Færsluflokkur: Bloggar
20.11.2010 | 14:44
23. júní. 2007.
Er þetta ekki frétt frá góðærinu eina og sanna,
þegar ALLIR hér uppi á litla Fróni urðu ofursnjöll
fjármálaséní, og ekki bara elstu börn foreldra?
Jaso.
Húsfreyju grunar að sá sem setti inn frétt þessa
á þeim drottins degi 20. nóv.2010 sé elstur 8 barna
foreldra sinna, og nú sé komið að uppgjöri þeirra systkina
allra og sá elsti vilji hafa vaðið fyrir neðan sig og kunngjöra
yngri "pöpulnum" hver sé viskubrunnur fjölskyldunnar.
Ekki það, að húsfreyja er elst af sínum systrum,
hvort hún hafi hærri greindarvísitölu en þær lætur hún liggja milli hluta,
enda hefur hún ekki hugmynd um hvort það sé tilfellið.
Hinsvegar nýtur húsfreyja þess að hafa snemma þurft
að spreyta sig í lífinu, gæta systra sinna og um leið kunna
sínum eigin fótum forráð.
Finna lausnir á snúnum málum, eins og sjóblautum fatnaði þeirra,
"fýlsælu" á skóm og hvernig gamli ónýti traktorinn af
Kirkjubæ virtist vera allur kominn út í garð okkar systra
í bitum og bútum.
Foreldrarnir iðulega rasandi á uppátekt sinna dætra, og
ef þær hefðu ekki átt hauk í horni, sjálfan Guðmund afa sinn á
heimilinu, sem reddaði með aðstoð húsfreyju því versta fyrir horn,
er næsta víst að þær væru allar þrjár systurnar enn í "stofufangelsi"!
Enn skrýtið þetta.... eru blaðamenn máske að athuga EFTIRTEKT okkar Frónbúannna?
Góðar og gáfulegar stundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2010 | 21:32
Á!
"... þeir voru bara að spyrja að,
leiðinni niðr' að á" söng Laddi hér á árum áður.
Hann skyldi þó ekki hafa grunað að við værum
allmörg komin af indíánum Ameríku í beinan kvenlegg?
Aldrei að vita.
Húsfreyju finnst það bara besta mál ef langa, langa, langa....
langaamma hennar hefði sannanlega verið grannvaxin, svarthærð skvísa,
fædd á því herrans ári 980 fyrir Kristsburð í Vesturheimi.
Svona Pokohontas-eitthvað.
Hvað vitum við hvað Leifur heppni og hans menn voru að gaufa og gutla,
á meðan þrælar þeirra byggðu búðir og sáðu í akra, en konur þeirra prjónuðu sokka
og brýndu vopn þeirra á meðan þær spáðu í landsins gæði,
veðurfar og hvort hægt yrði að finna góða "ljósmóður" á
svæðinu þá börn tækju að fæðast?
Jamm.
Máske voru þarna leynileg ástarsambönd í gangi
tvist og bast!?
Bara allt logandi í framhjáhöldum og dodoi?
Undir vínviðnum?
Máske karlmenn allir á myljandi fylleríi (samanber Vínland)
og kvennafari dögum og vikum saman?
Jamm, maður spyr sig.
"Langa" húsfreyju gæti þá um aldamótin 1000 hafa verið tvítugt glæsikvendi,
með síða svarta lokka, ofboðslega flott ljósbrún augu,
og með lítinn fæðingarblett á utanverðri löngutöng
vinstri handar.
Þetta hefur auðvitað enginn samanbrýndur, skögultenntur, langnefjaður
karl frá litla Fróni árið 1000 geta staðist.
Þeir rauðbirknu, síðhærðu fyrrum víkingar og írskir þrælar
allir nýorðnir sannkristnir,
hafa þá kolfallið fyrir ómótstæðilegri konu þessari og BINGÓ
hér erum við rúmum 1000 árum síðar.
Húsfreyja hefur fæðingarblettinn á "löngutöng" vinstri handar því til sönnunar.
Jamm þetta líst húsfreyju aldeilis brilliant vel á....Á!
Ó já.
Vill miklu fremur vera af ætt frumbyggja Ameríku en glæpona
frá Noregi.
Jújú, seisei.
Slatti af þjóðflokkum indíana var herskár vel og í mikilli "höfuðleðraútgerð",
sér í lagi þá þeir börðust við hvíta menn í Ameríku, en obbinn var samt friðsælt
fólk sem lifði í sátt við móður jörð, náttúruna og báru virðingu
fyrir öllu lífi.
Og virðing fyrir öllu lífi og náttúru er góður arfur.
En langa,langa,langa.......langamma sem mælir með því
að skapstyggur strákstubbur kaupi sér fley og fagrar árar til þess eins
sigla á brott og "höggva síðan mann og annan" í næstu höfn
á ekki upp á pallborðið hjá húsfreyju.
Neipp.
Ofbeldi vondur arfur.
En fínar fréttir þetta, og aldrei að vita nema það verði
"indíánaarfurinn" sem bjargar okkur út út bévítans
kreppufárinu.
Ekki amalegt það ef VIÐ hér uppi á litla Fróni
reyndumst vera "síðustu Móhíkanarnir"..hehehe.
Góðar stundir og .......Á!
Eiga rætur að rekja til indíána | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.11.2010 | 18:40
Þetta er bara kjaftæði...
... las öldungurinn hátt og snjallt
fyrir eldkláru nánast blindu frúnna á tíræðisaldri.
"Hvað segirðu góði", hváði frúin hissa, "hvað er kjaftæði"?
"Nú það get ég ekki séð" svaraði öldungur, "því letrið er svo smátt,
en þetta stendur hérna í blaðinu, er fyrirsögnin".
"Nú kannski er einhver að svara hinni fyrirsögninni sem þú last áðan.
"JESÚ SNÝR AFTUR"!, sagði frúin aldraða vongóð.
"Jú... kannski" öldungur rýndi í blaðið efinn á svip, á mynd sem
fylgdi "kjaftæðisgreininni"..."nei hann er ekkert líkur Jesú þessi"!
"Jæja, það er þá jafn gott, því þeir kirkjunnar menn halda því fram að
Jesú eigi eftir að koma aftur" sú aldraða ákveðin, " og þá er eins gott að
vera ekki með eitthvert kjaftæði við hann, blessaðan".
Öldungur gjóaði augum á öldruðu augum, og dæsti:
"Verð að ná í gleraugun mín, svo við fáum einhvern botn í þetta "kjaftæði".
"Nei, blessaður vertu, slepptu því, góði. Þetta er áreiðanlega eitthvert
krepputal eða spillingarrugl á neikvæðu nótunum. Fjaðrafok og endaleysa".
Og gamla skellti í sig síðasta kaffisopanum úr bollanum: "Nennum ekki að
hlusta meir á slíkt...komdu við skulum fara upp í BINGÓ".
Og upp fóru þau í BINGÓ og þar var sko bara spjall og gleði, ekkert kjaftæði.
Húsfreyju var skemmt yfir samskiptum þessum, og sneri sér að frú einni
sem fær 4 tegundir af augndropum tvisvar á dag.
Sú neitaði BINGÓferð alfarið "þú veist vel góða sem hefur það sem
"atvinnugrein" alla daga að setja dropa í augun mín, að ég sé
ekki neitt á BINGÓspjöld og þess háttar lengur. En veistu hvort
Herjólfur komst í "Sandeyjarhöfn" í dag" og kerla glotti kalt.
"Nehei", húsfreyja hló, " það veit ég ekki, en ætli það verði ekki stíf austanátt fram á mitt
næsta sumar, og þá komist loks Herjólfur nokkrar ferðir í Landeyjahöfn um
þjóðhátíð hjá þeim í Eyjum"!
Það krymti í kerlu: "Það væri þá vel, ef hægt væri að nota höfnina sem
þjóðhátíðarhöfn næstu árin".
Síðan hlógu þær báðar
Það er enginn bölmóður í elskulegum öldungum húsfreyju, þrátt fyrir
fregnir af kjaftæði, fjaðrafoki, tunnubarningi, spillingu og jafnvel
endurkomu frelsarans.
Reynslan og lífið hefur kennt þeim að æðruleysi og þrautseigja
reynist best, þegar kreppir að.
Öllu mætt með heimspekilegri ró.
Sólin kemur aftur upp á morgun.
Nýr dagur rís, með nýjar áskoranir, nýjar lausnir og ný átök.
Ekkert varir að eilífu, hvorki góðæri né kreppa.
Jafnvægið er best, segja öldungar húsfreyju, sveiflur
skapa óróa og spennu.
Húsfreyju líður vel innan um öldunga sína.
Þar er ekki stressið eða djöfulgangurinn.
Allt á sér sinn tíma.
Allir eru sáttir við Guð og menn.
Lífið er ljúft ...og svo vinnurðu í BINGÓ!
Góðar stundir á köldum nóvemberdegi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2010 | 20:58
Ertu maður eða mús... eða geimvera?
Háttvirtur borgarstjóri er
þá yfirlýstur "ekki-geimvera" af hálfu
geimverufélagsins?
Er þó eigi að síður óumdeilanlegt að móðir Jörð snýst
í kringum sjálfa sig og sólu í geiminum.... og við þar með
jarðarbúar búandi á hnetti í "geiminum"... eða hvað?
En máske er þá M. Skarphéðinsson að lýsa yfir því, að Gnarrinn
hafi eigi fæðst úti í geimnum, eða utan jarðar?
Sé eðal ekta ALVÖRU jarðarbúi, Gnarrinn!
Jamm meikar þokkalega sens.
Nema auðvitað að foreldrar hans hafi verið leynilegir
geimfarar á vegum Nasa í mörg ár?
En þar sem Gnarrinn vísaði í annars ágætan leikara og umdeildan
ríkisstjóra Kaliforníu fyrir vestan, þá er Gnarrinn
kannski að ræða um sig sem "drápsvél" utan úr geimnum líkt
og ríkisstjórinn barðist grimmt við hér í bíó á árum áður?
Jæja, Gnarrinn þá komin með uppáskrifaða yfirlýsingu frá
geimverufélaginu, að slíkt sé af og frá.
Gnarrinn er ekkert slíkt.
Sjúkkit!
Reyndar telur húsfreyja sjálf sterkar líkur á því,
að hafi Gnarrinn rétt fyrir sér, og að hann SÉ geimvera frá
framandi hnetti úti í geimi, þá sé hann kominn í beinan
ættlegg af hinum góðlega E.T og hans fjölskyldu.
Og megi þá jafnvel vænta mynda í fjölmiðlum af
Gnarr á myljandi "reiðhjólaflugi" yfir borginni á næsta fulla tungli:
"Gnarr, phone E.T at home"!
Sjálfsagt gasalega gott símsamband "þarna uppi".
Jamm, merkilegt það ef við höfum fengið veru frá öðrum hnetti utan úr geimi
sem borgarstjóra hér í borginni við sundin bláu.
Okkur fellur alltaf eitthvað til.... og það af himni ofan!
Nú og svo er nú Gnarrinn líka andlega þenkjandi maður, og
sjálfsagt "miðill" líka.
Er í mergjuðu MIÐLANDI sambandi við hinn "steindauða" GAMLA Sjálfstæðisflokk
litla Fróns, sem neitar að viðurkenna að GAMLI flokkurinn sé dauður.
Jamm, margt skemmtilegt og skondið í kringum Gnarrinn,
og aldrei dauður tími.
Hvort hann hafi tíma í "jarðneska" hluti eins og að stjórna
borginni við sundin bláu, er svo spurning út af fyrir sig,
sem erfitt er að finna svar við.
Ekki síst þegar gæðaleikararnir Arnold Swartzenegger, Swayze og Goldberg
eiga hug borgarstjórans allan.
En líklega er það gleðiefni borgarbúum að "Superman" virðist ekki háttskrifaður
hjá Gnarrinum, þó sá kappi hafi verið ekta "utan úr geimnum-vera"
í þeim kvikmyndum.
Þætti oss borgarbúum sjálfsagt mega hallærislegt,
ef borgarstjóri vor mætti á opinberan
"leiðinda-langdregin-fund" á bláum nælonsokkabuxum með eldrauða skykkju.
En stjörnubjört og köld vetrarkvöld framundan.
Farið út og kíkið til stjarnanna.
Aldrei að vita nema þið komið auga stöku fljúgandi diska á sveimi
og tunglskinsglaða hjólandi borgarstjóra.
Góðar stundir.
Jón Gnarr er ekki geimvera | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 11.11.2010 kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
7.11.2010 | 18:14
Fjallaspjall.
Hún var þung á brún og með
gráhvítu nátthúfuna sína þétt bundna
undir kinn.
Sat virðuleg sem endanær á sínum stað og starði stíft fram fyrir sig
og virti ekki húsfreyju viðlits.
Húsfreyja áræddi samt að ávarpa þá öldruðu:
"Góðan og blessaðan dag, Esja mín kær, hann
blæs napurt í dag, finnst þér ekki"?
"Hrumph" það hummaði í kerlu, "ekkert hjá
þér þarna niður við sjó, komdu bara upp í fimbulkuldann
á mínum toppi, þá verður þér KALT, húsfreyja"!
Og kerlan hló stórkarlalega, um leið og ísköld þokan
læddist hljóðlega um hana efst.
Húsfreyja hryllti sig: "Ég er eiginlega ekki í fjallgönguhugleiðingum í dag,
kæra frú. Ætla bara að bregða mér í verslanir, kaupa inn mat og
snjóbuxur á níu ára djásnið mitt".
Sú gamla gjóaði skörpum augum á gráa kólgubakkana
í vestri: "Þetta mun nú aðeins vera regn í dag, góða mín,
en ég spái að Vetur konungur sé skammt undan með
heldur kaldari spýjur, svo hafðu brækur þessar á dótturina
vel hlýjar og vandaðar".
Húsfreyja sagðist mundu gera það, en fannst kerla eigi hafa
lokið máli sínu, svo hún beið átekta.
Sú gamla ræskti sig.
"Hef verið að hugsa húsfreyja, hvort nokkurt gagn mætti hafa
af þessum GRÍNMEISTARA sem þið hafið þarna við völd í
borginni"?
"Huh, þú meinar borgarstjórann okkar hann GNARR"? spurði húsfreyja.
"GNARR, hrumph, það var þá nafnið á borgarstjóra" kerla skók sig
svo lítið bæri á.
"En látum það nú vera hvað karlinn heitir. Getur maður þessi séð
til þess að fólk sé ekki að brjóta sig og bramla hér í mínum hlíðum...
jafnvel fara sér á voða og drepa sig"?
"Tja, hvað áttu við"? spurði húsfreyja.
"Nú þegar vetrar þarf að tryggja að allar gönguleiðir séu
vel merktar og stikaðar. Tala ekki um ætli fólk sér alla leið upp á topp".
"Jú, sjálfsagt gæti borgarstjórinn beitt sér fyrir því, kæra Esja"
svaraði húsfreyja að bragði.
"Jæja, kannski ég reyni þá að senda honum HUGSUN,
því mér leiðist afskaplega þegar menn eru að hrynja eins
smásteinar niður hann INGÓLF fyrir austan í suðurlandsskjálfta,
niður hlíðarnar mínar".
"Já, þú ferð nú létt með það, svo snjöll sem þú ert að
senda okkur mannfólkinu hugsanir" kom svar húsfreyju.
"O, ég kann nú ýmislegt fyrir mér, enda er ég nær jafngömul
landi þessu og af því fædd" svaraði sú aldraða drjúg.
"Hitt er annað, hugsanir get ég sent ykkur tvist og bast,
en svo er það andskotanum sárara og erfiðara að fá ykkur til að
MEÐTAKA þær og framfylgja þeim"!
Jú, húsfreyja gat alveg séð að það gæti stundum verið stórmál.
"Já, sjáðu bara þetta með skógræktina hérna í mínum hlíðum",
kerling nokkuð örg.
"Hér mátti ég híma kviknakin og skítkalt öldum saman, skógarlaus og nánast
gróðurlaus fyrir utan smá grasþúfur og blessaða hvönnina, sífellt að
senda ykkur treghugsa hugsun um skógrækt og uppgræðslu.
Og hvar byrjuðu þið svo að rækta? Jú, í hraunum og svo dalverpum
fyrir austan og norðan"!
Kerlan gnísti saman tönnum.
"Svona, svona" svaraði húsfreyja róandi, "það er komin ljómandi
myndarleg og falleg skógrækt hér í sunnanverðar hlíðar þínar..og víðar".
"Já, og maður má víst þakka fyrir það" hvessti sú aldraða sig,
"og vera glaður að þið mannskepnurnar skulið ekki æða yfir
smáhríslurnar mínar á sleðafarartækjum og dótaríi á
fjórum hjólum"!
Húsfreyja horfði á fjall sitt hugsi: "Það er aldeilis að kerlu er
þungt í skapi í dag" hugsaði hún.
"HAH, þetta heyrði ég húsfreyja" kerlan snögg, "gleymdu ekki því
að ég LES ykkar hugsanir betur en þið stautið ykkur í gengum
þessa bókarbleðla ykkar, sem allir eru að auki skráðir á dýrmæt TRÉ".
Jaso, húsfreyju varð svarfátt.
"En heyrðu greyið mitt, ég ætlaði ekki að láta vetrardrunga minn
bitna á þér" kerla blíðari á manninn.
"Þú ert ágæt hróið mitt, og ein af fáum sem nennir að spjalla
við eldgamla fjallakerlingu".
Húsfreyja hló. "Og þú verður eldri og vísari með hverjum degi,
og lifir okkur mennina alla".
"O jæja, ætli ég reyni ekki að standa mína plikt sem verndari ykkar
krílanna þarna niðri í ljósadýrðinni. Þið eruð svo viðkvæm
og lifið svo stutt, og farið ykkur allt of oft á voða.
Megið alveg læra að bera meiri virðingu fyrir náttúrunni og
"ykkur sjálfum", hróin mín, svo allt gangi ekki aftur á bak".
Og kerlan kýtti sig í herðum, sneri sér frá húsfreyju og
horfði öldnum en snörpum augum til hafs.
Samtalinu var lokið.
Húsfreyja dreif sig inn í bifreið sína og brunaði af stað
í matarkaup, og keypti sérlega vandaðar og hlýjar snjóbuxur á
níu ára djásnið.
Gangið hægt um dyr Veturs konungs, hafið vaðið fyrir neðan ykkur
á öllum ykkar ferðum og njótið fegurðar nátúrunnar í botn án þess að
skaða hana.
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2010 | 17:49
Skratti góðir dagar.
"Sigga, ég vil fá meiri köku",
Marinó Týr mættur í þriðja sinn að veisluborðinu.
Húsfreyja tróð sér í gegnum 12 ára krakkaþvöguna,
og skar væna sneið handa 5 ára frænda sínum.
"DJÍSUSS, ég er eins og dvergur við hliðina á
þessum 12 ára stelpum" hugsaði húsfreyja.
"Telst ég fullvaxin þó" hélt húsfreyja áfram þönkum sínum.
Leist mun betur á drengina í afmælisveislu Svölunnar,
allir minni en húsfreyja, nema tveir.
En þeir löngu 12 ára slöttólfar lágu hvort eð er endilangir
á stofugólfinu og teiknuðu og lituðu grimmt, svo það kom ekki
að sök, hvað húsfreyju varðaði.
Húsfreyja dældi gosinu jafnt og þétt í glös risavaxinna stúlknanna,
og jafnvel fyrir einn og einn smávaxinn dreng.
Pizzurnar runnu glatt ofan í liðið.
"Sigga, ég vil fá meira Appelsín", Marinó aftur og
tog í olbogann: "Mamma, ég er EKKERT búin að fá",
níu ára djásnið örlítið ásakandi.
Húsfreyja reddaði Appelsíninu í einum hvínandi hvelli,
og djásnið fékk væna sneið af pepperónipizzu og Pepsí í glas.
Marinó rukkaði fljótlega aftur um tertusneið, og húsfreyja
skellti síðustu sneiðinni á pappadisk, skáskaut sér milli
gólfliggjandi drengjanna, og tveggja mjög hávaxinna stúlkna
sem stóðu þétt upp við stofuskápana, en aðeins 20 cm frá
"gólfunnendunum", og færði móður sinni!
Móðir húsfreyju sem hefur ætíð gaman af blöðrum og afmælum,
var hálfbakk í rúmi sínu vegna "vatnsblöðru" sem stungið hafði
sér undir aðra hnéskel hennar.
"Síðasta sneiðin! Það er nóg til, heil önnur terta frammi í
ísskáp í bílskúrnum" , múttunni um og ó!
Og móðirin skakkalappaðist fram og náði í teruna....lenti
í sömu þrengslum og húsfreyja á milli slánanna, sem ekki
hreyfðu sig af gólfinu, frekar en stofuskápselskandi
stórvöxnu dömurnar.
Móðirin með tertuna á lofti bað gólfdrengina að færa sig örlítið
sem þeir gerðu ljúflega, báðir "ofan á og í veg fyrir" fæturnar á múttu.
Móðirin tertuglaða hrasaði þar með beint ofan á peyjana,
og mátti sig hvergi hræra...tókst með naumindum að bjarga
tertunni frá stórskaða.
Systir að koma úr sjoppuferð...gosið kláraðist á 10 mínútum,
færandi hendi með meira gos, reddaði málunum og múttunni.
Húsfreyja ákvað að taka sér pásu, tók upp prjóna í
ró og næði inni í forstofuherbergi múttunnar.
Marinó kom 4 ferðir að ná í húsfreyju, var óstöðvandi
í tertunni og appelsíninu.
"KRÆST, þeir hafa GRÓIÐ fastir við gólfteppið, löngu peyjarnir"
hugsaði í fjórðu ferðinni, " og hvað skyldu risavöxnu skvísurnar
tvær sjá svona athyglisvert við stofuskápinn"?
Níu ára djásnið kom 3 ferðir og var aðallega þyrst....
húsfreyja prjónaði sáralítið.
En að lokum hafðist að seðja 30 manna hópinn, og leikirnir hófust.
Húsfreyja náði að spjalla við múttu sína og prjóna hálft stykki.
Systir í Þorlákshöfn var með "hlutverk" í draugasöguleiknum, og stóð
í brunagaddi og myrkri fyrir utan sólpallsdyrnar hulin hvítu teppi,
á meðan Sigginn 10 ára bróðir Svölunnar sagði ægilega draugasögu
um sjoppuferð í niðamyrkri, ...og allt í myrkri í sjopunni, en þá kviknuðu
ljósin í sjoppunni allt í einu og feitur sköllóttur sjoppueigandi
sagði með draugalegri og dimmri rödd: "HALLÓ."....
og þá bankaði systir "draugalega" á dyrnar.
Það var öskrað, gargað, orgað og hlegið.
Marinó Týr taldi næsta víst að JÓLASVEINNINN væri mættur,
"...hann er mættur svona svimandi snemma, Sigga frænka"!
"Besta afmæli EVER" sagði níu ára djásnið með þunga,
þá húsfreyju tókst loks að koma henni af stað heim á leið
upp úr klukkan níu um kvöldi.
Í dag var svo sofið fram eftir, skroppið í bíó,
og rætt við húsfreyju um fallegan bleikan lit á vetrarhimni,
vinkonur, afmæli og góða hluti í lífi níu ára djásns.
"Mamma, við kunnum að nota helgarnar vel".
Góðir dagar í fríi...já bara skratti góðir dagar.
P.S Myndirnar tók húsfreyja í sumar.
Bloggar | Breytt 8.11.2010 kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2010 | 14:37
Ófagleg hjálp í SJÁANLEGUM biðröðum?
Eða er þetta "ófaglegt hungur"
í "miður uppbyggilegum" biðröðum?
Veslings Stella K. Víðisdóttir sviðsstjóri
velferðarsviðs Reykjavíkurborgar er "áhyggjufull".
Hjálparsamtökin eru orðin "sýnileg" með sínum löngu
ófaglegu biðröðum.
Og svo eru þær heldur ekki uppbyggjandi, biðraðirnar.
Sei, sei nei.
Ægilegt.
Kolröng aðferð.
Ófaglegt.
Niðurdrepandi fyrir hinn faglega sviðstjóra velferðarsviðs
í Reykjavík að horfa upp á samlanda sína soltna í
löngum röðum fyrir framan hjálparsamtök, er deila út mat.
Aumingja Stella.
En kannski að Stella finni einhverja lausn á "ófaglegum og lítt
uppbyggjandi" aðferðum þessum við matarpokadreifingu?
Máske ráð að flytja alla matardreifingu hjálparsamtaka niður
í iður ráðhússins við Tjörnina, þar sem lítt upplýst bílastæði
geyma bifreiðir á mörgum hæðum, og gera þannig matardreifinguna
lítt sýnilega.
Þar mætti ryðja bifreiðum út, enda allir komnir á
mini-bíla vistvæna og hagkvæma...nema einn maður á Bessastöðum
sem er á stórum en vistvænum Lexus, en hann þarf "sjaldan "
að leggja bíl sínum undir ráðhúsi borgarinnar við sundin bláu.
Hinum bílunum öllum mætti finna stað niður við höfn,
til dæmis fyrir framan Kolaportið eina og sanna.
Flytja síðan mat í tunnum niður í myrkviði ráðhússins,
og afhenda hverjum fyrrum "ófaglegum landa í lítt uppbyggjandi
biðröð", eina tunnu fulla af mat.
Lítil tvíhjóla trilla fylgdi hverri tunnu, svo hægt væri að
rúllu tunnunni með sér hvert á land sem er,
jafnvel ferðast með hana í strætó.
Þegar hinir "ófaglegu þurfandi", hafa klárað matinn úr tunnunni,
mæta þeir bara aftur með hana tóma niður í ráðhús og
fá meira í hana.
Og alveg væri það þá tilvalið, að þeir kæmu við á Austurvelli
með tómu tunnuna, og lemdu hana grimmt,
en þó á "faglegan og uppbyggjandi" máta, í klukkustund eða svo,
áður en þeir smelltu sér niður í iður borgarráðhúss.
Nú eru hvort eð er menn á ferli sínkt og heilagt á þessum
slóðum með tunnur á rölti, svo þó að einhverjir bættust í tunnuhópinn,
væri það lítt áberandi, og sviðstjóri velferðarsviðs gæti
glaðst í hjarta sínu yfir "horfnum ófaglegum og lítt uppbyggjandi" biðröðum.
Þessar áhyggjurnar á bak og burt....piff púff!
Jafnvel gæti farið að hafa áhyggjur af skólamálum og málefnum fatlaðra og aldraðra
í staðinn, blessunin hún Stella.
Jamm, nei, bara svona hugmynd frá húsfreyju á föstudegi.
Húsfreyja er í ágætu "ófaglegu og litt uppbyggjandi" fríi frá störfum
í dag
Ætlar bara að liggja í leti og ómennsku fyrri part dags, skella
sér síðan í "uppbyggjandi" bað og skreppa í eina herlega, fjölskylduvæna og
"faglega" reisu austur fyrir fjall í 12 ára afmæli Svölunnar með 9 ára djásninu
seinni partinn.
Góðar stundir og njótið helgarinnar bæði faglega og á uppbyggjandi máta.
Deila á matargjafir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.10.2010 | 18:21
...og útlit fyrir enn verri rjúpnaveiði.
Eða það hefði húsfreyja talið líklegt.
Eða eru rjúpur mikið fyrir að
vera á flögri í bálviðri?
Eða hópa sig máske saman í heilu kippunum
við aðal jeppaslóða rjúpnaveiðimanna og bíða
dauða síns í stóískri ró og organdi kafalds snjóbyl?
Jamm, húsfreyja þekkir lítt til rjúpna, nema
ef vera skyldi að þær væru svona yfirleitt "einar upp til fjalla, yli húsa fjær",
flýjandi fálka beint í fangið á "snúandi úr hálslið og fiðurreytandi"
kvensniftum, eins og segir frá í einu merku ljóði.
Skuggaleg rjúpnaörlög það.
Jæja, kannski ekki aðalatriðið hvað rjúpur eru að brasa
í fárviðri, þegar rjúpnaveiðimenn eru annars vegar.
Þeim sumum hleypur kapp í kinn, og gerast síðan lesblindir mjög
og heyrnadaufir með afbrigðum, þá veðurfræðingar lofa
hressilegu "leitarveðri" með blindhríð, hvassviðri og djöfulgangi á fjöllum.
Og þá er að leita-DÆS-!
Og leita.
En huggun harmi í, þá er það ætíð ofsafengin gleði
sem fylgir því að vera FUNDINN, hafi maður týnst
í geggjuðu veðri á fjöllum.
Myljandi stuð og mögnuð hamingja.
Jamm.
En húsfreyja telur illu heilli, að rjúpnaveiðimenn munu sumir
hengja sig í setninguna "með talsverðri ofankomu" í kolsvartri
veðurfrétt þessari.
Er ekki "talsverð úrkoma" bara ávísun á "þokkalega meðalúrkomu".....
máske jafnvel bara verið að tala um nokkuð öran "éljagang"!
HA? Bara fínasta veður?
Og svo týnast menn á fjöllum.
Jamm.
En svona til að alls réttlætis sé gætt, þá ber að minnast
á allar pottþéttu rjúpnaskytturnar, sem ætíð hafa
vaðið fyrir neðan sig, og sitja heima yfir krossgátum og fótbolta
þá stormur og hríðabylir geysa á fjöllum og eiga þær skyttur hrós skilið.
Rjúpuna veiða rjúpnaskyttur þessar fyrir því, í blíðviðri, öruggar
og ALDREI týndar.
Góða helgi og njótið "innistunda" í faðmi fjölskyldu sem allra best.
Útlit fyrir afar slæmt veður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 29.10.2010 kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2010 | 22:02
Vetrarfríið...
... er fyrir börnin að ósk foreldra".
Konunni í útvarpinu var mikið niðri fyrir.
"Í alvöru" hugsaði húsfreyja, þar sem
hún ók bifreið sinni í gegnum haustlegar
og blautar götur heim til níu ára djásnsins,
og ömmu Stínu.
Amma Stína, móðir húsfreyju hafði boðist til að
mæta í borgina við sundin bláu og stytta níu ára
djásninu stundir, á meðan vetrarfríi stóð,
þar sem eigi var fengsælt um frí frá vinnu hjá foreldrum
djásnsins.
"Já", konan var á innsoginu, "það var gerð könnun og það
vildu þetta "allir" foreldrar fyrir börnin sín þó það lengdi skólatímann".
"Kræst" hugsaði húsfreyja, "ekki rekur mig minni í slíka
könnun, og þá hef ég aldeilis skitið upp á bak hafi ég
eindregið óskað eftir vetrarfríi til handa skólabörnum".
Húsfreyja rótaði nú grimmt í sínum innstu hugarskotum,
en fann ekkert um neina vetrarfrískönnun, aðeins
nokkra skúmaða þanka um að klífa Everestind við
tækifæri, og hvort Beverly Grey bækur hennar hafi allar farið
undir hraun 1973... (afi átti alltaf Tópas...small inn)
og svo efasemdir um gnótt skeinipappírs í
baðherbergisskápum hennar.
Þar sem útvarpsmaður sá er ræddi við áköfu konuna,
virtist jafn gáttaður og húsfreyja, datt henni í hug
að könnun þessi gæti þá ef til vill verið "góðæriskönnun"
frá vetrinum 2006-2007...?
En hraðmælta, ákafa konan sem reyndist vera kennari,
minntist ekki einu orði á það, hvenær könnun þessi
hafði farið fram, eða hverjir hefðu staðið fyrir henni.
"Jaso" húsfreyja setti í brýrnar.
Níu ára djásnið hafði sumsé verið dæmt í vetrarfrí
í 3 virka daga-VINNUDAGA foreldranna, af algjöru ábyrgðarleysi
og í hálfgert reiðuleysi af "sínum eigin foreldrum".
"Andskotinn með nef eins ormétið rotið epli, nú fengi bóndi sko
GÚMORRINN á Latínu frá húsfreyju, þá hann kæmi heim"!
En húsfreyju þótti næsta víst að bóndi hennar hefði
asnast, eins og góðærisauli að sækja um lán hjá sínu
eigin fyrirtæki eða banka, til að taka þátt í könnun
þessari um vetrarfrí barna, og bara verið asskoti hress og jákvæður,
fyrst hana rak ekki minni til þessa.
"Annað hvort það, eða hann hefur troðið húsfreyju
í að svara könnuninni, þá mergjaðir vírusar sveimuðu um heilabú
hennar með tilheyrandi 40 stiga heitum þokuskýjum og heilabilunarþankagangi.
Hvort heldur var, þá var hann SEKUR maður".
Húsfreyja hvæsti reiðilega, "hvurnig datt bónda hennar þessi
endaleysa í hug...og það í bankahruni og dómdagskreppu"?
Húfreyja sló ekki stefnuljósið af, þó hún væri fyrir löngu búin að
beygja, af einskærri vonsku og bræði.
"Látum bara helvítið blikka"!
Tókst eigi að síður, húsfreyju að komast heilu og höldnu
heim á bifreið sinni, enda er ökusnilld hennar við brugðið....blikk...blikk...
hvurn fjandann þarf maður sosum alltaf að vera að BAKKA?
En um kvöldið sór bóndi og lagði sárt við að vetrarfrískönnun þessa
hefði hann aldrei séð né heyrt.
"Þú hefur þá tekið þátt í henni, ef hún hefur verið
send okkur í ímeilinu" tjáði hann arfareiðri húsfreyju.
DJÍSUSS!
Húsfreyja man ekkert slíkt, en varla lýgur útvarpið.
Um nóttina barðist húsfreyja í gegnum hverja martröðina
af fætur annari, og svaraði könnunum villt og galið JÁKVÆTT
um að hafa "sumarfrí" skólabarna um miðjan nóvember, en foreldranna
í marsbyrjun, vetrarfrí yrði lengt um 1o daga,
páskafríið yrði sömuleiðis lengt og lyki ekki fyrr en 4 júlí.
HROÐI.
Reyndi húsfreyja að afsaka sig í bak og fyrir við vinnuveitenda, sem hringdi
jafnt og þétt í martröðum þessum,
og spurði hvenær mætti næst vænta hennar til starfa.
Jamm.
Húsfreyja virðist greinilega fara hamförum í könnunum henni sendar
rafrænt, og er svo í djúpum skít þá afleiðingar
djöfulgangsins koma í hausinn á henni.
Húsfreyja mun nú taka sér tak, og ALDREI framar
svara nokkurri könnun, rafrænt eður ei.
Sér í lagi mun hún FORÐAST kannanir um skólamál,
barnavetrarfrí og skólagöngu barna langt fram á sumar.
Í besta falli mun hún skella sér í kannanir sem
gerðar eru á bragðmun Coca Cola og Pepsi eftirleiðis....
fínt að fá koffín og sykur frítt í blóðrásina á krepputímum .
Jepp, ekki spurning.
Var annars norðan heiða, húsfreyja, með vetrarfrísdjásni
og bónda um síðustu helgi.
Miðfjörðurinn spegill á köldum haustdögum, föl á jörðu
og læða húsfreyju setti upp "háhæla skóna" og tiplaði
beint úr bílnum og inn, upp á hlýja þvottavél tengdó.
Níu ára djásn lék sér við Völu frænku sína og fór
í "grýlukertaleiðangur"með húsfreyju upp með á.
Alltaf merkilegt að sjá muninn á veðri Norðurlands og
hér fyrir sunnan.
En lesa með djásninu næst, því það er skóli á morgun.
Vetrarfríið er víst búið.
Góðar stundir, og í guðanna bænum, ef þið eigið vetrarfrí: Njótið þess!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2010 | 18:05
Örvasa ríkisbubbar á bótum?
Duga skammt 100 millurnar hjá
suddalega moldríku fólki þessu,
fyrst það ÞARF atvinnuleysisbætur í ofanálag.
Húsfreyja yrði að fá mjög NÁKVÆMAR leiðbeiningar
ætti hún að eyða 100 milljónum sisona,
og yrði sjálfsagt að fá að spenna slíkri upphæð
á nokkrum árum ...... nema auðvitað hún smellti sér með "aurana"
til Las Vegas með Ödda og Gillz á morgun.... væri fljót að
snara út aurunum, og sjálfsagt komin heim slypp og snauð
fyrir hádegi á þriðjudag.
Ekki heppin kona í spilum, húsfreyja, og hefur tvívegis
fengir "skammarverðlaun" í félagsvist um ævina......
og þrisvar tekið þátt í félagsvist.
Merkilegt samt að þokkalega "vel stæðu" fólki þessu
þyki það hafa þörf fyrir atvinnuleysisbætur.
Í hvað notar fólk þetta fé sitt, þessar 100 milljónir,
ef ekki til að greiða af lánum, kaupa í matinn, borga rafmagn
og hita, borga bensín, kosta börn sín í skóla og borga símreikningana?
Allt í einu bara "skítblankt" og atvinnulaust lið,
með sínar 100 millur, að missa ofan af sér, verið að loka fyrir rafmagnið,
krakkarnir að hætta í framhaldsskólum og á ekki fyrir
flösku af Sjardonney með kvöldmatnum á fimmtudegi.......nema
það fái greiddar atvinnuleysisbætur.
Allir peningar húsfreyju hafa hingað til farið í húsnæði, barn og bíl,
enda hefur hún ALDREI átt 100 milljónir, MUN líklega aldrei
eignast hundrað milljónir, né heldur mun hún ÞURFA
100 milljónir til að lifa ágætlega sómasamlegu lífi.
Nær meira að segja að styrkja líknar-og styrktarfélög
sjúkra og ógæfufólks tvisvar til fjórum sinnum á ári,
án þess að sleppa Kit-Kattinu og sölinni í staðinn.
Er húsfreyja meira að segja búin að splæsa á sig einni Sjardonney
þetta árið, þá hún fór í óvissuferð!
Jamm, ólíkt höfumst við að, þrjúþúsundsexhundruþrjátíu og tvö-mennin
og svo allur þorri þjóðarinnar, á krepputímum.
Þorrinn kreppir hnefann og skekur upp í andlit kreppustormsins og
rær lífróður á þjóðarskútunni fyrir að meðaltali 150-350 þúsund krónur
á mánuði svo börnin okkar,
næsta kynslóð megi lifa þokkalega mannsæmandi lífi.
Hundrað milljón króna fólkið sér sóma sinn í því að sækja
um bætur verði það atvinnulaust.
Jamm, tarna er furðuleg mannskepna, hundrað milljón króna maðurinn.
Er kannski 100 milljóna fólk þetta af "nykurættum"
....nykursins í Reykjavíkurtjörn eft til vill.
Hvað veit húsfreyja?
Ekki baun.
Góðar stundir, og húsfreyja lætur vita, finni hún vísbendingar
á förnum vegi um "hvernig á að eyða 100 milljónum"!
3.632 eiga 750 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 27.10.2010 kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)