29.9.2008 | 13:27
Vanvirk grjótmulningsvél!
Það var fimmtudagur.
Húsfreyja var kominn á fætur
um hánótt, grútmygluð af syfju
og utan við sig og á ská.
Var eiginlega meira að pæla í
því afhverju annar inniskórinn
hennar var í svona furðulegri stellingu
"á grúfu" fyrir neðan rúmstokkinn,
heldur en því hvað hún sjálf var eiginlega
að vilja upp á dekk, "vakandi" á þessum
líka óguðlega tímanum.
"Ætlarðu ekki að klæða þig"?, bóndi
húsfreyju, þegar klæddur og að raka yfir
skeggbroddana.
Húsfreyja gjóaði pírðum augum á úrið sitt,
"03:45"!
Þetta meikaði engan sens, ennþá hjá húsfreyju.
"Var kannski kviknað í húsinu".....?
"Nah, þá væri bóndi ekki að raka sig í friðsemd,
heldur æddi um eins og naut í ati á Spáni".
Húsfreyja leitaði dauðaleit í "skjalkirtilsvanvirku"
heilabúi sínu....smá ljósglæta....ferðalag.....Prag!
"Uuuu...Jummmm" umlaði húsfreyja. Snérist í
nokkra hringi við rúmstokkinn...ferðafötin hvar?...
....sokkar, jú....engin peysa....afhverju var
inniskórinn svona dapur?......
Bóndi aftur í dyrunum, horfði á skopparakringlutilburði
konu sinnar...."Ertu ekki búin að taka pilluna þína"?
Rasandi spurnarsvipur húsfreyju kom upp um hana.
"HVAÐA pillu"??.
Bóndi dæsti af óþolinmæði..."þessari við lata
skjaldkirtlinum, sem þú ert nýbyrjuð að taka"!
"Sjíss", heilabú húsfreyju náði loks RÆSINGU, og
hún tölti fram með hraði á einum sokk, svörtum síðbuxum
og brjóstahaldara.
PILLAN!
Tengdó lágu sofandi í svefnsófanum frammi,
barnapíur sjö ára djásnsins.
Húsfreyja skellti í sig pilludótinu, og gretti
sig ægilega.
Svaðalegt að vera fara til útlanda utangátta
og hálf tæp í minninu vegna vanvirks skjaldkirtils.
"Á eftir að gleyma öllu, og týna öllu í ferðinni og
slútta svo ferðinni með því að vaða beina leið
í veg fyrir strætó á fullri ferð", húsfreyja var
sótsvört af hrikalegum stórslysaspádómum
um sjálfa sig og eigin getu.
"Hmmmm...fyrsta skref að klára að dressa sig
upp", húsfreyja skellti sér í skipulagsgírinn.
"Kona á brjóstahaldara og einum sokk gleymdi
vegabréfi heima og týndi flugmiða og farangri
í Leifsstöð, ÁÐUR en hún komst út í flugvél til Prag"
verður annars á forsíðu málgagnsins á morgun,
hugsaði húsfreyja og glotti.
Svo var að muna eftir djö....pilludraslinu sem
læknir hafði skrifað upp á fyrir húsfreyju, ef
svo illa lukkaðist til að hún fengi eitt herlegt
nýrnasteinakast í miðjum göngutúr um gamla
bæinn í Prag.
"Ja, svei"!
"Vanvirk grjótmulningsvél á flugi í háloftunum
yfir litla Fróni" verður svo fyrirsögnin á ferðasögunni,
hugsaði húsfreyja. -DÆS-
Merkilegt nokk, húsfreyja KOMST til Prag, með allt
sitt hafurtask, pilludótarí, bónda og bara nokkuð
sómasamlega klædd.
"Það er nú bara mér og pillunni að þakka" læddi
bóndi út úr sér.
O jæja. Húsfreyja gekk altént undir sjálfri sér,
kunni að tékka sig inn ennþá, rataði á "geitið"
út í flugvél og mundi að Prag er í Tékklandi.
Það er allnokkuð, pilla eða ekki pilla.
En nóg í bili, ferðasagan næst.
Athugasemdir
ahhha Sigga sigga !!!
Ég hef fengið vísbendingu um að þú sért komin heim ..........hvað sem öðru líður.
Solla Guðjóns, 1.10.2008 kl. 13:43
Knús á þig vinkona.
Sigríður Sigurðardóttir, 3.10.2008 kl. 18:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.