5.10.2008 | 13:27
Aurar inni.
Húsfreyja hefur upp á síđkastiđ
leitađ eftir vísum föđur síns, sem
hann átti ćđi margar en skráđi sjaldnast.
Setti múttu sína í máliđ líka,
svo nú hefur töluvert safnast
í vísnasarpinn.
Móđuramma húsfreyju var
stórbrotin kona, skapstór,
hápólitísk, bölsýn og dćmandi.
En átti einnig til glettni, mikla
gjafmildi og gćsku.
Ţá húsfreyja sótti menntaskóla
í Reykjavík á unglingsárum, bjó
hún tvö ár hjá ömmu, og lenti iđulega
í miklum hremmingum, orđaskaki og ţrasi
viđ ţá gömlu.
Enda bar húsfreyja syndir heimsins á
herđum sínum, ţví ţćr voru ALLAR
hennar samkvćmt ömmu.
Húsfreyja reyndi ađ benda ömmu sinni á
ađ ţađ vćri ekki hennar hlutverk ađ
axla allar ţessar syndir, og ađeins veriđ talađ
um einn mann í allri mannkynssögunni,
sem hefđi getađ slíkt.
Sjálfan Jesú, son Guđs.
Hrrrrummmph!
Amma taldi húsfreyju ekki of góđa til
ţess ađ "létta svolítiđ undir" međ Jesú,
og gefa honum frí svona af og til, blessuđum.
Húsfreyja var orđin ansi "beygđ" eftir tveggja
ára ţrotlausa ađstođ viđ Guđssoninn, og var
í ofanálag í ströngu námi í M.R.
Hefđi amma ekki átt góđa daga, ţar sem
bölsýnistjaldinu létti, og glettni og gjafmildi
tóku viđ, hefđi húsfreyja sjálfsagt ekki ţraukađ
mánuđ hjá ömmu sinni.
En amma var séđ kona í peningamálum,
vinnusöm, dugleg og sparsöm.
Gaukađi oft aurum ađ unglingunum,
barnabörnum sínum..."gaf" ţeim peningana,
lánađi aldrei.
Ţessu dáđist pabbi heitinn ađ, ţví í óđaverđbólgu
voru flestir fastheldnir á sína aura,
og ţá fćddist ţessi vísa hjá pabba:
Hermannía á réttum kil
heldur skútu sinni.
Alltaf eru aurar til
einhvers stađar inni.
Sigurđur Guđmundsson.
Og ţó ađ pabbi húsfreyju og amma elduđu stundum grátt silfur
saman, var amma hennar ánćgđ međ vísu ţessa.
Ţví alveg sama á hverju gekk í snarbrjáluđu
árferđi óđaverđbólgu, ţá átti amman ALLTAF aur....
...einhvers stađar inni.
Athugasemdir
Góđ vísa og skemmtileg.
Sigrún Óskars, 5.10.2008 kl. 16:10
Ójá ég sko man eftir henni. Gleymi sko ekki Framnesvegi 44. Kostuleg kona.
Kristín Magnúsdóttir, 6.10.2008 kl. 20:15
Ömmur eru stórbrotnar.
góđ vísa hjá Sigga á Eyđum.
Solla Guđjóns, 7.10.2008 kl. 13:28
Ţakka ykkur ljúfastar.
Ó já, amma var skörungur mikill, og gleymir henni enginn sem einu sinni hitti.
Já mér finnst vísan hans pabba bara bísna góđ.
Sigríđur Sigurđardóttir, 8.10.2008 kl. 18:38
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.