3.8.2008 | 10:53
Sádí-Bannabía?
Hana! Þar fuku gæludýrin.
Ekki langt síðan en það var hin brjóstagóða dúkka, Barbie.
Eiga ekki sjö dagana sæla, unga fólkið í henni Sádí.
Þar er ALLT sem minnir " á hinn minnsta máta" á kynlíf, BANNAÐ!
Mannleg samskipti við hitt kynið BÖNNUÐ
og rómantískir framtíðardraumar BANNAÐIR.
Og nú mega ungir sveinar ekki lengur sýna ungum
dömum í Sádí kisurnar og hundana sína. BANNAÐ!
Hundaræflarnir fara illa út úr þessu....mega ekki lengur
fara í göngutúrinn sinn, til að míga og skíta.
Sér húsfreyja fyrir sér, að farið verði að "hanna" sérstök
"hundasalerni" með hlaupabrettum áföstum og einum
ljósastaur áklesstum við niðursturtarann, í henni Sádí.
Gæti orðið rífandi "buissness" í þessu, svo nú væri kannski
lag fyrir "frónverska" uppfinningamenn að "hanna" og
senda inn "hundasalernishugmyndir sínar".
Senda síðan með "flöskupósti" til hennar Sádí-Bannabíu....
fyrirgefið... Sádí-Arabíu, því líklega verður "allur póstur"
frá vestrænum ríkjum BANNAÐUR nú á næstu dögum,
þar sem óvenjumikið hefur fundist af "vondum"
smyglvarningi með póstinum.
Er nú svo komið að allar "tollstöðvar og tollgeymslur"
þeirra Sáda eru að fyllast að skrautklæddum, brjóstagóðum,
ófétis Barbie-dúkkum....jafnvel svo gróft að ein og ein "Ken-dúkka"
hefur slæðst með.
Eða það ímyndar húsfreyja sér, að sé að gerast í
tolla- og póstmálum þarna úti í henni Sádí.
En sumarbústaðarferð við Vesturhópsvatnið næst.
Gæludýrabann í Sádi-Arabíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Karlmenn í Sádi Arabíu að nota gæludýr til að stíga í vænginn við konur. Eru konurnar svona heilagar þarna að þær eru komnar með vængi? Ég bara spyr? Góð hugmynd með hlaupabrettið
Sigrún Óskars, 3.8.2008 kl. 12:48
snilldarfærsla hjá þér
kveðja af skaganum
Guðrún Jóhannesdóttir, 3.8.2008 kl. 14:01
já, allt er bannað þarna í Sádi Arabíu, ósköp er nú gott að vera ekki fædd þar. Þrumugóður pistill mín kæra
Heiður Helgadóttir, 7.8.2008 kl. 05:50
Jamm, Sigrún eitthvað hlýtur það að vera....því ekki vængir.
Þakka þér, Guðrún mín.
Get aldrei nógsamleg þakkað Guði og góðum englum fyrir að að hafa hlíft mér við því að fæðast í Sádí, Heidi mín.
Þakka ykkur öllum innlitið.
Sigríður Sigurðardóttir, 8.8.2008 kl. 22:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.