4.3.2011 | 16:49
Karlmenn hugsa EKKI UM NEITT annað...
...en kynlíf!
Svo segir einn spakur bókarhöfundur,
Simove að nafni í hinu víðfeðma veldi
Betu bjútí bretanna.
Og það eftir "margra ára rannsóknir".
Fo´fanden!
Fjandakornið!
Þetta líst húsfreyju ekkert á.
Hér treysta konur heilu kynslóðunum af körlum fyrir
því að stjórna löndum, bönkum, fyrirtækjum, flugþotum,
skipum og ekki síst bifreiðum ár eftir ár.
Eru mikilvæg ábyrgðarstörf, og hvað farartæki varðar, oft
hrein og klár spurning upp á líf og dauða, hvernig tekst til
við stjórnunina.
Svo eru allir þessir herramenn bara ekkert að pæla, hvað
þeir eru að gera.
NEIPP, segir hinn vísi Simove.
KYNLÍF er heila "heilamálið" karlmannanna.
Og EKKERT annað!!
Jaso.
Anskotinn kvenmannslaus í útlegð á Suðurheimskautalandinu!
Er Simove hér búin að uppgötva skýringuna á
því, hví allt hefur farið til helvítis í fjármálaheiminum síðustu
ár og aldir?
Hví hér á móður Jörðu logar allt í styrjöldum, drápum og upplausn,
og það á tímum sem karlar hafa að mestu haldið um valdataumana?
Körlum þá skítsama um verk sín, skynsemi bak við verkin, útpældar
uppgötvatnir, rökréttar ályktanir og mannúðlegar hugsjónir, jafnvel
hvern þeir þurfa að drepa, bara ef næsta "dodo" er HUGSANLEGA í uppsiglingu,
eða hægt er að velta sé upp úr blautlegum þankagangi um
síðast "dodo" eða jafnvel mögulegt að hugsa eingöngu um ímyndað "dodo?
Helvíti er að heyra þetta og sjá.
Kannski þá ekki að furða, ef allt dúndrar niður í
myrkustu iður helvítis hér á Jörðu reglulega.
Helmingur mannkyns má bara "ekkert vera að því" að
HUGSA um uppbyggingu, uppgötvanir, menntun, vísindi,
stjórnun, barnauppeldi, mannúð, kærleik, stjórnun farartækja,
skipulag, jafnrétti, listir, efnahag, náttúrufegurð, afkomu eða afþreyingu....
ja, nema auðvitað að afþreyingin sé "kynlíf".
Neipp.
KYNLÍF er það eina sem þessi karlkyns-helmingur mannkyns pælir í
og brýtur til mergjar, segir Simove.
Jaso, húsfreyja er í öngum sínum.
Pælir jafnvel í því að taka bílinn alfarið af bónda sínum,
reynast staðhæfingar hins snjalla Simove réttar.
Er þá húsfreyja mest rasandi á, að vesalings kynlífsþenkjandi ratarnir skuli ekki
lenda í árekstrum daglega á leiðum sínum frá áfangastað A til B.
Hér ættu þotur að falla af himnum ofan annan hvern dag,
skip að stranda tvist og bast, fyrirtæki að fara á hausinn vikulega,
mæður í haugum að ala börn sín upp einar í nútímaþjóðfélögum,
ríkistjórnir allra landa að vera rústir einar, efnahagsmál
þeirra skotin, brennd og urðuð....öö.. þetta er nú reyndar
svínsleg staðreynd í flestum löndum Jarðar í dag.....æææ.
Bjalla í bónda næst og bjóða honum "far" heim úr vinnunni.
Það er þá ekkert bílastjórnunarkjaftæði að trufla hjá honum "þankaganginn"
á meðan.
Góðar stundir, og kæru herrar, munið að það er fleira til í jarðlífi
en kynlíf, matur og fótbolti.
Það sem hver karlmaður hugsar um að kynlífi undanskildu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spaugilegt | Breytt 12.3.2011 kl. 11:40 | Facebook
Athugasemdir
Var bókarhöfundurinn að afla upplýsinga hjá karlmönnum á einhverjum börum? Hvernig aflaði manneskjan upplýsinganna?
Ég er að reka fyrirtæki og þar má ekki hugsa um kynlíf þar sem allir þurfa að hafa hugann við starfið...
Það er reyndar svo að ég þarf stundum að hafa konur í vinnu en það er vegna þess að þær þurfa að líta eftir konum... Ég lít svo eftir bæði kynjum ef um slys eða óhöpp er að ræða, það er líka mitt starf.
Ég get hugsað um "dodo-ið" þegar ég er kominn heim.
Ég er kanski undantekningin og eini maðurinn sem hugsar svona... Eða hvað???
Með kveðju
Kaldi
Ólafur Björn Ólafsson, 5.3.2011 kl. 16:24
Þakka þér Kaldi. Eitthvað er "margra ára" rannsókn þessi málum blandin, enda væri hér allt í kaldakoli, verri en nokkur veruleiki í kreppu í dag, væri Simove blessaður með 100 % kórréttar niðurstöður. Kannski svona 40-60% meðaltals-sannleikur til í þessu hjá karlinum, svona eftir því hvaða aldurshóp karla hann er að tala um. Spólgraðir 17 ára unglingspeyjar líklega nálægt kynlífs-hugsana-hundraðinu, en svo breytast málin hef ég trú á, með auknum aldri og þroska ykkar herramannanna. En ég hafði gaman af fréttinni, og er ætíð snögg að bregða mér í "kalda húmorinn", hvort sem ég tel allt hárrétt eða ýmsa vankanta á málum eins og hér. Þú átt þér pottþétt marga hugsanabræður þarna úti, og einmitt gott að geta einbeitt sér að hugsa um "dodo-ið" þegar heim er komið.
Þakka þér kærlega gott komment.
Sigríður Sigurðardóttir, 5.3.2011 kl. 18:58
Hehehe... Ég ætla rétt að vona það að það séu fleiri en ég sem geta slept kynlífshugsunarhættinum meðan þeir eru við störf (nema kanski þeir sem hafa "dodo-ið" að atvinnu)...
Kaldi
Ólafur Björn Ólafsson, 6.3.2011 kl. 01:34
Já, segðu Kaldi. Gætu karlmenn ekki geymt sína kynlífsþanka, einbeitt sér að öðrum málum og hugsað um athöfn líðandi stundar, sé ég t.d fyrir mér massa "upphleðslu-bílslys við öll hringtorg borga og bæja hér á vorri jörð upp á hvern dag....á leiðinni "í vinnuna"....ekki einu sinni þeir með "kynlíf" að atvinnu kæmust til vinnu sinnar.
Þakka þér aftur.
Sigríður Sigurðardóttir, 6.3.2011 kl. 13:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.