8.8.2008 | 22:28
Húsfreyja mætt....
.....og farin aftur...eða svo gott sem.
Búin að vera í myljandi, ekkisens, brjáluðu fjöri í
sumarbústöðum austan fjalls og norðan heiða.
Í hálfan mánuð!
...Og er boðin í bústað austur fyrir
fjall aftur, í þetta sinn í bústað til systur í Eyjum.
Svooooo..... ef húsfreyja nær að skola mestan
skítinn úr leppum heimilismanna, þurrka og brjóta
saman,
nær andanum eftir bévítans vegarykið á
ómalbikuðum sveitavegum landsins,
hættir að fá mergjaðar martraðir, þar sem húsfreyja
treðst undir kolvitlausum bláberjum í hefndarhug og
fær þá stuttu til að samþykkja ferðalag út úr borginni
við sundin bláu.....AFTUR, er hún líklega á leið í bústað aftur
eftir helgina.
"Sona" aðeins hægt að kíkja á "hýru-stolts-gönguna",
öfunda Eric Clapton-áheyrendur í Egilshöll, og verða
bullandi sjóveikur af fréttum af "sveiflóttu gengi"
krónudruslunnar, á meðan.
Húsfreyja er vel "yfirétinn" af grillmat og brauðmat.
Er hryggur hennar vel "kengboginn" eftir bláberjatínslu í
kílóatali.
Heilabú hennar vel steikt eftir 11 sólardaga af 14,
hitabylgju sunnanlands upp á 29 gráður
og endurspeglun sólarljóss af Vesturhópsvatni,
botnlaust og galið norðan heiða.
Og hljóðhimnur hennar vel þandar og bólgnar
eftir krakkahlátur, grátur, skræki, hávaða og læti.
Sér nú húsfreyja fram á, að henni væri nær að taka sér
5 daga síestu, ALEINNI uppi á grænum hól inni í miðri
Þórsmörk eftir helgina.
Sitja með fætur í kross og jóðla hljóðlega innra með sér:
"Aldrei aftur 3 sumarbústaðir í röð....aldrei aftur 3
sumarbústaðir í röð...aldrei aftur 3 sumarbústaðir í röð.
Verst hve bágt húsfreyja á með að sitja lengi með fætur
í kross...væri annars í áskrift hjá ferðafélaginu inn í
Þórsmörk á sumrin.
En ferðasögur verða að bíða að sinni, húsfreyja þarf í
BAÐ!
Góðar stundir.
Athugasemdir
Það er nú meira fjörið í kringum þig.
Sigrún Óskars, 9.8.2008 kl. 10:19
það er nú meira sumarbústaðalífið á þér kona, og búin með öll bláberin á norðurlandi vestra? eða kanski bara í Kötlunum?
Jæja maður er þá ekki þangað í berjaleit
Guðrún Jóhannesdóttir, 9.8.2008 kl. 18:07
Fjör og sumarbústaðarferðir!! Ég er "EFFIÐ" í fjörinu og "ESSIÐ" í sumarbústaðarferðunum í minni familíu.
Guðrún, ég skildi 3 þúfur fullar bláberjum eftir í Kötlunum handa þér....eru þarna við hliðina á krækiberjalynginu mðe dökkrauða litnum og hjá yfirgefna hrossagaukshreiðrinu, ekki langt frá litla þverveginum kindanna.......jæja, þú finnur þetta, ert alvön.
Knús á ykkur báðar.
Sigríður Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 18:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.