23.9.2008 | 17:02
BLIND......!
Húsfreyja er öll í tjóni og í mergjuðu
sjokki yfir sjónleysi sínu og hrikalegri
blindu, þá hún reynir að grilla "nakið"
fólk á fréttasíðum málgagnsins.
Hún er búin að góna úr sér glyrnurnar
á meðfylgjandi mynd, með frétt þessari
í rúman hálftíma, og ekki bólar svo mikið
sem á "hálfri rasskinn" hvorki kvenkyns né karlkyns.
Andsk...í útlegð á suðurheimskautalandinu!
Húsfreyja er nýbúin að kaupa inn tvenn
herleg gleraugu, til að bæta útsýni og
lestrargetu, og sér svo bara hálfu verr á eftir.
Hrikalega fúlt, ef að splunkuný gleraugu
duga ekki nema mánuð í senn.
Nema auðvitað að málgagnið sé farið að,
að birta "sérlegar felumyndir" þá fjallað er
um nakið fólk, enda sé landinn, að mati þess,
með eindæmum feiminn, og lítið fyrir að skoða
nakið fólk.
Hmmm... máske húsfreyja reyni að standa á
höfði fyrir framan kompjúterinn næst, stari út í
fjarskann og svo á gula leigubílinn fremst...
og BRAVÓ og SJÁ! Sá guli er orðinn að
heilum hellingi af allsberu fólki.
Nah! Ekki þess virði að fara hálsbrjóta sig
fyrir slíkt.
Fyrir utan að, næsta líklegt er að bévítans
nýrnagrjótið húsfreyju væri líklegt til að
skella sér aftur til ferða við slíkar leikfimisæfingar.
Sættir sig bara við gula New York taxann sem
eitthvað hefur villst til Portland, Oregon, húsfreyja.
Og hver veit nema einhver á málgagninu fíli
"nakinn" taxa jafnvel og aðrir fíla bert fólk.
Nakin á hjólaskautum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.