21.2.2012 | 20:25
Nú, þetta var kannski Gnarrinn...
...sem húsfreyja sá skokka 15,99 metrana
að ruslatunnu hennar í morgun?
Ja, tarna er dásamleg þjónusta við borgabúana,
þegar sjálfur borgastjórinn er farinn að tæma
ruslið fyrir þá.
Húsfreyja er HRIFIN, það segir hún satt.
Ekki minna hrifin en þegar Gnarrinn kom á 16 metra reglunni.
Húsfreyja var þá fljót að vippa sér út, vopnuð sínu eðal
málbandi og mældi vegalengdina frá ruslatunnu sinni
að götu.
Nákvæmlega 7 metrar, 83 centimetrar og þrír fjórðu var
vegalengdin.
ÞRÍMÆLT!
Svo húsfreyja tók til sinna ráða og rúllaði hálfullri tunnu sinni
fjær götunni og mældi síðan aftur...hætti ekki fyrr en hún var
komin með fjarlægð upp á nákvæmlega 15,99 metra....
ÞRÍMÆLT!
Allt til að gleðja Gnarrann og starfsfólk hans.
"Við göngum svo léttir í lundu....".
Ekkert jafnast á við hressilega 15,99 metra göngu með
fulla ruslatunnu á köldum vetrarmorgni í myljandi snjóbyl
og 37 metrum á sekúndu.
Hehehehehe...stóðst ekki mátið, húsfreyja.
En flott hjá Gnarranum að vera í rusli.
Góðar stundir og megi allar ykkar ruslatunnur
vera mest 15,99 metra frá götu.
Jón Gnarr í rusli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:48 | Facebook
Athugasemdir
Sýndarmennska.
Narfi (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 01:21
Fylgir pólitíkusum, Narfi, sýndarmennskan. Þakka kærlega kommentið og innlitið.
Sigríður Sigurðardóttir, 22.2.2012 kl. 12:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.