9.3.2008 | 20:17
Bara sex milljónir?!
Ekki meira? Jaso. Þetta eru þá sirka 18.000.000 á mig og mína litlu fjölskyldu....ja, nema ég telji kattarrófuna með. Þá verða þetta 24 millur, sem við skuldum
. Það er skárra en ég hélt. Hmmmmm... ég ætti kannski að skella mér í bankann minn, og taka mér "gott lán" fyrir allri upphæðinni fjölskyldunnar, og "málið er dautt"
.
Húsfreyja verið á haus í vinnu yfir helgina. Að vísu gaf hún sér einnig tíma í eitt sjötugsafmæli samstarfskonu, keypti sér inn einar 10 bækur á bókamarkaði Perlunnar og svo amælisgjöf handa Einari "besta vini"! En guttinn varð 7 ára, og Báran og Svalan mættu prúðbúnar til hans með pakka á laugardeginum.
Fréttir af fósturdóttur berast jafnt og þétt. Hún búin að samþykkja að reyna að þrauka mánuð í hinu herlega ríki kínverja. Þar grétu kínverskar aðstoðarkonur hennar af gleði, er hún samþykkti mánuðinn, svo Tinnan skellti sér í næstu verlsun, og fékk sér brillinant fína myndavél. Ætlar nú að mynda í bak og fyrir kínverska menningu. Faðirinn fór og kannaði hvað hraðsending á bókum og harðfiski til Kína kostaði. Litlar 12.000 krónur, og pakkinn kemst til hennar á 7-8 dögum. Bjallaði í Tinnuna, og sagði að sér fyndist dýrt að senda henni glaðning fyrir 12.000 krónur, ef hún væri svo komin heim eftir mánuð. Pakkinn settur í bið, verður svo málið endurskoðað eftir 3 vikur.
Húsfreyja svo í fríi næstu tvo daga, og sest þá kannski niður við að blogga eitthvað af viti.
Sú stutta vill í kompjúterinn.
![]() |
Íslendingar skulda mest í heimi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Takk fyrir vinarkveðjuna.
Kíki á þig og bloggið þitt
!
Sigríður Sigurðardóttir, 10.3.2008 kl. 17:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.