2.7.2007 | 11:25
Gamaldags eldsvoðar?
Frá tímum síðari heimstyrjaldarinnar?! Veit þjóðminjasafnið af þessum bíl? Eða áhugamenn um "fornbíla"? Svo klikkja þeir út með því, að von sé á "yngri" slökkvibíl þeim Kirkjubæjarklaustursmönnum og konum til handa í eldsvoðum. Ekki "nýjum" heldur "yngri"! Hve miklu yngri, spyr ég? Er þetta spurning um að yngja upp um 2-4 ár, eða 10 -20 ár
? Eða má maður gerast svo bjartsýnn, og vona að Kirkjubæjarklausturfólk komist nær lokum síðustu aldar í slökkvitækni og slökkvibílum. Kannski árgerð 1985?! Eldsvoðar eru ekkert grín og stórmál fyrir alla er í lenda. Starfhæfir slökkvibílar verða að vera til í öllum byggðarkjörnum litla Fróns, og eiga ríki og sveitafélög að tryggja slíkt. Verða nú að treysta á Guð og lukkuna, íbúar á Kirkjubæjarklaustri, að ekki komi upp stórbruni, rétt á meðan þeir eru slökkvibílslausir. Ekki tryggt ástand það!
Slökkvibíllinn á Kirkjubæjarklaustri gafst upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jamm, og kannski það skásta sem íbúar Kirkjubæjarklausturs mega búast við í stöðunni! Var samt að vona að bíll frá tímum Víetnamstríðsins yrði ofan á.
Sigríður Sigurðardóttir, 2.7.2007 kl. 13:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.