17.2.2008 | 17:34
Grautfúl súld og tjónavegir.
Við lá að dekk spryngi og/eða öxull brotnaði á leið okkar að norðan nú áðan. Þokudrulla skreið niður við jörð með mergjaðri úrhellis rigningu, skyggni 0-1/2 metri þegar verst lét. Skaðræðis "holur" efnuðust rétt við nefið á okkur í hverri beygju. Sérstaklega var vegurinn suddalega slæmur við Bifröst og þar fyrir neðan, og var húsfreyja ekki hissa þegar frussandi lækur flæddi yfir veginn á einum stað, og hægra bílhjólið skall hressilega ofan í 5 metra djúpri holu, svo dundi við í fjöllum
! Ókei, smá ýkjur hér. En djúp var holan og stór, og lækurinn brúnlitaði var á blússandi fart, rétt eins og hann væri að missa af "stóröldupartýi" við ströndina
. En heim komumst við, með óbrotin bein og bíl, sem er vel.
Var glimrandi góð ferð norður. Svalan og Báran gerðu ítrekaðar tilraunir til að drekkja tengdó í sundi, fótbrjóta alla heimilismenn á Mellandi með dótahöllum í stiganum upp á loft og renndu sér af hjartans lyst í rennblautum bráðnandi snjónum
Kötturinn var allur í tjóni að vanda. Kannaðist ekki við eitt né neitt og æddi um mjálmandi eins og von væri á þriðju heimstyrjöldinni innan stundar, og þar með kæmist hún ALDREI heim framar! Var hamingjusömust í dótageymslu uppi á lofti, bak við ofninn. Er nú löggst endilöng á uppáhaldsrúmstæðið sitt uppi í koju Báru, og sefur vært.
Húsfreyja og hennar heittelskaði spjölluðu við tengdó og aðvífandi gesti, og létu stjana við sig í mat og drykk. Húsfreyja fór reyndar með hljóða bæn til æðri máttarvalda, um að láta það vera að fleyta þorpinu öllu á haf út í vatnsveðrinu, og var "bænheyrð".
Jamm, bara gott að vera til, og allt virðist ætla að ganga húsfreyju og hennar ástvinum í haginn. Að lokum:
Hamingjan er ómetanleg,
en kostar ekkert.
![]() |
Skýjað og súld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Grenjandi rigning hérna líka, og Heimir fór á fótboltaæfingu í þessu veðri...
Kristín Henný Moritz, 17.2.2008 kl. 17:51
Hann fékk þá líka veðrið til þess að æfa fótbolta
! Minnir mig á "drullumallsdagana" okkar systra úti í Eyjum. Mútta sver að hún hafi mokað moldardrullu úr ekki bara eyrunum á okkur, heldur nefi og munni líka
! Og svo hengu brúnir drullukleprarnir í rauðgullnum lokkum okkar, stígvélin voru full og öll föt brún að lit, alveg óháð því hvaða lit þau báru er við fórum í þau um morgunin. En moldardrulla virðist reyndar hafa verið ágætis "hárnæring", allar með brilliant gott hár enn þann dag í dag
!
Sigríður Sigurðardóttir, 17.2.2008 kl. 18:06
gaman að þessu
halkatla, 17.2.2008 kl. 19:41
Já, allta fjör í ferðum norður, Anna
, enda norðanmenn stakir öðlingar heim að sækja.
Sigríður Sigurðardóttir, 18.2.2008 kl. 18:00
Heiður Helgadóttir, 20.2.2008 kl. 16:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.