14.9.2008 | 13:44
Hann er lifandi eða dauður...
...eða dauðveikur lifandi...
..nú eða þá bara búinn að vera
steindauður LENGI.
Þetta eru hrikalega margir valkostir fyrir
undirmenn Kim Jong-Il leiðtoga N-Kóreu.
Þeir allir búnir að vera með mergjaðan
hausverk yfir ástandi ástkærs leiðtoga
síns, og hafa ekki hugmynd um hvað ber
að velja, því þeir hafa ætíð búið við "einn
vilja"...þ.e. Kims Jongs....og kunna ekkert
á það að hafa val.
Verst er, að ef "stjóri" er nú ófær að láta
"sinn vilja" í ljós, vegna slæmra lífsógnandi
veikinda eða vegna þess að hann er löngu
dauður, og búið að brenna hann niður í
frumeindirnar í krukku, þá verður þetta
versti og lengsti hausverkur ráðamanna N-Kóreu,
í sögu þeirra litla lands.
Og eins og það sé ekki nóg, þá er "óþjóðalýður"
sá er kallar sig lækna og hjúkrunarfólk, að leka
meinlegum upplýsingum um heilsufar Kims
í japönsku pressuna, og við það hefur hausverkurinn
"tífaldast".
Því er alheimur að skipta sér af "heilsufari" Kims Jong
yfirhöfuð?
Ef undirmenn hans eru lukkulegir með tvífara, sem
hægt er að hafa stjórn á, meðan Jong öðlingurinn er að
berja nestið...liggja banaleguna,
eða á meðan þeir taka ákvörðun
um, hvenær hin viðkvæma þjóð þeirra þoli fréttir
af lífshættulegum veikindum leiðtogans, eða
(hallelúja) andláti hans, þá kemur það bara engum við.
Tvífarinn er flottur!
Bara kúl á "Kim Jong handasveiflunni".
Kim Jong-Il BLÍVUR......lifandi eða dauður.
Kim veiktist í apríl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
halló systir....þó að kim yrði veikur.þurftir þú nú ekkert að vera að herma eftir honum...láttu þér nú batna.....bata kveðjur Árný
arný (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 19:45
Vesen á þér, gangi þér vel. bata kveðjur úr eyjum.
anna systira (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 19:59
Langdregin sjúkdómsgreining þetta.......
Solla Guðjóns, 14.9.2008 kl. 20:59
Sigrún Óskars, 14.9.2008 kl. 22:31
Jamm, sjálfsagt svona "samúðarveikindakast" hjá mér, systur mínar.
Og hvað er lífið án VESENS...erum jú Nóbelsverðlaunahafar í veseni.
MJÖÖÖÖÖÖG langdregin, Sollan mín.
Knús til þín Sigrún.
Sigríður Sigurðardóttir, 15.9.2008 kl. 11:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.