BLIND......!

257491725_7e9c993ac3  Húsfreyja er öll í tjóni og í mergjuðu

  sjokki yfir sjónleysi sínu og hrikalegri

  blindu, þá hún reynir að grilla "nakið"

  fólk á fréttasíðum málgagnsins.

  Hún er búin að góna úr sér glyrnurnar

  á meðfylgjandi mynd, með frétt þessari

  í rúman hálftíma, og ekki bólar svo mikið

  sem á "hálfri rasskinn" hvorki kvenkyns né karlkynsShocking.

  Andsk...í útlegð á suðurheimskautalandinuAngry!

  Húsfreyja er nýbúin að kaupa inn tvenn

  herleg gleraugu, til að bæta útsýni og

  lestrargetu, og sér svo bara hálfu verr á eftirW00t.

  Hrikalega fúlt, ef að splunkuný gleraugu

  duga ekki nema mánuð í sennCrying.

  Nema auðvitað að málgagnið sé farið að,

  að birta "sérlegar felumyndir" þá fjallað er

  um nakið fólk, enda sé landinn, að mati þess,

  með eindæmum feiminn, og lítið fyrir að skoða

  nakið fólkGetLost.

  Hmmm... máske húsfreyja reyni að standa á

  höfði fyrir framan kompjúterinn næst, stari út í

  fjarskann og svo á gula leigubílinn fremst...

  og BRAVÓ og SJÁ!  Sá guli er orðinn að

  heilum hellingi af allsberu fólkiDevil.

  Nah!  Ekki þess virði að fara hálsbrjóta sig

  fyrir slíkt.

  Fyrir utan að, næsta líklegt er að bévítans

  nýrnagrjótið húsfreyju væri líklegt til að

  skella sér aftur til ferða við slíkar leikfimisæfingar.

  Sættir sig bara við gula New York taxann sem

  eitthvað hefur villst til Portland, Oregon, húsfreyja.

  Og hver veit nema einhver á málgagninu fíli

  "nakinn" taxa jafnvel og aðrir fíla bert fólkLoL.

 

 

 


mbl.is Nakin á hjólaskautum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband