Elsku Drottinn...

  100 3446..þarna var ég næstum "fokin út af veginum"W00t.

  Húsfreyja svitnaði og kólnaði á víxl, og hnúar hennar

  hvítnuðu á bílstýrinu..."og það með 10 ára djásnið

  í aftursætinu"Pinch.

  Það var glettilega hált á köflum, og vindhviðurnar

  fyrir ofan Litlu Kaffistofuna höfðu næstum náð bifreið

  húsfreyju í hliðarskrið út af veginumCrying.

  SJÍSS!

  Við lá að húsfreyja fengi mergjað kvíðakast af stressi....andaði örar...

    "Andaðu rólega:  Eftir hundrað ár verður þetta allt

    um garð gengið."

                           Ralph Waldo Emerson (1803-1882)

  Fleyg orð Emersons róuðu húsfreyju svolítið.

  Jaso, hún hefði ekki átt annað eftir en að fjúka út í veður og vind,

  með 10 ára djásni og sinni herlegu bifreiðAngry.

  Finnast máske ekki fyrr en í vor einhvers staðar í Kjósinni,

  beingödduð og hressilega steindauðPinch.

  Brrrrr... það fór hrollur um húsfreyju.

  Þvílík fífldirfska var þetta að vaða yfir Þrengslin um

  hávetur með 10 ára djásnið, í hálku og éljagangi, hvað var

  húsfreyja eiginlega að pælaW00t?

     "Meira að segja Guð leggur heiðarlegri dirfsku lið"

                                                  Menander(343-291 f. Krist)

  Ekki víst að Menander þessi hafi alveg verið kýrskýr, hugði húsfreyja,

  og alveg var húsfreyja 100% örugg um að hann hefði aldrei

  ekið um frónverska fjallvegi að vetrarlagiTounge.

  En gott og vel, húsfreyja ákvað að taka á málunum

  af ró og spekt og sönnu frónversku æðruleysi,

  kom bifreið sinni niður í 60-70 kílómetra hraða

  og ullaði upp í vindinn.

    "Með hægð og spekt; því flas er falli næst".

                            Villi Sheikspír (1564-1616).

  Og heim komst húsfreyja heilu höldnu með 10 ára djásn og

  herlega bifreið sína, og rann ekki "einu sinni"Halo!

  Og það þrátt fyrir éljagang af og til á leiðinni.

  Það var múgur og margmenni á bæ múttu húsfreyju

  í Þorlákshöfn í dag.  Öll barnabörn múttu, 7 að tölu mætt á svæðið,

  allar dætur hennar þrjár og svo hrafl af gestum.

  Húsfreyja tók í eitt "skraf" (Scrabble) við múttu sína,

  á meðan krakkarinr allir trompuðust úti í snjónum, snjóhúsabyggingum,

  snjókasti og hverju ekkiGrin.100 3464

  Það kostaði að sjálfsögðu bæði hlátur og grátur...mest þó hlátur.

  Systir í Þorlákshöfn, sem fæddist með "snjóskóflu" í munniDevil,

  var að sjálfsögðu úti með sína snjóskóflu á lofti, og heilu

  snjóvígin risu ásamt smá-snjóíbúðahverfum í skaflinum

  langa við innganginn að húsinu.

  "Þú leigir þetta svo bara út" sagði húsfreyja glettnislega,

  þegar systir gaf sér 20 mínúta pásu frá snjómokstriTounge.

    "Öll verk má inna af hendi á listrænan hátt"

                                                  St. Thomas Aquinas.

  Var hin ágætasta helgi, að mati húsfreyju, og alltaf

  gaman að bregða sér af bæ.

  Kötturinn, húsfreyju að vísu eitthvað allur í tjóni yfir

  snjónum úti á "snjópalli", en 10 ára djásnið er alsæl með

  "hvíta stöffið" sem hylur grund allaLoL. 100 3452

  Bóndi lenti í útskipun að skipan yfirmanna tvo daga í röðErrm!

  Þarf svo húsfreyja að skjótast eftir systurdóttur um miðnættið niður á BSÍ.

  Er að koma úr Danmerkurför, skvísan.

  Góðar stundir og eigið góða vinnuviku.                         100 3303


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband