Færsluflokkur: Bloggar
25.12.2008 | 13:18
Kærleikurinn er eilífur.
Og boðskapurinn um návist og kærleika Guðs.
Þetta finnst húsfreyju vel orðað hjá
séra Jóni Helga í Langholtskirju.
Og gæti ekki verið honum meira sammála.
Aðstæður okkar mannanna barna eru
margslungnar og breytilegar, bæði í
fortíð, nútíð og framtíð.
En kærleikurinn ER.
Svo einfalt er nú það.
![]() |
Boðskapurinn breytist ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2008 | 12:19
María Magdalena....
....að valda dönskum
biskupum áhyggjum í
byrjun 21. aldar!
Merkilegt þetta.
Húsfreyja fær ekki séð að
kærleiksboðskapur Jesú frá
Nasaret breytist hið minnsta, þó
hin ljúfa mey María Magdalena hafi
verið hans "mest elskaði" lærisveinn.
Ekki einu sinni þó hún hafi verið ástkona eða
eiginkona Jesú.
Boðskapurinn stendur tær og kærleiksríkur
eftir sem áður.
Þó forpokaðir ritskoðendur Biblíunnar hafa viljað
gera guðssoninn sem háheilagastan og
afneitandi öllu holdlegu samneyti við konur, þá
geta þeir aldrei breytt þeirri staðreynd, að
Jesú var einnig barn jarðneskrar móður.
Var maður rétt eins og við hin, átti
jarðneskt líf og mannlegar tilfinningar.
Og því skyldi hann ekki hafa orðið ástfanginn,
rétt eins og aðrir ungir menn jarðar?
Kreddufullir og forpokaðir siðapostular,
páfar, biskupar og klerkar "vilja" hafa
Jesú sem "kynlífsafneitandi" piparkarl,
sem ekki svo mikið sem hóstaði í áttina til
kvenna, því síður að hann hafi horft á þær
með aðdáun og ást.
Og nú er María Magdalena enn og aftur orðin
þyrnir í augum þeirra háheilögu, og það í hinu
mikla Danaveldi.
Merkilegt að Magdalenan skuli yfir höfuð vera
nefnd á nafn í hinu "ljúfa" riti Biblíunni...að hún skuli
fá að vera með!
Máski að það sé ávísun á að hún hafi gegnt
töluvert veigamiklu hlutverki í lífi Jesú?
Aldrei að vita.
![]() |
María Magdalena veldur áhyggjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.12.2008 | 20:54
Jeminn!
Þetta er vandræðalegt ef satt er
.
Svo ekki sé meira sagt.
Annar hver samstarfsmaður húsfreyju
hóstandi og "hnerrandi" um
þessar mundir, svo ekki sé minnst
á húsfreyju sjálfa.
Hvað erum við eiginlega að pæla
í háheilögum jólamánuðinum?
Þetta er bara ávísun á massíva
"nýburasprengju" í september
næstkomandi.
Verður allt vaðandi í litlum "Meyjum",
samkvæmt stjörnuspekinni.
Lítið ofurgagnrýnið, hógvært, duglegt
og pottþétt lið að fæðast í heilu bunkunum.
Jamm, er máske ekki algalið.
Því þetta er liðið sem kemur þjóðinni
út úr fjármagnsfeninu og stjórnarkreppudrullunni
eftir á að giska 25 ár.
Mun hafa vitið til þess.
Hefur húsfreyja annars nefnt það, að hún
er fædd í merki Meyjunnar......?
Jólaundirbúningur verið nokkuð tímafrekur
hjá húsfreyju undanfarið.
Pipakökurnar bakaðar með múttu, systurdóttur,
djásninu, Heimi og Marinó eina helgina.
Jólagjafir allar keyptar, innpakkaðar og tilbúnar
til afhendingar.
Tvö risaalmanök með 100 myndum hvert, föndruð
og innpökkuð.
Tvenn jólahlaðborð tekinn með stæl....á sömu helginni
að sjálfsögðu.
Jólakort 35 stykki skrifuð og komin í póst.
Jólaseríur í gluggum, jólaútsaumur á veggjum
jólaþorp á stofuborðinu.
Jólatréð skreytt og ljósum prýtt í stofunni.
Og þetta allt fyrir utan daglegt gauf og gutl,
matseld, þvotta og vesen.
Karlinn lenti í "þrifunum".
Honum er EKKI skemmt!
Þrátt fyrir það búinn að fara um íbúðina sem
stormsveipur og allt er orðið skínandi hreint og
fínt og vel tekið til
Karlinn minn er öðlingur.....þarf bara að "fíla"
sinn hluta af málunum betur.
Húsfreyja fílar nefnilega allt þetta stúss
í tætlur, og syngur hástöfum jólalög og inn á
milli "Ég fíla dilla dilla, ég fíla dilla" ala Madagaskar!
Sjö ára djásnið tekur eftir móður sinni, og er á
útopnu.
Jesúbarnið er "ógesslega" heppið að eiga afmæli
á jólum, og mikið er rosalega gaman að allir
skuli vera svona glaðir og góðir...og skuli gefa
jólagjafir.
Nú er aðal pælingin hjá henni, af hverju hún fær ekki "fleiri"
stóra pakka, en við fullorðna fólkið.
Farin í rúmið fyrir klukkan níu öll kvöld, enda ekki sést
svo mikið sem eitt kartöfluhýði í skónum hennar.
Er búin að standa í miklum bréfaskriftum við
illaskrifandi jólasveina, og er afskaplega lukkuleg
þegar þeir svara bréfum hennar.
Kann kvæðið hans Jóhannesar úr Kötlum um
sveinana góðu utan að.
Og hlakkar MIKIÐ MEIRA og MEST til jólanna.
Góðar jólastundir.
![]() |
Hnerrandi kynlíf? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.12.2008 | 12:51
Nú já! Við erum bara....
....ALLTAF á topp tíu, hér uppi
á litla Fróni.
Virðist engu skipta hvort það
er á topp 10 verstu eða bestu
listunum, alltaf er litla Frón "inn"!
En á einum lista hljótum við þó að
velgja toppsætið um þessar mundir.
En það er á listanum um mesta
"darraðadansinn" í stjórnmálum og
fjármálarugli.
Og nú er "sagan endalausa", Baugsmálið
komin í gang aftur.
Sjíss!
Eitthvað kostar það, í lögmenn og
málskostnað.
En húsfreyja hélt að allir væru komnir með
þetta á hreint á sínu litla landi.
Eða þannig lítur þetta út í huga húsfreyju:
Jón Ásgeir á landið, er landið og verður landið.
Dabbi á ríkisvaldið, er ríkisvaldið og verður ríkisvaldið.
Svo því eru menn að rífast um skitna 200 milljarða?
Öðru eins hefur verið sólundað og eytt síðustu
misseri, og engin fengið svo mikið sem hóstakast
vegna þess.
Ekki einu sinni staðið í fólki.
Benda bara Jóni á það, að gott væri ef
hann gæfi eins og hálfan milljarð til Mæðrastyrksnefndar
og annað eins til Geðhjálpar fyrir jól, og málið er dautt.
![]() |
Íslenski skellurinn í 10. sæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.12.2008 | 17:36
Draugasaga á jólum.
Svo bar við á því herrans ári 2007,
þá líða tók að jólum, að móðir
húsfreyju fékk mikla hugljómun.
Ákvað hún, búsett í Þorlákshöfn,
að fara til ferða til borgarinnar við
sundin bláu, og versla sér eina
fína, flotta og spánýja spariskó.
Ekki nóg með það, sei sei nei.
Æskuvinkona móður var búin að
tryggja sér tvo miða á jólatónleika
karlakórsins Fóstbræðra, svo nú átti
að mæta eftir skókaup á tónleikana
með múttu húsfreyju. Og múttan síðan að
fá gistingu hjá æskuvinkonunni, en halda heim
á leið aftur daginn eftir.
Þar sem móðir húsfreyju býr í sama húsi
og systir í Þorlákshöfn ásamt þremur
börnum, lagði múttan áætlunina fyrir
dóttur sína áður en hún hélt af stað í
langferð þessa.
Systir í Þorlákshöfn hélt það ekki mikið mál,
að stússast í kringum sín börn "ein", einn sólarhring.
Svo móðirin hélt af stað um hádegisbil með rútu,
yfir fjallveginn mjóa, Þrengslin, og komst aftur
til byggða stundu seinna í höfuðborginni.
Þar verslaðir fínir spariskór, kaffast á kaffihúsum
með æskuvinkonu, snæddur eðalkvöldmatur og
svo Fóstbræðrasöngurinn tekinn með stæl.
En þá búa átti múttunni rúm í húsum
æskuvinkonu, birtist óvænt dóttir æskuvinkonu.
Sú býr austan fjalls og var á heimleið, og það var
sko ekki mikið mál að skutla henni Stínu heim í
Þorlákshöfn svona í leiðinni.
Svo mútta húsfreyju pakkaði niður nýju
spariskónum í hasti, kvaddi æskuvinkonu og
hélt heim á leið.
Var þangað komin upp úr hálftíu um kvöldið,
hvergi ljós nema í fremri forstofu svo múttan
brá sér í smá gauf og gutl á salerninu,
háttaði sig í sinn hvíta hnésíða silkináttserk
og skellti sér inn í rúm inni í sínu stóra
og fína forstofuherbergi.
Kveikti á sjónvarpinu.
Er þá ekki þessi fína konumynd að byrja.
Mútta húsfreyja kemur sér vel fyrir og er brátt
kominn á bólakaf í konumyndina.
En einu hafði hún steingleymt.
Hún hafði illilega gleymt að sinna "tilkynningaskyldu"
til systur, um breyttar áætlanir og komutíma.
Víkur nú sögu til systur í Þorlákshöfn.
ALEINNI heima með börnin.
Hún búin að sinna börnum sínum, 5,7 og 9 ára,
og aldrei þessu vant, kemur hún þeim óvenju
snemma í ró, og allt liðið steinsofnað klukkan níu
um kvöldið.
Hún læðist fram í eldhúsið, gengur frá eftir
kvöldmatinn, fær sér kaffi.
En dettur svo í hug að kíkja á sjónvarpið frammi
í stofu um tíuleytið.
Er þá ekki þessi líka fína konumynd að byrja.
Systir dæsir af ánægju og kemur sér vel fyrir framan sjónvarpið.
Þá þessari líka fínu konumynd er lokið, er systir
orðin skraufþurr í kverkum.
Best að skella sér fram í eldhús að fá sér að drekka.
Aldimmt er í húsinu fyrir utan smátýru í
eldhúsi, svo bjarmann af ljósinu í fremri
forstofunni.
Þegar systir er að feta sig fram úr stofunni í
myrkrinu, verður henni litið fram í innri forstofu.
Aaaaaaaaarrrrrgh!!
Hvít vera kemur svífandi hægt og tignarlega
eftir innri forstofunni inn í borðstofuna.....úúúú.
Systir frýs föst við stofugólfið.
DJÍSUSS!
Hrikalegt!
SVAÐALEGA SVAKALEGT!
Hún orðin bullandi SKYGGN...og það ALEIN heima með börnin.
"Hvaða hryllilegi óvættur er að ásækja mig"? hugsar
systir í argapanikk.
Púlsinn er kominn upp í 200 slög á mínútu hjá systur,
hún er kaldsveitt og hefði migið á sig af hræðslu,
hefði hún ekki verið svona skrælnuð og þurr eftir
sjónvarpsglápið.
Henni tekst að safna örlitlum kjarki og spyr "draugsa"
skjálfandi röddu: "Ertu DRAUGUR"?
"Neihei, ég er bara þyrst og ætla að fá mér eitthvað
að drekka frammi í eldhúsi" svaraði vofan snöggt.
Og framhjá systur sveif "múttan", hvorki steindauð þá
né heldur er hún framliðin í dag.
Systir var rasandi yfir "draugagangi" múttu sinnar,
og var svo hálfa nóttina að ná sér niður eftir skelfinguna.
Af þessu má svo læra tvennt.
Í fyrsta lagi: Þá horft er á fínar konumyndir skyldi ætíð
gæta þess að hafa "nægan vökva" til drykkjar við hendina.
Í öðru lagi: ALDREI, ekki undir neinum kringumstæðum skyldi
maður gefa móður sinni "hvíta, hnésíða náttserki í afmælisgjöf.
Góðar og júfar stundir á jólaaðventu.
Bloggar | Breytt 21.12.2008 kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.12.2008 | 16:58
Litla Frón hristir upp í...
... frændum sínum í Skandinavíu,
með kæru þakklæti fyrir veittan
stuðning í upphafi kreppu.
En þeir tóku svo reyndar við sér
frændurnir, er líða tók á kreppu,
svo það varð bara "smáhristingur" núna
.....enginn Suðurlandsskjálfti hér.
Jamm, í mörgu stöndum við Frónbúar,
hristum og skekjum Skandinavíu svo
nötra í munni tennur.
Enda ekkert annað að gera í stöðunni,
en að "flytja land og þjóð í heilu lagi"
suður á bóginn, þá fjármálakreppa,
síldarpest, Dabbalenska, óðaverðbólga,
skuldasöfnun og lausafjársharðlífi hrjáir
okkur Frónbúa.
Væri fínt að komast nær Miðbaugi, og skella
okkur í "sólarlandaferðabransann" með hraði
til að redda málunum.
Gætum notað "nýbyggingar" sem standa
auðar tvist og bast í nýjum hálfköruðum hverfum
sem gistirými!
Verst hvað þessir "flekar" eru á miklu dóli,
þyrfti að fá eins og einn hamhleypu-Dabba til að
keyra þetta áfram.
Góðar stundir.
![]() |
Ísland og Afríka ollu skjálftanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2008 | 17:04
Hallinn mikli.
Frá því húsfreyja hóf störf
sem heilbrigðisstarfsmaður,
hefur verið bullandi halli á
rekstri heilbrigðiskerfisins.
Spara, spara, spara!
Skera niður, skera niður, skera niður...
svo hægt sé að skera upp af og til.
Þetta er söngurinn sem sínkt og heilagt hefur hljómað
í eyrum húsfreyju, sem annarra heilbrigðisstarfsmanna.
Allt í myljandi rekstrarhalla árum saman,
rekstrarörðuleikum, deildarlokunum, meiri niðurskurði,
minni fjárveitingum, niðursveiflu...allt niður og á ská!
En hvernig sem sparað er og sparað, skorið niður og NEÐAR,
þá hreinlega verður mannfólkið "veikt", og þarf á
hjálp og þjónustu heilbrigðiskerfisins að halda.
Og sá sem hefur lent í þeirri stöðu, að senda foreldra
heim með ungling eftir sjálsvígstilraun, veit hve
ömurleg heilbrigðisþjónusta skapast af stöðugum
niðurskurði vegna rekstrarhalla.
Rífur og tætir í hjartað, að þurfa að segja: "Því miður, drengurinn
ykkar kemst ekki inn á unglingageðdeild, en kannski
hægt að athuga með göngudeild".
Eða þurfa að segja hjartasjúklingi, að hann sé
á margra mánaða biðlista eftir hjartaaðgerð,
sem getur mikið bætt gæði lífs, svo
ekki sé talað um "lengt" líf að miklum mun.
En málið er, að "gróðinn" af góðu heilbrigðiskerfi er ekki mældur
í fjármagni, heldur í mannauði sem skilar sínu svo
aftur til þjóðarinnar með vinnu sinni.
Svo heilbrigðisstofnanir geta aldrei sýnt fram á
neinn "fjármagnsgróða", aðeins skilað einstaklingum
heilbrigðum út í þjóðfélagið aftur, eða létt vinnandi
fólki lífið með því að annast þeirra öldruðu og sjúku.
Er þá einhver hissa á "eilífum rekstrarhalla" ef heilbrigðiskerfið
er sífellt í fjársvelti, og nær ekki að anna þörf
og eftirspurn?
Ja, húsfreyja er ekki hissa.
En þá er það málið: Því er þessu svona farið,
þegar stjórnvöld hafa lýst yfir vilja sínum,
að hafa hér velferðarkerfi með öruggu og sterku
heilbrigðiskerfi?
Etthvað stangast þetta illilega á finnst húsfreyju.
En hún er nú "bara" heilbrigðisstarfsmaður,
og hefur ekki vit á stjórnmálum og skarpvitrum
ákvörðunum stjórnvalda.
Góðar stundir.
![]() |
Halli hjá heilbrigðisstofnunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.12.2008 | 08:02
Skór af himnum ofan?
Bush má gera að því "skóna",
að til séu vinsælli þjóðhöfðingjar
þessa heims, en hann í Írak.
Og betra er fyrir hann að binda
ekki lengi "skóna" þar um slóðir, svo
Írakar haldi ekki áfram að níða "skóinn"
niður af honum.
Og vaði jafnvel ofan í aumingja Bush
á skítugum "skónum" æ ofan í æ.
Er þá hætt við að Bush karlinn verði
fljótt bundinn í báða "skó", og gott
ef öll ferðin til Íraks "missir ekki marks", og
karl forseti Ameríku, hefði þá betur setið heima og
pissað í "skóinn" sinn þar, innan um vini
og vandamenn.
Jamm, aumingja karlinn hann Bush.
Það er ekki heiglum hent að reyna að
heilla Íraka upp úr "skónum"......
![]() |
Bush varð fyrir skóárás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2008 | 11:56
Gott að lesa...
...á sunnudagsmorgni, þessa
ágætu grein AA Gills.
Gill hefur kynnt sér málin
ágætlega, og nær í skottið
á þjóðarsálinni hér á litla Fróni.
Mister Brown hryðjuverkalagamaður
fær einnig á baukinn, sem er vel.
Ekki líklegt úr þessu að íslenska
ríkisstjórnin hafi manndóm í sér til
að höfða mál gegn Brown og hans stjórn
fyrir hryðjuverkastimpilinn.
So be it.
Tókum því af stakri rósemd, sem öðru sem
yfir okkur hefur dunið.
Hér erum við, með hugvit, mannauð og
náttúrulegar auðlindir eftir sem áður.
Og þó að pappírsbankarnir og "pappírs-Pésarnir"
hafi sprungið, og óþverrinn af þeim hamagangnum
slettst yfir okkur almúgann á litla Fróni sem aðra,
æsum við okkur ekki mikið yfir því.
Aðalmálið að snúa bökum saman og hjálpa
þeim sem missa atvinnu, húsnæði og lífeyrissparnað
og við erum GÓÐ!
Tökum okkur svo extra langt og gott jólabað,
og náum af okkur "pappírs-Pésajukkinu".
Góðar stundir.
![]() |
Brown sparkaði í Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.12.2008 | 13:02
Aldeilis makalaust skondin..
...frétt
.
Greinilegt að hún hefur
verið slegin inn í miklu hasti.
Eða ekki getur húsfreyja ímyndað
sér "stærð" dýrs þess, sem gaf frá
sér "sæði" sem rúmar heilu akrana,
byggingar manna auk "hauskúpunnar
góðu.
Þetta er þá máske "sæði" úr
Miðgarðsormi þeirra ásartrúarmanna
En það kvikindi á að hafa verið "allstórt",
og á að hafa hringað sig utan um jörðu.
Ekki amalegt það, fyrir ásatrúarmenn að
fá fregnir af ástarlífi Ormsins stóra,
fyrr á öldum. Greinilegt að sá langi ormur
hefur þá "baukað" við ýmislegt í hinu
mikla veldi Mister Brown.
Og ákaflega upplýsandi líka, var að það skyldi
vera "gamall" heili í 2000 ára hauskúpu þessari.
Kannski að heilinn reynist þá vera "2000 ára" líka.
Nei, það er nú annars bara getgáta hjá húsfreyju.
En búðarráp næst.
Góðar stundir.
![]() |
Fundu fornan mannsheila frá járnöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)