Færsluflokkur: Bloggar
8.4.2010 | 18:54
Heilir 4 metrar....
....sem þeir kínversku telja vanti upp
á Everestmælingar Nepalmanna.
Minnir óneitanlega á mannin sem
gekk "upp á hæðina" en kom til
baka "niður fjallið".
Minnir húsfreyju að gerð hafi verið
ansi skondin kvikmynd með Hugh Grant
í aðalhlutverki sem hét því góða nafni:
"The man who went up a hill, but
came down a mountain", þar sem
menn þráttuðu um nokkra metra
sem greindi á milli "hæðar" og "fjalls".
Og gengu svo bara í málið þorpsbúar í
hlíðum hæðarinnar/fjallsins, þegar "fjallið"
mældist einvörðu sem hæð, og HÆKKUÐU hæðina
í viðurkennda fjallshæð.
Máske þetta verði til þess að kínverskir fjallgöngumenn
fari að taka með sér "4 metra langa frostpinna" ,
þá þeir klífa Everest, og skelli þeim niður í fánastöngsstellingu,
svo fjallið nái "kínverskum hæðum" þó eitthvað bráðni
toppfönnin þar uppi frá ári til árs.
En góðar stundir og njótið kvöldsins í ykkar
kreppusælu himnesku hæðum.
![]() |
Loks sammála um hæð Everestfjalls |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2010 | 17:35
Þegar dauðir fljúga...
..á milli landa, eru þeir sko aldeilis
ekki í neinum afsláttarsætum né heldur í
"hopp-ferð".
Ó, nei!
Ó sei.
Þeir látnu eru settir í sérhannaðar eðal-kistur,
nánast skotheldar, og síðan "innsiglaðir", og
skellt á besta stað í "kargorými" vélarinnar.
Rándýrt að ferðast þannig....jafnvel þótt steindauður sért.
Og meikar jafnvel sens, ef út í það er farið.
Ekkert á þér að græða lengur!
Ekki er hægt að fá þig, "sálaðan", til að "versla" smávegis
í Saga-bútíkk handa frúnni/bónda og krökkunum...jamm, og tengdó.
Sei, sei nei!
Ekkert hægt að freista þín með bjór eða eðal-vínum í ferðinni,
né heldur til að kaupa "heyrnartól" svo þú getir horft
á Dirty Dancing í 99. sinn á örlitlum sjónvarpskjá,
sem risi upp á 2 metra og 10cm. skyggir á, beint fyrir framan þig.
Svo steindauður ertu aðeins "byrði" þegar kemur að
flugferðabransanum.
Asskoti flott innsiglaður og í fínni kistu, en minna á þér
að græða en ekki neitt, þegar flugáhöfnin gerir upp.
Svo dýrt skulu dauðir fljúga, ekki einu sinni gefinn
"hópafsláttur" ef margir látnir ferðast saman.
En sem betur fer kemur slíkt sjaldan til, og mun
algengara að hinn sálaði sé einn síns liðs í "kargóinu"!
Jamm.
Grátbrosleg frétt atarna frá hinu mikla veldi Mister Brown.
En húsfreyja á von á gestum í pizzu-partý í kvöld,
menn deilir á um lauk, sveppi og pepperóní...allir
eru sammála um skinkuna.
Allt var í þokkalegum gír á vinnustað húsfreyju...
þó líklega verði hún "rangur maður á röngum tíma
í vitlausu húsi" þar fram á vorið.
Merkilegur andskoti, en svona er stundum lífið.
Spáir brilliant góðu sumri í sumar, húsfreyja.
Eftir SVONA vetur á vinnustað, hlýtur bara sumarið 2010
að verða BESTA sumar EVER!
Látið ykkur líða vel í Páskahretinu.
Góðar stundir.
![]() |
Reyndu að koma látnum manni um borð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2010 | 12:21
Að trúa...!
Húsfreyja trúir..og hefur trúað frá því að hún
man eftir sér.
Ekki eins og boðað er í trúarbragðaritum,
af prestum eða heittrúarmönnum.. og nóg
var af slíkum einstaklingum í Eyjum bernsku hennar,
heldur vegna þess að hennar innsti kjarni trúir.
Erfitt að útskýra.
Var hvorki sátt við allt það sem prestarnir lögðu út frá,
eða það sem húsfreyja las í Biblíunni, nema kærleiksboðskap
Jesú Krists, né heldur fann hún sátt við
nokkur önnur trúarbrögð, sem hún seinna grúskaði í
og las.
Kóraninn til dæmis er eitthvert það mesta
ekkisens bull sem hún hefur komist í að lesa.
Tómar endurtekningar, helvítistrú og ójafnaður
boðaður þar, eftir því sem hún las þar....svona ekta
"heilaþvottarit"!
Sama fannst húsfreyju um margt í Gamla Testamenti
Biblíunnar hér í den, var einna sáttust við Davíðsálma.
"Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn-guðinn" fílaði hún ekki.
Búddatrúarrit þvældist húsfreyja í gegnum...alls konar siði og hefðir,
uppljómanir og hugleiðslur...og var engu nær hinum "gullna meðalvegi".
En "endurfæðingar" og mörg líf hér á jörðu var reyndar
furðu skynsamlegt að hennar mati.
Svo eftir að hafa grúskað og gruflað í ýmsu, og
fáar niðurstöður fundið í ritum hinna ýmsu
trúarbragða, ákvað húsfreyja bara að setjast niður
og spjalla við Guð sjálfan.
"Guð, hvaða RUGL er eiginlega í gangi"?, var ákall húsfreyju.
"Húsfreyja góð", sagði Guð, föðurlegri en
lágværri röddu.
"Ég gjörði þig í minni mynd (eitt af því fáa sem þið hafið náð rétt
þarna niðri), og ég gaf þér
skarpa hugsun, þokkalega greind og
aldeilis gott stálminni", hér brosti Guð og
blikkaði húsfreyju.
"Heldur þú góða, að ég hafi ekki ætlast til að þú
"NOTAÐIR" þessar gjafir mínar.
Að þú læsir, hugsaðir, samþykktir, hafnaðir og fyndir
þinn góða sannleika, sem hringdi silfurtærri bjöllu
í þínu brjósti og þú værir sátt við...aðeins þú".
Húsfreyja gapti.
"Já, en Guð, hvað með öll þessu fínu og flottu trúarrit,
og rosalegu trúarbrögðin sem byggja á þessu dóti"?
Guð skellti upp úr.
"Kæra vinkona, þessi trúarrit eru ÖLL skrifuð af YKKUR,
ekki mér, og mikið hryllilega er ykkur gjarnt að
misskilja allt, umturna öllu og hreinlega skálda upp
eitthvað alveg nýtt, sem hefur ekkert með mig og minn
kærleik að gera...hafið þetta bara eins og ykkur er í hag hverju sinni.
Ef ég er heppinn, náið þið kannski brotabroti af brotabroti af brotabroti
af því sem ég vildi koma til ykkar".
Hér dæsti Guð örlítið mæðulega.
Húsfreyja reyndi að koma mannkyni sínu til varnar.
"Já, en við fáum ekki að nota nema 10% af þessum
fína heila sem þú gafst okkur, Guð. Það er ekki nema
von að allt sé í einum graut".
Guð brosti.
"En það er einmitt ein af ykkar stóru áskorunum
eða lexíum ef þú vilt heldur, að læra að hugsa,
greina, aðskilja, velja og hafna með því litla
sem þið hafið til þess. Ef þetta væri allt of létt,
hefðuð þið ekkert gaman að þessu".
"Á þá lífið hér á jörðu að vera GAMAN, Guð"
húsfreyja var rasandi.
"Ó já, ekki spurning. Gaman, skemmtilegt,
kærleiksríkt, ljúft, fallegt, jákvætt og uppbyggjandi".
Augu húsfreyju voru orðin kringlótt af undrun.
En Guð hélt áfram. "Og svo einnig erfitt, leiðinlegt,
niðurrífandi, ljótt og örvæntingarfullt.
Allt eftir ykkar eigin þörfun. Þið viljið öll
læra eitthvað spennandi, þarft, gott, erfitt eða
þungbært þegar þið komið til móður jarðar.
Ykkar er valið, mín er verndin og kærleikurinn".
Guð þagnaði ábúðarfullur.
"Viljum VIÐ eiga ömurlegt og leiðinlegt líf"?
spurði húsfreyja forviða.
"Elsku 10%-konan mín", svaraði Guð blíðlega,
"í litrófi mannssálarinnar er þörfin fyrir því að upplifa hið erfiða,
svo hið kærleiksríka og góða sé metið að verðleikum.
En hugsaðu nú um þetta, húsfreyja kær, og vertu ekkert
að velta þér upp úr trúarbrögðum og ritum þeirra..það eru
hvort eð er bara bækur ritaðar af mönnum.
Þín trú er ÞÍN, tær sem fjallalind,
og í hana sækirðu vernd mína, óþrjótandi kærleik og sálarþroska".
Og meira fékk ekki húsfreyja frá Guði í það skiptið.
Var að spjalla við hann rétt fyrir jól, fyrir nokkrum árum,
og sá Æðsti hefur sjálfsagt haft í nógu að snúast
við "undirbúning" á afmæli sonarins.
Kannski þurft að redda afmælistertu.
Húsfreyja vill að lokum taka fram, að hún spjallar
oft við Guð, og svör hans til hennar eru
"hennar" upplifun á hugsunum sem birtast
nánast eins og sms-skilaboð í huga hennar.
Og húsfreyja vill koma því á framfæri,
að Guð er myljandi húmoristi og afspyrnu þolinmóður
ef marka má spjall þeirra, svo hún hvetur aðra
til að opna "spjallrás" við hann, hafi þeir ekki gert það nú þegar.
En ykkar er valið.
Böggar Guð ekki neitt, þó þið viljið ekkert af honum vita.
Gaf okkur frjálsan vilja, og viljum við ekki ræða málin
við þann Æðsta, er hann aldeilis sáttur við það.
Kærleika hans og vernd fáum við án nokkurra skilyrða...
því trúir húsfreyja.
Góðar stundir og gleðilegt Páskaeggjaát!
![]() |
Sífellt færri trúa á guð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 11.4.2010 kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2010 | 12:17
Laugardagur fyrir páska.
Hnik
Vaknaður vankaður
hálka orðin hláka
tjáning játning
útkall túkall
og jafnvel þetta handklæði kaldhæðni.
Þórarinn Eldjárn, Hættir og mörk.
Vaknaði upp með andfælum húsfreyja af
furðulegum draumi um allt morandi
af hringlaga, gulum lúsum....brrrr
Níu ára djásnið var löngu komið fram
í barnaefni í sjónvarpinu, og bóndi að tölvunni.
Sólin skein glatt inn um svefnherbergisglugga
húsfreyju og ullaði framan hana.
"Heyrðu, tautaði húsfreyja úldin, hvað varð
um "Blessuð sólin elskar allt, allt með KOSSI vekur"?
Sólin skellti upp úr, "vinkona, svona svefnpurkur,
sem þú fá nú bara "ull" þegar þeim loksins þóknast
að opna augun og líta dýrð mína".
Og smellti sér síðan í það "sú gula" að leika sér að "kristöllum"
húsfreyju sem hengu í glugganum, svo sterkir
glampar af þeim skáru húsfreyju í augu.
"Djísuss", húsfreyja kreisti aftur augun, og grúfði
höfuð sitt niður í koddann, "mig var að dreyma
allt morandi af gulum hringlaga lúsum, er ekkert
tillit tekið til þess".
Sú gula brjálaðist í kristöllunum sem aldrei fyrr:
"Hah, það er bara fyrir peningum, letingi og reyndu
að dratta þér á lappir, áður en ég brenni gat á
rúmfötin þín, kona"!
"Ó mig auma", húsfreyja gafst upp fyrir ægivaldi
þeirrar gulu, frekju og yfirgangi.
Settist á rúmstokkinn...eða var það "rímstökkinn"...
með pírð augu og gaf glampandi kristöllum í glugga illt auga.
Níu ára djásnið kom á stökki inn,
og fleygði sér af einskærri gleði beint á magann í rúmið.
"Mamma, ég vaknaði "eldsnemma" þó ég
færi seint að sofa í gær".
Húsfreyja gjóaði sárum augum á djásnið...
fékk ofbirtu í augun...."kræst, níu ára-lífsgleði
getur verið töluvert bjartari en sólin, ef út það er farið"!
"Mamma, þú lofaðir að við myndum gera "EITTHVAÐ SKEMMTILEGT"
í dag...ha, mamma!
Húsfreyja reyndi að taka til í "gul-lúsugum" huga sínum.
Úff...LÝS!
Jú, rámaði eitthvað í að hafa rætt "lauslega" um
"skemmtilega gjörninga" við níu ára djásnið
daginn áður.
"Hvað langar þig að gera, gullið mitt", lítið
ský skreið eitt augnablik fyrir "gula óhræsið"
á himninum, og það hlakkaði í húsfreyju.
Níu ára djásnið fór í kringum málið, eins
og köttur í kringum heitan graut,
en húsfreyja vissi eigi að síður hvað klukkan sló.
Húsdýragarðurinn var málið.
Enn og aftur!
Lömbin eru á leiðinni.
Það er búið að koma trampolíninu í gagnið
í Fjölskyldugarðinum.
Húsfreyja íhugaði meðan hún klæddi sig,
hvort það myndi borga sig að "flytja"
sína litlu fjölskyldu í tjald niður í Laugardal yfir sumarið....
dvelur þar hvort eð er löngum stundum sumarlangt
...og stundum dag eftir dag.
Leigja út íbúðina á meðan...græða grimmt...hmmm
þetta var máske boðskapur "lúsadraumsins"?
Húsfreyja hryllti sig og klæjaði "alls staðar"!
En eftir gott bakklór, bleksvart kaffi, og málgagnslesningu
um ökklaslasað fólk á gosstöðum, fór að birta til
í huga húsfreyju.
Svei, ef hún tók bara ekki þá gulu í sátt.
Enda sú gula orðin upptekin af því að bræða
snjóhrönglið í brekkunni fyrir ofan hús húsfreyju,
og hætt að svekkja úrillar húsfreyjur með lýs á heilanum.
Jamm.
Það verður búðast í dag og svo tekinn
langur laugardagur í Laugardalnum,
og á morgun eru Páskar.
Fánadagar framundan.
Fánadagur
Í dag er logn
í borg vindanna
vorið er komið
og því skal fagnað
með því að draga
fána að hún.
En slíkt hentar ekki hentifána
hann hangir eins og drusla
skotin skepna
sprungin blaðra
lafir getulaus
í stífþeyttu rjómalogni
á sjálfskipuðum fánadegi.
Brýtur fánalögin
með því að láta sjá sig
í þessu ástandi
Þórarinn Eldjárn, Hættir og mörk.
En húsfreyja ætlar að næra sál sína og líkama,
og skella sér síðan með lífsglöðu djásni
í Húsdýragarðinn.
Góðar stundir og gleðilega og sólgula páska.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2010 | 11:05
Það er alveg á tæru!
Konur brugguðu bjór fyrir
karla sína fyrstar allra.
Liggur í hlutarins eðli.
Allir vita að karl sem komin er
með bjórkrús eða dós í hönd,
er EINSTAKT ljúfmenni.
Friðsamur.
Brosmildur.
Jákvæður.
Kærleiksríkur við konu og afkvæmi sín.
Dáir ættingja sína og nágranna.
Og jafnvel helvískur vinnuveitandinn verður ekki sem verstur.
Og það þó karl hafi, áður en bjórinn rann inn
um varir hans, verið bévítans þurs,
sem hafði allt á hornum sér.
Öskrað og orgað á konu og börn á háa séinu.
Hatað alla sína ættingja, nágranna og allra mest
sína vinnuveitendur.
Talið að líf sitt hér á jörð væri einn alls herjar
"táradalur", hörmungar "pleis" sem gæti gott eins verið
ein "álma" út frá sjálfu helvíti.
Dauði og djöfull.
En viti "konur", og hafa lengi vitað,
að með bjórkollu uppstillta á vömbinni,
rósarrautt bjórnef og sællega bjórropa á vörum
af og til, er karlinn friðsamasta og
elskulegasta vera jarðríkis.
Og sú alsáttasta.
Þá er líf karlsins leikur einn, og hann
verður kyrr í hjarta og hug.
Af þessu leiðir einnig, að friður færist yfir heimili hans,
konan og börnin geta sinnt öðru en karlinum, jafnvel
máske hugað að sínum eigin áhugamálum.
Jamm.
Það hefur aldrei verið nein spurning í huga húsfreyju:
"Bjórinn hlýtur bara að vera uppfinning kvenna"!
En svo eru það "náttla" spurningar sem vakna nú hjá húsfreyju:
Hver skyldi hafa uppgötvað ARSENIKKIÐ?
Kalda hafragrautinn?
Enska "nýrnapæið"?
Súra hrútspunga?
Þröngar naríur fyrir karlmenn?
Púströr í bíla sem "ætíð" þarf að skipta um rétt fyrir bifreiðaskoðun?
Fjarstýringar með "stuttvirkandi" batteríum?
Fótboltann?
Nei, þetta eru bara svona spurningar,
sem gaman er að velta upp,
og húsfreyja ætlar "ALLS EKKI"
arfapirruðum eiginkonum að hafa fundið upp á þessu....
öllu!
En góðar stundir og gleðilega Páska, og það eru
allar verslanir opnar enn, svo það má redda fjarstýringunni
í einum hvínandi hvelli.
![]() |
Karlmenn eiga konum bjórinn að þakka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 2.4.2010 kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.3.2010 | 18:59
Náskyld Jesú?
Þeir hljóta að hafa verið meira en
lítið skyldir, afi húsfreyju og Jesú.
Getur svo svarið það, húsfreyja, að
hún hélt að mynd þessi í málgagninu
væri af afa hennar, Vigfúsi.
Hefur reyndar aðeins séð afa Vigfús á myndum,
en svei henni, ef hann er ekki nauðalíkur
þeim heilaga frá Nasaret.
Ekki rekur hana minni til að hafa heyrt að afi Vigfús
hafi verið mikið að flækjast í Nasaret, né heldur hans
foreldrar eða ættfeður og botnar því lítið hve mikið
afinn líkist Meistaranum.
Nema auðvitað að sá heilagi frá Nasaret hafi
gert sér ferð upp á Litla Frón fyrir krossfestingu,
og heimsótt Vestur-Húnvetninga.
En þangað rekur afi allar sínar ættir,
þvers og kruss um þing, bæi og lendur.
Jamm.
Máske að húsfreyja sé þá betur "ættuð"
en hana óraði fyrir...hehehe.
Stóðst ekki mátið, húsfreyja.
Gaman að þessu.
Ekki er húsfreyju grunlaust að til séu æði margar tuskur,
í katólsku kirkjum sem teljast vera hluti af líkklæðum
þess heilaga frá Nasaret...ekki síður en allt
"niðurflísaða" timbrið úr krossi hans, sem nægir víst
til að byggja slatta af kirkjum og Golgata-krossum... og hvað
sosum helst, sem mönnum hugnast að smíða úr
niðurflísuðu timbri.
En sjálfsagt allt "raunverulegar flísar" úr krossinum og
"raunverulegar" tuskur úr líklæðunum...þó þær dugi sjálfsagt utan um
"fjöldann allan" af heilögum mönnum.... samt enginn sem segir að Jesú
hafi ekki verið í "þokkalegum holdum", svo húsfreyja noti nú ekki
orðið "feitur"!
Máske þurft nokkra "stranga" af tuskum, svo vel vafinn teldist.
Jamm, alltaf myljandi grín og gaman hjá katólikkum.
Annars er 9 ára djásnið á fullu að leysa lífsgátuna
hér á bæ.
Búin að gefa það út, að allt hafi þetta basl og kreppuvesen
tilgang hér á jörð.
1. Fyrsta lexía: Læra að þekkja fólkið í kringum okkur,
svo samskipti okkar við það gangi vel....þurfum að
tala saman, mamma.
2. Önnur lexía: Læra að vera sterk....tala ekki um þurfi maður
að fara til tannlæknis, mamma.
3. Þriðja lexía: Vera góð við dýr og menn, því alveg
þykir okkur hundfúlt og leiðinlegt ef einhver er
vondur við okkur...það veistu vel, mamma.
Húsfreyja getur alveg tekið undir lífspeki þessa hjá
9 ára djásninu....og tannlæknaferðir eru bara "horror".
Til tannsa er djásnið búið að mæta tvisvar síðustu
5 daga...sem er TVISVAR of oft að hennar mati.
Gallaður tannglerungur eða jafnvel bakflæði
að svekkja tönn hennar, skap og jafnaðargeð.
Húsfreyja svo "rangur maður á röngum tíma í
vitlausu húsi" í vinnunni um þessar mundir.
Nennir ekki að velta sé upp úr því, húsfreyja....
og ekki er hún með tannpínu, so all is well,
this side of hell....eða þannig.
Góðar stundir og munið að bursta tennurnar.
![]() |
Andlitsmynd af Jesú Kristi? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2010 | 13:14
Hjartað tók kipp af gleði...
...í brjósti húsfreyju,
er hún barði fyrirsögn þessa augum.
Eitt algalið augnablik trúði hún því
að náðst hefði sátt um "staðsetningu"
olnbogabarns höfuðborgarinnar við sundin bláu,
nefnilega flugvöllinn.
En nei.
Ó vei.
Sá ræfill enn á köldum klaka hvað staðsetningu
varðar.
Húkir þarna eins og afsakandi við Skerjafjörðinn,
og reynir að fela sig bak við "nýbyggingar"
fjárvana og gjaldþrota Háskólasjúkrahúss.
Og í óþökk við Guð og menn, eftir umræðunni að dæma.
Húsfreyju er slétt sama hvar "niðursetningurinn"
er staðsettur, svo lengi sem flugsamgöngur við
höfuðborgina eru tryggðar.
Skiptir hana engu hvort taki 20 mínútur eða
45 að aka á flugvöllinn, bara ef flugvöllurinn
er til staðar sem og vélar sem fljúga um heiðríkjuna
með farþega og farangur.
Vilji menn endilega flytja allt flug til Keflavíkur,
innan lands sem utan,
so be it.
Keflavík ljúfur, skemmtilegur og vindasamur bær,
ekkert að því að líta þar við af og til.
Vindurinn gnauðar svo músíkalskt í eyrum þar,
svo unun er á að hlýða.
En flugvöllurinn er einnig fínn þar sem hann er,
að mati húsfreyju.
Jamm.
En svo var fréttin alls ekkert um STAÐSETNINGU
Reykjavíkurflugvallar.
Neipp.
Þras um slökkviliðsmenn á vellinum loks að
leysast farsælllega.
Heilum manni bætt við, allir sáttir og málið DAUTT!
Gott mál.
Er vel að brunavarnir séu í góðu lagi.
Veitir ekki af á þessum síðustu tímum.
Brennur sina, lúpína og skógrækt í Seldal,
hænugrey á Vatnsnesinu og sjálfur
þjóðgarðurinn okkar Frónbúa í Þórsmörk.
Eldur og brennisteinn virðist vera þema
helgarinnar, svo hafi áður verið þörf fyrir
pottþéttar brunavarnir og góða slökkviliðsmenn,
er nú NAUÐSYN!
Megi slökkviliðsmönnum á Reykjavíkurvelli
ætíð farnast vel í sínum störfum....
hvar sosum flugvöllurinn sá er eða verður "staðsettur"!
Vér Frónbúar bíðum spennt eftir þeirri sáttinni.
Góðar stundir og umgangist lifandi eld af varkárni.
![]() |
Sátt um Reykjavíkurflugvöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2010 | 20:13
Skárra að fara undan...
...glóandi hrauni en mót því.
Eða það telur húsfreyja.
Fékk sjálf ekkert val hér í den,
með elgosið nánast í bakgarðinum.
Skipti engu þó hraun rynni fyrst á haf út
en ekki í átt að byggð eins og síðar varð.
Húsfreyja var ræst, skellt í úlpu og skó
og holað ofan í slorangandi fiskibát um hánótt,
komið til Þorlákshafnar í einum hvínandi fart....
eða á svona siglingarhraða sem lítill fiskipungur nær
í bullandi brælu á móti vindi.
Fimm þúsund manns á faraldsfæti þá nóttina.
Jamm.
Nú er landinn enn og aftur á faraldsfæti,
þúsundum saman.
"Fagnandi" á göngu í óbyggðum,
allt á fótinn og "á móti" hraunstraum.
Sumir jafnvel á gallabuxum og strigaskóm.
Þrjátíu kílómetra göngu að hitta einn herlegan hraunstraum.
Og kannski ná að berja einn logarauðan gosstrók augum
með drunum og tilheyrandi, í óþægilega "heitri" nálægð.
Með hraunstrauma rennandi í allar áttir...suður og niður,
norður og niður.
Vissulega upplifun að berja eldgos augum í nálægð,
en mun betri upplifun telur húsfreyja,
að "komast heil" frá slíkum hamförum,
og lifa það, að segja frá ævareiði móður Jarðar,
sjónarspili og ægifegurð.
Vinum og ættingjum.
Börnum og barnabörnum.
Svo kæru landar, notið skynsemina.
Eldgos eru ekkert grín.
Farið vel búin, með fólki sem þekkir vel til aðstæðna.
Verum erlendum ferðamönnum góð fyrirmynd.
Góðar stundir.
![]() |
Fá hraun og ösku á móti sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2010 | 18:40
Margur er knár, þó hann sé...
....DAUÐUR
.
Ætli hann verði þá einnig látinn sæta
refsingu "steindauður", fyrir fíkniefnamálið?
Kista með líkamsleifum og alles máske orðin
"skrifstofustáss" hjá fangelsisstjóra í einu herlegu fangelsi
í hinu mikla veldi Mister Brown?
Fær að taka sína refsingu út í "himneskum frið og ró"?
Ekkert vesen frá öðrum föngum, ekkert vesen við að
neyða ofan í sig hið "breska kidney-pie" og annan eðal
matarhroða þeirra ensku, þar með.
Ekkert vesen né áreiti frá snaróðum ættingjum að
koma vikulega með alls konar VANDAMÁL á heimsóknartímum....
í versta falli kæmi við fangelsisprestur af og til sem
krossaði yfir kistuna og blessaði!
Jamm.
En sérann gæti samt orðið vesen, vildi svo lukka til
að sálaði kóni þessi væri islamatrúar.
Yrði að vera "immann" sem jóðlaði bænina yfir þeim látna!
VESEN!
Því samkvæmt því sem húsfreyja hefur lesið sér til um,
eru mál þeirra í hinum vestræna heimi oft eitt stórt VESEN!
Vilja sér sundlaugar, sér vatnshana, sérstakt kjöt að snæða,
sér dómstóla fyrir skilnaðarmál, erfismál o.fl., sér skóla fyrir
börn sín, sér klæðnað fyrir konur og ungar stúlkur
og sér lög um fjölkvæni og leyfi til að kvænast stúlkubörnum.
Spyrjið bara Dani.
"AÐLÖGUN" virðist bara ekki vera á dagskrá múslima,
sér í lagi þeirra sem aðhyllast sharíalög...og þeim fer
því miður fjölgandi meðal islamatrúaðra.
Þeir rotta sig saman í hverfum í Danmörku og víðar,
og gætu gott eins búið heima í sínum eigin löndum miðað við hve
lítið þeir hafa fyrir því að læra danska tungu, hve lítið þeir
leyfa börnum sínum og konum að hafa samneyti við
aðra Dani.
Jamm, furðulegt vesen allt saman, að flytja fleiri þúsundir
kílómetra í nýtt land að stofna sér nýtt heimili, en VILJA svo hvorki
aðlagast þjóðfélagi né þegnum nýja landsins.
Gera meira segja kröfur um að "nýja þjóðfélagið og þegnar þess"
aðlagi sig að þeim og breyti rótgrónum hlutum ÞEIM, nýju þegnunum í hag!
Sjíss. Húsfreyja er fegin að hafa ekki fæðst í islamatrúarlandi....meira
en orð fá lýst.
En skrítin og nokkuð skondin frétt frá hinu "réttsýna" ríki
bresku drottningarinnar.
Meira segja "látnir" eiga góða sjensa á því
að vinna dómsmál...virðist engin krafa þar í landi
að menn séu í tölu "lifenda" hafi þeim tekist að
komast í það reka mál fyrir dómi.
Ætti húsfreyja að athuga hvort "afi heitinn"
gæti fengið "skaðabætur" fyrir skemmdir á
grindverkinu heima á Eiðum hér í den?
Nah!
Líklega fyrnt málið það.
Og svo sönnunarbyrði erfið...Eiðarnir fóru undir
hraun með skemmdu grindverki og öllu saman
1973.
Góðar stundir og munið "liðin lík" virðast lítil fyrirstaða.
![]() |
Látinn maður sigraði í dómsmáli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 25.3.2010 kl. 16:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.3.2010 | 11:57
Gossprungur....
....geta lengst og hafa lengst.
Margra alda jarðlög eða bergstál eru engin
fyrirstaða þá jarðeldar eru annars vegar.
Húsfreyja hefur sjálf orðið vitni að því,
þá jörð rifnaði sem vesælt blaðsnifsi,
í báða enda gossprungu.
Stóð hún á malarvegi fyrir framan
Vilborgarstaði í Eyjum, með Vilpuna sér á
hægri hönd og all-langa gossprungu með breiðum
eldstrókum beint fyrir framan sig.
Sjónarspilið var ægifagurt, ógurlegt og ótrúlegt.
Logarauðir gosstrókarnir þeyttust fleiri metra upp
í vetrarsvartan himininn.
Kirkjubæina bar við bjarmann og voru sem lítil
svört leikfangakubbahús.
Þar sem húsfreyja stóð, þá 12 ára stelpuskott,
fann hún jörðina nötra undir fótum sér, líkt og
sjálf Móðir Jörð væri dauðhrædd við sitt eigið
ægivald.
Furðulegar "hvíslandi" drunur bárust 12 ára stelpuskottinu
til eyrna, þegar hver eldstrókurinn af fætur öðrum
sentist upp úr sprungu sinni og litaði rauð-appelsínugular
misbreiðar rákir á svartan himininn.
Og svo gerðist það.
Jörðin "orgaði" líkt og í fæðingarhríðum,
skalf og hristist svo hressilega að stelpuskottið
greip í móður sína við hlið sér, til að
missa ekki jafnvægið.
Og sjá, jörðin rifnaði til beggja enda gossprungunnar
sem bréfsnifsi væri, og nýir gosstrókar þeyttust upp
með ofurkrafti.
Tólf ára stelpuskottið reyndi að telja eldstrókana...
gafst upp þegar hún var komin í 33...kleip sig
í 3. sinn í handlegginn þessa nótt...FAST!
Jú, hún var áreiðanlega VAKANDI.
Hversu fáránlegt sem henni virtist það,
varð hún að sætta sig við að sjónarspilið
var raunverulegt.
Dagurinn var 23. janúar.
Árið 1973.
Þá flýði húsfreyja bernskuheimili sitt um hánótt,
líkt og margir íbúar Fljótshlíðar og þeir er sveitir
undir Eyjafjöllum byggja, gerðu í nótt og í morgun.
Húsfreyja hugsar til þeirra.
Góðar stundir.
![]() |
Gossprungan gæti lengst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)