Leiðindi eru meinholl!

boy-girl-playingball  Hallelúja.  Húsfreyja er á grænni grein í barnauppeldinuGrin.

  Alltaf hvatt prinsessuna til að finna upp sína eigin leiki, með leikföng

  sín, þá engir eru vinirnir staddir á svæðinu.

  Enda sú stutta orðin ansi seig að skálda upp spennandi atburðarás,

  með "Little Pet Shop"-dóti sínu.

  Ekki ólíkt því sem húsfreyja gerði með dúkkulísur sínar, og Barbie.

  Reyndar voru leikir innanhúss ekki í miklu uppáhaldi hjá húsfreyju, þá

  hún var lítil skotta.  Vildi miklu fremur klifra fjöll og klífa kletta, velta niður

  og vera að detta.  Vera í boltaleikjum úti, brennó og höfðingja, og smella sér

  inn á milli í "Saltað brauð" og "Fallinn spýta".

  Reyndar man ekki húsfreyja eftir því að sér hafi nokkurn tímann leiðst,

  eftir að hún lærði að lesa.  En hún varð strax mikill bókaormur, og las

  jafnvel við tunglsljós.

  Því gleður það húsfreyju mikið, þá prinsessan á heimilinu, skellir

  sér strax eftir skóla út að hjóla eða að leika sér við vininaJoyful.

  Því eldri hálfsystur prinsessu voru mikið fyrir innileiki, pjatt, dúll, glimmer,

  naglalakk og hárskraut.  Hefur prinsessa húsfreyju óneitanlega sýnt

  mikinn áhuga á þess slags dótaríi, en er nú húsfreyju til mikillar

  gleði, heldur að hallast að útileikjum.  En slíka leiki telur húsfreyja

  mun hollari börnum þá vorar á Fróni.  Hreyfing og súrefni saman í

  einum pakka, skapar mikla leikgleði, og fælir ergelsi og pirring frá öllum.

  En svo má alltaf skella sér inn af og til og láta sér "leiðast smá"GetLost, og taka

  foreldrana á tauginni.


mbl.is Börnum hollt að leiðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Ég þurfti snemma að læra að hafa ofan af mér, og varð mikill bókaormur, ekki varð ég verri við það, enda mikið fyrir að vera ein og leiðist sjaldan

Heiður Helgadóttir, 20.5.2008 kl. 17:28

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Já, bækurnar mínar voru og eru meðal minna bestu vina, enn þann dag í dag, Heidi.  Verst hvað tíminn flýgur frá manni, þá maður er í barnauppeldinu, og lítill tími verður afgangs til lesturs.

  Þakka innlitið, mín kæra.

Sigríður Sigurðardóttir, 20.5.2008 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband