Devil up?

unny_devil  "Hjálpi mér, þarna kom það enn og aftur"

  hugsaði húsfreyja örvæntingafullErrm.

  Hún reyndi að leggja við hlustir og fá einhvern botn

  í málið.

  ...."shíss devil up" hafði Fransmaðurinn sagt glaðbeittur.

  "Og hvað með ekkisens djöfulinnAngry" hugsaði húsfreyja

  pirruð "hvað var hann að vilja upp á dekk í miðju

  erindi um nýja rannsókn á tveimur lyfjum, sem voru

  að hjálpa fólki með Alzheimerssjúkdóm úti í Frakklandi"Shocking?

  Húsfreyja reyndi að finna út úr málinu, og las yfir

  glærur Frakkans í hasti.

  Fínar glærur, powerpoint, stútfullar um reynslu

  af lyfjunum tveimur við Alzheimers, sem búið var

  að framleiða, þróa og prófa á stórum hópi af fólki

  með Alzheimers, með glettilega góðum árangri.....

  en ekki eitt einasta orð um "the devil up"Angry.

  Húsfreyja hnyklaði brýrnar af einbeitingu, þegar

 Fransmaðurinn nefndi shíss "devil up" í fjórða sinn

  í ræðu sinni.

  "Og......."?

  Neipp, Frakkinn útskýrði "djöfulinn" ekkert nánar,

  og hóf að ræða kríteríur, diagnósur og kombinasjón lyf

  af miklum krafti, á sinni bjöguðu ensku.

  Nú veit húsfreyja, að Alzheimers er sjúkdómur sem er

  ekkert lamb að leika sér við.  Þungbær öllum og ekki síst

  þar sem erfitt hefur verið að finna lyf sem duga við

  þessum alvarlega sjúkdómi í heila.

  En varla hafði þessi lyfjaframleiðsla verið Frökkum

  svo hroðalega erfið, að þeir sáu "djöfulinn upp um alla veggi"Whistling?

  ...."devil up", sagði Frakkinn enn og aftur glaður í bragði.

  Húsfreyja ranghvolfdi augunum, hún var búinn að missa

  allan þráð í erindi Frakkans, svo hún lét duga að lesa glærurnar

  sem voru bæði fróðlegar og brilliant settar fram á auðskiljanlegri ensku.

  Frakkinn barðist í gegnum erindið meira af ákafa og baráttugleði,

  en góðri kunnáttu í ensku máli.

  Var mjög fróður og nákvæmur það sem húsfreyja náði að botna,

  ...en með djöfulinn upp um alla veggi af og tilErrm.

  Húsfreyja dæsti og gjóaði augum á sessunauta sína í

  Hörpunni.  Ætti hún að þora að nefna þetta með djöfulinn

  við annan hvorn þeirra?

  "Nah, vildi ekki trufla ósvikna einbeitingu og áhlustun þeirra,

  húsfreyja sjálfsagt bara rati að skilja ekki ensku með

  "örlitlum" frönskum hreimFrown.

  En afhverju var Fransmaðurinn svona ánægður með

  djöfulinn upp um alla veggiShocking

  Hann virtist ekki vitund miður sín yfir djöfulgangi

  þessum í lyfjabransanum"....heilabrot húsfreyju

  tóku skjótan enda þegar frakkinn veifaði skyndilega

  powerpointgeislanum sínum fagnandi:....."and we 'ope we

  will "devil up" some better medication in shé future".

  MEGA-LJÓS kviknaði í huga húsfreyju:

  DEVIL UP= DEVEL-OPP= DEVELOP (di vel'ap)= ÞRÓADevil.

  Hallelúja!

  Næstu 5 mínúturnar og þær síðustu af erindi frakkans,

  skildi húsfreyja næstum því fimm orð af hverjum sjöDevil

  hjá honum, og varð öllu fróðari um lyf þessi fyrir bragðið.

  Húsfreyja dáðist að Frakkanum að komast í gegnum

  klukkutíma erindið, tilneyddur að brúka ensku,

  en var fegin þegar næsti fyrirlesari reyndist Frónbúi,

  sem bæði flutti erindi sitt á íslensku og ensku um hvernig

  hægt væri að greina Alzheimers, Parkinsons og Levi body

  sjúkdóma með heilariti.

  Fróðlegt og flott.

  Skemmtilegasta erindið flutti svo ítali af mikilli snilld um

  Parkinsonsjúkdómin og nýja lyfjameðferð við honum.

  Á ljómandi fínni ensku....þó að einu sinni heyrði húsfreyja hann

  nefna "devil up"...en var fljótur að leiðrétta sigTounge...develop!

  Vissuð þið annars að Hitler var með Parkinson?

  Fínn og merkilegur fræðslufundur í Hörpunni, og boðið upp á kaffi

  og kleinur í ofanálagJoyful.

  En kíkja á imbann næst.

  Góða nótt og góðar stundir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

þú ert alltaf jafn fyndin í skrifum þínum

Sigrún Óskars, 24.9.2011 kl. 19:37

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Æ, þakka þér kollega .  Varstu nokkuð stödd á svæðinu, þá franskurinn lét sig mál Alzheimersjúkra varða.....í djöfullegum stíl?

Sigríður Sigurðardóttir, 27.9.2011 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband