Lagði til hans með sverði!

061003ninja_560  Út af "uppvaskinu"W00t!

  Samkvæmt þessu ætti minn fóstursonur

  að vera "niðurbrytjaður (af okkur foreldrunum),

  og í salti í tunnu niðri í bílskúr"Shocking.

  Sá góði drengur dífði ekki hendi í sápuvatn,

  nema rétt á meðan hann fór í bað...og þá

  var baðherbergið iðulega eftir hann, eins og 15

  hermenn úr sérsveit Kana að koma heim

  úr leyniför úr frumskógum S-Ameríku, hefðu

  "skolað" af sér í leiðinniWhistling.

  Og húsfreyja braut ekki einu sinn myndramma

  á andlitinu á honum, þau 8 ár sem hann deildi

  með henni húsrými......og "beit" hann aldrei!

  En verður þó að viðurkenna, að hafa ansi oft

  langað að gefa stráki ærlegt spark í rassinn.

  En gerði það ekki einu sinni...svo nú situr

  kærastan uppi með dreng.

  Hefur sú unga kona haft nóg að gera við

  "uppeldi" pilts hvað umgengni í hýbýlum

  varðar, snyrtimennsku og þátttöku í húsverkumWink.

  Húsfreyja lætur það vera, að benda kærustu

  fóstursonar á frétt þessaWhistling.

  Vill síður að kærasta fari á stúfana, og versli sér

  eðal "Ninja-sverð"GrinDevil.


mbl.is Ákærð fyrir líkamsárás í kjölfar rifrildis um uppvaskið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Passaðu bara að hún skili honum ekki......

Lífið er orðið ansi flókið er menn missa sig yfir uppvaskinu...

Solla Guðjóns, 16.9.2008 kl. 19:58

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Engin hætta Sollan mín, skellti á hann "þessari vöru er ekki hægt að skila"-miða, þá hann flutti út.  Já, fyrr má nú aldeilis fyrr vera, ef ekki er hægt að ræða uppvaskið nema með sverð á lofti og myndramma á flugi.

Sigríður Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband