31.12.2009 | 18:22
2009...
.."þú veist að þetta verður töff ár hjá
þjóðinni" þrumaði konan og hló
stórkarlalega.
Húsfreyja sat í byrjun árs 2009,
hjá konu einni með mikla hæfileika, stóra rödd
og enn stærri hlátur.
Jú, húsfreyja gat sosum samsinnt því, enda
bankahrun í algleymingi.
"Já, hélt sú vísa áfram, það er talan 11,
sem þvælist fyrir fólki".
"Nú"?, húsfreyja kom af fjöllum.
"Sjáðu til vinkona", sú með stóru röddina iðaði í skinninu
af fróðleik, 2+0+0+9 gerir jú 11, og þeir sem
ekki hafa unnið baki brotnu að því að talan
11 verði þeim sem jákvæðust, lenda í í djúpum skít"!
"Er svona komið að skuldadögum hjá mörgum", konan
glotti.
"Jeminn" hugsaði húsfreyja.
Ekki hafði hún pælt neitt í því að talan 11 gæti komið
aftan að henni, með skuldadaga og djúpan skít.
Því síður kunnað að vinna baki brotni til að snúa
áhrifum ellefunnar sér í hag.
Bara unnið sín störf eins samviskusamlega og henni
var unnt, sinnt uppeldi dóttur og stússað fyrir bónda
og stórfjölskylduna....og notið lífsins í leiðinni.
"Djísuss, er þetta þá bara allt dauði og djöfull hjá mér
í ár" spurði hún spákonu.
"Vð skulum nú sjá" sagði kona drjúg, og lagði spil á borð.
En sjá!
Spilin voru bísna happadrjúg.
Upphefð í starfi og betri laun....húsfreyja varð deildarstjóri.
Heilsublikið þokkalega gott, með smá bakslögum....nýrnagrjót
og ellihrumleiki í baki.
Átta ára djásnið að brillera.....fékk íslenskuverðlaun Menntaráðs.
Bóndi öruggur í starfi....ekki fengið uppsagnabréf enn, enda
pottþéttur verkefnastjóri.
Engin uppboð á húseign eða flutningur.....eins gott því
húsfreyja á svo fínan sólpall.
Mútta húsfreyju í góðum gír, ekki að hrökkva upp af á árinu....
og sá um verkstjórn í smákökubakstrinu hjá húsfreyju í desember.
Systur húsfreyju að komast út úr erfiðu tímabili báðar tvær
á árinu 2009.....horfa fram á bjartari tíma, sól og gleði á nýju ári.
Fósturbörnin öll að finna innri styrk og getu, þó það hafi kostað
skilnað við maka hjá eldri fósturdótturinni, sundur-saman-tímabil
hjá þeirri yngri við sinn kærasta, og fóstursoninn flutning norður.
Tengdó bæði þokkaleg til heilsunnar...Kanaríeyjaferð í spilunum
hjá þeim í febrúar að venju.
"En það verður BRJÁLAÐ að gera hjá þér, ef þú hættir ekki
á þessum vinnustað þínum" konan sprengdi næstum hljóðhimnur
húsfreyju með raddstyrk sínum.
"Hætta"!
"En þetta er það eina sem ég kann" húsfreyja var rasandi.
"Get ekki bara hætt sisona, í miðju bankahruni og
kreppufári"!
Spákona dró auga í pung.
Dæsti.
"Jæja, en það verður þá albrjálað að gera hjá þér,
og alveg fram á vor og sumar 2010".
"Og þú myndir alveg fá vinnu strax annars staðar,
þó þú hættir þarna....þú ert þannig karakter"!
Kona talaði svo hátt, að hár húsfreyju lyftist upp í loft upp eins
og væri hún stödd í 12 vindstigum á Stórhöfða.
"Hugsaðu þetta allavega" skipaði spákona hátt og snjallt og
hló svo tröllslega.
"Þú ferð nefnilega á "fjarkaár" sem er ár
mikillar vinnu og erfiðis, með tómum hindrunum og
hömlum, næsta afmælisdag þinn, svo þú skalt gæta
vel að heilsunni" hrópaði sú fjölfróða.
Húsfreyja skakkalappaðist nær heyrnalaus
út frá spákonu.
Jamm.
Húsfreyja varð svo stjóri í vinnunni í lok apríl,
mundi orð spákonunnar hinnar stóru og bað um og fékk
talnaspekibók mikla eftir Lafleur í afmælisgjöf.
Jú mikð rétt.
Byrjaði fjarkaár 30.08. 2009!
En merkilegt nokk, þegar húsfreyja lagði saman fyrst,
gerði hún það á þennan máta:
3+0+0+8=11 og síðan 2+0+0+9=11.
Og svo 11+11= 22.
Og þó að 22 verði síðan að árstölunni 4,
þá er 22 einnig meistaratala samkvæmt Lafleur.
Svo samkvæmt því er húsfreyja einnig á ári
samúðar og vinskapar.
Ári tilfinninga, hjálpar og gjafa.
Er skemmst frá að segja að gjöfum hefur
nánast rignt yfir húsfreyju frá því í ágúst.
Frá ólíklegasta fólki.
Og allir hafa verið einstaklega "vingjarnlegir"
við húsfreyju í nýju starfi, hjálpsamir og gæðalegir
við hana.
Húsfreyja veit vart í hvorn fótinn hún á að stíga
af gleði og þakklæti.
Brjálað að gera?
Sei, sei jú!
En ekki óyfirstíganlegt.
Og þarf aðeins að þrauka álagið fram
til 30.08.2010, þegar ár breytinga og
VELGENGNI hefst hjá húsfreyju.
Ef það ár gengur betur en kreppuárið
2009 hjá húsfreyju, er næsta víst að hún svífi skýjum
ofar fram til 30.08.2011.
Góðar stundir og GLEÐILEGT "ÁT"...hehehe meinleg villa þetta...
ÁR 2010.
Megi öll ykkar ár verða góð ár.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2009 | 17:41
Blah!....
..."háttvirtur þingforseti!
Við drulluðum upp á bak í
þessu fokking "Ísbjargarmáli" háttvirtur
þingforseti.
Og það finnur bara ekki nokkur maður
í neinum stjórnmálaflokki
"skeinpappír" í þessari endanleysu,
svo við bara stöndum hér og röflum og
röflum....
og röflum...háttvirtur þingforseti".
"Erum verri en staðir asnar, herra þingforseti
í málaflutningnum...og getum auðvitað alls
ekki greitt atkvæði um "fokking Ísbjargasamninginn"
í kvöld...það er algjörlega óásættanlegt, herra þingforseti"!
"Og sökkvum dýpra og dýpra í Ísbjargardrulluna
með hverri BLAH-RÆÐUNNI af fætur annarri, herra þingforseti"!
"Þetta eru ótrúleg vinnubrögð, herra þingforseti...og
allt kommúnistastjórninni að kenna, herra þingforseti"!
Djísuss!
Veit þetta fólk í imbanum að röfla niður á þingi,
hvernig það kemur fyrir?
Og síðan hvenær urðu stjórnir sjálfstæðisflokks
og framsóknar/sjálfstæðisflokks og samfylkingar annars vegar,
og samfylkingar og vinstri grænna hins vegar, "kommúnistastjórnir"?
En þetta eru einu flokkarnir sem hafa verið við
stjórn síðustu 20 ár, eftir því sem húsfreyja best veit.
Og þeirra er frjálshyggjan, með bankaeinkavæðingu og útrás....
og svo seinna bankahruni, "Ísbjargarkreppudans" og kreppufári.
Er einhver leynilegur "kommúnistaflokkur" á Íslandi í dag?
Sem sestur er í stjórn landsins í óþökk við guð og frónverska þjóð?
Og þá máske "nasistaflokkur líka"?
Sjíss!
Húsfreyja er farin inn í rúm með góða jólabók,
konfektmola og eyrnatappa.
Neitar að hlusta á svona kjaftæði, þrugl og
endaleysu.
Skiptir engu hvaða flokkur/flokkar stjórnar.
Ísbjargardrullan er komin til að vera...þökk sé
ofurfrjálshyggju, einkavæðingarugli og útrásarspillingu
síðasta áratuginn eða tvo.
Á þinginu geta svo menn og konur gert sig að fíflum
með dómsdags bulli um að "stjórnin" á litla Fróni
sé búin að fokka öllu til helvítis ALEIN.
Sök bítur sekan.
Kjaftavaðall..."og ekki benda á mig", dylur þá staðreynd ekki.
Húsfreyja verður því þakklát til æviloka,
að hafa ekki orðið "þingforseti"!
Góðar stundir.
![]() |
Icesave-umræðu lýkur í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2009 | 16:37
Ó, heilagi banani!
Og svo var hann bara étinn.
Ó vei!
Ætli æðsti biskup breta og öll hans klerkastétt liggi ekki
í yfirliði yfir vondum örlögum Jesú-bananans?
Er máske páfinn búinn að frétta af þessu?
Verða bananar helgir gjörðir, og bannaðir til
átu um gjörvallan heim?
Svona "hreinn" matur, sem yrði þá andsvar kristinna
við "óhreina" svínakjötinu annarra trúfélaga?
Hvað veit maður?
En húsfreyja vonar að sú breska hafi haft rænu
á að geyma bananahýðið, því ekki alls fyrir
löngu seldist "sultubrauðsneið" með MYND
af "heilagri Maríu" í sultunni, á morð fjár...samt var búið
að bíta í hana.
Og einhver mannvitsbrekkan í henni Ameríku
fór líka með "steikarapönnuna" sína drulluskítuga
í fjölmiðla ekki alls fyrir löngu,
því í fitugumsinu birtist mynd af
Jesú þá búið var að steikja hammarana.
Jamm!
Húsfreyja er með myndir af Jesú, Maríu og
Davíð Oddsyni inni á baðherbergisgólfi sínu.
Það sjá allir heilvita menn sem nenna að
dást nokkra stund að gólfflísum hennar þá
þeir skila af sér.
Bara blasa við í mynstrinu!
Dabbinn að vísu töluverða "vegalengd" frá
þeim heilögu hjúum.
En reyndar eru þar líka myndir af úlfalda,
einhyrning og lúðu svo fátt eitt sé nefnt.
Humm!
Húsfreyja ætti máske að plokka upp eitthvað
af sínum baðherbergisgólfflísum og skella
til sölu á netinu?
Þessar líka fínu myndir!
Þó varla reikni hún með svo mikið
sem krónu fyrir myndina af Dabba.
Já! Og einu sinni birtist þessi líka flotta
mynd af Geir Haarde á kavíarbrauðsneið
húsfreyju..... húsfreyja flýtti sér að
snöfla henni í sig.
En gaman að þessu.
Dást að baðherbergisflísunum næst.
Góðar stundir.
![]() |
Jesús birtist á banana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2009 | 15:46
Aðfangdagur-jólasaga?
Það var niðamyrkur.
Kalt.
Læðan reikaði sármóðguð
um íbúðina.
Skellti klónum niður í parkettið í stofuni
svo small í.
Ekkert gerðist.
Ekkert lát varð á svefnhljóðum þeirra "tvífættu hárlausu"
á svefnsófanum í stofunni.
Allir sváfu vært.
Læðan dæsti mæðulega.
Rölti inn í svefnherbergið.
Stökk upp í gluggakistu.
Tvífætta, hárlausa "þjónustan" hennar bærði ekki á sér.
"Asskotans leti alltaf í kerlu", læða mjavraði pirruð og hnusaði
af dótaríinu sem alltaf var búið að troða í skó af "tvífætta, hárlausa
leikfélaga" hennar þessa síðustu nætur.
Sperrti eyrun, pírði skörpum kattaraugum út í náttmyrkrið.
Kolsvartur hrafn sveif tignarlega yfir hamraborginni í
tunglsljósinu.
Læðan veifaði skottinu veiðilega.
"En hvað var nú þetta" hljóð barst frá hjónarúminu.
Læðan stökk niður á gólf, settist á óæðri endann og beið.
Húsfreyju var að dreyma.
Mjög MERKILEGAN draum, með góðum draumanöfnum, táknmyndum
og alles.
Var að reyna að festa sér í minni alla atburðarás draumsins,
svo ekkert gleymdist.
PIKK, PIKK!
"Verð að muna eftir þessu...." húsfreyja í svefnrofum.
PIKK, PIKK!
"Nei, á ekki að vakna strax, klukkan er ekki búin að hringja,
þarf að muna drauminn...."
PIKK, PIKK.
"Mamma"!
Röddin hvíslandi en ákveðin.
Húsfreyja reyndi í örvæntingu að festa í minni sitt
hratt hverfandi þræði draumsins...
"MAMMA"!.... hátt og snjallt.
"Hvenær átt þú eiginlega að fara í vinnu"?
Og svo örlítið ásakandi: "Ég er búin að vera vakandi HEILLENGI".
Húsfreyja var vöknuð.
Draumurinn merkilegi horfinn inn í "draumgleymskubrunn eilífðarinnar".
Hún kveikti smá týru á lampa sínum.
Átta ára djásnið sat í rúminu og horfði hvasst á hana.
Læðan sat á gólfinu fyrir neðan rúmið og horfði hvasst á hana.
Húsfreyja gjóaði augum á vekjaraklukku sína.
"Já, en ég á ekki að vakna fyrr en eftir 5 mínútur".
"Jólasveinninn er búinn að koma" átta ára djásninu
slétt sama þó móðirinn hafi vaknað heilum 5 mínútum
fyrr en venjulega á Aðfangadagsmorgun.
Djásnið stökk út að glugganum og fór að bjástra við
jólasveinaskógjöf.
Læðan skellti framfótum upp á rúmskörina..."mjaaaaavvvrrr"!
Húsfreyja stundi pirruð yfir týndum "góðdraumi" sínum og
5 mínúta svefntapi, sveiflaði sér fram úr og klæddi sig.
Djásnið alsæl með dótarí frá sveinka elti hana fram.
Læðan alsæl með að "tvífætta, hárlausa þjónustan" hennar væri
loks komin á lappir, elti hana fram.
"Mamma, JÓLIN eru í dag". Björt eins og júnísól í heiði, djásnið.
Múttan muldraði eitthvað...."jmm..þðrrrétt".
Læðan nuggaði sér utan í fætur húsfreyju,
húsfreyja nærri dottinn.
Húsfreyja leit framan í eftirvæntingafull andlit
djásnsins og læðunnar.
Brosti.
"Já og góðan dag elskurnar mínar", húsfreyja hló.
"Það er svo sannarlega Aðfangadagur Jóla í dag"!
Græjaði djásnið með morgunmat og sjónvarp.
"Sssss ekki vekja afa og ömmu í svefnsófanum".
Læðuna með hreint vatn og mat í dallinn.
Kvaddi og skellti sér út í bíl í vetrarfrostinu og myrkrinu.
Krummi ýfði á sér fjaðrirnar hreykinn upp á ljósastaur.
Húsfreyja glotti..."krummatetur, krummagrey" sendi hún
honum jólakveðju í huganum.
Ætlaði að aka af stað til vinnu, þegar nágrannakonan
veifaði henni í ofboði.
Á leið til starfa líkt og húsfreyja, en hennar bifreið illa
"farlama" með sprungið dekk.
Húsfreyja reddaði nágrannakonu í vinnuna, þrátt
fyrir að tíminn væri að hlaupa frá húsfreyju.
Mætti á heimili öldunga heilli mínútu fyrir klukkan átta.
Það var spenna í loftinu, og fleiri en átta ára djásnið
og læða höfðu vaknað snemma á Aðfangadag.
Það loguðu 3 bjöllur, og allir vildu komast á fætur sem fyrst.
Tveir starfsmenn veikir.
SJITT.
Húsfreyja svitnaði.
Hvern fengi hún til að koma á aukavakt á Aðfangadagsmorgun?
En.....HALLELÚJA!
Ein yndisleg kona frá Litháen hafði skrifað sig í "Extravaktabókina"
og mætti galvösk.
Húsfreyja skipulagði morgunverkin.
Hverjir gætu farið strax í jólaföt og hverja væri betra að bíða
með að færa í jólafötin fram yfir hádegi.
Skráði brottfaratíma sinna öldunga með ættingjum heim,
gaf lyf, augndropa og skipti á sárum.
Græjaði mat um slöngu og gaf einum öldungi,
sem ekkert má borða né drekka.
Knúsaði og kyssti sína öldunga alla og óskaði Gleðilegra Jóla.
Ræddi við heilan haug af ættingjum, útdeildi jólakortum
og eftir hádegi fór húsfreyja í borðsalinn.
Dró þar til borð til og frá, raðaði upp og dekkaði
með jóladúkum, kertum skreytingum og leirtaui.
Starfsfólkið var á þönum með Húsfreyju.
En allir glaðir, þótt mikið væri að gera.
Og heim komst húsfreyju um fjögurleytið.
Beint í jólabaðið, í jóladressið og svo til kirkju.
Ljúf og jólaleg stund í Grafarvogskirkju, þó við lægi að
húsfreyju rynni í brjóst.....vantaði jú heilar 5 mínútur í
nætursvefninn.
Barnakórinn var yndislegur og Egill Óla tók "Helga Nótt" með
stæl, eins og hans var von og vísa.
Átta ára djásnið var þreytuleg í kirkjunni, en ekki að sjá
neinn þreytuvott á henni þegar heim kom.
Bóndi og tengdó höfðu eldað eðal hamborgarahrygg,
og tengdamútta bauð upp á heimaeldað laufabrauð.
NAMM.
Læðan fékk sinn pakka fyrst.
Eitthvað æglegt dótarí sem ilmaði af "KATNIP" og skrjáfaði
svo skemmtilega.
Læðan tapaði sér alveg, og djásnið hló svo mikið að
hún gleymdi næstum restinni af pakkahrúgunni.
En almenn pakkaopnun hófst að lokum, og djásnið
ljómaði bjartar en allar jólastjörnur himins til saman.
Fékk dúkkuhús, fín föt, 4 bækur, styttur, Pet shop-dót, DVD með
Sveppa og Villa..."bara allt sem mig langaði í, mamma"!
Og svo: "Þetta voru góð jól, mamma"!
Liggur nú í sjónvarpssófanum og les "Prinsessuna á Bessastöðum"
eftir Gerði Kristnýju.
Fullorðna fólkið er einnig dottið í jólabækurnar.
Húsfreyja er sæl með sín jól, og er alveg búin að jafna sig
eftir að hafa tapað 5 mín. af nætursvefni síðust nótt.
Fékk margar fallegar jólagjafir......
Er bara eitt.....
Mikið rosalega langar húsfreyju að vita hvað hana var að
"dreyma" aðfaranótt Aðfangadags....!
GLEÐILEG JÓL og eigið ljúfar jólastundir.
![]() |
Jólasveinninn í önnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2009 | 17:16
Viðskiptavild!
Það fer ískaldur hrollur niður eftir baki
húsfreyju, bara við að berja orð þetta augum.
Viðskiptavild.
Hljómar eins og bullorð sem búið hefur verið til
í þeim tilgangi einum að svíkja og pretta náungann og
mergsjúga banka og fyrirtæki svo eigin gróði VAXI og VAXI!
Kann lítið í viðskiptamáli húsfreyja, og miðað við núverandi
kreppu, bankahrun og útrásavíkingaóáran virðist
ekki nokkur annar skilja mikið í því heldur.
"Þetta bara gerðist"!
"Fór bara allt til helvítis"!, eru vinsælar útskýringar útrásarvíkinga
og fyrrum bankaeigenda á málunum.
Máske verður ríkisstjórnin að fá færa íslenskumenn
til að "smíða" skiljanlegt "viðskiptatungumál",
þar sem ALLIR skilja hvað er í gangi.
Og ekki verði lengur hægt að stofna félag B
sem vill kaupa félag A, B fái síðan lán hjá
félagi A, því B á bara smáaura, til að kaupin
gangi í gegn...og VOILA!
A lánar B, svo B geti keypt A...og svo eru
auðvitað A og B sameinuð.....og skuldin
gufar upp í "viðskiptavild"!
Megn skítalykt af þessu öllu saman.
Fyrir utan að þetta er bara RUGL!
Engin furða að allt sé komið til "þess í neðra",
hafi frónverskir útrásarvíkingar hegðað sér svona.
Húsfreyja getur ekki ímyndað sér að frónverskir
viðskiptamenn séu stoltir af því að stunda svona
endaleysu og brask.
Og leyfir sér að efast að þetta sé löglegt....altént er þetta
siðlaust að hennar mati, svo ekki sé meira sagt.
Jamm, svo mörg voru þau orð.
Góðar stundir.
![]() |
Flett ofan af íslensku aðferðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2009 | 18:40
Óspjallaðar meyjar?
Hvað er svona mikilvægt
við "óspjallaðar" meyjar?
Eða "hreinar" meyjar, ef fólk kýs heldur?
Hvað er í gangi með það mál?
Það þykir harla ómerkilegt að vera
"hreinn sveinn", jafnvel til minnkunar
eða skammar í sumum þjóðfélögum,
Því er þá svona mikil áhersla á "meydómi"
kvenna?
Vilja karlar svo ákaft tryggja það að "afkvæmi"
konunnar er þeir kvænast, sé þeirra eigið,
að "meydómur" er gerður að stórmáli?
Ekki getur húsfreyja séð fyrir sér að
kynlíf með hreinni mey sé svo eftirsóknarvert.
Allt vaðandi í slímugum, rauðum likamsvessa,
og konan sjaldnast að njóta nokkurs vegna sársauka.
Og þó nokkuð tryggt sé að verði kona barnshafandi fljótlega
eftir fyrstu mök, að barnið sé getið af karli hennar,
þá er engin trygging til fyrir því að kona hans
gamni sér ekki seinna meir með öðrum manni,
og geti með þeim manni barn/börn.
Svo hvað er málið?
Dugir þá að vera nokkuð öruggur með faðernið
á einu barni?
Önnur börn svona aukatriði?
Nei, bara svona pæling.
Húsfreyja getur ekki séð að boðskapur
Jesú Krists um kærleika verði nokkuð slakari
þó að hann hafi verið getin með "jarðlegum"
hætti af Maríu og Jósef.
Boðskapurinn jafn tær og góður fyrir því,
þó ekki hafi komið "sæði frá heilögum anda"!
Svo hvaða ekkisens máli skiptir þetta?
Hvaða "hreina meyjar"-kjaftæði er þetta?
Börnin "okkar" eru börnin "OKKAR" hvort
sem að við höfum getið þau sjálf,
þegið gjafasæði eða ættleitt þau.
Jafnvel börnin sem getin eru í framhjáhaldi
eru velkomin, því það er ekki þeim að kenna
hvernig þau komu undir.
Og börnin eru BESTA gjöf GUÐS til okkar mannanna,
og húsfreyja telur að það böggi ekki GUÐ nokkuð skapaðan
hlut hvernig við stöndum að tilurð þeirra!
Hvort þau verða svo boðberar kærleika á jörð líkt
og Jesú Jósefsson, það er svo annað mál.
Vanda uppeldið, foreldrar...KOMA SVO!
Góðar stundir með börnunum ykkar á jólum!
![]() |
Deilt um meydóm Maríu í Nýja-Sjálandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2009 | 17:45
Teiknaði OFBELDISFULLA mynd...
....og var vikið úr skóla fyrir bragðið.
Jesú á krossinum!
Húsfreyja veit ekki betur en að Jesú
á krossinum hangi "á hálsinum" á
mörgum guðhræddum og rétttrúuðum
einstaklingum um allan heim.
Þyki flott!
Merki um helgi og guðlega andakt.
Kristilegan rétttrúnað.
"Þjáning" Krists á krossinum þar í aðalhlutverki,
lítið pælt í "ofbeldinu".
En svo þegar 8 ára skóladrengur teiknar
mynd sem honum finnst jólaleg og falleg
af Jesú...hann sér þessa mynd jú í öllum
kirkjum, kapellum og guðshúsum mannanna....
og sem hálsfesti hjá mörgum, þá trompast allt.
OFBELDI!
SÁLFRÆÐIMAT!
Er þá Páfinn og katólska klerkastéttin
máske öll í " langtíma sálfræðimati",
ásamt slatta af mótmælendum og
ýmsum öðrum trúarhópum kristinna.
Snargjeggjað "ofbeldisfullt" pakk allt saman.
Svo klikkað að það fyllir kirkjur allar af "ofbeldismyndum"...
þær jafnvel látnar prýða altarið!
Jamm.
Merkilegt atarna í Ameríku.
Húsfreyja er helst á því að peyjinn hafi
blandað svolítið saman páskum og jólum, þá hann
teiknaði myndina, enda telur hún 8 ára börn lítið að pæla
í "þjáningu og ofbeldi" þá þau horfa á mynd af
Jesú á krossinum.
Maðurinn bara hangir þarna svo friðsæll og fagur,
í listrænni sveigju, með dýrðlegan geislabaug um höfuðið.
Með útbreiddan faðminn!
HALLELÚJA!
"Mamma, hann Jesú er bara sofandi, er þakki" sagði húsfreyja eitt
sinn við móður sína í kirkju, og horfði á styttu af Jesú á krossinum
við hlið altarisins.
Þá hefur húsfreyja líklega verið á sjöunda ári.
"Hann er ekki dáinn í alvöru, presturinn segir það, mamma.
Hann lifnaði við og fór heim til pabba síns á himninum"!
Húsfreyja man að mútta hennar brosti að hugleiðingum þessum,
og hvíslaði að henni að það væri nokkuð til í þessu hjá henni.
Svo var það ekki rætt meir.
Það hefur kannski reddað húsfreyju frá því að vera rekin
úr barnaskóla fyrir "ofbeldismyndir",
hvað hún var léleg að teikna hendur og fætur!
Hún teiknaði ALDREI Jesú á krossinum
þá hún skreytti kristnifræðibækur sínar.
Var mun hrifnari af "englum" sem viðfangsefni, enda
hægt að teikna þá í síðum kirtlum sem huldu bæði
hendur og fætur.
Og þurfti ekki einu sinni að lita vængina HVÍTA!
Lét bara pappírinn njóta sín.
Jamm.
Ekkisens endaleysa!
Eða hvað?
Er máske húsfreyja bara í brýnni þörf fyrir
SÁLFRÆÐIMAT?
JEMINN!
Gangið ætíð á Guðs vegum, teiknið krossa, Jesúa og
engla eins og ykkur lystir...verður enginn rekinn
vegna þess hér uppi á litla Fróni.....vonar húsfreyja!
Góðar stundir.
![]() |
Vikið úr skóla fyrir mynd af Jesús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.12.2009 | 18:15
Ellilegir ellismellir...
...þar með á síðasta snúning hér í
voru jarðlífi, á meðan þeir unglegu
geta horft fram á mörg ár enn í miðju
kreppufári?
Sitja þeir "unglegu" máske spekingslegir
yfir sherry-staupi yfir voðafréttum
fjölmiðla af kreppufordæðunni og glotta út í annað yfir
úrræðaleysi yngra fólksins,
á meðan þeir ellilegu rífa í hár sér
af angist og örvæntingu yfir
hroðalegum örlögum afkomenda sinna?
Þeir " unglegu" slá sér svo kannski á lær, og rifja upp
æsku sína þegar "ein 250 ml. flaska full af
hákarlalýsi var eina "nestið" í vinnuna og
"epli" voru framandi ávextir sem aðeins fengust
í verslunum rétt fyrir jól?
Hinir "ellilegu" gráta hins vegar alla tíð glatað
fé eða týndan arf og velta sér upp úr óréttlæti
og grimmd heimsins.....eða hvað?
Jamm, ekki gott að segja.
En sagan úr vinnunni.
Starfsstúlku klæjaði ægilega í
fótlegg inni í matsal, þegar heimilisfólk
hafði nýlokið snæðingi.
Hún bretti upp á hvítar skálmarnar
á vinnubuxum sínum og klóraði....
aaaaaah!
Öldungur með skerta sjón fylgdist
athugull með, og þóttist sjá einhverja
vonda "bletti" á húð starfskonu.
"Þú ættir að bera eitthvað á þetta góða mín"
Gamli ekkert nema umhyggjan.
"Nú, hvað þá"? spurði starfsstúlkan.
"Kattarhland" kom svarið að bragði.
Húsfreyja vill annars ræða örlítið "íþróttaiðkun"
um heim allan í háheilagasta mánuði allra
heilagra mánuða, sem sagt "desember"!
Hér á árum áður man húsfreyja ekki eftir
að fótboltaleikir á útivellum hafi verið stíft stundaðir,
á veturna, og því síður frjálsar íþróttir utandyra.
Eitthvað var samt gaufað og gutlað í inniíþróttum
s.s. handbolta, blaki, sundi, frjálsum innandyra og
þess háttar smotteríi.
EN NÚNA!
Nú er bara allt hringlandi snarvitlaust í ÖLLU sporti,
svo illilega kolbrjálað að venjulegt "hóflega hrifið af íþróttum-fólk" eins
og húsfreyja kemst ekki að tölvuborði dögum saman.
Bóndi húsfreyju situr um kompjúterinn líkt og
bandamenn forðum um Berlín í lok stríðs.
Dirfist húsfreyja að nálgast gripinn, og tylla sér á
blábrúnina á skrifstofustólinn, fer fyrir henni eins og
njósnurum seinni heimsstyrjaldarinnar.
"Skotin á færi"!
Aftaka án dóms og laga!
Eftir 3 sekúnda lestur á málgagninu á netinu:
"ERTU EKKI AÐ VERÐA BÚIN"?
Eftir að hafa setið í 10 mínútur að prenta út
sumarmyndir af átta ára djásninu til að föndra í
jólagjafir og jólakort:
"ÞARFTU AÐ GERA ÞETTA NÚNA"?
Eftir að hafa kíkt á ímeilið í annað skiptið "í vikunni":
"ÞARFTU AÐ SKOÐA PÓSTINN 5 SINNUM Á DAG"?
Húsfreyja spyr:
Hvað með jólaskapið, huggulegheitin yfir kertaljósi
rómantík og gjafmildi?
Hugsanir um ástvini, þarfir þeirra og langanir á jólum?
NEIPP!
"Það er MJÖG MERKILEGUR fótboltaleikur í kvöld.....
Tiger Woods er með hjónabandið í djúpum....djö..
er þetta flott hjá Sölva, bestur í dönsku úrvalsdeildinni....
djísuss...Hreiðarson fékk "gula spjaldið" fyrir það eitt að
ganga eitthvað álappalega af velli.....OLE..börsungar að
gera það gott"!
Jamm.
Húsfreyja á næst "pantaðan" tíma í kompjúter sínum
þann 17. maí 2010 klukkan 17:17 og þá í 17 mínútur.....en bara ef
Hreiðarson hefur lent í leikbanni í 2 leiki
fyrir að snýta sér í átt að dómaranum.
Jamm og jæja.
Aldrei dauður tími á heimili húsfreyju.
Er ALLTAF í boltanum...hvort sem henni líkar betur eða verr.
Samt búin að föndra 2 jólagjafir, skrifa og senda einhvern
slatta af jólakortum, skreyta heimilið og versla helming af jólagjöfum.
Þrífa glugga og taka til í skápum.
Bóndi?
Bóndi þrífur skápa af miklu kappi...í "hálfleik".
Átta ára djásnið er á innsoginu, því það eru jú...
..."að koma jól"....
"Það er'að koma jól"...trallallala.
Góðar "fótboltastundir" á aðventunni.
![]() |
Segja unglega einstaklinga lifa lengur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.12.2009 | 20:48
Stjórnsöm kona?
Nóttin hafði verið annasöm.
Uppsölur og kveisa hjá bónda, með
harðahlaupum á salernið.
Húsfreyju varð ekki svefnsamt.
Átta ára djásnið fékk hroðalega martröð,
og hrökk upp nötrandi og skjálfandi
rétt fyrir kl. 4.
Bóndi þá loks að komast í ró, en
húsfreyja varð að stjákla á fætur,
skella disk í DVD-tækið, og búa um
þær mæðgur frammi í sjónvarpsholi.
Djásnið með mergjaðan kvíðahnút
í maganum, eftir martröðina og náði ekki að
sofna fyrr en rétt fyrir kl. 6.
Húsfreyja blundaði stuttu seinna.
Ræs klukkan 11.
Barnó.
Húsfreyja örþreytt.
Mygluð!
Pirruð!
Húsfreyja straujaði þreytuhrukkurnar úr
andlitinu, skellti sér í bað og fór í skipulagsgír.
Vasaðist í þvotti.
Skipaði djásninu að setja allt sitt óhreina tau
í þvottakörfuna.
Þvoði og hengdi upp.
Bóndi bakk í bólinu eftir "uppsalaskemmtun"
næturinnar.
Reif sængurföt af rúminu, húsfreyja.
Þvoði.
Skipaði djásninu að klæða sig.
Taka til á eldhúsborðinu eftir sig og læra
fyrir jólaprófin í næstu viku.
Djánsið hlýddi í einu og öllu, en gjóaði
athugulum augum á húsfreyju af og til....
konan var greinilega í ham.
Kattarrófan var eitthvað að væflast fyrir fótum
húsfreyju, þrátt fyrir fullan matardisk og nýtt vatn
Húsfreyja tók kött upp, bar fram að sólpallsdyrum,
setti í band og skipaði ketti út!
"Það er fínt veður köttur, þó að pallurinn sé
örlítið blautur. Nú ferð þú út og klórar í staurinn
þinn, fyrr færðu ekki að koma inn aftur".
Húsfreyja smellti aftur hurðinni á eftir sér.
HANA!
Djánsið horfði rannsakandi augum á móðurina....
"hélt konan virkilega að það væri hægt að skipa ketti fyrir"!
Hún fór samt út að stofuglugganum og fylgdist með
athöfnum læðunnar.
Sú ráfaði um pallinn smá stund að leita að þurrum blettum
til að stíga á, settist svo óæðri endann við hliðina á
klórstaurnum og dæsti mæðulega.
Leit ásakandi yfir að stofuglugganum.
Djásnið settist, "hah, þýddi lítið að reyna að stjórna köttum".
Leit íbyggin á húsfreyju sem braut saman þurran þvott í gríð og erg.
Í því stóð kattarrófan upp, teygði sig upp eftir staurnum sínum,
og KLÓRAÐI!
Djásnið starði á köttinn furðu lostin, sem klóraði
í makindum, og kom síðan að hurðinn, mjálmaði...
vildi inn.
Djásnið glotti og opnaði fyrir ketti sínum:
"Jahá, hún hefur sín fyrirmæli"!
Húsfreyja skellti upp úr.
Pirringurinn rokinn út í veður og vind.
Bauð átta ára djásninu í skottúr í Þorlákshöfn,
í leik og fjör með frændsystkinum sínum.
Góðar stundir og munið að stjórnsamar konur í ham
geta jafnvel fengið ketti til að klóra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.12.2009 | 18:25
Nýjan skóflustungumokara?
Ó, nei!
Ekki aftur!
PLÍS!
Var svo asskoti verklegur bakhlutinn
á Hönnu Birnu í dag hér í "mokaradjobbinu"
uppi í Spöng seinni partinn.
Og það þó jörð væri gaddfreðin í 5 stiga frosti.
Ætli hún sé nokkuð farin að hugsa fyrir að "moka"
fyrir nýjum Reykjavíkurflugvelli?
Brýnir máske stunguskófluna á meðan hún upphugsar
"glænýja" staðsetningu á flugvallarófétinu,
og hlær tryllingslega um leið?
En er ekki annars löngu búið að "slá af" alla í borgarstjórn
sem "sýktir" voru af pólitískri spillingu?
Stinga þá í bakið?
Plotta hin hroðalegustu samsæri gegn þeim?
Væna þá um sturlun?
Og það nánast "daglega" um hábjarta "daga"
hér ekki alls fyrir löngu.
"Dagar" pólitískt spilltra borgarstjóra þar með taldir....
og taldir....og taldir.
Ummmm...Villi Vill-einn....Óli F-tveir.....Dagur dúlla-þrír....
"Hættu að telja, þetta er ég".
Og svo mætti "heilög" Hanna Birna fagurlistanna.
Og friðsæld og gleði ríkti aftur innan veggja ráðhússins
við Tjörnina.
Myndhöggvarar allir sem höfðu unnið í akkorði við að
höggva brjóstmyndir af "bakstungnum" fyrrum borgarstjórum
gátu varpað öndinni léttar, og skroppið í langþráð sumarfrí til Spánar.
Jamm.
Þetta var ekta Roy Rogers-hasar í gangi í borgarstjórn, þar sem
borgarstjórum voru brugguð pólitísk banaráð upp á hvern dag
hér í den.
Þjóðhátíð, Jól og páskar hjá öllum grínurum lilta Fróns,
þeir höfðu svo mikið efni að vinna úr, nánast "daglega".
Bara skreppa niður í ráðhús, og menn og konur veinuðu
af hlátri.
Þjóðin veinaði af hlátri.
Og nú vill Óli F. "slá" Hönnu Birnu af!
Brýnir "bakstunguhnífa" í gríð og erg og ræðir "vísbendingar"
um pólitíska spillingu heilagrar Hönnu Birnu.
Myljandi grín, enn og aftur....endalaust.
Jamm.
Okkur fellur alltaf eitthvað til, Frónbúum.
Aldrei "dauður tími".
Og málin eru ALDREI dauð!
EKKERT ÞEIRRA!
Húsfreyja er nánast sannfærð um að
Reykjavíkurflugvöllur verður kominn inn í bakgarð
hennar í fyrramálið....heilög Hanna Birna verður
þar mætt að "moka".
Góðar stundir, og passið vel upp á búrhnífana ykkar.
![]() |
Vill að Hanna Birna víki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)