31.10.2008 | 19:33
Fyrirgreiðsla gleðinnar.
Þegar botni er náð, er aðeins ein
leið fær: Leiðin UPP!
Og það er hugboð húsfreyju, að
botni sé náð, og nú blasi aðeins við
þjóðinni stiginn upp á við.
Mörgum mun sjálfsagt finnast
stigahelvítið ógnarlangur, brattur
og erfiður uppgöngu.....
og það er hann.
Atvinnuleysi, launalækkanir, svínslegir
stýrivextir og verðbólgufár hanga á
hverju þrepi, en hann er einnig
skreyttur
blómum vonar, góðvildar og samhyggðar.
Þær verða ófáar áskoranirnar á þessa litlu þjóð vegna
græðgi og kæruleysis þeirra sem áttu að vita betur,
og sem sigldu þjóðarskútunni í strand
og brenndu svo flakið.
En þjóðin mun ekki velta sér upp úr því
hverjir séu sökudólgar og beri ábyrgð.
Það verða "góðærissukkararnir" að eiga við
sjálfa sig og eigin samvisku.
Í íslensku þjóðinni býr mikill kraftur,
þrautseigja og elja.
Sjálfsbjargarviðleitni hennar er viðbrugðið,
og með sameiginlegu átaki mun þjóðin
gera við þjóðarskútuna og koma henni á flot aftur.
Það er engin spurning.
Þjóðin mun þjappa sér saman, spara, aðstoða
náungann, njóta lífsins með fjölskyldu og
vinum, njóta þeirra gæða sem landið okkar gefur
okkur og umfram allt: Njóta GLEÐI.
Því í okkar þjóðarsál býr mikill húmor, hæfileiki
til að brosa þó á móti blási, og sjá það
kómíska í flestum málum.
Að velta sér upp úr reiði, beiskju og vonleysi,
er bara ekki okkar stíll.
Gleðin blívur.
Athugasemdir
ég er sammála - ég held að þjóðin þjappi sér saman og hjálpi hvort öðru. Þú skrifar alltaf jafn skemmtilega
Sigrún Óskars, 1.11.2008 kl. 23:13
Já, og erum þegar byrjuð í "samanþjöppuninni", Sigrún. Verðum í mun sæmilegri málum strax næsta vor, trúi ég, og svo enn betri málum eftir 2 ár. Þakka þér svo hrósið, vinkona, alltaf gaman ef einhverjum finnst skemmtilegt að lesa.
Sigríður Sigurðardóttir, 2.11.2008 kl. 17:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.