Nýjan skóflustungumokara?

beltline-groundbreaking-shovels  Ó, nei!

  Ekki aftur!

  PLÍS!

  Var svo asskoti verklegur bakhlutinn

  á Hönnu Birnu í dag hér í "mokaradjobbinu"

  uppi í Spöng seinni partinnWhistling.

  Og það þó jörð væri gaddfreðin í 5 stiga frosti.

  Ætli hún sé nokkuð farin að hugsa fyrir að "moka"

  fyrir nýjum Reykjavíkurflugvelli?

  Brýnir máske stunguskófluna á meðan hún upphugsar

  "glænýja" staðsetningu á flugvallarófétinu,

  og hlær tryllingslega um leiðDevil?

  En er ekki annars löngu búið að "slá af" alla í borgarstjórn

  sem "sýktir" voru af pólitískri spillinguHalo?

  Stinga þá í bakið?

  Plotta hin hroðalegustu samsæri gegn þeim?

  Væna þá um sturlunPinch?

  Og það nánast "daglega" um hábjarta "daga"

  hér ekki alls fyrir lönguGrin.

  "Dagar" pólitískt spilltra borgarstjóra þar með taldir....

  og taldir....og taldirDevil.

  Ummmm...Villi Vill-einn....Óli F-tveir.....Dagur dúlla-þrír....

  "Hættu að telja, þetta er ég"Tounge.

  Og svo mætti "heilög" Hanna Birna fagurlistanna.

  Og friðsæld og gleði ríkti aftur innan veggja ráðhússins

  við Tjörnina.

  Myndhöggvarar allir sem höfðu unnið í akkorði við að

  höggva brjóstmyndir af "bakstungnum" fyrrum borgarstjórum

  gátu varpað öndinni léttar, og skroppið í langþráð sumarfrí til Spánar.

  Jamm.

  Þetta var ekta Roy Rogers-hasar í gangi í borgarstjórn, þar sem

  borgarstjórum voru brugguð pólitísk banaráð upp á hvern dag

  hér í den.

  Þjóðhátíð, Jól og páskar hjá öllum grínurum lilta Fróns,

  þeir höfðu svo mikið efni að vinna úr, nánast "daglega".

  Bara skreppa niður í ráðhús, og menn og konur veinuðu

  af hlátri.

  Þjóðin veinaði af hlátri.

  Og nú vill Óli F. "slá" Hönnu Birnu af!

  Brýnir "bakstunguhnífa" í gríð og erg og ræðir "vísbendingar"

  um pólitíska spillingu heilagrar Hönnu BirnuWhistling.

  Myljandi grín, enn og aftur....endalaust.

  Jamm.

  Okkur fellur alltaf eitthvað til, Frónbúum.

  Aldrei "dauður tími".

  Og málin eru ALDREI dauðAngry!

  EKKERT ÞEIRRA!

  Húsfreyja er nánast sannfærð um að

  Reykjavíkurflugvöllur verður kominn inn í bakgarð

  hennar í fyrramálið....heilög Hanna Birna verður

  þar mætt að "moka"Tounge.

  Góðar stundir, og passið vel upp á búrhnífana ykkar.

 

 

 


mbl.is Vill að Hanna Birna víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband