátið var nokkuð fyrirsjáanlegt, en hitt kom snögglega upp

  og því eru nú tveir elskulegir herramenn horfnir í "Sumarlandið".

  Jamm, erfitt að horfa á eftir yndislegu fólki.

  "En svona er lífið, Siggi" sagði Júlli á Hlíðarenda gjarnan við

  föður húsfreyju, og ekkert nema gott eitt um það að segja.

                    Gæfan mesta.

  Aska og mold.  En nægir nokkrum slíkt,

  sem notið hefur ritninganna fræðslu?

  Vor eirðarlausa öld er hrjáð og sýkt

  af efasemd og hræðslu.

 

  Oss voru gefin fögur fyrirheit,

  en fæstir vilja þeim í auðmýkt trúa

  og nema staðar eftir langa leit

  í landi þar sem, sem hryggð og ótti búa.

 

  Oss voru gefin holl og heilög ráð,

  er hefja skyldu mannsins líf og sanna,

  að barnið skynjar betur drottins náð

  en böðlar þeirra Kaífasarmanna.

 

  Vor mesta gæfa er að fæðast feig

  og finna guð og ljósið eygja,

  en þyngsta raun að þjást af banageig

  og þora ekki að deyja.

                                 Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.

 

  Góðar stundir á aðventu.

 

 

 

 

 

 


mbl.is Tendrað á ljósum Óslóartrésins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband