Færsluflokkur: Bloggar
23.1.2009 | 18:02
Krabbamein er ekkert grín.
Óskar húsfreyja Geir Haarde
alls hins besta í baráttunni
við sjúkdóm þennan,og vonar
að hann nái fullri heilsu á ný.
Merkilegt þetta.
Húsfreyja var að lesa um
áhrif kreppunnar á heilsuna.
Að kreppan væri heilsuspillir og
tjónavaldur þá stress og álag
magnaðist vegna fjárhagsáhyggja.
Fyrst varð Ingibjörg Sólrún veik,
og nú Geir.
Og sjálf hefur húsfreyja legið í
mergjaðri magapest síðustu 5 daga,
og er vart farin að geta borðað mat enn.
Við erum máske öll að verða "heilsufarsleg
fórnarlömb" kreppu og óárans?
Hvað veit maður.
Löngum verið vitað mál, að utanaðkomandi
áhrif geta haft jafn mikil áhrif á heilsufar
og andlega líðan, og innra jafnvægi einstaklinga.
En þrátt fyrir það er þegar byrjað að skera niður í
heilbrigðiskerfinu.
Hvernig ætlar þá heilbrigðiskerfið að
mæta versnandi heilsufari þjóðar í kreppu?
Ja, maður bara spyr.
![]() |
Geir: Kosið í maí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.1.2009 | 18:22
Hvenær hætta manneskjur að...
...að vera manneskjur,
og verða að SKRÍL?
Því miður vaða níðingar og
ofbeldismenn oft uppi, þá
fólk kemur saman hvort sem er
til skemmtanahalds eða
mótmælafunda.
Leita að óhörðnuðum ungu fólki
sem finnst allt spennandi, og
æsa það upp með sér til ódáðaverka
og lögbrota.
Og SKRÍLLINN verður til.
Sorglegt að SKRÍLL þessi sé farinn
að ógna lögreglumönnum og fjölskyldum
þeirra.
Á ekki að líðast í okkar litla landi.
Lögreglumenn verða að sinna sínum
störfum á mótmælafundum,
hvort sem þeim er það ljúft
eða leitt, hvort sem þeir eru sammála
eða ósammála friðsömum mótmælendum
eður ei.
Heimili þeirra og fjölskyldur eru friðhelgar
eins og okkar allra.
Svo mörg voru þau orð.
Góðar stundir.
![]() |
Nafnbirtingin grafalvarlegt mál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.1.2009 | 14:25
Kristilega kærleiksblómin spretta....
....kringum hitt og þetta.
Sagði Nóbelsskáldið góða.
Í kringum Alþingi spretta upp
annars konar blóm um þessar mundir.
Það er blómi reiðra mómælenda sem
eru búnir að fá nóg af spillingu,
fjármálabraski og sviknum loforðum.
Að sjálfsögðu er lögregla kölluð til,
með sitt GAS, GAS, GAS!
Og piparspreyjaðir mótmælendur verða
að láta undan síga.
En þeir koma aftur, og aftur, og aftur.
Þar til að ríkisstjórn litla Fróns gerir
eitthvað í því að efna loforðin.
Til dæmis það að BJARGA heimilunum.
Það væri góð byrjun.
En þangað til:
Kristilega kærleiksblómin spretta
kringum hitt og þetta.
![]() |
Piparúða beitt við þinghúsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.1.2009 | 21:20
Ó, já!
Ekki spurning!
Pirruð upp fyrir haus, húsfreyja.
Nú er húsfreyja með eðal Nokia 3..05...
eða eitthvað farsíma.
Svona svört samloka "eitthvað", sem er
með "bláa tönn", miðla,forrit og net.
Je ræt!
Og hvað gerir húsfreyja við bláar tennur,
miðla, forrit og net í farsíma sínum?
Fjandakornið ekki neit!
Kann ekki rassgat á þetta dótarí!
Geti húsfreyja hringt úr síma sínum frá
stað A, til staðar B, sent sms og tekið á
móti hvoru tveggja, er hún í bísna góðum málum.
Og takist henni að fá skipuleggjarann til
að minna hana á afmælisdag í familíunni er
hún alsæl.
Hitt allt má eiga sig.
Bara eitt: Hvernig í ósköpunum stendur
á því að húsfreyju tekst ekki að setja upp nýja forsíðumynd,
eftir að átta árið djásnið fiktaði og setti inn grænar kúlur?
Reynt allt!
Alltaf birtast "helvísku grænu kúlurnar" aftur.
SJÍSS! PIRRANDI!
![]() |
Flóknir gemsar pirra notendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.1.2009 | 14:02
Jaso! Mín hinsta stund...
...bara runnin upp" hugsaði
húsfreyja sótsvört og panikkeruð.
"Þetta lifi ég ALDREI af".
Hún stóð og hristist með stöðugum
jarðskjálftanum í eldhúsgólfi sínu,
upp á 4,7 á Richter.
Dísirnar 8 sem hoppuðu og dönsuðu
frammi í stofu við ærandi undirleik
"Latarbæjar-Tuttugu upp, tuttugu niður",
skelltu sé sem einn maður í gólfi, þá
"8 ára" djásnið sló á pásu-takkann, og
húsfreyja rorraði við þegar jarðskjálftinn
fór upp í 6,7 á Richter.
"Alla, þú ert úr", æpti 8 ára djásnið,
var í harðri samkeppni við hinn eina og sanna
"Gosa", sem hrópaði á háa séinu "Ég er spítukall"!
Gosi var í spilun í DVD-tækinu í sjónvarpsholinu örfáa metra
frá "hopp-stopp-dans-hrynja í gólfið-liðinu".
Þar sátu fimm dísir hlógu, skríktu og sungu með Gosa.
Og að sjálfsögðu hljóðið í botni.
Hávaðinn var ærandi.
Og svo brjálaðist allt!
Kattarvinurnar tvær sem höfðu tekið það
að sér að kvelja köttinn inn í svefnhebergi,
kíktu fram og að sjálfsögðu slapp kisa fram,
alsæl að vera laus úr prísundinni.
Tvær af Gosa-dísunum æptu og skræktu, stukku upp
og hlupu til húsfreyju:
"Við erum með kattarofnæmi, sjááááðu"!
Og húsfreyja sá 4 augu þrútna og bólgna út
í andlitum fegurðardísanna tveggja, og fór á spani inn á
baðherbergi, bleytti tvo þvottapoka, og rétti
ofnæmisdömunum.
Hljóp á harðaspani fram í stofu þar sem,
kattarvinurnar, lágu marflatar fyrir framan sófann:
"Við hleyptum henni ekkert fram, hurðin bara
var opnuð"!
"Þið eruð fyrir" veinaði "hop-skopp-dans og hrunliðið".
"Við erum SVANGAR, og viljum aftur fá kökur og kók",
sungu þrjár af "Gosadísunum" sem komnar voru að
veisluborðinu....í röð.
"Andartak" stundi húsfreyja þar sem hún lá
á maganum á gólfinu, hálf undir sófa, og reyndi að
ná taki á kattarrófunni.
Tókst, og henti ketti aftur inn í svefnherbergi, kattarvinurnar
á eftir inn.
"Nú OPNAST hurðin ekki sjálf aftur" hvessti húsfreyja sig
við vinurnar, " og þið megið ekki nota kisu sem tösku
undir handlegginn, hún verður svo pirruð".
Kattarvinurnar lofuðu öllu fögru.
"Mamma, Hjálmdís er að gráta", sú 8 ára
áhyggjufull við hlið húsfreyju.
Röðin fyrir framan veisluborðið hafði lengst, nú stóðu
þar 7 svangar dísir.
Ein lítil sat í sófanum og hágrét.
Saknaði mömmu, var að að hugsa um stallsystur
sína sem átti engann pabba lengur og allt var í tjóni.
Húsfreyja reyndi að hugga og knúsa,
bauð þeirri grátandi að hringja í mömmu.
"Nei", hvíslaði dísin og gat leikið sér svolitla stund
inni í barnaherberginu.
Húsfreyja hóf aðra umferð í kökuskurði og goshellingum
og skellti í hungraða "úlfahjörðina" sem allt í einu
hafði birst við veisluborðið.
Gosi hreif hug kökuliðsins, og tekin var hvíld
frá hoppi-skoppi og hruni.
En sú grátandi var alveg hrunin.
Húsfreyja hringdi í múttuna sem mætti
korteri seinna, tók heim og sagði þetta erfitt
hvað hún væri viðkvæm sú stutta.
Húsfreyja gjóaði augum á eldhúsklukku sína:
Korter yfir fimm.
"Heil þrjú korter" eftir af átta ára afmæli djásnisins"
"Ég lifi þetta aldrei af", húsfreyju lá við öngviti af stressi.
Hún hvolfdi í sig tíunda bollanum af sterku kaffinu, og
magi hennar kvartaði hressilega yfir eitruninni.
"Ekkert nöldur og tuð" hvæsti húsfreyja að
meltingarfærum sínum, "er hér ein með
14 sjö ára skvísum og einni 8 ára, og verð bara
að vera á tánum"!
Fór fram á bað og vatt aftur þvottapokana fyrir þær
augnabólgnu, og rétti þeim.
Voru að skána.
Kíkti inn á kött og vinur.
Kötturinn lá bálreiður í rúminu, með vinurnar
sér við hlið.
"Við megum ekki klappa henni, ekki einu sinni
koma við hana, þá klórar hún" kvörtuðu
vinurnar í kór.
"Gefið henni smá pásu" dæsti húsfreyja, og
strauk kisu og vorkenndi ægilega.
"Viljið þið ekki bara koma fram og horfa á Gosa,
eða fá ykkur aftur köku"?
NEIPP!
Og húsfreyja fór fram og lokaði rækilega hurð á
eftir sér.
Gjóaði á klukkuna: Tuttugu mínútur yfir fimm.
Djísuss!
Eftir 40 mínur af burtsloppnum ketti í tvígang,
sem endaði með útlegð hans inn í búr, Gosa
spilaður á sama desibili og "verulega" heyrnaskertir
spila sína músík, eltingaleik, feluleik, meira gosi,
meira snakki, meira gosi og enn meira gosi,
margundnum þvottapokum á þrútin augu
og kattarleitandi vinum varð klukkan loksins
sex.
Hallelúja!
Útfallið af dísum var þokkalega þétt og klukkan
korter fyrir sjö hurfu síðustu gestir á braut.
Húsfreyja var BÚIN!
Taugar hennar og magi rústir einar.
"Mamma"!
Sú átta ára stóð eitt sólskinsbros fyrir framan
húsfreyju.
"Ha, já" stundi húsfreyja.
"Þetta var "sko frábært" afmæli, mamma" og svo
knúsaði hún múttu sína og kyssti.
"Jamm, þetta var víst bara þokkalegasta afmæli hjá mér"
hugsaði húsfreyja og brosti til djásnisins.
Stóð upp og gekk frá inni í eldhúsi, og magaverkurinn
var á bak og burt og henni glatt í sinni.
"Mikið rosalega er gott að þurfa aðeins að halda "eitt"
barnaafmæli á ári hverju.
Þvílík himnadýrð og sæla" og húsfreyja
dæsti ánægjulega um leið og hún settist
í hægindastólinn sinn.
Og hvað með það þó að von væri á yfir
tuttugu gestum í "annan í 8 ára afmæli"
daginn eftir.
Það voru AÐEINS 9 krakkar í því hollinu,
hitt allt fullorðið fólk.
GLEÐI.
Enda var seinni dagurinn minnsta mál,
og bara gaman að hitta ættingja og vini.
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.1.2009 | 18:44
Hálfkláraðar byggingar nýmæli?
Síðan hvenær?
Húsfreyja man eigi betur en að
þá hún fluttist til Þorlákshafnar,
einn herlegan vetur á því
Herrans ári 1973, stæði eitt
fátæklegt, ópússað kjallarahró,
meira svona hálfgerður "grunnur"
að húsi, þar sem fínasta flott
ráðhús stendur í dag.
Og þar stóð kjallaraskonsan
árum saman....og árum saman...
var húsfreyja búin að skrifa ÁRUM SAMAN?,
og þjónaði bæði hlutverki félagsheimilis
og íþróttahúss.
Samt var svo lágt til lofts í "íþróttasalnum",
að við krakkarnir máttum gæta þess að
reka okkur ekki undir loft í heljarstökkum
og leikjum, og hávaxið fólk hreinlega "gat
ekki" stundað líkamsæfingar og leiki í salnum.
Svo lágt var til lofts, að þegar haldin voru
Þorrablót og aðrar skemmtanir (í "sama sal"
og við krakkarnir stunduðum leikfimi), að
þétt "grátt" reykingaský myndaðist, sem var
dimmara en svartasta Austfjarðarþoka.
Þekkti enginn maður annan, fann engan
er hann þekkti og allra síst kærasta eða kærustur.
Gift fólk þekkti maka sína á "röddinni" einni saman.
Svo fólk í tilhugalífi skipti um kærasta og kærustur
á þessum "þokukjallaraárum" í Þorlákshöfn,
eins og aðrir skipta um sokka......var bara
næsta líklega skvísa eða gæi gripinn.
Og sjaldgæft að nokkur maður undir 24 ára
aldri færi einn heim af balli....þrátt fyrir að
allt annar einstaklingur hefði verið "viðhengi" í upphafi dansleiks.
Hehehe, en þetta er nú bara smá "útúrdúrssöguskýring"
hjá húsfreyju, og ef til svolítið orðum aukin.
En breytir ekki því að, kjallarahróið máttu
Þorlákshafnarbúar láta sér að góðu verða
alla tuttugustu öldina.
Minnir húsfreyju að "ráðhúsið fína og flotta" hafi
ekki verið vígt fyrr en við upphaf þeirrar 21.
Nærri því þrjátíu ár í hálfbyggðu húsi.
Jamm, svo hvaða læti eru þetta út af
hálfkláruðum húsum niðri bæ, spyr húsfreyja!
Langt í það að komin séu 30 ár
í slugs, kreppu og byggingarbið og að árið 2039 renni upp!
Þá geta sko menn farið að kvarta fyrir ALVÖRU!
![]() |
Táknmynd góðæris eða kreppu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.1.2009 | 18:00
Sumir vita alltaf betur.
Graham Stringer, þingmaður í hinu
herlega veldi Mister Brown, búinn að
leysa málið fyrir "meinta" lesblinda.
Þeir ekki aldeilis með neina lesblindu,
sei, sei, nei!
Bara "léglegur" árangur af kennslu.
Reyndar virðast þeir vera með eitthvað í gangi
sem þeir kalla "lestar- og skiftarkennslu", samkvæmt
frétt þessari, í hinu breska stórveldi Mister Brown.
Og kannski að það sé einmitt málið hjá þeim bresku.
Það er ekkert verið að kenna "lestur og skrift" líkt
og gert er hér uppi á litla Fróni.
Eða hvað?
Það hefur lengi verið vitað mál, að lesblindir geta lært
að lesa, séu þeim kenndar góðar aðferðir er henta þeim.
Og þá þeir geta lesið, er skriftin lítið mál.
Kemur svona mest af sjálfu sér, með æfingunni.
Máske að "Strangur" þessi, sé ósáttur við
kennsluaðferðir í Bretlandi við lestur og skrift.
Vill ef til vill að ALLIR, ekki aðeins þeir er
lesblindir teljast, njóti þeirra kennsluaðferða
er margir lesblindir þurfa.
Húsfreyju finnst það þá gott mál, ef allir geta
nýtt sér þá kennslu til að læra að lesa.
Og þá er bara að útrýma, eða "útrýna" eins og segir
í frétt, gömlu lestrarkennsluaðferðinni með hraði,
og BINGÓ...enginn er "lesblindur" meir.
Alltaf gaman fá fréttir úr sveitinni hjá Mister Brown.
![]() |
Segir lesblindu afsökun menntakerfisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2009 | 08:52
Þumlaslitgigtarfræðslu..
..til allra ungmenna STRAX!
Þetta er ótrúlegt.
Þegar sms-skilaðboðssendingar er
orðið nánast það eina sem
unga fólkið gerir á daginn inni á
heimilum sínum og ekki síst, á milli
tíma í skólum sínum.
Hvaða gæði lífs eru þetta?
Hvað er orðið af heita kakóinu,
rúnstykkjum með osti, eldheitum
umræðum um erfiða dönskukennarann,
spjallinu um ruglið í pólitíkusum, um
hvaða bíómynd ert vert að horfa á
í kvikmyndahúsum, hvort þessi eða hin
skvísan sé búin að næla í hann Valda,
hvort ekki sé hægt að plata náttúrufræðikennarann
á Kökuhúsið í næsta tíma?
Nú eða fjörugri spilamennsku í Kana, Bridge eða Vist?
Sms- skilaboð máske búin að yfirtaka samskipti
ungs fólks, og það að horfast í augu og
ræða beint við viðkomandi orðið úrelt?
Það að gera eitthvað "saman" með félögunum
í frímínútum og matartímum í skólum liðin
tíð....nema auðvitað að sitja hlið við hlið
með andlitið á grúfu ofan í "gemsahaldandi"
hendur, með auma "gatslitna" þumla, að
senda sem flest sms-skilaboð á nánast
óskiljanlegu tungumáli?
Gjeggt!
Sorgleg þróun að mati húsfreyju.
Unga fólkið okkar sem er svo klárt og skemmtilegt,
þegar það gefur sér tíma til að spjalla, brosa og
horfa í augun á viðmælanda, að tapa dýrmætum
samskiptahæfileikum vegna sms!
Fyrir utan þrútna og slitna þumla, ásamt
strengjum í herðum og hálsi og pírðum
þreyttum augum sem eru leiðinlegir fylgikvillar
sms-skilaboða í massavís.
Ja, ekki er það gæfulegt.
En húsfreyja hefur það fínt.
Engin slitgigt að hrjá hana í þumlum.
Var í Noregi í draumum sínum í nótt.
Og Olsen-bræður sungu undir:
"Fly on the wings of love, fly baby fly....
.....AND REACH FOR THE SKY".
Snjór í Noregi samkvæmt draumi húsfreyju,
en blíðuveður, þó allt hafi verið frosið og kalt.
Sjö ára djásnið svefndrukkið og lengi að vakna
í skólann.
En hafðist með "bullvísum" húsfreyju um
"köttinn í hvítum sokkum,
sem hefur of lítið af "kisumatarkokkum",
á ekkert af síðum lokkum
og því síður gömlum rokkum".
Einar besti vinur mætti svo, og hlífði
djásninu þar með við fleiri "hljóðhimnusprengjandi"
vísum frá húsfreyju.
Þau röltu svo út í morgunkuldann og myrkrið,
og beina leið í skólann
En húsfreyja er á leiðinni undir hlýja sæng
sína, með málgagnið sem henni kannski tekst að
lesa tvö orð í, áður en "Ólafur" Lokbrá vísiterar
hana með fleiri drauma....máske hún skelli sér
til Ástralíu í þetta sinn.
Góðar stundir...zzzzzzzzzz.
![]() |
Sendi 14.528 skilaboð á mánuði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.1.2009 | 20:17
Davíð stórslys í Seðlabanka...
...segir erlendi fjármálasnillingurinn.
"Helvítis fokking fokk" hrópar
ræðumaðurinn í púltinu á
mótmælafundi niðri á Austurvelli.
Guðlaugur "heilbrigði" púaður niður
í Hafnarfirði.
Aðgerðir ríkisstjórnar "tilviljanakenndar"!
En Spaugstofana kom með lausnina nú í kvöld:
"NÝR GUÐJÓN"!
Brilliant hugmynd.
Húsfreyja er hér með búin að leggja niður
og AFSKRÁ "gömlu húsfreyju" og allar hennar
skuldir við "gömlu bankana" og þar með nýju
bankana líka.
"Nýja húsfreyja" er hér með hreinan skjöld,
"engar skuldir", engar fjárhagsáhyggjur og
notar eftirleiðis alla snepla með kröfum um
greiðslur fyrir húsnæði og bifreið í skeini og
snýtuklúta.
Ætlar að setjast glöð og afslöpppuð
niður við útsaums-veggteppið
sitt, og sauma af lífsins lystisemd.
Átti reyndar að standa bróderað:
HEIMA ER BEST, á veggteppi þessu
en húsfreyja breytti því nú á dögunum.
Gengur bara asskoti vel að sauma út:
HELVÍTIS FOKKING FOKK!
Góðar stundir.
Splunkuný húsfreyja.
Bloggar | Breytt 11.1.2009 kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.1.2009 | 14:50
Þumlagigtarsamsæri?
Ja, hver rækallinn!
SMS-kynslóðin í bráðri
slitgigtarhættu á þumlum sínum.
Ekki björt framtíð það.
Slitgigt andstyggðarsjúkdómur.
Danskir handskurðlæknar láta ekki að sér
hæða í Mogga dagsins.
Í Fréttablaðinu sagði hins vegar frá
draugum á ferð í Hólavallakirkjugarði
á jólanótt.
Þar var Bandarískur lögmaður á ferð sem
myndaði draugsana grimmt.
En Mogginn var einnig með aðra stórfréttt.
Í veldi Mister Brown er verið að rannsaka
hvort fljúgandi furðuhlutur hafi lent illilega
á vindmyllu í Conishólmi í Lincolnskíri.
Er þetta ekki augljóst að allar þessar fréttir
eru "eina og sama" fréttin?
Hefði átt að vera svona:
Þumalslitnir hryðjuverkamenn af
frónversku bergi brotnir,gerðu
fólskulega árás á Stóra Bretland
um hátíðarnar. Sendu heimatilbúna
elflaug úr afgangs flugeldum frá
því í hitteðfyrra í loftið til Mister Browns.
Voru við þessa skammarlegu
iðju á háhelgum stað í Hólavallakirkjugarði.
En þar sem slitgigtin var að drepa hryðjuverkamennina
í þumlum, tókst þeim ekki betur að miða en svo,
að flugskeytið sveigði af leið og rústaði
vindmyllu í Lincolnskíri.
Og til að bæta gráu ofan á svart, urðu hryðjuverkamenn að
grípa til fótanna úr kirkjugarðinum, þar sem
myndaóður kani mætti á svæðið, og náði sá að
smella mynd af leifunum af reyknum af
heimatilbúna flugskeytinu.
Hehehe, bara varð að skella einni samsæriskenningu
í loftið svona í upphafi árs.
Alltaf gott að geta hlegið og að gera að gamni sínu.
Góðar stundir.
![]() |
SMS skaðleg þumlinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)