Fjármálageir!

Hudson%20Bay  Björgólfur Thor-Seðlabankinn, Dabbi-Brúnn,

  Árni Matt.-Darling, útrás-hryðjuverk,

  Icesave-Glitnir, Kaupþing-Landsbanki,

  Alþingi-fjölmiðlar.

  Ó vei!

  Hringekjan snýst hring eftir hring, og

  húsfreyja sér betur og betur að líklega

  er þetta allt saman "henni sjálfri"  ásamt

  öllum sauðsvörtum almúganum, að

  kenna, hvernig fórCrying.

  Er erkibófi og aðalhryðjuverkamaður

  númer eitt ásamt megin þorra þjóðarinnarBandit.

  Hlýtur bara að vera!

  Því enginn sem sat við stjórn í fjármálageiranum

  kannast við eitt eða neitt.

  Hvorki stjórnarformenn banka, fjármálaeftirlit,

  Seðlabanki, fjármálaráðherra, útrásargaurar

  eða ríkisstjórn hafa grænan grun hvernig á þessum

  á þessum ósköpum standiWhistling.

  Einna helst bent á  brjálað "kaupæði" Frónbúa og

  jafnvel Porchebíla í massavís uppi á litla Fróni.

  Jamm, þetta vissi húsfreyja alltaf, að hún ætti

  eftir að steypa sjálfri sér og þjóðinni í glötun,

  þá hún tapaði stjórn á sjálfri sér í peningasukki

  sínu og fjármálasvínaríi.

  Og það að hún hafi verið í trylltu óráði, með

  42 stiga hita, í nýrnasteinakasti og með

  vanvirka heilastarfsemi vegna takmarkaðs

  framboðs á skjaldkirtilshormóni í skrokknum,

  þá hún tapaði sér í sukkinu og hryðjuverkunum,

  er bara léleg afsökunAngry.

  En man því miður ekki neitt úr mergjuðu æði

  þessu, húsfreyja, og verst þykir henni, ef hún hefur

  nú verslað einn herlegan Porshe í óráðinu, og hefur

  svo gjörsamleg týnt bílnum þá æðið rann af henniFrown.

  Jamm, mikil er sök hennar og ábyrgð.

  Jæja, sei sei, hefur breiðar herðar, húsfreyja

  og axlar þetta ásamt þjóðinni af mikilli elju og

  þrautseigju.

  Því allt fer þetta á einn veg eins og skáldið

  sagði:

         Ég byggði mér hús við hafið,

      og hafið sagði: Ó Key,

      hér er ég og ég heiti

      Hudson Bay.

 

      Í kvöldsins hægláta húmi

      heyrði ég bylgjunnar sog.

      Þannig er þessi heimur.

      Það er og.

 

      Og hjarta mitt fylltist af friði

      og farmannsins dreymnu ró.

      Ég hugsaði um allt sem ég unni,

      og þó.

 

      Í nótt mun ég krókna úr kulda

      í kofa við Hudson Bay.

      Þú mikli eilífi andi.

      Ó Key.

                    Hudson Bay- Steinn Steinarr.

 

              Ó Key! Thumbs Up 

     

 

 








mbl.is Björgólfur segist standa við ummæli sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

þarna liggur hundurinn grafinn - þetta er auðvitað okkur að kenna  það er allavega allir aðrir stikkfrí eins og þú segir.

Sigrún Óskars, 28.10.2008 kl. 00:06

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Jamm, Sigrún mín.  Við erum þvílíkir fjármálasvíðingar og erkibófar með brjálað kaupæði að það hálfa væri nóg!  Og þeir sem stjórnuðu og áttu öll milljarðaherlegheitin eru svo blásaklausir englabossar, sem mega ekki vamm sitt vita....eða það meina þeir.  Ekkert annað að gera í stöðunni en að hegna okkur hressilega með svimandi háum stýrivöxtum

Sigríður Sigurðardóttir, 28.10.2008 kl. 16:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband