24.9.2008 | 17:24
Að geta skitið í rétta....
...átt, hlýtur að vera töluvert forgangsatriði
þeirra heittrúuðu.
Sjálf vill húsfreyja helst "gera stórt"
í blíðviðri, á fullu tungli milli fjögur og fimm
síðdegis á föstudögum.
(Aðra daga er þetta bara venjubundið puð og
ekkert varið í það).
Er ein af hennar "helgustu stundum" þá
hún nær þessum þáttum saman á einum
og sama deginum....mmmmm...þvílík sæla.
Ekki eitt einasta lambasparð, og allt rennur
eins og smurt í salernið.
Er hún jafnan upp á kant við annað heimilisfólk,
ef það vill hertaka salerni hennar á þessum
stundum, enda næsta vísta að allt fari "í hart"
eða þá jafnvel "steinsmugu" með tilheyrandi
rauðum og sárum botni.
Asskoti gott hjá "tjallanum" að vera svona
pottþéttur með salerni og salernisaðstöðu,
á Ólympíuleikum....kannski að húsfreyja
verði sér úti um breskan klósetthönnuð,
næst þegar endurnýja þarf á baðherbergi hennar.
Ólympíusalernin snúi ekki að Mekka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er huggun harmi í að önnur trúarbrögð hafi ekki tekið sér einkaleyfi á hinum 3 höfuðáttunum. Kristnir snúa annars kór kirkna í austur mót sólarupprás, svo þessi hefð er svo sem ekki sér Islömsk. Kenjar þessara Múslima eru annars farnar að fara í taugarnar á mér. Þetta einstefnuumburðarlyndi, sem þeir heimta stöðugt á sér ekki nokkurn vitrænan grunn. Kannnski fara þeir að heimta það hér að öllum almenningssalernum verði snúið í norður suður. Fyrst einbeita þeir sér þó að risamosku fyrir þessa 370 múslimi, sem búa hér. (annars var félagafjöldi í félagi múslima aðeins 78, þegar sótt var um þessa 4500 fm lóð eða um 60 fm á haus.)
Jón Steinar Ragnarsson, 24.9.2008 kl. 19:58
Jamm, þetta með höfuðáttirnar hefur sem betur ekki verið mjög áberandi í öðrum trúarbrögðum en islam, en það skipti máli hvernig salerni snúa, er bara fornleg kredda og argaþrugl að mínu mati, sem ber að gera stólpagrín að.
Ætli það fylgi salerni "hverjum" 60 fermetrumm tilvonandi moskvu?
Þakka þér kærlega innlitið.
Sigríður Sigurðardóttir, 24.9.2008 kl. 20:31
niður skal hann allaveg.Norður og niður ... ætli það sé í lagi
Solla Guðjóns, 25.9.2008 kl. 10:24
Við hér á vesturlöndum erum alltaf að gefa meira og meira eftir fyrir tetta múslimadrullupakk! Hvað eru mörg ár í að við bönnum áfengi og svínakjöt hérna? Ég veit ekki hvað tað er langt í tað enn ég veit tað að tað er styttra enn margur heldur, tví miður.
óli (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 19:55
Erum við ekki að grínast með þetta... gúrka í gangi! En samt skemmtileg frétt. En frænka, þú veist að þú varst að blogga um hægðir, fáum við samt ekki nóg af þeim í vinnunni?!?
Kristín Henný Moritz, 29.9.2008 kl. 00:05
Jamm, Sollan mín...og það er aðal málið...að hann fari NIÐUR! Skítt með áttina.
Bara grín í gangi frænka, hvað mig varðar.
O jæja, Óli. Sé að þú ert illur út í heittrúaða múslima, enda þeir hatramir út í vestræna menningu. Er erfitt að eiga við, og ógerlegt fyrir okkur að skilja hvað þeir hugsa, og hví þeir virðast hafna jafnrétti, frelsi, þróun og nýungum.
Sigríður Sigurðardóttir, 29.9.2008 kl. 13:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.