Jeminn!

sneeze01  Þetta er vandræðalegt ef satt erBlush.

  Svo ekki sé meira sagt.

  Annar hver samstarfsmaður húsfreyju

  hóstandi og "hnerrandi" um

  þessar mundir, svo ekki sé minnst

  á húsfreyju sjálfaWhistling.

  Hvað erum við eiginlega að pæla

  í háheilögum jólamánuðinum?

  Þetta er bara ávísun á massíva

  "nýburasprengju" í september

  næstkomandi.

  Verður allt vaðandi í litlum "Meyjum",

  samkvæmt stjörnuspekinni.

  Lítið ofurgagnrýnið, hógvært, duglegt

  og pottþétt lið að fæðast í heilu bunkunumInLove.

  Jamm, er máske ekki algalið.

  Því þetta er liðið sem kemur þjóðinni

  út úr fjármagnsfeninu og stjórnarkreppudrullunni

  eftir  á að giska 25 árHalo.

  Mun hafa vitið til þessWink.

  Hefur húsfreyja annars nefnt það, að hún

  er fædd í merki Meyjunnar......LoL?

  Jólaundirbúningur verið nokkuð tímafrekur

  hjá húsfreyju undanfarið.

  Pipakökurnar bakaðar með múttu, systurdóttur,

  djásninu, Heimi og Marinó eina helgina.

  Jólagjafir allar keyptar, innpakkaðar og tilbúnar

  til afhendingar.

  Tvö risaalmanök með 100 myndum hvert, föndruð

  og innpökkuð.

  Tvenn jólahlaðborð tekinn með stæl....á sömu helginni

  að sjálfsögðuDevil.

  Jólakort 35 stykki skrifuð og komin í póst.

  Jólaseríur í gluggum, jólaútsaumur á veggjum

  jólaþorp á stofuborðinu.

  Jólatréð skreytt og ljósum prýtt í stofunni.

  Og þetta allt fyrir utan daglegt gauf og gutl,

  matseld, þvotta og vesen.

  Karlinn lenti í "þrifunum"Devil.

  Honum er EKKI skemmt!

  Þrátt fyrir það búinn að fara um íbúðina sem

  stormsveipur og allt er orðið skínandi hreint og

  fínt og vel tekið til

  Karlinn minn er öðlingur.....þarf bara að "fíla"

  sinn hluta af málunum betur.

  Húsfreyja fílar nefnilega allt þetta stúss

  í tætlur, og syngur hástöfum jólalög og inn á

  milli "Ég fíla dilla dilla, ég fíla dilla" ala MadagaskarTounge!

  Sjö ára djásnið tekur eftir móður sinni, og er á

  útopnu.

  Jesúbarnið er "ógesslega" heppið að eiga afmæli

  á jólum, og mikið er rosalega gaman að allir

  skuli vera svona glaðir og góðir...og skuli gefa

  jólagjafirHalo.

  Nú er aðal pælingin hjá henni, af hverju hún fær ekki "fleiri"

  stóra pakka, en við fullorðna fólkiðWink.

  Farin í rúmið fyrir klukkan níu öll kvöld, enda ekki sést

  svo mikið sem eitt kartöfluhýði í skónum hennarGrin.

  Er búin að standa í miklum bréfaskriftum við

  illaskrifandi jólasveina, og er afskaplega lukkuleg

  þegar þeir svara bréfum hennar.

  Kann kvæðið hans Jóhannesar úr Kötlum um

  sveinana góðu utan að.

 Og hlakkar MIKIÐ MEIRA og MEST til jólannaCool.

  Góðar jólastundir.

 


mbl.is Hnerrandi kynlíf?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Nóg að gera hjá þér mín kæra. Ósk um GÓÐ OG GLEÐILEG JÓL sendi ég þér

Heiður Helgadóttir, 22.12.2008 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband