Hana! Þar skall eitt árið enn...

Brúðkaup Nonna og Lóu 2009102  ... á húsfreyju!

  Og það í blankablíðu, sólskini og hita.

  Húsfreyja alveg grandalaus úti á

  sínum yndislega sólpalli í morgun,

  þega hún fékk "heilt ár" í hausinnErrm.

  Hefur sjálfsagt argvítans kreppuárið legið

  í leyni...setið um hana eins og rússneskur

  spæjari um CIA í kalda stríðinu...og svo "ÁRÁS"!

  Og "voila" húsfreyja er orðin árinu eldri en

  hún var í gærPinch!!

  Bara sisona!

  Eða svo túlka átta ára djásnið og Vigrinn

  atburðarrásina hjá húsfreyju í dag.

  Húsfreyja hefði máske átt að "fara huldu höfði"....

  "dulbúast" og neita að gefa upp nafn og kennitölu,

  þá "árið" barði dyraTounge.

  Nah!

  Þetta er búin að vera fínn afmælisdagur,

  með fjölskyldu og vinum í kökum og kaffi úti

  á sólpalli.....og svo sushi í kvöldmatinn.

  Það er með konur eins og eðalvín.

  Verða betri með aldrinumGrin.....ekki satt herramenn?

  En djásnið búið að þræla húsfreyju í gegnum

  lestrardæmi og lesa fyrir bónda.....og nú bara verðu hún að fá

  múttuna í bólið.

  Góðar stundir. Current Mood - Happy 






« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband