1.12.2008 | 14:15
Herjólfur á hvalveiðum?
Veit húsfreyja vel, ásamt
alþjóð að kreppa ríkir yfir
litlu landi voru.
Og að víða hefur harðnað á
dalnum, og menn farnir að
hafa allar klær úti til að
bjarga því sem bjargað verður.
En að Eyjamenn séu farnir að
brúka Herjólf sem "hvalveiðibát",
svona þegar gott er í sjóinn milli
lands og Eyja, hafði húsfreyja ekki fregnað
fyrr en nú.
Ætli farþegarnir fái ekki þá "hlut" í
veiðinni, svona sem aðstoðarhásetar?
Mútta húsfreyju á þá sjálfsagt eftir
að fá "jólabónus" frá Herjólfi, ferjunni
góðu, því hún er meðal bestu kúnna
Herjólfs.
Eða kannski að hún fái aðeins eina
50 kílóa sendingu af "súru hvalspiki"
eftir áramótin, þar sem "krónan hin
frónverska" er á "floti" úti á hafsjó...
BURT FRÁ LITLA FRÓNI!
Dettur ekki niður úr hor, mútta húsfreyju,
þar með.
Þá dettur húsfreyju í hug, fyrst Herjólfur
er hvort eð er orðið "fjölnota" skip, hvort
ekki mætti taka aðra hverja ferð í að
"slæða" eitthvað af "flotkrónunni" upp
úr sjónum.
Þurrka síðan og hreinsa, og skella svo
inn í "sængur" Frónbúa í staðinn fyrir
æðadúninn sem aðeins útlendingar hafa efni
á að versla á litla Fróni.
Eitthvað svo "létt" og fljótandi í krónunni,
hlýtur að vera hægt að brúka hana til að
hlýja sér á köldum nóttum vetrar.
Mætti svo líka hita og fletja út slatta af krónum,
og nota á sumrin í "malbiksviðgerðir" á þjóðvegi 1.
Svo erlendu ferðamennirnir, er hafa efni á bensíni og olíu
í bifreiðar, geti komist ferða sinna um landið á
þokkalega "holulausum" þjóðvegi.
Verst að ferðalangar milli lands og Eyja verða að
fara að reikna með 8 - 10 tíma ferðum um borð
í Herjólfi, ferju Eyjamanna, þar sem
þetta verður "annasamasta" sjóleið allra tíma.....
hvalir....flotkrónur...allt í bullandi mokveiði í
hverri ferð, enda Eyjamenn frægir fyrir að vera
miklar aflaklær og afbragðssjómenn.
Gott ef Johnsen skellir ekki inn nýju frumvarpi
á þingi um ein herleg og góð "göng" upp á land.....
en þá verður hann áð láta þau enda í hvalastöðinni
í Hvalfirðinum.
Nú! Má altént nota "flotkrónurnar" í þau.
En þetta er nú lauflétt grín hjá húsfreyju svona á
Fullveldisdegi og í vaktarfríi, varð aðeins að fá
útrás fyrir meinlega "grínaragenið" sitt.
Góðar stundir.
Varð hvalurinn fyrir Herjólfi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ætli þær séu ríkisstyrktar?
Hörður Einarsson, 1.12.2008 kl. 23:52
Ja, ekki kæmi það mér á óvart, Hörður!
Sigríður Sigurðardóttir, 2.12.2008 kl. 17:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.