ALDREI!

  Mín yndislega sex ára dóttir er mikið fyrir tónlist, og syngur allan liðlangan daginn þegar vel liggur á henni....sem er svona 5-6 daga af 7 dögum vikunnarKissing.  Nú hefur sú stutta tekið sérstöku ástfóstri við dagskrárliðinn "Laugardagslögin okkar" á RÚV.  Hún fylgist ofurspennt með öll laugardagskvöld.  Þrælar föður sínum fyrst upp í sjoppu að versla bland í poka, svo hægt sé að maula eitthvað sætt með, og smellir sér svo í hægindastól húsfreyju..."Sestu hjá mér, mamma" og klappar þegar téður þáttur hefst.  Fær ætíð að kjósa eitt lag með símtali!  Í kvöld var óvenju mikið stuð hjá litlu manneskjunni.  Barði hinn "glaðlyndi og hressi" sló í gegn!  Hún stökk upp úr stólnum, dansaði og skoppaði í takt við músíkina fyrir framan sjónvarpið.  "Þetta er sko FRÁBÆRT LAG, mamma"!  "Finnst þér þa'kki, pabbi"?  Og auðvitað kaus hún lag Barða hins "ofurkáta"LoL.  Sumt skilur hún samt ekki.  Afhverju téður Barði "brosir" ALDREI og afhverju hann vill ALDREI taka þátt í því að flytja lög sín sjálfurDevil?  En ég verð að segja að við foreldrarnir höfum fullan skilning á "tregðu" Barða.  Og veinuðum við bæði af hlátri þegar spyrillinn spurði dómnefndina, hvort hún vildi ekki sjá Barða beran að ofan uppi á sviði, flytja lag sitt!  "ALDREI" svöruðu dómararnir einróma,  og af heitri sannfæringuGrin.

  En flott lag hjá Barða hinum "eiturhressa"!  Og eitt er víst!  Við fáum öll atkvæði Albaníu komist lagið hans í EurovisionCool.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég gleymi alltaf að horfa á þetta!

Huld S. Ringsted, 3.11.2007 kl. 23:19

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Bara að fá eina söngelska sex ára lánaða, og þú verður "áskrifandi" að þáttunum, Huld mín.

Sigríður Sigurðardóttir, 4.11.2007 kl. 00:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband