Indversk lestarklósett?

2097610302_9c08ea9d578  Eitthvað fara þessi

  "botnlausu" lestarsalerni í

  hinu íðilfagra veldi Indverja

  fyrir brjóstið á húsfreyjuErrm.

  Svona svipað og þegar hún frétti

  að geimfarar létu gossa úr salernum

  í geimferjum og geimstöðum á sporbaug

  um móður jörðPinch.

  Fannst húsfreyju hálf ónotalegt til þess að

  hugsa að hland sé á sveimi um móður jörð,

  og svo ekki sé minnst á stöku "brúna" lortaSick.

  Sá hún jafnvel fyrir sér, að þegar traffík um himingeiminn

  fari að aukast, og búið verður að gera hálfan mánann að

  "sumarleyfisparadís" (alltaf sólskin á þeim helmingnumTounge),

  að móðir jörð eignaðist sinn eigin "hring" líkt og

  Satúrnus.

  Nema að "hringur" móður jarðar yrði úr "ljósgulu hlandi"!Shocking 

  BJAKK!

  En aftur að lestarsalernunum hinum indversku.

  Nú hefur löngum verið "töluvert" um lestarsamgöngur

  í Indlandi, enda Bretinn seigur að leggja járnbrautateina,

  þá Frónbúar bjuggu enn í torfkofum, og stöku timurhúsi,

  og kunnu lítt á hryðjuverk í Bretaveldi og því síður á lestarHalo.

  Voru þá Bretar herraþjóð Indlands, og spiluðu póló á

  milli þess sem þeir sveifluðu svipunum yfir innfæddum

  er bjástruðu við að leggja lestarteina nótt sem nýtan dag.

  Eitthvað voru vegalengdir allar meiri en á eyjakríli

  því sem Bretar kalla föðurland, svo æ oftar kom það

  upp að mönnum þeim  "varð brátt",  er ferðuðust um Indland í lestWhistling.

  Svo salernum var snarað upp í einum grenjandi hvelli

  í lestunum...BOTNLAUSUMPinch.

  Og virðast enn BOTNLAUS á 21 öldinni, þrátt fyrir að

  breskurinn hafi horfið á brott til annarra og betri verka,

  eins og að gera "heila þjóð" að hryðjuverkamönnum úti

  í ballarahafiSidewaysBandit.

  Nú geta varla verið "safnþrær" eftir endilöngu lestarteinakerfi

  Inverja, svo líklega lendir þvag, saur og skeini á milli teina,

  og "flögrar"  svo einhvern spotta um nágrennið, og sér í lagi þá

  hreyfir vindSick.

  Margt er um manninn á Indlandi og margir fara með lestum.

  Og mönnum verðu mál!

  Þá spyr húsfreyja:  Eru lestarteinar inverskir og nánast umhverfi

  ekki að verða að stærsta og LENGSTA útikamri jarðar?

  Með tilheyrandi sjónmengun, bakteríugróðrastíum og skítalykt!

  Skeinibréfaslóðin fer máske að sjást utan úr geiminumW00t?

  Og svo eru agnarsmá nýfædd börn að falla ofan í

  öll herlegheitinSick.

  Húsfreyja ímyndar sér að ljósmæður allra landa

  sundli af klígju, þá þær heyra slíkar fréttirShocking.

  Að fæðingarlækna alla grípi "óstjórnleg löngun"

  í Hibiscrub-handþvott upp á olnboga, við fregnirnarPinch.

  Jamm.

  Það þarf að fá BOTN í þetta lestarklósett mál Indverja...

  og "BOTN" er akkúrat málið í ÖLL lestarsalerni þeirraDevil.

  Eða það hefði húsfreyja talið.

  Annars "botnar" hún lítið sem ekkert í svona málum

  yfir höfuð, finnst þetta svona blasa við sem

  "almenn skynsemi", að salerni á ferð verði að hafa BOTN!

  Að hafa þau "botnlaus" minnir hana á "spliff-donk-og-gengju"-grínið

  hér uppi á litla Fróni...sem svo var hægt að kaupa af einhverjum

  gárungum....álíka gáfulegtLoL.

  En góðar stundir og megi öll ykkar ferðaklósett hafa BOTNWink.

 

 

 

 

 

 


mbl.is Féll gegnum lestarklósett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara svo þú vitir af því þá er þetta í öllum lestum sem ég hef farið í í evrópu og þær eru margar.

Laumulesari (IP-tala skráð) 8.10.2009 kl. 19:13

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Oooooo, laumulesari, ekki batnaði það.  Held svei mér þá að ég sé orðin "afhuga" lestarferðum um alla ókomna framtíð!

Sigríður Sigurðardóttir, 8.10.2009 kl. 19:36

3 identicon

Mér fannst þetta full torflesinn texti hjá þér, jafnvel óþarflega torflesinn.

Ég náði nú samt að lesa í gegnum þetta skraut tal og er sammála þér í grunninum en ég hefði líklega notið þess meira að lesa ef það hefði ekki verið svona mikið skraut og lengingar.

Sara Ósk (IP-tala skráð) 8.10.2009 kl. 21:35

4 Smámynd: Sigrún Óskars

það er botnlaus skítalykt af þessu

Sigrún Óskars, 8.10.2009 kl. 22:20

5 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Þakka þér, Sara Ósk, alltaf gott að fá gagnrýni með í bland....var máske heldur "háfleyg" í salernisumfjölluninni...en þar liggur þó grínið sem er iðulega grunntónninn í pistlum mínum.

  Innilega sammála þér kollega.

Sigríður Sigurðardóttir, 9.10.2009 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband