Færsluflokkur: Spaugilegt
11.3.2011 | 22:07
Hláturinn lengir lífið?
Hér er tveir gamlir og góðir:
Þegar ég var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun
leit ég til hliðar og þar var kona á splunkunýjum BMW.
Hún var á svona 120 kílómetra hraða með andlitið
upp í baksýnisspeglinum og var á fullu að sminka sig
með meik-up græjurnar í sitt hvorri hendinni með
annan olnbogann á stýrinu.
Ég leit fram á veginn eitt augnablik, og næst þegar
ég leit á hana var bíllinn hennar á leiðinni fram fyrir
mig í mína akrein, og samt hélt hún áfram að mála
sig eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Mér brá svo mikið að ég missti rakvélina mína
ofan á roastbeef-samlokuna, sem ég hélt á í vinstri
hendi.
Í panikkinu við að afstýra árekstri við konuhelvítið
og ná stjórn á bílnum sem ég stýrði með hnjánum,
datt gemsinn minn úr hálsgrófinni á mér ofan í
kaffibollann sem ég var með á milli fótanna.
Það varð til þess brennheitt kaffið sullaðist á
"besta vininn" og "tvíburana tvo".
Ég rak upp öskur og missti við það sígarettuna
úr kjaftinum og brenndi hún stórt gat á sparijakkann
minn og ég missti af mikilvægu símtali.
HVAÐ ER AÐ ÞESSUM HELV... KELLINGUM?
Hjón fóru á fæðingardeildina á Landspítalanum,
konan að fæða fyrsta barn þeirra.
Jónas læknir sagði þeim að alveg nýtt tæki
hefði verið keypt inn á fæðingardeildina, sem
færði hluta af fæðingarverkjum móðurinnar til
föðursins.
Þau hjón vildu ólm prófa tækið.
Jónas læknir byrjaði á 10% verkjaflutningi til
eiginmannsins, þar sem það væri líklega meiri verkur en
en hann hefði nokkru sinni upplifað.
En eiginmaðurinn bar sig bísna vel, og eftir því
sem leið á fæðinguna sagði hann lækni að hækka
í tækinu.
Læknir hækkaði í 20% og síðan í 50%.
Og enn var eiginmaður stálsleginn og sagði Jónasi
að flytja alla verki hinnar fæðandi móður yfir á sig.
Fæðingin gekk síðan brilliant vel og móðirin
fann ekki nokkurn hlut fyrir neinum verkjum.
Og sömuleiðis eiginmaðurinn, hann var hinn hressasti.
Um kvöldið fengu hjónin að fara heim með frumburðinn,
og þá fundu þau bréfberann steindauðan á tröppunum
fyrir framan hús þeirra.
Jamm, víst er gott að geta hlegið dátt, eða í það minnsta glott
út í annað.
Sjálf var húsfreyja á ferðinni í dag.
Þurfti í Rúmfatalagerinn að ná sér í ódýra prjóna.
Taldi happasælast að skreppa í Smáralindina, því þar rataði hún
einna best um verslunina.
Jamm.
Auðvitað var búið að hafa endaskipti á versluninni, svo húsfreyja
vissi ekki hvað sneri upp eða hvað sneri niður.
En prjónana fann hún samt.
Týndi svo ýmislegt smálegt með í körfu.
Gáfaði ungi maðurinn með dökku spangargleraugun,
var að ræða við sína heittelskuðu fyrir aftan húsfreyju
þegar þau biðu afgreiðslu við kassa.
Líklega rúmlega tvítug bæði tvö.
Hans heittelskaða, einnig með dökk spangargleraugu
horfði svolítið fljótandi augum á kærastan, enda ung og
ástfangin.
"Við verðum að kaupa okkur slatta af þessum hér, þegar
við fáum íbúðina okkar afhenta" sá gáfaði sýndi kærustu eldhússvampa,
10 saman í búnti.
Kærasta kinkaði spekingslega kolli, og hristi ljósan hárlokk sem hafði
fallið fram yfir dökku spangargleraugun.
"Já, hélt sá ungi gáfaði áfram, "kannski get ég líka reddað
500 grænum svona, frá kunningja mínum, fyrir lítinn pening,
hann er með heildsölu".
Kærastan tók upp eina lengju af eldhússvömpum,
velti henni á milli handa sér.
Spurði svo: "Til hvers er ÞETTA eiginlega notað"?
Húsfreyja skellihló inni sér á meðan hún greiddi fyrir prjónana.
Hlustaði á unga herrann reyna að útskýra þrif á eldhúsi
fyrir ungu dömunni sinni, sem áreiðanlega hafði aldrei þrifið
eldhús, hvað þá heldur komið við klósettbursta á allri sinni
stuttu ævi.
Já, það fara margir að búa, ÁN ÞESS AÐ KUNNA AÐ BÚA.
En allt lærist það á endanum.
Síðan var skroppið austur fyrir fjall í kaffi og kleinuhringi
til múttu eftir hádegið.
Mikið spjallað og PRJÓNAÐ.
Svalan svo með til baka og ætlar að bíóast og fleira með Bárunni
yfir helgina.
En góðar stundir og góða og hláturmilda helgi.
![]() |
Hlegið að Íslendingum í Færeyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 12.3.2011 kl. 01:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.3.2011 | 16:49
Karlmenn hugsa EKKI UM NEITT annað...
...en kynlíf
!
Svo segir einn spakur bókarhöfundur,
Simove að nafni í hinu víðfeðma veldi
Betu bjútí bretanna.
Og það eftir "margra ára rannsóknir".
Fo´fanden!
Fjandakornið!
Þetta líst húsfreyju ekkert á.
Hér treysta konur heilu kynslóðunum af körlum fyrir
því að stjórna löndum, bönkum, fyrirtækjum, flugþotum,
skipum og ekki síst bifreiðum ár eftir ár.
Eru mikilvæg ábyrgðarstörf, og hvað farartæki varðar, oft
hrein og klár spurning upp á líf og dauða, hvernig tekst til
við stjórnunina.
Svo eru allir þessir herramenn bara ekkert að pæla, hvað
þeir eru að gera.
NEIPP, segir hinn vísi Simove.
KYNLÍF er heila "heilamálið" karlmannanna.
Og EKKERT annað!!
Jaso.
Anskotinn kvenmannslaus í útlegð á Suðurheimskautalandinu!
Er Simove hér búin að uppgötva skýringuna á
því, hví allt hefur farið til helvítis í fjármálaheiminum síðustu
ár og aldir?
Hví hér á móður Jörðu logar allt í styrjöldum, drápum og upplausn,
og það á tímum sem karlar hafa að mestu haldið um valdataumana?
Körlum þá skítsama um verk sín, skynsemi bak við verkin, útpældar
uppgötvatnir, rökréttar ályktanir og mannúðlegar hugsjónir, jafnvel
hvern þeir þurfa að drepa, bara ef næsta "dodo" er HUGSANLEGA í uppsiglingu,
eða hægt er að velta sé upp úr blautlegum þankagangi um
síðast "dodo" eða jafnvel mögulegt að hugsa eingöngu um ímyndað "dodo?
Helvíti er að heyra þetta og sjá.
Kannski þá ekki að furða, ef allt dúndrar niður í
myrkustu iður helvítis hér á Jörðu reglulega.
Helmingur mannkyns má bara "ekkert vera að því" að
HUGSA um uppbyggingu, uppgötvanir, menntun, vísindi,
stjórnun, barnauppeldi, mannúð, kærleik, stjórnun farartækja,
skipulag, jafnrétti, listir, efnahag, náttúrufegurð, afkomu eða afþreyingu....
ja, nema auðvitað að afþreyingin sé "kynlíf".
Neipp.
KYNLÍF er það eina sem þessi karlkyns-helmingur mannkyns pælir í
og brýtur til mergjar, segir Simove.
Jaso, húsfreyja er í öngum sínum.
Pælir jafnvel í því að taka bílinn alfarið af bónda sínum,
reynast staðhæfingar hins snjalla Simove réttar.
Er þá húsfreyja mest rasandi á, að vesalings kynlífsþenkjandi ratarnir skuli ekki
lenda í árekstrum daglega á leiðum sínum frá áfangastað A til B.
Hér ættu þotur að falla af himnum ofan annan hvern dag,
skip að stranda tvist og bast, fyrirtæki að fara á hausinn vikulega,
mæður í haugum að ala börn sín upp einar í nútímaþjóðfélögum,
ríkistjórnir allra landa að vera rústir einar, efnahagsmál
þeirra skotin, brennd og urðuð....öö.. þetta er nú reyndar
svínsleg staðreynd í flestum löndum Jarðar í dag.....æææ.
Bjalla í bónda næst og bjóða honum "far" heim úr vinnunni.
Það er þá ekkert bílastjórnunarkjaftæði að trufla hjá honum "þankaganginn"
á meðan.
Góðar stundir, og kæru herrar, munið að það er fleira til í jarðlífi
en kynlíf, matur og fótbolti.
![]() |
Það sem hver karlmaður hugsar um að kynlífi undanskildu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 12.3.2011 kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.2.2011 | 16:48
HERINN!
Sá íslenski?
Jaso.
Það hlýtur þá að vera "ósýnilegi" herinn
okkar hér uppi á litla Fróni,
sem reykir allar "ósýnilegu" sígaretturnar
sem Spaugstofan fjallaði um af snilld síðasta
laugardagskvöld.
Já, og nýtur svona myljandi góðs trausts í ofanálag.
En kemur sosum ekki á óvart, að menn af erlendu bergi
brotnir hinum megin Atlandsála telji hér vera her.
Hér hafa verið búsettir mergjaðir "hryðjuverkamenn",
samkvæmt vísum, breskum mönnum, árum saman,
eða allt frá því að "Ísbjörg gamla" fékk banvænt slag,
steindó og gekk aftur með voveiflegum hætti.
Og þó að "vopn" okkar frónverskra teljist ekki beysin,
mest bitlausir búrhnífar, skæri, ryðgaðir rjúpnabyssuhólkar og heykvíslar,
þá eigum við altént megaflotta tunnuræfla og
hrikalega flott barefli sem skapa skemmtilegan samhljóm
við "undursamlegar" ræður þingmanna á Alþingi voru.
Sprengjuhvellir, hvað?
En gaman hefði húsfreyja að því, að fá að líta eins og eitt
"herkvaðningarbréf" augum fyrir ósýnilegan her þennan,
svona bara til að vita hver eða hverjir komu honum á fót
af okkar frónversku snillum.
En auðvitað hafa öll slík bréf verið "ósýnileg"....
Hehehe, skondin frétt atarna, og grunar húsfreyju að
eitthvað sé hún orðum aukin.
Góðar stundir og góða helgi.
![]() |
26% treysta íslenska hernum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 6.3.2011 kl. 23:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2011 | 18:52
Sýruhausar í and-Gaddafísku stuði?
Allah sé lof og dýrð...fyrir Gaddafí
.
Hinn skarpvitri og friðelskandi
"ekki-leiðtogi" Líbíu, Muammar Gaddafí
er í öngum sínum.
Þarna er þessi elskulegi maður, Gaddafí
sem "formlega ber ekkert embætti" í hinu
undursamlega veldi Líbíu, búin að puða og púla
við uppbyggjandi "byltingarstörf" FJÖRUTÍU-ÁRA-BYLTINGARINNAR (síðan 1969, hefur hún
verið í gangi... ÓGNARLANGA BYLTINGIN væri gott nafn á hana)
í þágu þjóðarinnar árum saman, og uppsker
svo ekkert nema vanþakklæti og svívirðingar og grófar móðganir.
Fékk ekki einu sinni embætti!
Mótmælendur mættir að mótmæla "ekki-stjórn" Gaddafís.
Ó vei!
Og slík svívirða frá hans eigin löndum!
Og til að auka enn á skömmina eru þessir "Gaddafímótmælandi "samlandar
hans á "mergjuðu sýrutrippi" frá morgni
til kvölds
, og telja sjálfsagt
himininn appelsínugulan, sjóinn rauðan og skýin lillableik.
Gaddafí er sár.
Mættur undir regnhlíf, (svo ekki rigni á hann lillableiku
regni og appelsínugulur himininn hrynji
ekki ofan á haus honum) og hann
ekki flúinn af landi brott, með hina
helgu stjórnarskrá Líbíu á lofti og les mikinn.
"Gaddafí-ósáttir sýruhausar réttdræpir, Allah sé lofaður".
Eru hvort eð er á vegum djöfulsins, hinir "ofskynjandi" mótmælendur,
og því öruggara að drepa þá alla sem fyrst, svo djöfullinn sjálfur
með horn, hófa, hala og sinn hrikalega þrífork
verði ekki næsti "óformlegi ekki-leiðtogi" Líbíu.
Já og Allah forði Líbíu frá því að "sá í neðra" verði næsti
"yfirmaður ógnarlöngu-byltingarinnar".
Jamm, vesalings Gaddafi er móðgaður.
Líbanskir sýruhausar kunna ekki gott að meta, því er verr.
Hinir Gaddafí-elskandi Líbanir munu slá skjaldborg um sinn
heittelskaðan "ekki-leiðtoga" og berjast blóðugum bardaga
til síðasta manns!
Og þá og aðeins þá mun Gaddafí fá frið til að halda áfram LANGDREGNUM
byltingarstörfum sínum og að sinna "ekki-embættisskyldum" fyrir land sitt og
þjóð, eða deyja öðrum kosti.... í Líbíu
!
Jamm mikil er viska og réttlæti Gaddafís, Allah sé dýrð.
Húsfreyja ætlar að redda kjúllanum úr ofninum.
Góðar stundir.
![]() |
Gaddafi fer hvergi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 6.3.2011 kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2010 | 21:05
ÞIÐ ERUÐ DAUÐ....
...orgaði ræstitæknirinn
af þriðju hæðinni á háa séinu
og skók byssu sína.
"Þú er DAUÐUR nú þegar" gargaði sjúkraliði
úr sambýlinu á móti, og mundaði byssu sína fagmannlega.
Og sjúkraliðinn hafði ekki orgað sitt síðasta, og þrumaði:
"Koma svo stelpur, við tökum þau og söllum þau í spað",
og húsfreyja var tekinn hálstaki af liðsmönnum sínum
og látin mynda hring með þeim, og svo orguðu allir sem einn:
DREPA!!
KRÆST, nú var eins gott að standa sig.
Húsfreyja athugaði "riffil" sinn.
Júmm, fullhlaðinn, öryggið af....passa sig á
að skjóta ekki sjálfa sig í fótinn, eða sína eigin
hermenn í bakið, og "þriðja hæðin" var dauð!
Marserað á spariskónum af stað yfir mýrarfen,
í ægilegum hermannagalla og með rosalegan svartan
ægishjálm yfir andlitinu, með örlítilli gluggarúðu.
Húsfreyja dimmdi rödd sína niður um nokkrar áttundir
og andaði þungt: "Aaaaððððaaaahh.....LUKE, I'M YOUR FATHER"
þrumaði húsfreyja framan í nokkra göngufélaga sína.
Hlátur, fliss.....hvísl.."hver er þetta, eins og fífl"!
Sjálfskipaður hershöfðingi, sjúkraliðinn í sambýlinu
hafði heyrt í húsfreyju, tók málin í sínar hendur:
"Engan fíflagang í röðinni...við erum hermenn og ætlum
að VINNA þessa AUMINGJA....DREPA"!!!
"Vá, sú er aldeilis komin í drápsgírinn" hugsaði húsfreyja,
en rauk samt í það að skokka nokkur skref í mýrinni og
syngja undir hermannatakti: "VIÐ ERUM AÐ FARA Í STRÍÐ
HRÆÐUMST EKKI ORRAHRÍÐ
DREPUM ALLT SEM HREYFIST KVIKT
ÞÓ AÐ AF ÞESSU SÉ SKÍTALYKT.
Meira fliss og hlátur..."ert'etta þú Sigga"?...aðstoðardeildarstjóri
húsfreyju var vígalegur, þar sem hún kom öslandi eftir foraðinu,
hafði sem betur fer misst af kveðskapnum húsfreyju.
Húsfreyja varð að játa því.
"Ég sé ekki rassgat" kvartaði aðstoðardeildarstjóri,
"fyrir móðu innan á gluggarúðunni"...fiktaði við hjálm sinn.
"EKKI RÍFA AF YKKUR HJÁLMINN" orgaði "aðmírállinn" sem
greinilega örvænti um mannskap sinn, sem var ekki einu
sinni mættur á vígstöðvarnar, því síður byrjaður að
skjóta af morðtóli sínu til að drepa mann og annan.
En loks voru allir mættir á vigstöðvarnar.
Aðmírállinn reyndi að koma skikk á herlið sín,
allt var í tjóni og tjöru góða stund...húsfreyja með
aðstoðardeildarsjóra og öðrum deildarstjóra
vöfruðu um eins og illa rúnar rollur....."KOMIÐ TIL BAKA",
orgaði aðmírállinn, "ÞAÐ BYRJA ALLIR SAMAN OG ÞEGAR ÉG SEGI TIL"!
Þremenningarnir sáu sitt óvænna og hundskuðust niðurlútar
til baka í hópinn.
"ÞIÐ TAKIÐ EKKI HJÁLMINN AF YKKUR......EKKI UNDIR NEINUM KRINGUMSTÆÐUM"
gargaði aðmírállinn, svo hárin á hermönnum risu í hnakka þeirra.
"Ekki þótt andsk.... fóðrið í hjálminum hrykki upp í mig og ég væri að kafna"
tautaði húsfreyja bljúg...."léti mig bara hafa það, ef þú hættir að garga".
Aðmírállinn sem betur fer hálf-heyrnasljór af skvaldri hermanna í kringum
sig, og húsfreyja slapp við 30 armbeygjur, fyrir að rífa kjaft.
BLÍÍÍÍSTR!
Húsfreyja skokkaði léttum skrefum á spariskóm sínum í var.
Mundaði byssu sína.
Djö....sást ekki nokkur maður.
Hvurslags skræfur voru þetta á þriðju hæðinni,
lágu bara í felum......VESALINGAR!
Húsfreyja beið átekta vel falin.
Einhver hreyfing vinstra megin á sjónsviði hennar...
bang...bang...bang....bang....bang....bang...osfr.
Húsfreyja missti sig, fretaði á allt sem hreyfðist eða
bara blakti vinalega í golunni....meira að segja
starrahópur sem lagst hafði til náða í þýflendinu
skammt frá, og flaug upp með mótmælaskrækjum,
átti fjöðrum sínum fjör að launa.
Liðsmenn húsfreyju, deildarstjóri og hennar aðstoðardeildarstjóri
við hlið hennar voru að míga á sig af hlátri.
HAH!
Þarf vart að taka fram að herlið húsfreyju vann 2 leiki
í "paintball" af þremur, en líklega tapaðist sá þriðji
eingöngu vegna þess að húsfreyja kláraði öll sín
100 skot í fyrstu leikjunum tveimur...átti aum níu skot eftir
í þann síðasta...gat ekki einu sinni svarað fyrir sig þegar
óhræsi af þriðju hæð dúndraði 2 skotum í læri hennar....Ái
!
Læri húsfreyju eru nú skreytt glæsilegum
myndum af "Óríon-sólkerfinu" í lit......megastórir stjörnukíkjar HVAÐ?
Hubble-sjónaukinn... hvað?
En óvissuferð þessi tókst með afbrigðum vel hjá húsfreyju
og samstarfsfólki hennar, að hennar mati.
Sungið, spjallað, hlegið og snæddur góður matur frá Grillvagninum.
Og ó, já, húsfreyja dansaði "Svanavatnið" ...sko alvöruballet.
Snilld húsfreyju á sér engin takmörk.
Húsfreyja og 9 aðrir dansarar fengu formlegt og fínt skjal
upp á frábær balletspor: BALLETDANSARAR af Guðs náð!
Jamm, ekki amaleg óvissu ferð þetta, og húsfreyja
gekk svo heim til sín í 10-12 stiga hita um miðnættið
í október í borginni við sundin bláu.
Góðar stundir og megi allar ykkar óvissuferðir vera gleðilegar.
Spaugilegt | Breytt 11.10.2010 kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2010 | 18:59
Tómar hillur, tómir magar...
...í Eyjum í dag
?
Mjólkin, gúrkurnar og tómatarnir
"veðurteppt" í hlössum á bryggju í
Landeyjahöfn?
Menn að dóla á kænum með "handlóð" frá
því um miðja síðustu öld, í öskugruggi
og sandleir Landeyjarhafnar?
Herjólfur að sigla eftir flóðatöflum líkt og
segliskip og gufuskip forðum daga?
("Tíu faðmar stjór, skipper"!)
Herjólfur kominn niður í 0-3 ferðir á dag, og rétt farið að hausta.
Ekki einu sinni ófært að fljúga og Herjólfur er
stóra strand í Landeyjahöfn!
Má þá reikna með að Landeyjahöfn "sléttfyllist" af
sanddrullunni og öskujukkinu í næsta suðaustan fári
vetrarlægðar upp á 45 metra á sek.?
Jafnvel skárra að fara út í "hrísgrjónarækt" í Landeyjarhöfn
næsta vor, þá nokkrar vel bólgnar vetrarlægðir hafa blásið
stíft vikum saman, og Markarfljót er búið að "snýta sér hresilega"
og losa sig við slatta af "öskuneftóbaki"?
Máske aldeilis brilliant að brúka höfnina sem hrísgrjónaakur
næstu árin, og sleppa því að eyða milljónum milljóna
í að moka jarðefnum og gromsi burt?
Verða þá Landeyjabændur mestu "hrísgrjónabændur"
Evrópu, en Eyjamenn stærstu neytendur slíkra grjóna á litla Fróni,
þar sem rétt þætti að þeir fengu þriðjung af uppskerunni
FRÍTT, sem skaðabætur fyrir strandaðan og "marandi-í hálfu-kafi-Herjólf"?
Verða þá kvart-buxur aftur vinsælar hér norður
í Ballarhafi.....og kínverski hrísgrjónahatturinn ÓMISSANDI?
Jamm.
Og kannski að Eyjamenn geti farið út í það,
að koma upp sæmilega stórum "kláf"
í langri línu milli lands og Eyja í staðinn fyrir
ófæran Herjólf, og skotist í honum upp á land
eftir vistum og lopabandi í nýja flík á jólum?
Fyrst Johnsen fær ekki pening fyrir skóflu til að moka göngin.
Nú er húsfreyja aðeins meðalsnjall Frónbúi, en jafnvel
hún, sem og megin þorri þjóðarinnar, vissi að það
yrði bara vesen og mergjaður vandræðagangur
að byggja höfn fyrir sæmilega stóra ferju á SANDI,
"við hliðina á" Markarfljóti við ræturnar á "af-og-til-og-ekki-svo-
langt-á-milli-gosa öskuspúandi eldstöð" undir Eyjafjallajökli.
Hafnarspekingarnir gátu bara spurt okkur.
Jamm.
Og ekki vilja Eyjamenn sigla í Þorlákshöfn, sei sei nei.
Láta reyna á nýju höfnina/nýja sandkassann fyrst.
Nú ef allt fer í kaldakol og óefni vegna of mikils "efnis"
á hraðri leið inn í Landeyjahöfn, væri máske ráð
að bjalla í Obama og fá hann til leigja Eyjamönnum
einn lítið notaðan "kafbát" af stærstu og bestu sort.
Skella framan á hann jarðýtuskóflu, og senda hann
alltaf korteri á undan Herjólfi upp á land, til að
"grafa skurð" í gegnum jarðefnajukkið í Landeyjarhöfn.
BINGÓ!
Málið dautt!
Og Frónbúar finna máske fyrstir upp "neðansjávarjarðýtuna"
hér á móður jörð, og komast í Heimsmetabók Guinness!
En húsfreyja ætlar að gá að gamla "handlóðinu" hans afa hennar næst,
og vita hvort hún komi því ekki í verð.
Góðar stundir.
![]() |
Hillur að tæmast í Eyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 23.9.2010 kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)