Nú er hún Snorrabúð stekkur.

  funny-animals-24Og þrasað um kennara á Akureyri á

  AlþingiW00t.

  Ofbeldi og valdníðsla?

  Neipp, hæpið.

  Bara vesen á kennara, sem hefur of mörg orð um

  sína skoðun á samkynhneigðum.

  Þurfti að senda kennarann í leyfi vegna orða sinna?

  Varla.

  Nema hann hafi verið orðinn mjög þreyttur....eða

  samstarfsmenn hans mjög þreyttir á honumTounge.

  Fínt að ræða við manninn, áminna hann um að gæta virðingu

  er hann ræðir samkynhneigða...aðgát skal höfð í nærveru sálar osfr.

  Þarf að ræða um kennarann og málæði hans á þingi

  þjóðarinnar?

  Varla.

  Menn hafa komið sér í vandræði áður vegna óvarkárra orða,

  munnræpu og málæðis.

  Ekki þurft að taka upp umræðu á Alþingi um þess háttar vesen,

  enda nóg af mun brýnni málum sem þarf að ræða þar.

  Til dæmis:

  Blönk og atvinnulaus ungmenni, sem eiga ekki sjens á að

  koma sér upp þaki yfir höfuðið.

  Helvíska verðtrygginguna á lánum Frónbúa, sem er að

  hrekja þá marga öreiga til Noregs.

  Djö... niðurskurðinn í heilbrigðiskerfinu og verri þjónustu þar með

  til handa sjúkum, öryrkjum og öldruðum.

  Niðurskurð í menntakerfinu með verri kennslu til handa börnum okkar.

  Og svo mætti lengi halda áfram.

  Vesen á kennara fyrir norðan inn á Alþingi?

   HÚMBÚKK!

  Góðar stundir.


mbl.is „Ofbeldi og valdníðsla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessud

og takk fyrir sidast. Hef ekki enn sagt neytt um samkynhneygd, Snorra eda vini mina sem annad hvor elsk hann eda hata. En mér fipadist dålitid uppí kaffiteriunni ådan thegar konan i afgreidslunni sagdi mer ad hun væri ad fara til Íslands i Ågust, en fékk varla mida med flugi vegna einhverrar homma håtidar og konan vid hlid mer i rødinni hló svo hrottalega ad ég rak mina eigin hårspennu i peysuna mina og gerdi gat å hana, hvert å ad sena reykninginn?

Unnur (IP-tala skráð) 21.2.2012 kl. 13:18

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Hehehehehehe....Samtökunum 78.....hehehehe (samtök samkynhneigðra á Litla Fróni).  Já, og takk sömuleiðis, alltaf gaman að spjalla.  Merkilegt þetta með pirring Snorra út í samkynhneigða...allt saman fólk rétt eins og við....og við Bára vorum á hátíðinni í ágúst í fyrra-flott og skemmtileg hátíð!

Sigríður Sigurðardóttir, 21.2.2012 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband