Færsluflokkur: Bloggar
15.4.2009 | 19:42
Lífið.
Húsfreyja kíkti yfir bloggið
hjá bloggvinum sínu, og sá
að kollega hennar var að auglýsa
eftir bloggi um lífið og tilveruna.
Sjálf bloggar húsfreyja jöfnum höndum
um fréttatengt efni, og svo lífið og tilveruna
inn og milli, svona eins og gengur.
Hefur alltaf haft gaman að því að velta fyrir sér
lífinu hér á móður Jörð, húsfreyja.
Hvað erum við mannkyn að vilja upp á dekk
hér á þessari bláu plánetu, úti við "endamörk
alheimsins"?
Já, bara svona yfir höfuð?
Hvaða bras er þetta á okkur?
Mætum hér ósjálfbjarga, minnislaus og
nær hárlaus.....organdi og gargandi af
svengd og athyglisýki.
Getum ekki einu sinnt okkar grunnþörfum
sjálf...skítum upp á bak, stöndum ekki
í lappirnar, verður jafnvel að snúa okkur
í vögguræflunum.....bera okkur allra okkar
ferða!
Munum ekki einu sinni hvort við heitum eitthvað!
Og þó.
Sum okkar rámar reyndar í nöfn okkar í fyrri lífum....
húsfreyja hét "Elah Búga" og Siggi Freyr systursonur
húsfreyju hét "Elluh Nessú".
Þrætti húsfreyja sem smákrakki lengi vel
við foreldra sína um nafn sitt....og alla þá sem
inntu hana eftir nafni...."Ég heiti Elah Búga".
"Nú já, ELLABOGGA, litla vina! Eftir hvað Elínborgu
er barnið skírt, Stína mín"?
Móðir húsfreyju í standandi vandræðum.
"Hún heitir ekki Ellabogga, barnið....veit ekki
hvaðan hún hefur fengið þetta, er engin Elínborg
í okkar ættingja- og vinahóp".
Siggi Freyr (9 ára) kynnti sig lengi vel sem "Elluh Nessú",
og botnaði ekki frekar, en húsfreyja sem barn, í þessari
tregðu foreldra sinna að ná ekki nafni sínu.
Svo sætti húsfreyja sig (og Sigginn sömuleiðis)
við þetta "skrítna" nýja nafn, sem allir vildu endilega
nota.
Húsfreyja hélt lengi vel að allir krakkar ættu
litla "álfavini" eins og hún sjálf í bernsku.
Sá fyrstu 6 árin í lífi sínu myndarlega álfahöll uppi á Blátindi
í Vestmannaeyjum, þar sem henni var eitt sinn
boðið í afmælisveislu "álfavinkonu" sinnar.
Var alveg rasandi á forheimsku fullorðna fólksins,
sem skammaði hana fyrir að hafa týnt hlutum á
heimilinu, sem álfarnir fengu að láni.
Auðvitað vissi hún oft hvar álfarnir höfðu sett
hlutina frá sér, og gat komið þeim í hendurnar á
afa sínum og foreldrum.....en það þýddi svo
sannarlega ekki að hún hefði sjálf tekið þá
til brúks og handagagns.
Sei sei, nei.
Og sem barn gat húsfreyja gengið í gegnum
"veggi" inn í aðra heima....og trúði að
sjálfsögðu að slíkt stunduðu ALLIR eins og hún
á kvöldin.
Svo ekki sé nú minnst á hana Ólöfu langaömmu
húsfreyju, frá Byggðarholti, sem lést á því herrans 1963 (líklega frekar en '62),
en sat samt iðulega við prjónavélina sínum niðri í
"Banka" (gömlu, nú "yfirhraunuðu" húsi í Eyjum)
þá húsfreyja kom að vísitera með Önnu Stínu
frænku sinni, á árunum 1964 -1965.
Svo var húsfreyja bara skömmuð sem stelpuskott,
ef hún veifaði langömmu sinni, fyrir fíflagang
og fyrir það að vera að gera draugaat.
Jamm, húsfreyju fannst lífið strax töluvert flókið
og snúið sem barn.
Og þessi ósköp sem margir gátu verið bæði
blindir og heyrnalausir.
Sáu ekki álfavini hennar!
Heyrðu þá ekki syngja!
Sáu aldrei fallegu álfadansana þeirra!
Og alvarlegast af öllu: Heilsuðu hvorki né
virtu Ólöfu ömmu viðlits!
Þvílíkur dónaskapur!
Þetta með aðra heimaheimsóknir lét litla skottan
liggja milli hluta, því stundum komst hún sjálf ekki í
gegnum veggina, ef illa lá á henni.
Og því er bernskuheimur mannanna barna svo ólíkur?
Og unglings- og fullorðinsárin?
Komum við öll hérna í prívat og persónulegum tilgangi?
Máske engum þeim sama?
"Secret operations" allt saman?
Húsfreyja að læra um "dularfulla hluti"
mannleg samskipti, svínsleg eldgos í bakgarðinum,
og gleðina sem fylgir því að hjálpa náunganum,
á meðan Gústa í næstu íbúð er að læra um
sorg á unga aldri, sem fylgir föðurmissir, áskoranirnar
sem fylgja því að ala ein upp 3 börn, eftir að hafa
sagt skilið við tvo barnsfeður vegna ofdrykkju og vímuefnavanda?
Á meðan Geiri á móti fæddist með silfurskeið í munni,
átti mótorhjól og Toyotu þegar aðrir strákar áttu ekki
einu sinni gamlan Skoda, en svo misstu hann og pápi gamli
fyrirtækið í kreppufjandanum, og báðir verið á atvinnuleysisbótum
í 1/2 ár og verðandi barnsmóðir Geira stungin af með Tomma besta vininum
til Danmerkur?
Jamm, skóli lífsins getur verið harður.
Og skemmtilegur.
Djö.... andskoti pirrandi og erfiður á stundum.
Gjörsamlega frábær!
Er lífið á jörð máske besta gjöf Guðs til mannanna barna?
Allt svo skemmtilegt, skrítið og skondið.
Fallegt!
Ljúfsárt, yndislegt og fyndið.
Helv.... ömurlegt og ljótt.
Leiðinlegt og sorglegt.
Fáum að upplifa allan tilfinningaskallann.
Njóta okkar í botn.
Gera herfileg mistök......og lifa þau af.
Eignast maka, börn og buru.
Vera vel stæð eða gjörsamlega búin að spila
rassinn úr buxunum.
Allt getum við sýslað við, brasað og baslað
hér á móður Jörð.
Verðum bara að muna að lifa lífinu lifandi.
VAKANDI!
OG NJÓTA ÞESS.
Og taka lífið ekki of alvarlega,
því við lifum það hvort er eð ekki af.
"Og settu svo sætan Smiley-kall, mamma" segir
átta ára djásnið.
Hana!
Þið fenguð 3.
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.4.2009 | 18:23
Málþófsflokkurinn í vondum málum...og ekki einn.
Búinn að vera blankur
árum saman, enda á
stórum fátækrastyrkjum
frá góðhjörtuðum bönkum
og jafnvel FL-grúppurum!
Tómt helv... basl og
örbirgðarbúskapur alltaf hreint,
og það hjá (fyrrum) stærsta stjórnmálaflokki
litla Fróns.
Sjálfsagt ekki sést almennilegt skeini í Valhöll
mánuðum saman!
Nýbakaðir snúðar og vínarbrauð það eina sem
fæst með kaffinu....snittur, sushi og indverskur
frá Indíafaranum liðin tíð!
Ja, svei!
Svo skuldar hann víst "eitthvað" líka.
Jamm, og hinir flokkarnir með menn á Alþingi,
hafa einnig fengið "ölmusustyrki", (þó ekkert
á við "málþófsflokkinn") og eru sömuleiðis
í "skuldahalasúpunni".
Fjárhagslegur ræfildómur, betl, "skítlegir"
styrkir og peningaþunglyndi og auraharðlífi að hrjá alla
þingflokka....en allra mest þó vesalings "málþófsflokkinn".
Að það þrátt fyrir að "helmingur" þingheims sé
tengdur fyrirtækjum.
Það þó að flestir eigi þingmenn allsæmilega
stór einbýlishús, sumarbústaði, jeppa jafnvel, fái
ferðarisnur, dagpeninga, ökutækjastyrk og
aura í vasann fyrir nefndar- og fundarsetur.
Harðræði er þetta og vesaldómur sem frónverskum
"óspilltum, gegnheiðarlegum og lítilmagna-verndandi"
stjórnmálaflokkum er boðið upp á, hér á fornum slóðum
víkinga og ljóðskálda.
Ja, SVEI!
Vesalings fyrrum framkvæmdarstjóri í "þeim stærsta",
Sjálfstæðisflokknum/ "málþófsflokknum, reyndi jafnvel að fá "yfirstrump"
flokksins til að afþakka veglegustu "ölmusustyrkina",
en hann vildi víst endilega þyggja þá.
Og nú er enginn ábyrgur lengur innan flokksins,
fyrir hafa þegið "búbætur þessar".
Nema auðvitað Haarderinn, sem ber "alla" ábyrgð....
fíflið sem hann var!
Ekki fékk hann Darling og Brown til að
skilja fjármálastöðuna á litla Fróni,
svo flinkur sem hann er í engilsaxneskunni,
sei sei, nei!
Frónbúar "mergjaðir hryðjuverkamenn" og
fjármálafífl á eftir.
Vesen!
Vandræði!
Svínarí!
Veit Dabbi hvernig Haarderinn hefur EINSAMALL
rústað orðstý flokksins?
Haarderinn virðist bara ekkert kunna að ræða við erlenda
þjóðhöfðingja og stjórnmálamenn, líkt og Árni Matt.
og Dabbi kunna "svo vel"!
NEI!
Var bara að dudda sér við að þiggja himinháa styrki!
Halda æsispennandi fjölmiðlafundi.
Reyna að róa pottaberjandi mótmælendur.
Bjarga landinu úr fjármálakreppunni.
Málið "tært og hreint" á borðinu.
Haarderinn er erkisvíðingurinn.
Sökudólgur númer EITT!
Skítþvotti er lokið hjá "málþófsflokknum"!
Kvörtunum um spillingu, makk, vitleysisgang
og fjármálasvínarí ber að vísa beina leið til
Haarderans!
Hann ber ábyrgð!
Góðar stundir.
![]() |
Samfylking stærst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.4.2009 | 00:19
Full bleyja...
....svo lekur út úr...og nú
steig hin góða Þorgerður Katrín
illilega í "skítadamminn" sem
lekinn var niður úr skálm og út á
55 milljóna Sjálfstæðisgólfið...eftir
á annan tug ára í skítsöfnun!
Vill svo að Samfylkingin fari
að vinda hvítþvegna bleyju sína,
sem bráðþurfti þvott eftir nokkra
mánuði í stjórn með herlegum
flokki Þorgerðar Katrínar!
Og hvað þá heldur "hverfandi flokkinn"
þennan sem kenndi sig við framsókn!
Vill hafa brjálað að gera í bleyjuþvotti þar líka,
sú ljúfa Þorgerður Katrín.....og það allt áður
en hennar flokkur svo mikið sem hugsar um
"sápukaup" í þvotta á Sjálfstæðisbleyjunni,.
og svo ekki sé minnst á "rennisleipan"
skítinn á "Sjálfstæðisgólfinu"!
Kunna bara sjálfsagt orðið ljómandi vel
við "dauninn" eftir öll þessi ár, sjálfstæðismenn.
Eitthvað svo "heimilislegur" og "bláhandarvinalegur"!
Jamm, húsfreyja sér fram á brjálað þvottastand
hjá ýmsum flokkum fyrir kosningar...sér í lagi
55 milljóna liðinu.
Óskar hún þeim öllum góðar þvottastundir og
sérdeilis góðrar samvisku á eftir.
Alls óvíst samt, að hún kjósi nokkurn "hvítþvegin",
þegar þar að kemur......daunninn vill loða svo lengi við.
Góðar þvottastundir.
![]() |
Hvítþvegin bleyjubörn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.4.2009 | 17:47
Siggi á Eiðum og páskamold.
Siggi á Eiðum var vanur að hlakka mikið til páska.
Það voru iðulega hans lengstu frí fyrir utan jólafrí,
og hann naut páskafrísins til hins ítrasta.
Ekki var verra að páskaegg voru öll orðin
úr súkkulaði, en hann var mikil súkkulaðimaður.
Veður voru oft mild og hlý á páskum í Eyjum
hér í den, og hann fór iðulega með okkur fjölskylduna
beint í útiveruna.
Ekki áttu foreldrar húsfreyju í bifreið í Eyjunum,
heldur fóru um allt gangandi og á hjólum.
Þær systur áttu engin hjólin, en voru reiddar
á hjólum foreldranna, þá farið var til hjólreiðaferða.
pabbi tók systurnar á stöngina, en húsfreyja sat
á bögglabera á hjóli móðurinnar.
Ef páskar voru seint á ferð, var ósjaldan farið
vestur í kartöflugarð, sem var skammt frá
þáverandi flugvallarenda á hjólunum tveimur,
og einnig teknar 2 stunguskóflur með.
Þar pældu mamma og pabbi upp stóran
kartöflu- og rófugarð og gerðu kláran fyrir
sáningu, á meðan við systur skottuðumst
í kring og lékum okkur.
Vorverkin oft unnin yfir páska hér í den,
en aldrei á Föstudaginn langa eða Páskasunnudag.
Þeir dagar háheilagir, föstudagurinn sorgarsöngur í útvarpi,
en sunnudagurinn hamingja í súkkulaðieggi.
Breyttir tímar í dag, en húsfreyju kitlar enn í fingurnar
þá tekur að nálgast páska, að skella sér í einn
herlegan hjólreiðatúr út í náttúruna, og ekki væri verra að
finna ilminn af nýpældri mold fósturjarðarinnar.
Góðar stundir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.4.2009 | 11:35
Mest af blettum!
Húsfreyja er með besta móti
í morgunsárið, þrátt fyrir að
bóndi hennar hafi misst góða
klessu af frostpinna ofan í lyklaborðið
á kompjúter hennar í heimsfótbolta í gær.
Hitinn í kropp húsfreyju farinn að
nálgast 37 gráðurnar, þó rödd
sé enn rám og hás, og einna líkust því
að húsfreyja hafi gerst aðalsöngvari
"dauðarokksveitar" nú í vikunni, og tekið
6 stunda hljómleika með sveit sinni, 3 kvöld í röð.
Kötturinn nýtur einnig góðs af batnandi
húsfreyju, og slafrar í sig afgangsmjólkinni
úr morgunkornaskál 8 ára djásnsins.....
uppi á eldhúsborði.
Húsfreyja búin að svekkja sig yfir
mannslátum á Ítalíu í jarðskjálfta,
lesa um Össur og "Brúnan" í myndaþrasi
og velta fyrir sér visku þess, að
taka í notkun "kennslabúnað" á breskum
flugvöllum og víðar, sem greinir ekki
á milli Winonu Ryder, horaðrar leikkonu,
og Osama bin Laden, horaðs hryðjuverkamanns.
Þetta virðist aldeilis ætla að loða við hið breska
heimsveldi, að þekkja ei vini frá óvinum.
Skemmst að minnast þess að "harkaleg"
viðbrögð "Brúns og Elskunnar hans" gerðu
okkur Frónbúa alla, að "hryðjuverkamönnum"
í stórum stíl.
Og það þó að á flestum heimilum hér uppi
á litla Fróni finnist lítið bitastætt af vopnum
hryðjuverkamanna!
Jú, stöku sæmilega beittur hnífur í hnífaparaskúffu,
ryðgaða byssuhólka eiga fyrrum rjúpnaskyttur landsins,
skæri eiga flestar frónverskar fjölskyldur, nú og svo
auðvitað sleifar og pottlok, en slík vopn eru eingöngu til
brúks niðri á Austurvelli, á litlum bletti þar fyrir framan
Alþingishúsið.
Ó, já blettur. Það minnir húsfreyju á, hvað pistillinn átti
að fjalla um.
Það var þetta þarna í Vísir.is í morgum, um "rauða blettinn"
á Júpíter.
Sem alþjóð veit er Júpíter allstór pláneta á sporbaug
um sólu vora, rétt eins og móðir Jörð.
Húsfreyja hefur eigi barið plánetu þessa augum, því síður
hefur hún vísiterað hana, enda slæm lendingarskilyrði á Júpíter
vegna storma sem gera 55 metrana á sek. á Stórhöfða
hlægilega. (Lélegan brandara, satt að segja.)
Eigi að síður merkileg pláneta, Júpíter, segja stjörnufræðingar.
Og hún hefur það umfram aðrar merkar plánetur
að hafa "rauðan blett", sem stjörnufræðingar hafa fylgst "grannt"
með frá því herrans ári 1870.
Ekki hafa þeir stjörnufræðingar neina vitneskju um hvaða
fyrirbæri þetta er, og lítið að gerast í "blettaathugunum"
þessum árum saman, fyrr en nú allra síðustu ár, er hann tók upp á því að
minnka.
Á krepputímum er húsfreyju annt um að fólk hafi nóg
að starfa, og það þó að aðeins sé um "blettaskoðunarstarf"
sé að ræða.
Þætti henni því slæmt ef "helvískur" bletturinn á Júpíter
tæki upp á því að "hverfa alveg", og gera slatta af
stjörnufræðingum atvinnulausa!
Vonar hún að störnufræðingar þeir er sinnt hafa
"blettagóni" á Júpíter hafi einnig lagt rækt við önnur fyrirbæri í
geimnum, og séu liðtækir í önnur störf á vinnustöðum sínum.
Í Eyjum bernsku húsfreyju var mikið um "bletti".
En þá verið að tala um "grasbletti" þá er í kringum
heimili manna voru, þá þeir höfðu komið sér upp
fjölskyldu og föstum samanstað.
Hvert heimili átti sinn "blett", og voru húsbændur
misviðkvæmir fyrir ágangi á sínum bletti.
Þeim er sárast var um "blettinn" sinn, rann iðulega
í skap, skoppaði bolti frá fótboltaleikandi peyjum inn
á blett þeirra, eða ef stelpuskott prílaði upp á steinvegginn
er rammgirti téðan blett.
Birtust þá menn jafnvel með látum út á stétt, jusu úr skálum
reiðar sinnar yfir krakkaræflana, hótuðu klögun í foreldra
og í versta falli lögreglurannsókn á meintu broti á
"helgum bletti" viðkomandi.
Lærðu Eyjakrakkar fljótlega hvar væri óhætt að leika sér,
og hvar ofurviðkvæmir blettaeigendur rústuðu allri leikgleði.
Voru að vísu hrokagikkir bernskunnar, krakkarnir, og leikur
gat jafnvel borist í nýsáðan grænmetisgarð, en það var samt
undantekning fremur en regla.
Virðing var borin fyrir kartöflu-og grænmetisgörðum,
enda nutu Eyjabörn uppskerunnar í ríku mæli að hausti.
Erfiðara var að læra þetta með skrautblómabeðin, er
prýddu marga "blettina" í Eyjum hér í den.
Skrýtið að mega ekki tína þessi fallegu blóm, eins og mátti tína
sóleyjar, gleyméreyjar, Baldursbrár og sólfífla....en það lærðist
eins og annað.
Voru flestir Eyjamenn ánægðir og lítt stressaðir með sína bletti,
og voru þeir leiksvæði barna Eyjamanna um leið og þeir geymdu
kartöflu-og grænmetisgarða þeirra.
En nú er átta ára djásnið rokið út á "blett" fáklædd
á eftir ókunnugum ketti, svo mál er að linni.
Húsfreyja verður að "birtast með látum" út á sólpall.....
Góðar stundir!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2009 | 11:27
Réttar og rangar áttir.
Húsfreyja hefur aldrei haft
minnstu áhyggjur af því
"í hvaða átt" hún biður, þá
hún spjallar við Guð.
Virðist engu skipta hvernig
húsfreyja snýr, spjallrás hennar við
Guð er alltaf opin...eða þannig
upplifir húsfreyja bænir sínar.
Og merkilegt nokk, bænum húsfreyju
er svarað, þó hún hafi staðið á hvolfi
í jóga á stofugólfinu, verið parkeruð
á bíl sínum á bílastæðinu við Kringluna,
setið á kirkjubekk í gamalli timburkirkju
eða legið hálfsofandi í svefnherbergi sínu
að kveldi þá hún bað.
Svo húsfreyja er ekki alveg að skilja
þetta með mikilvægi þess að biðja "í rétta átt",
hér á móður Jörð.
Jörðin okkar er jú hnöttur, þannig að beini þú
bænum þínum að "einum stað" á jörðu, mun
bænin sannarlega lenda þar fyrir rest, geri þú ráð fyrir
að bænin þín fari frá upphafsstað "á braut" utan um hnöttinn.
Jörðin bæði snýst og hallast, og þó þér hafi
skeikað nokkuð í upphafi, ætti bænin að ná
á áfangastað....jamm stundum eftir "nokkuð marga" hringi.
Eða það telur húsfreyja.
En hver segir svo að "bænir" geti ekki beygt?
Jafnvel tekið "U-beygjur" ef þörf er á!
Sikksakkað?
Farið í heilan hring?
Það er trú húsfreyju að allar kærleiksríkar
bænir fari beina leið til Guðs og góðra engla,
sem gangi svo í málin.
Hvar almættið býr, veit húsfreyja ei, en allar
hennar kærleiksríku bænir virðast eigi að síður rata þangað.
Og "allar áttir" eru "réttar" áttir fyrir kærleiksríkar bænir
hér á móður Jörð.
GÓÐAR BÆNASTUNDIR UM PÁSKA!
![]() |
Bænirnar beðnar í ranga átt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 6.4.2009 kl. 09:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.4.2009 | 13:30
Harkalegt yfirgjammara hitaþrugl!
Húsfreyja er með hita.
Hóstar stöðugt, og særindin
í hálsinum eru að drepa hana.
Hálstöflur og hóstasaft í morgunverð.
Reyndi samt að lesa fréttirnar
í netmálgagninu í morgun:
"Of harkalegt að beita lögum um hryðjuverk
gegn Landsbankanum og Íslandi".
Rannsóknarnefnd breska þingsins að skila skýrslu.
Ekki minnst á það einu orði, hvort hryðjuverkalögum
þessum eigi þá að létta af.
Ekki einu orði!
Er þá húsfreyja enn " a terrorist at large"
í hinu mikla veldi Bretadrottningar?
Naglaþjalir hennar og saumaskæri gerð
upptæk af herlegum tollurum Breta, freistist
hún til að ferðast til Lundúna?
Eða er hún orðin "miður harkalegur" hryðjuverkamaður?
Máske bara svona þolanlega "ullarmjúkur" og
"í lagi að vísitera og versla á Oxford"- hryðjuverkamaður?
Hvernig ber að skilja svona skýrslu?
Hitaþruglið í haus húsfryju stigmagnaðist við lestur
fréttar þessarar.
Skellti sér í að lesa eitthvað skárra og viturlegra.
Fékk að vísu nokkurra sekúnda "bráðahitaslag", þar sem
hún ímyndaði sér að hún væri að horfa á upptöku
frá Alþingi af Johnsen að "syngja" þingræðuna sína....
en það sýnir bara hve þrælsleg pest húsfreyju er og
hve illilega veik hún er! HÓST!
Datt niður á fregn þessa frá Alþingi, þar sem greinilega
er stöðugt verið að skapa ný störf fyrir kreppuþjáða
Frónbúa.
"Yfirgjammari þingsins" er ekki starf sem húsfreyja hefur
áður heyrt nefnt.
Telur þakkavert að nýsköpun eigi sé stað inni á sjálfu
Alþingi allra landsmanna, en hefði gjarnan viljað
sjá "starfslýsingu" á þessu Yfirgjammaradjobbi.
Og af hverju var þessi nýja staða ekki auglýst?
En Arnbjörg máske bara vel að þessari stöðu komin,
og "sjálfskipuð"?
Húsfreyja gafst upp á að finna visku og fróðleik
í fréttum, enda heilabúið á suðumarki eftir
yfirferð þessa á netinu.
Sló heldur í hitasóttina og þruglið að reyna að fylgjast með!
Fór húsfreyja í það að veifa bleikum fjöðrum hangandi
í spotta á svartri stöng, og kattarrófan
ærðist af leikgleði.
Svei, ef rann ekki eitthvað af hitaþruglinu
af heilabúi húsfreyju í bleikfiðraða leiknum
við kisu, svo hún samþykkti að karl hennar
skryppi í verslunarferð.
Á húsfreyja að annast átta ára djásnið,
köttinn og heimilið á meðan, og fara ekki sjálfri
sér að voða.
HÚN!
ALDREI.
Það þó að hún sé ekki "herlegur yfirgjammari", heldur
aðeins mergjaður "hryðjuverkamaður" með
hitaslag að ímynda sér Johnsen syngjandi ræður
niðri á Alþingi.
Góðar stundir
![]() |
Yfirgjammari þingsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 6.4.2009 kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2009 | 14:52
Systragleði.
Á tvær systur, húsfreyja,
enda hún með glaðari konum
er hér á jörðu ganga,
og það þó hún segi sjálf frá.
Og þó húsfreyja væri feimnari
en spói í kríuhóp, þá hún var barn
og unglingur, er hún það ekki lengur.
Og aldrei leiddist henni, þó hún væri
feimin, og alltaf átti hún haug af
vinkonum og vinum.
Stóð að vísu stundum og tvísteig
í korter fyrir framan hús vinkonu,
þá hún ætlaði að bjóða henni í leik
með sér....var alltaf svolítið smeyk
við þessa foreldra, sem allt þurftu að vita.
Var afi þinn ekki sæmilegur af gigtinni?
Pabbi þinn í brjálaðri vinnu hjá Einari ríka?
Var þetta mamma þín sem stóð uppi í stiga
og hjálpaði pabba þínum að mála húsið
núna í júlí? Þetta líka stóra hús!
Hvenær byrja tvíburasystur þínar í skóla?
Nú já, á næsta ári.
Húsfreyja var fremur uppburðarlítil undir
þessum yfirheyrlsum, með logarauðar kinnar
og kökk í hálsinum.
En oftast nær sáu foreldrar aumur á
stelpuskottinu, og hleyptu henni bara
inn til vinkonunnar og sendu svo aftur
báðar tvær út að leika.
Oft voru systur húsfreyju með í för og leikjum,
því henni bar að gætta þeirra eftir hádegi flesta
daga á sumrin og allar helgar jafnt á vetrum sem sumur.
Voru svona óskráð lög á heimilinu,
sem húsfreyja var ekki mikið að pirra sig á
sem stelpuskott.
Fékk oft undanþágur frá lögunum, stæði eitthvað
sérstakt til hjá henni, og oft var pabbinn
liðtækur í gönguferðir, ísferðir og fjör
um helgar með þær allar þrjár systurnar.
Þá var oft mikið sungið og hlegið, og pabbinn
náði stelpunum sínum vel samtaka í leik og gleði.
Heima hjá múttu sinni og afa í suðaustan 17 á Stórhöfða,
gátu systurnar einnig oft leikið sér saman í "Dimmó",
"dúkkulísuleik" og "púsli"!
Ansi oft vildi samt hvessa innandyra einnig, þá
stríðnin kom upp í systrunum, jafnvel brutust
út bardagar af og til.
Múttan og afinn urðu þá að stía stríðsaðilum sundur,
skæruliðarnir með slöngulokkana sendir upp í barnaherbergi,
þar sem þær gengu berserksgang í herberginu í mótmælaskyni,
en rauðhærða skottan, húsfreyja, fékk "sá vægir sem vitið hefur
meira"-fyrirlesturinn og var látin þurrka af leirtauinu eftir
þrjúkaffið og ganga frá.
Afinn tapaði sér svo alveg yfir ástandinu á barnaherberginu,
þegar hann kom upp úr kaffi, og heyrði rauðhærða skottan
grátkveinin í glókolla systrunum þegar afinn skellti þeim í að
taka til eftir "hamfarirnar"!
Vorkenndi múttan þeim iðulega, og læddist undir handlegg
gamla mannsins sem stóð í dyragættinni á barnaherberginu
heldur byrstur á svip, og hjálpaði glókollunum við tiltektirnar.
Sú rauðhærða dæsti mæðulega yfir óréttlætinu niðri í eldhúsi,
"ENGINN hjálpaði henni að þurrka, og ganga frá leirtauinu".
Svo hún kláraði sitt verk ein, skrapp svo rétt niður
í kjallara og faldi uppáhaldsstrigaskó þeirra slöngulokkuðu
inni í fírherbergi. HANA!
Sagðist svo vera farin út að leika, og að sjálfsögðu vildu
glókollurnar með henni, þó hrakviðri væri og stormur.
Og út fóru þær allar þrjár, systurnar, og létu vindinn
þeyta sér til og frá með ærslum og skríkjum.
Voru að vísu svolítið súrar slöngulokkuðu systurnar
fyrst, því uppáhaldsstrigaskórnir þeirrra fundust
bara HVERGI er þær klæddu sig í útifötin.
Urðu að sætta sig við gömlu slitnu strigaskóna.
VESEN!
Húsfreyja er fimm árum eldri en systurnar, sem reyndar
hafa enn nokkuð ljósan hárlit, en slöngulokkarnir eru löngu
horfnir.
Þær eru allar þrjár löngu hættar að berjast um athygli
og yfirráð, stríða hvor annarri góðlátlega í það mesta,
og mikilvægast af öllu, þær eru og verða perluvinkonur.
Geta alltaf treyst á hvor aðra, leitað til systranna ef
eitthvað bjátar á, sótt í styrk og suðning, ráð og dáð.
Glaðst saman á góðri stund, spjallað, ferðast saman,
tekið saman sumarbústaði á leigu, og deilt saman lífsgleðinni.
Jamm, líklega er þetta bara nokkuð góð vísindi, að
systur skapi lífshamingju.
Systur! YKKAR SKÁL!
Góðar stundir.
![]() |
Systur skapa gleði en bræður kvíða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.4.2009 | 15:35
Þegar menn búa í glerhúsi...
....og eiga einhver helv....
helling af grjóti í ofanálag,
er ekkert annað að gera en að
grýta því.
Ætli hann hafi látið hjákonuna
undirrita snepla í þríriti, með
2 lögfræðinga sér við hlið, þá
þau gerðu samkomulagið?
Eiginkonan máske verið "vottur"?
Greinilegt að maður þessi veit ekkert
hvað hann á að gera við aura sína.
Sólundar kannski einhverju smotteríi
af auðæfum sínum í málshöfðun gegn
hjákonunni...sem sjálfsagt á ekki bót
fyrir rassinn á sér...og lendir í skuldafangelsi
vinni sá gamli málið.
Jamm, mannskepnan er furðulegt dýr,
og ekki allt gáfulegt sem hún tekur sér
fyrir hendur.
Húsfreyja og 8 ára djásnið svo báðar
veikar heima í dag.
Flensuskítur, hiti, beinverkir og hósti að
hrjá þær.
Búnar að horfa saman á "Home Alone",
"Mister Bean" í listaverkavandræðum í Hollywood
og baka eina afmælisköku handa bónda húsfreyju.
Átta ára djásnið situr nú með restina af súkkulaðikreminu
á kökuna og hámar í sig...búin að setja "Mister Bean"
aftur á byrjunarreit og hlær dátt af óförum kauða
í Ameríku.
Hún verður orðin hress á morgun, spáir húsfreyja.
Húsfreyja ætlar að hósta sig inn í rúm, og ná
sér í góðan lúr....ef hún fær frið fyrir höfuðverk
og beinverkjum.
góðar stundir.
![]() |
Auðjöfur í mál við hjákonuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.4.2009 | 18:29
Slúðurkarlar!
Hehehe....er sem húsfreyju
grunaði, jafnvel í slúðrinu
vilja karlar standa konum framar.
Slúðra svolítið og skeggræða um
náungann.
Húsfreyja sem betur fer illa að sér
í slúðri, og "Séð og Heyrt" sem hefur
á sér sæmilegt slúðurorð, aðeins
keypt inn á heimilið af bónda hennar....
..svona tvisvar á ári.
En svona honum til varnar, þá kaupir hann
aðeins snepil þennan, þá miðdóttirin
sem hefur verið í modelbransanum, ratar
inn á síður þess.
En gaman að þessu, og máske gott
umhugsunarefni fyrir alla,
bæði konur og karla, sem hafa gaman
að því að slúðra um náungann, að hafa slúðrið
ætíð á léttum og græskulausum nótum, en
láta rætnina eiga sig.
Góðar stundir.
![]() |
Karlar slúðra meira en konur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)