..að hika er sama og að tapa.

perfect-ending-geese  Ef "jólagæsinn" hryndi svona niður

  á veginn fyrir framan hana, á leiðinni

  austur fyrir fjall, einn góðan dag í vetur,

  væri húsfreyja snögg að grípa gæsinaDevil.

  Tæki þetta sem öruggt merki frá Almættinu,

  að hún hefði bara staðið sig bísna vel

  undanfarið, og Almættið vildi með

  gæsinni sýna þakklæti sitt og vinsemd í

  húsfreyju garðHalo.

  Væri svona jólaglaðningur "slash"

  kreppustuðningur við húsfreyju í harðnandi

  kreppuóráðsíu og verðbólgufáriJoyful.

  Tæki húsfreyja ekki nokkuð mark á

  argandi og gargandi, haugskítugum

  karlpeningi á hlaupum með skotvopn á loftiGetLost.

  Teldi hún næsta víst að þeir hefðu uppgötvað

  að, þeir væru að missa af úrslitaleiknum í

  ensku knattspyrnunni eða tímatökunni í

  Formúlunni eða einhverju álíka, og væri fljót

  að koma sér sem lengst í burtu frá þeim

  djöfulmóð og "gassagangi"Devil.

  Enda næsta víst að all nokkuð er til af

  gæsum á landi elds og ísa, og ættu

  gæsaveiðimenn að geta "séð af" stöku

  gæs til Almættisins og að  það, Almættið

  hefði svo frjálsar hendur með að útdeila

  gæsum þessum á hvern þann stað sem

  það mæti brýnasta þörfinaWhistling.

 


mbl.is Gæsum rænt fyrir framan nefið á veiðimönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Henný Moritz

Kristín Henný Moritz, 23.9.2008 kl. 20:09

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Skondin frétt........nei ætli það væri nokkuð of gott fyrir þig að þvílíka guðsgjöf

Solla Guðjóns, 23.9.2008 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband