Hin mikla náð Alla!

r_islamic_women.jpg_thumb  Konur margar islamatrúaðar,

  eru huldar óhrjálegum svörtum

  pokum frá hvirfli til iljar, og sumar jafnvel

  með svart net fyrir "augnglugganum"!

  Karlar þeirra eru hinir ánægðustu með

  þetta fyrirkomulag, samanber "hvert sjáanlegt

  konuhár er sem rýtingur beint í hjartað á karlmanni"

  ( "Aldrei án dóttur minnar").

  Og konur jafnvel hýddar á almannafæri

  í ýmsum þjóðfélögum islama séu andlit þeirra ber,

  eða sjáist örlítið í úlnlið eða ökkla......já og Alli forði oss frá

  þvílíkri svívirðu, ef kona klæðist "síðbuxum"W00t!

  En Alli karl er sniðugur karl/kona/guð?, og snýr iðulega

  á karlrembusvínin sem berja konur til hlýðni og dæma

  í forljótar pokadruslur.

  Forðar sá hái margri konunni frá hörmulegu hjónabandi

  með smá viðsnúningi karlanna á þeirra eigin ólögum.

  Megi enginn karl berja ógifta konu augum, þýðir það

  að "þú" verður að kvænast konu þinni, "óskoðaða og óséða"

  af "þér sjálfum".

  Komi svo í ljós á ögurstund, að konan hefur 3 hárugar

  vörtur á nefi ( sem konan hefur líklegast "verslað á E-bay",

  og fest á sig með dyggri aðstoð kynsystra sinna, og farðað vel)

  og hressilega þverkrossuð augu ( líklega af völdum AUGNDROPA,

  sem sjálfsagt er hægt að nálgast á E-bay líkaWhistling),

  þá er það eina í stöðunni fyrir hinn "svikna"

  brúðguma að "ógilda" hjónabandið samstundisDevil.

  Sér húsfreyja fyrir sér að Alli skelli sér á lær í himnasölum sínum,

  og hlægi dátt og lengi að óförum forpokaðra karla

  sem líta á konur sem falleg húsdýr,

  eingöngu brúkleg til undaneldis og þjónustuTounge.

  Telur húsfreyja að kona þessi hafi sloppið vel,

  og muni eigi syrgja eigimann þennan að

  nokkru ráði.....ef þá nokkuð.

  Fer henni kannski líkt og skáldinu sem orti:

    Um gamla Teit skal grafskrift sú

    gerð er sveitir heyra:

    Hann át og skeit sem ég og þú.

    Ekki veit ég meira.

                                        Sigurður Breiðfjörð.

 

  Góðar stundir á blíðum föstudegi.

 


mbl.is Fékk að skila rangeygðri konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband