Merkileg menning þetta....

...þarna í henni Sádí.  Læknavísindin eru greinilega mjög aftarlega á merinni þar, fyrst "álög" ólæsrar og óskrifandi konu eru talin aðalorsök "getuleysis karlmanns"!  Altént er þá ekki búið að fræða karlmenn í því landinu, um áhrif blóðrásatruflana, blöðruhálskirtilsstækkana og streitu á "risgetu" limsins.  Og því síður virðast þeir vita um tilvist hins ágæta lyfs, Viagra, sem svínvirkar á margan manninn er á í erfiðleikum með "rísandann"Wink

  Nei, stúta  ólæsum kvenmanninum, eina lækningsráðið sem þeir hafa trú á.  Sjálfsagt ódýrara, en að verða sér út um rándýr vestræn lyf, að kála konunni.  En litla trú hefur húsfreyja á, að Sádakarli þessum fari að rísa hold, eftir aftöku konunnar.  Líklegra er, að hann sjái fram á, að það verði að murka lífið úr öllum hennar systrum og frænkum, svo hann geti aftur farið að gera "dodo" Errm!  Næsta víst, að yfir Abdullah kóng hellist þar með heill haugur af pósti frá  mannréttindasamtökunum, HRW, svo ekki verði séð fyrir endann á næstu mánuði og ár.  Verður lítið úr verki, karlinum,  ef hann stendur í stöðugum bréfaskriftum um ólæs "álagakvendi"!  Jamm, merkileg menning.  Svo ekki sé meira sagt!


mbl.is Sádi-arabísk kona bíður aftöku fyrir galdra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Þú meinar ómenning.

Vendetta, 18.2.2008 kl. 17:59

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Jamm, eða þá það, Vendetta!

Sigríður Sigurðardóttir, 18.2.2008 kl. 18:01

3 Smámynd: Sigrún Óskars

Hún var handtekin árið 2005, núna er 2008. Ætli karlinn sé ennþá undir þessum álögum? Því líkt vald sem þessi kona hefur í þeirra augum, ætli þeir séu ekki bara hræddir við hana . Ef ég væri hún þá væri ég búin að gera alla þessa háu herra getulausa . Skil ekki þessa menningu, enda aldrei reynt það.

Sigrún Óskars, 18.2.2008 kl. 18:11

4 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Váv, 3 ár!!!  Ég vona að kerla sé rammgöldrótt, og að allir karlmenn í 100 kílómetra radíus frá fangaklefa hennar, séu bullandi "getulausir"!

Sigríður Sigurðardóttir, 18.2.2008 kl. 18:16

5 Smámynd: Vendetta

"Ég vona að kerla sé rammgöldrótt, og að allir karlmenn í 100 kílómetra radíus frá fangaklefa hennar, séu bullandi "getulausir""

Þú vilt sem sagt ekki að geiturnar og kindurnar í 100 km radíus fái það....

Vendetta, 19.2.2008 kl. 12:26

6 Smámynd: Vendetta

... en ég vona að þú hafir rétt fyrir þér. Því að þá verður heldur engum litlum stelpum nauðgað á þessu svæði.

Vendetta, 19.2.2008 kl. 12:36

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Ótrúlegt hvað er hægt að gera í skjóli trúarbragða..............Ef konan væri svona göldrótt þá væru allir sem að málinu kæmu löngu orðið steingellt lið.

En sjálf ku ég vera komin af sauðaþjófum og galdrakerlingum að vestan

Solla Guðjóns, 19.2.2008 kl. 14:52

8 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Að geitur og kindur séu karlmenn, er ég ekki viss um að frónverskir herrar samþykki, Vendetta!  En satt er það, litlum stúlkum á svæðinu væri einnig vel borgið.

  Solla mín, þú kannski reddar þessu fyrir þá Sádísku, ef blessuð ólæs konan kann svo ekkert í göldrum......ég meina þú svona vel ættuð að vestan!

Sigríður Sigurðardóttir, 19.2.2008 kl. 17:46

9 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Ja hérna, þetta er nú ekki gæfulegt, einhverri kallrembu stendur ekki, og þá er það auðvitað konugreyinu að kenna, ég gæti vel hugsað mér að senda honum nokkrar krónur svo að hann gæti keypt nokkrar Viagra pillur, ef að það mindi fría konuna frá dauðsdómi. 

Heiður Helgadóttir, 20.2.2008 kl. 16:45

10 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Ja hérna, þetta er nú ekki gæfulegt, einhverri kallrembu stendur ekki, og þá er það auðvitað konugreyinu að kenna, ég gæti vel hugsað mér að senda honum nokkrar krónur svo að hann gæti keypt nokkrar Viagra pillur, ef að það myndi  forða konunni frá dauðsdómi. 

Heiður Helgadóttir, 20.2.2008 kl. 16:47

11 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Jamm, Heidi, er merkilegt að jafnvel "risvandamál" karls, geti valdið "dauða konu" í henni Sádí!  Held að dómskerfi og heilbrigðiskerfii séu ekki alveg að virka þarna, ef líkamlegir kvillar og veikindi hjá körlum, séu eingöngu læknuð með því að handtaka, dæma og lífláta konu.  Væri fátt eitt af konum á móður jörð, ef öll önnur samfélög jarðar tækju sér þetta til fyrirmyndar.

Sigríður Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 19:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband