Heyrðu vinur, þú ert að drukkna við...

  lifeguard-advice-5...KOLRANGT strandsvæðiPinch!

  Það þýðir ekkert fyrir þig að garga á hjálp

  þarna hægra megin við baujuna....geturðu ekki reynt að

  svamla þér hérna yfir á MINN strandhluta, og drukkna þar?Whistling

  Ég skal sko svoleiðis redda þér í einum hvínandi hvelli bara ef

  þú fleytir þér eins og 10 metra til suðurs, ha?Cool

  ......   .... .... .....KOMA SVO!

  Með krampa og að fara í fjórða sinn á bólakaf.....déskoti er  heyra þetta,Errm

  og þú algjörlega svaðalega VITLAUST STAÐSETTUR Í SJÓNUM, VÆNI MINN.W00t

  Reyndu nú bara að láta strauminn bera þig hingað yfir á mitt svæði, félagi...

 ég drösla þér síðan í land og málið er dautt!Halo

  Í alvöru!?  Í ALVÖRU!?Pinch

  Ætlarðu að láta mig MISSA VINNUNA, vinur?....vinur.....VINUR"!!!?Shocking

  HANG ON!  I'M COMING"!W00t

  Hehehehe stóðst ekki mátið, húsfreyja.

  Hefur aldrei áður heyrt, að maður í lífsháska á hafi úti við sólarströnd,

  geti verið svo "illilega vitlaust staðsettur" í sjónum, að ástæða sé til

  að reka björgunarfólk úr starfi, komi það honum til hjálpar!Pinch

  Alveg með ólíkindum, eða er til einhverjir aðrir kostir í stöðunni en

  þessir tveir?

  Í fyrsta lagi, koma manninum til hjálpar og bjarga honum,Halo eða

  þá öðrum kosti hreinlega láta hann DRUKKNA, rangstæðan og

  villusvamlandi?Shocking

  Neipp!

  Frétt þessi sannar enn og aftur fyrir húsfreyju, að orðtakið góða:

  "Kaninn er Klikk" á töluvert mikinn rétt á sér.Devil

  Góðar stundir, og í guðanna bænum reynið að verða ekki "rangstæð"

  í sjónum við strendur Florida, liggi leið ykkar þangað í frí.

 


mbl.is Bjargaði mannslífi en var rekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Kaninn er klikk"? Er það já? Ert þú ekki bara fucking rasisti? Mér sýnist það fíflið yðar. Skammstu þín bara, helvítis ógeðið þitt! Alhæfir um heila þjóð, og það fjölbreyttustu þjóð heims. Sá sem hatar Kana hatar allt mannkynið, því Kanar eru af öllu hugsanlegu tagi og öllum hugsanlegum uppruna.

x (IP-tala skráð) 5.7.2012 kl. 21:02

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Ææ margoft heimsótt Kana. Eru yndislegt fólk, skemmtilegt, litríkt og margbreytilegt.... Og dásamlega klikkad sumt..... Svona ekki ólíkt okkur Frónbúum. Pistillinn allur lauflétt grín og glens og ekki skrifadur sem hörd ádeila á amerískt thjódfélag í ofurrasískum stíl...læt adra um thad og vona ad lesendur hafi húmor fyrir mínum skrifum og séu kurteisir í kommentum...vona ad thér x takist ad hafa upp á bædi húmornum og kurteisinni.....Finn hvorugt í these comment thínu.

Sigríður Sigurðardóttir, 5.7.2012 kl. 21:20

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

X þorir ekki að koma fram undir nafi það eitt og sér er heigulsháttur!

Sigurður Haraldsson, 7.7.2012 kl. 09:09

4 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Þakka þér þetta, Sigurður....er þér innilega sammála.

Sigríður Sigurðardóttir, 15.7.2012 kl. 19:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband