Annar í þreytu.

  Bísna lúin og þreytt, húsfreyja um þessar mundirSleeping.

Stóðum í stórræðum þann nítjánda, ég og elskulegur maki.

Sú stutta hélt upp á 7 ára afmælið með stælWizard.

Og hafði undirbúningur staðið í heila viku, og sú stutta

sent út boðskort um borg og bí.

Og svona til að "gleðja" foreldrana bauð hún slatta

af eldhressum krökkum úr skólanum "munnlega" líkaGrin.

Svo gestafjöldi var vægast sagt töluvert mikið á reiki,

daginn fyrir afmælið!

Húsfreyja var í léttu "móðursýkiskasti", og gerði bóndann

út af örkinni, að versla fleiri tertur, gos og snakk að morgni

afmælisdagsins.

Sem var vel, því yfir 20 manns mættu í veisluna, þar af 12 krakkarollingar.

En afmælið lukkaðist ljómandi vel, og blöðruhasarinn barst út um alla

íbúð með elskulegan maka sem dómaraWink.

Húsfreyja var lengi vel upptekin af því að bjarga kattarræflinum

frá fjörtjóni, en margar íðilfögru dísirnar er mættu í hófið, voru

heldur fastheldar á kattarknúsið.

Toguðust jafnvel á um kattarrófuna, sem smellti sér í hinn versta

óveðurham, með kryppu upp á 30 metra hæð, og hvæs á 40 metra

á sekúnduW00t.

Klór á höndum varð að lækna hið bráðasta með prinsessuplástri,

og köttur settur í útlegð inn í svefnherbergi...handaklóruðu prinsessunum

til lítillar gleði.

Allt fór samt vel að lokum, og afmælisbarnið geislandi af gleði

fram á rauða nótt.

En húsfreyja hefur verið eitthvað "heldur verri" til heilsu

síðustu tvo daga eftir herlegheitin.

Svona eins og að hún hafi lent undir valtara,

tveimur sekúndum eftir að 10 tonna trukkur ók yfir hana á 100

kílómetra hraðaPinchSleeping.

Svo það er "annar í þreytu"!

-Dæs-

Mikið afskaplega er ánægjulegt að hver einstaklingur á aðeins

eitt afmæli á áriDevil!

Og það fylgir einhver Guðslukka húsfreyju, að hafa

 stílað upp á, að eiga aðeins EITT barnInLove!

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiður Helgadóttir

En sjö ára daman hafði gaman.

Heiður Helgadóttir, 23.1.2008 kl. 15:07

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Óóóó JÁ!  Er þegar byrjuð að plana NÆSTA afmæli...hjálpi mér.

Sigríður Sigurðardóttir, 23.1.2008 kl. 20:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband