Skæðar túlípanabakteríur..

 Tulips-----19954 ...af Shengenstofni þá líklega að herja á

  unaðsfagra túlípana hollenskraTounge.

  Má kannski kalla hann "Shengencoccus hollandenus"Devil?,

  samanber staphylococcus aureus sem er þekkt baktería

  meðal manna, og þykir afleit ef hún finnst í þvagi þeirra.

  Væri gaman að fregna meira af "rannsókn" þessari á

  þrælsýktum túlípönum þarna í Rúmeníu, og jafnvel

  enn meira gaman að fá að vita HVERNIG hin

  eitursnjöllu yfirvöld Rúmena uppgötvuðu að

  hollenskir túlipanar þessir væru fársjúkirWhistling.

  Kannski hefur grænt...?...gult...?....fjólublátt?  HOR

  runnið í stríðum straumi niður stilka hinna hollensku

  túlípana, á meðan ilman þeirra minnti einna helst á

  vel kæsta skötu á Vestfjörðum, viku fyrir "Þollák"Sick?

  Nú eða íðilfögur krónublöð þeirr hafa verið útbíuð

  í svörtum blettum í "hauskúpulíki"- POISON

 tattúverað innanvert á græn blöð þeirraDevil?

  Hvað veit húsfreyja.

  En finnst illa farið með fallega túlípana, ef þeir reynast

  svo bæði alfrískir og ShengencoccalausirErrm.

  Dettur þá í hug, húsfreyju, að Rúmenir gætu sent blómadót þetta

  yfir hafið upp á litla Frón, hafi þeir þróað með sér mergjað

  ofnæmi fyrir "hollenskum" túlípönumHalo.

  Gerir ekkert til þó túlípanarnir séu orðnir hálfslappir,

  eftir margra daga þrotlausar rúmenskar "sýklarannsóknir"LoL.

  Frónbúar mikið fyrir falleg blóm, og ekki úr vegi að

  rölta með fangið fullt af túlípönum niður á

  Austurvöll, og færa "fjórflokkunum" sem þar hafa

  ríkt á Alþingi, með kærri þökk fyrir svínslegt svínarí og sukk í starfi

  síðustu áratuginaGetLost.

  Getum svo notað afganginn af blómadýrðinni, verði hún einhver,

  til að skreyta "tunnurnar" á Austurvelli, um leið og við sláum þær taktfast

  og óþreytandiLoL.

  En kvöldmatur næst.

  Góðar og blómlegar stundir.


mbl.is Hollenskum túlípönum ekki hleypt inn í Rúmeníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband