17.10.2010 | 14:43
Sameinaðir stöndum vér.
Háttvirtur borgarstjóri, ofurgrínari
og uppteknasti maður landsins,
og nýtattóveraður í ofanálag,
er með málin á tæru.
Sameining verið málið út um allt á landsbyggðinni
síðustu árin, sem er vel.
Og í kreppuharðræði og furðulegum
björgunaraðgerðum bankanna, þar sem gjaldþrota fólk með
heimili sín á uppboði er rúið inn að merg, hafa landsbyggðarlögin
þjappað sér saman, og staðið vörð um íbúa sína og heimabyggð.
Hér í höfuðborginni við sundin bláu og nágranna-byggðakjörnum
hefur allt verið í handaskoli, og hver höndin upp á móti annarri.
Það eina sem húsfreyja man eftir að hafa heyrt fréttnæmt
úr Kópavoginum nýverið, er að "Trölli sem stal skóginum"
og bæjarstjórn hans, verði að greiða tuttugu milljónir í skaðabætur
fyrir 500 tré úr "Þjóðhátíðarreitnum"!
Úr Hafnafirði?
Já, hvað með Hafnafjörð?
Veit það einhver?
Húsfreyja er sammála Gnarr og og telur sameiningu ágæta
sparnaðarleið.
En svona í leiðinni vill hún stinga því að ráðamönnum,
að skoða bankamál þjóðarinnar vel.
Þar virðist eitthvað búið að vera í gangi árum saman,
sem er farið að minna óþægilega á Ebenezar Scrooge,
mafíur og fégræðgisdrullumall.
En góðar stundir á sunnudegi.
![]() |
Sameining spari milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2010 | 19:26
Hoppandi, rasandi æst.
Húsfreyja er alveg bandsjóðandi
tjúlluð og æst í skapinu þessa dagana.
Hún blánar, roðnar og hvítnar á víxl,
bölvar á mergjaðri íslensku, fer með
hroðalegar bölbænir á Latínu og
illgjarnar særingar á háþýsku.
Kötturinn læðist lúpulegur um,
varla að hann mjavri þegar húsfreyja svíkur hann
um harðfiskinn 3 daga í röð.
Gjóar vondaufum augum á "tvífættu hárlausu" þjónustuna sína,
geispar ógurlega, sleikir loppu sína fagmannlega og kveður
upp sinn dóm: "Jepp! Gjörsamlega búin að tapa sér, frúin"!
Röltir til níu ára djásnsins, nuggar sér upp við hana og
mjavrar vinalega: "Svona nú, þetta var ekki djúp klórskráma
frá mér í gær, gefðu nú kisu þinni LIFRAKÆFU hróið mitt,
og ég skal hafa klórið enn GRYNNRA næst".
Djásnið lítur á móður sína með furðu í svip sínum:
"Gafstu Bröndu ekkert að éta í morgum, mamma"?
"Ég á ekki köttinn" urrar húsfreyja.
Og djásni rennur blóðið til skyldunnar og reddar ketti
sínum lifrakæfu og vatni.
En húsfreyja er illilega, rasandi bálvond..man ekki einu sinni
eftir að kaupa inn harðfisk, svo heitt er henni í hamsi.
Og hvað veldur?
Jú, séníin í Heilbrigðismálaráðuneytinu okkar Frónbúanna.
Var helvísk kreppan ekki nógu slæm án þess að
niðurskurðarsnilld þeirra nyti við?
Argvítans bankahrunið með kerlingarfáluna hana Ísbjörgu
nartandi í hælana á banakeigendunum, bara nóg vesen
þó snillarnir í Heilbrigðisráðuneytinu sætu á sér?
Útrásarfíflin á Tortóla, nóg til að sprengja blóðþrýstinginn
hjá hverjum heiðvirðum Frónbúa, sem mænir vongóður
á eina "góðærisgróða sinn" flatskjáinn, hvert kvöld í von um
sanngjarnar lausnir, skjaldborg og mannúðlegan niðurskurð
á tímum kreppu?
En sei sei nei!
Ráðist á aldraða, fatlaða, sjúka, barnafólk og verðandi
foreldra!
SKERA NIÐUR!
Og nú í heilbrigðisþjónustunni úti á landi!
Það er eins og fjandinn sjálfur hafi birst þeim
í Heilbrigðisráðuneytinu með tillögur:
1. LOKA öllum fæðingardeildum
landsbyggðarinnar, máski gott ráð
að senda alla frjóa karla er kjósa að búa utan malar,
í "binda fyrir spottann"-aðgerð á næstu mánuðum
og konur á barnsburðaraldri allar í "tappa-ísetningu"!
Þangað til er rétt að fram komi:
Helmingur þjóðarinnar skal eftirleiðis fæðast
í flugvélum, þyrlum, skipum, í bílum á þjóðvegi 1, og
stöku sjúkrabíl......
á LEIÐINNI á fæðingardeildina í höfuðborginni
við sundin bláu.
Eyjamenn verða þannig ekki lengur Eyjamenn,
heldur "Milli-lands-og-Eyja-menn",
Borgfirðingar verða "Hvalfjarðagangna-menn",
Húsvíkingar "Víkurskarðs-menn",
og Selfyssingar, Hvergerðingar og Þorlákshafnarbúar
ásamt öðrum Suðurlandsbúum verða að sjálfsögðu
"Litlu Kaffistofu-búar"....osfr.
Vegna ónæðis af fæðandi konum á Litlu Kaffistofunni
mætti taka karlasalernið og útbúa þar "míní-fæðingarskýli".
Móarnir þar um kring hressast bara af smá hlandi
frá karlkyns bílstjórum í spreng.
2. LOKA skal sem flestum skurðstofum úti á landi.
Þar með eru öll "bráðaveikindi" s.s sprungnir
botnlangar, innvortis blæðingar, massív hjartáföll
eða heilablæðingar BÖNNUÐ á landsbyggðinni....
altént MJÖG illa séð...og í raun bara tómt VESEN....
hvað vill hundveikt pakk upp á dekk úti á landi...?....
getur bara skammast til þess að flytja í borgina
við sundin bláu...og BEÐIÐ á bráðamóttökum
Landsspítla Háskólasjúkrahúss eins og aðrir
fárveikir borgarbúar, eftir þjónustu.
Og svo dettur húsfreyju í hug að þriðja tillagan hafi einnig
verið sett fram af kölska, og rædd í Heilbrigðisráðuneytinu:
3. Stefnt verður að algjöru "fæðingarstoppi"
úti á landi fyrir 2014 og "sjúkdómalausri" landsbyggð
eigi síðar en 2017....og gamlingjar og fatlaðir
er landsbyggðina búa, skulu allir fluttir út í Viðey,
og munu þeir eftirleiðis annast allt viðhald á friðarsúlu
Lennons, og annast móttöku Yoko Ono ár hvert!
Og það þó að það þýði, að eftirleiðis búi aðeins
20 - 70 manns úti á landi næsta mannsaldurinn,
í hverju byggðarlagi.
Jamm, húsfreyja er rasandi bálill og nær vart upp á nef sér
af vonsku.
Kannski skást að gera stólpagrín að öllu saman.
En góðar stundir og í guðanna bænum gætið heilsunnar.....ef
þú ert ólétt kona úti á landi...vá, ert þú í djúpum...!
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.10.2010 | 12:40
Blússandi aukning...
...á utanlandsferðum í blússandi launaskerðingu og
níðurskurði
ME THINKETH NOT!
Árið 2011 verður árið þar sem hið opinbera
"hegnir" undirmönnum "sínum" í fyrir kreppuna,
"Ísbjörgu", bankahrunið og milljarðaafskriftirnar
þeirra sem sukkuðu mest.
Hið opinbera hefur þar allt í hendi sér,
greiðir undisátunum launin og byrjar að klípa af....
og klípa af.
(Því var nær " varkára skítapakkinu með alla flatskjáina"....
... þvílík fífl að fara ekki í útrásina og lenda í "milljarða-afskriftasuðukatlinum",
nú fær það sko að kenna á niðurskurðarhnífnum.)
Starfsfólk heilbrigðismála rær lífróður um þessar mundir,
svo eigi komi til að "gæði" heilbrigðisþjónustu hraki,
svo að þaulvant heilbrigðisstarfsfólk hrekist eigi úr starfi,
og ekki síst berst það fyrir lífsafkomu sinni og barna sinna.
En það er máske "blússandi aukningin" hjá Frónbúum,
sem flugfélögin eru að reikna með á næsta ári,
að heilbrigðisstarfsfólk kaupi sér "one way ticket"-ferðir
til Skandinavíu í stórum stíl,
ferðist á vit betur launaðra starfa og meiri skilnings
á þörfinni fyrir góða heilbrigðisþjónustu.
Nú eða kannski þeir "flugvænu" reikni með "blússandi aukningu"
á fársjúkum Frónbúum í flugið, á leið til útlanda, að leita sér
lækninga og hjúkrunar, þar sem allt slíkt er í "blússandi" niðurskurði
heima fyrir.
En sjálfsagt verður "blússandi aukning" hjá "milljarðaafskrifaða"
liðinu í flugi til útlanda á næsta ári, svona á meðan það er að
"nurla saman" fyrir nýrri einkaþotu.
Við hin verðum heima að berja potta, pönnur og tunnur niður á Austurvelli,
á meðan hinir sjúku og hjálparþurfi bíða í kvalafullri ró...nú eða "steindauðir",
í biðröðinni á bráðamóttöku Landspítala Háskólasjúkrahúss.....
eða kannski við verðum öll orðin að þegnum í ríki
hins herlega norska kóngs..."HEIJA NORGE".....
eða komin til starfa á dönskum pöbb... "Va-vi-du-ha" og
"Go-moen" einu skiljanlegu orðin í eyrum oss frónverskra.
Ekki gott að spá.
En húsfreyja ætla að bregða sér á kaffihús niður í miðbæ í dag.
Tekur með sér vatn á flösku, sítrónusneið og hellir í glas
svo lítið beri á. Maular brauðskorpu úr Bónus, sem hún
dregur laumulega upp úr veski sínu.
Spjallar við vinkonur.
Verður síðan með kartöflupottinn og eldhússleifina í bakpoka
með sér, og lætur vaða þá hún kemur að Austurvelli.
Dúndrandi sláttur og djöfulgangur á meðan kraftar leyfa.
Eggjunum sínum tímir hún ekki.....of dýr matur á Alþingishússveggina.
Jamm....aukning á flugferðum Frónbúa til útlanda...mæ ass!
En á jákvæðari nótum.
Sumarblíða í algleymingi hér í borginni við sundin bláu.
Hitamælir á sólpalli húsfreyju segir 30 gráður í plús....og
kötturinn liggur í öngviti á pallinum af hita á meðan
"sumar?-vetrar?-sólin" vermir kropp húsfreyju og þurrkar
tau hennar á snúrum.
Og krummi krunkar glaðhlakkalega uppi í hamraborginni
en hundurinn í næsta húsi ærist yfir ósvífni krumma.
Sumarblóm húsfreyju á sólpalli, eru orðin kexrugluð....
Hortensían komin með ný blöð á stilka sína,
Margaritan blómstrar sem aldrei fyrr og Nellikkan
veit ekki hvort hún á að hætta að blómstra eða....?
Meira að segja litla bleika hengiplantan skartar nýjum
grænum legg með smásæjum grænum blöðum og fallegum
bleikum blómum.
Jamm, jafnvel móðir jörð sér aumur á oss kreppuþjáðum
Frónbúum.
Kannski búin að FRESTA vetri, "Móðirin" fram í janúar 2015?
En í staðinn muni hún láta geysa "hríðarbili vikum saman" á
öllum helstu sumarleyfisstöðum/vetrarleyfisstöðum
frónversks útrásarpakks og fyrrum bankaeigendaliðs litla Fróns....
þá það er nýmætt þangað í "VERÐSKULDAÐ FRÍ"!
En drífa inn sólþurrkaðan þvott næst.
Góðar laugardagsstundir.
![]() |
Reikna með blússandi aukningu í farþegaflugi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt 11.10.2010 kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.10.2010 | 19:57
Niður með....
...niðurskurðinn í heilbrigðiskerfinu
!
Húsfreyja hleraði eftir niðurskurðaráætlunum
þá hún spjallaði við systurdóttur í Eyjum
í dag, en systurdóttir er starfsmaður
á þeirra annars ágæta sjúkrahúsi.
Loka fæðingardeild!
Loka skurðdeild!
Fækka legurýmum úr átján í þrettán fyrir sjúka og aldraða.
Húsfreyju sundlar.
Síðast þá hún vissi bjuggu nálægt 5000 manns í Eyjunum.
Samkvæmt síðustu niðurskurðarsnilld heilbrigðisráðherra,
virðist "enginn" af þessum 5000 mega "fæða" barn í heimabyggð,
sei sei nei.
Dúlla sér níu mánuði gengin með Herjólfi nánast "botnslausum"
upp á sandrif í Landeyjahöfn og vona að hægt verði að bjarga
barnshafandi konu/konum í land á næsta flóði, og komast þá
í bifreið/rútu í rúman klukkutíma á Selfoss (ef þar fær
fæðingardeild að vera í friði) eða rúma 2 tíma til Reykjavíkur.
Nú eða skella sér í æluferð í 3 tíma í Þorlákshöfn og síðan
með rútu/bifreið upp á Selfoss eða í borgina við sundin bláu....
og vona að blessað barnið taki ekki upp á því að koma í
heiminn í litlum klefa í Herjólfi eða á Þjóðvegi eitt, rétt
á meðan foreldrarnir dudda sér í rólegheitum og ekki nokkru
stressi við að koma sér á fæðingardeildina.
Nú ef ljósm...., lækn....hjúkrunarfr.....jæja, bara EINHVER
heilbrigðisstarfsmaður, sem enn fær að sinna vanfærum konum,
og hefur ekki fengið uppsagnarbréf nýverið, ákveður að allt sé
í voða hjá verðandi móður og barni og bráðakeisari sé
eina lausnin, er alltaf hægt að kalla eftir sjúkraflugi......EF það
er ekki snarvitlaust veður með 50 metrum á sekúndu á Stórhöfða.
Og þá spyr húsfreyja: Hver sker þá, ef búið er að loka skurðstofu,
og skurðlæknar Eyjanna eru fluttir til Noregs eða í Svíaríki og allt ófært út í Eyjar.
Hver fær þá að brýna hnífa, og bjarga móður og barni?
Eða er máske bara búið að spá LOGNI á Stórhöfða næstu tíu árin?
En ekki nóg með það, að barnshafandi konur verði
"frekar óæskilegt vandræðafólk" í Eyjunum, heldur
verða sjúkir og aldraðir að gæta þess, að
verða aldrei veikir eða hjálparþurfi nema flestir 13 í einu!
Og verði þá kannski aðeins innskrifaðir á sjúkrahús Eyjamanna
föstudaginn þrettánda klukkan 13, og þá ætíð útskrifaðir
allir sem einn 13 dögum fyrir jól...eða á þrettándanum öðrum kosti?
Húsfreyja telur að Eyjamenn verði ALVARLEGA að fara að hugsa sinn gang,
hvað veikindi og sjúkdóma varðar.
Sprungnir botnlangar algjört "tabú"!
Heilablæðingar sömuleiðis sem og flestar stórar innri blæðingar.
Væg hjartaáföll skulu stíluð upp á sumrin í "bongóblíðu",
en stærri hjartaáföll eingöngu í "sumarfríi" í borginni við sundin bláu,
helst þá sá hjartasjúki er staddur á Eiríksgötunni
eða á bílastæðunum fyrir framan Landspítalann Háskólasjúkrahús við Hringbraut.
Gallsteinaköst, nýrnagrjót og matareitranir skyldu Eyjamenn eftirleiðis
skipulegggja með lágmark tveggja sólahringa fyrirvara, sem og "bólgur"
í botnlöngum.
Alla langvarandi og erfiða sjúkdóma er að sjálfsögðu BEST að
mæta með í "ofurhraðvirku, ekki nokkurt álag í gangi"-læknaþjónustuna á Landspítala
Háskólasjúkrahús allra landsmanna.
Máski hægt að bjóða upp á "hópferðir" langsjúkra í Eyjum, með Herjólfi
til lækna uppi á landi?
Mætti síðan fá einhvern eldhressan leiðsögumann af suðurlandinu
með "vægan hjartagalla" líka á leið til læknis,
til að spjalla við Eyjmenn í rútunni, og benda þeim á
áhugaverða staði við Þjóðveg 1, og til að fara með gamanmál.
Jamm, húsfreyja bara varð að fá útrás fyrir kaldhæðnina.
En í alvöru.
Húsfreyja er aldeilis rasandi á niðurskurði í
"mergnöguðu" heilbrigðiskerfi.
NIÐUR MEÐ NIÐURSKURÐINN í heilbrigðiskerfinu!
Góðar stundir og baráttukveðjur út í Eyjar.
![]() |
Starfsfólk mótmælir í Eyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 7.10.2010 kl. 19:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2010 | 19:38
Mótmæli eða..
...UNDANHALD SAMKVÆMT ÁÆTLUN.
Ég var móðgaður, hæddur, svívirtur, kvalinn og kúgaður
af kumpánum nokkrum, sem allt virtust geta og mega.
Og þótt ég sé maður á sigur sannleikans trúaður,
sýndist mér stundum þó von minni í flestu geiga.
Að endingu sagði ég yfirdrottnunarvaldinu
í alvöru stríð á hendur, án nokkurrar vægðar.
Og styrkur minn liggur allur í undanhaldinu,
þótt einhverjum sýnist það málstaðnum lítið til þægðar.
Og stríð mitt er nútímastríð, en ekki af því taginu,
að standa til lengdar í tvísýnum vopnabrýnum.
Þið vitið að jörðin er líkt og knöttur í laginu.
Og loksins kemst maður aftan að fjandmanni sínum.
Steinn Steinarr.
Húsfreyja sendir mótmælendum baráttukveðjur niður á Austurvöll,
og vonar að þeim gangi sem allra best að berja tunnurnar í tætlur.
Góðar stundir.
![]() |
Bumbur barðar á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2010 | 21:05
ÞIÐ ERUÐ DAUÐ....
...orgaði ræstitæknirinn
af þriðju hæðinni á háa séinu
og skók byssu sína.
"Þú er DAUÐUR nú þegar" gargaði sjúkraliði
úr sambýlinu á móti, og mundaði byssu sína fagmannlega.
Og sjúkraliðinn hafði ekki orgað sitt síðasta, og þrumaði:
"Koma svo stelpur, við tökum þau og söllum þau í spað",
og húsfreyja var tekinn hálstaki af liðsmönnum sínum
og látin mynda hring með þeim, og svo orguðu allir sem einn:
DREPA!!
KRÆST, nú var eins gott að standa sig.
Húsfreyja athugaði "riffil" sinn.
Júmm, fullhlaðinn, öryggið af....passa sig á
að skjóta ekki sjálfa sig í fótinn, eða sína eigin
hermenn í bakið, og "þriðja hæðin" var dauð!
Marserað á spariskónum af stað yfir mýrarfen,
í ægilegum hermannagalla og með rosalegan svartan
ægishjálm yfir andlitinu, með örlítilli gluggarúðu.
Húsfreyja dimmdi rödd sína niður um nokkrar áttundir
og andaði þungt: "Aaaaððððaaaahh.....LUKE, I'M YOUR FATHER"
þrumaði húsfreyja framan í nokkra göngufélaga sína.
Hlátur, fliss.....hvísl.."hver er þetta, eins og fífl"!
Sjálfskipaður hershöfðingi, sjúkraliðinn í sambýlinu
hafði heyrt í húsfreyju, tók málin í sínar hendur:
"Engan fíflagang í röðinni...við erum hermenn og ætlum
að VINNA þessa AUMINGJA....DREPA"!!!
"Vá, sú er aldeilis komin í drápsgírinn" hugsaði húsfreyja,
en rauk samt í það að skokka nokkur skref í mýrinni og
syngja undir hermannatakti: "VIÐ ERUM AÐ FARA Í STRÍÐ
HRÆÐUMST EKKI ORRAHRÍÐ
DREPUM ALLT SEM HREYFIST KVIKT
ÞÓ AÐ AF ÞESSU SÉ SKÍTALYKT.
Meira fliss og hlátur..."ert'etta þú Sigga"?...aðstoðardeildarstjóri
húsfreyju var vígalegur, þar sem hún kom öslandi eftir foraðinu,
hafði sem betur fer misst af kveðskapnum húsfreyju.
Húsfreyja varð að játa því.
"Ég sé ekki rassgat" kvartaði aðstoðardeildarstjóri,
"fyrir móðu innan á gluggarúðunni"...fiktaði við hjálm sinn.
"EKKI RÍFA AF YKKUR HJÁLMINN" orgaði "aðmírállinn" sem
greinilega örvænti um mannskap sinn, sem var ekki einu
sinni mættur á vígstöðvarnar, því síður byrjaður að
skjóta af morðtóli sínu til að drepa mann og annan.
En loks voru allir mættir á vigstöðvarnar.
Aðmírállinn reyndi að koma skikk á herlið sín,
allt var í tjóni og tjöru góða stund...húsfreyja með
aðstoðardeildarsjóra og öðrum deildarstjóra
vöfruðu um eins og illa rúnar rollur....."KOMIÐ TIL BAKA",
orgaði aðmírállinn, "ÞAÐ BYRJA ALLIR SAMAN OG ÞEGAR ÉG SEGI TIL"!
Þremenningarnir sáu sitt óvænna og hundskuðust niðurlútar
til baka í hópinn.
"ÞIÐ TAKIÐ EKKI HJÁLMINN AF YKKUR......EKKI UNDIR NEINUM KRINGUMSTÆÐUM"
gargaði aðmírállinn, svo hárin á hermönnum risu í hnakka þeirra.
"Ekki þótt andsk.... fóðrið í hjálminum hrykki upp í mig og ég væri að kafna"
tautaði húsfreyja bljúg...."léti mig bara hafa það, ef þú hættir að garga".
Aðmírállinn sem betur fer hálf-heyrnasljór af skvaldri hermanna í kringum
sig, og húsfreyja slapp við 30 armbeygjur, fyrir að rífa kjaft.
BLÍÍÍÍSTR!
Húsfreyja skokkaði léttum skrefum á spariskóm sínum í var.
Mundaði byssu sína.
Djö....sást ekki nokkur maður.
Hvurslags skræfur voru þetta á þriðju hæðinni,
lágu bara í felum......VESALINGAR!
Húsfreyja beið átekta vel falin.
Einhver hreyfing vinstra megin á sjónsviði hennar...
bang...bang...bang....bang....bang....bang...osfr.
Húsfreyja missti sig, fretaði á allt sem hreyfðist eða
bara blakti vinalega í golunni....meira að segja
starrahópur sem lagst hafði til náða í þýflendinu
skammt frá, og flaug upp með mótmælaskrækjum,
átti fjöðrum sínum fjör að launa.
Liðsmenn húsfreyju, deildarstjóri og hennar aðstoðardeildarstjóri
við hlið hennar voru að míga á sig af hlátri.
HAH!
Þarf vart að taka fram að herlið húsfreyju vann 2 leiki
í "paintball" af þremur, en líklega tapaðist sá þriðji
eingöngu vegna þess að húsfreyja kláraði öll sín
100 skot í fyrstu leikjunum tveimur...átti aum níu skot eftir
í þann síðasta...gat ekki einu sinni svarað fyrir sig þegar
óhræsi af þriðju hæð dúndraði 2 skotum í læri hennar....Ái
!
Læri húsfreyju eru nú skreytt glæsilegum
myndum af "Óríon-sólkerfinu" í lit......megastórir stjörnukíkjar HVAÐ?
Hubble-sjónaukinn... hvað?
En óvissuferð þessi tókst með afbrigðum vel hjá húsfreyju
og samstarfsfólki hennar, að hennar mati.
Sungið, spjallað, hlegið og snæddur góður matur frá Grillvagninum.
Og ó, já, húsfreyja dansaði "Svanavatnið" ...sko alvöruballet.
Snilld húsfreyju á sér engin takmörk.
Húsfreyja og 9 aðrir dansarar fengu formlegt og fínt skjal
upp á frábær balletspor: BALLETDANSARAR af Guðs náð!
Jamm, ekki amaleg óvissu ferð þetta, og húsfreyja
gekk svo heim til sín í 10-12 stiga hita um miðnættið
í október í borginni við sundin bláu.
Góðar stundir og megi allar ykkar óvissuferðir vera gleðilegar.
Spaugilegt | Breytt 11.10.2010 kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2010 | 13:07
Berja höfðinu við stein.
Svo lengi sem menn muna,
hafa sjúkdómar herjað á mannkyn,
sem á önnur dýr jarðar.
Húsfreyja telur sig heppna að
lifa tíma þar sem ríkið rekur sjúkrahús
með læknisþjónustu og hjúkrunarþjónustu
til hjálpar sínum sjúku einstaklingum uppi á litla Fróni.
Það er þó eitt, sá böggull hefur fylgt skammrifi,
frá því að húsfreyja hóf störf sín sem
hjúkrunarfræðingur, að geisað hefur "kreppa" í heilbrigðiskerfinu.
SPARNAÐUR!
NIÐURSKURÐUR!
LAUNALÆKKANIR!
UPPSAGNIR!
"Öll 27 árin" sem húsfreyja hefur verið að störfum
hefur þetta verið söngurinn.
Á Borgarspítalnum á A-4, með 5 sjúklinga umfram á gangi hverja
bráðavakt.....spara "undirbreiðslur og hanska" á meðan sjúklingarnir
ældu blóði og húsfreyja stóð sveitt við að setja ofan í þá
magslöngur.
Á gjörgæslunni á Landakoti í heil 5 ár, með
fólk á öllum aldri í öndunarvélum, með inniliggjandi
Swan Ganz-leggi inn í hjarta sér og í nýrnavélum fengnar að
láni frá Landspítalanum, snarvitlaust að gera 99 af hverjum hundrað vöktum.
Og á "hundruðustu vaktinni" þegar örlítð svigrúm skapaðist til að anda
á milli blóðþrýstingsmælinga, rannsóknareddinga, sáraskiptinga,
vökvagjafa, blóðgjafa, verkjalyfjagjafa, sýklalyfjagjafa og þvagmælinga
máttu hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar pakka
grisjum og túffum fyrir sótthreinsun og brjóta saman "selló".
Og rifa í sundur Bennet-öndunarvélar, þrífa og sótthreinsa
og setja saman aftur.
Kaffipásur og matartímar voru "orðrómur" sem starfsfólk
gjörgæslu heyrði að ætti sér stað á öðrum deildum.
Á Húsavík var húsfreyja með 20-22 rúma sjúkradeild, 4 rúma fæðingardeild
og 33 rúma öldrunardeild á sínum snærum frá kl. 17-08
margoft, því hún vann iðulega kvöld-og næturvakt saman.
Jú, jú, sei sei, norðanmenn hraustir að upplagi
og stundum ekki nema 18 inniliggjandi á sjúkradeildinni
og aðeins ein kona á fæðingardeild með nýfætt kríli,
alltaf fullt á öldrunardeildinni.
En svo voru einnig vaktir þar sem sjúkradeildin var yfirfull,
einn yfir á skoðun, 3 konur fæddar á fæðingardeildinni og ein
í ofurrólegu "malli" eins og ljósurnar orðuðu það.
Og þá brást ekki að hjón kæmu með lítið 3 vikna kríli
blátt og í andnauð með RS-vírussýkingu, apotekarinn
kom í astmakasti og sjómaðurinn frá Akranesi í "stoppi",
mætti ælandi blóði stuttu eftir að öldungur uppi
á þriðju hæð hafði kvatt jarðarlíf sitt og siglt í Sumarlandið.
Og svo mátti húysfreyja rífa sig á lappir eftir 4 tíma svefn
eftir eina klikkaða kvöld-næturvakt
til að mæta á "sparnaðarfund", því heilbrigðisráðherra
var búin að boða 20 milljóna niðurskurð á Húsavík.
Ekki skánaði ástandið í Keflavík, þá húsfreyja mætti þar
til starfa.
"Þið eruð svo stutt frá Reykjavík, Suðurnesjabúar "eiga"
ekki að þurfa svona "fullkomna" heilbrigðisstofnun.
Drífið ykkur bara hingað til okkar í höfuðborginn, ef eitthvað amar að.
Þið eruð alltaf velkomin"!
Fyrir hönd allra góðra Suðurnesjabúa sem hún var svo heppin
að fá að hjúkra og veita þjónustu í 12 ár vill hún svara þessu
makalausa orðagjálfri svona: "Aaaaaaaarrrrgh"!
Spyrjið þá hve mörg ófædd börn þeir telja hafa dáið,
eða hve margir hjartasjúklingar hafa dáið,
eða hve margir heilablæðingasjúklingar hafa dáið....
...á "Reykjanesbrautinni".
Húsfreyja treystir sér ekki til þess.
Og þar var allt skorið við nögl, eins og venjulega.
Bleyjusparnaður, undirbreiðslusparnaður, hanskasparnaður.
Sumarlokanir á skurðstofu og hálfri sjúkradeildinni
árum saman.....deyjandi krabbameinssjúklingum og
öldungum hjúkrað dag sem nótt þrátt fyrir það,
flestir hinna er veikir voru á Suðurnesjum sumarlangt "urðu" að fara til
Reykjavíkur, nema hægt væri að sjá fyrir skjótan bata
á sólarhring eða skemur.
Og auðvitað varð húsfreyja að sinna slysastofu á kvöld- og næturvöktum,
ásamt sinni 22 manna deild á sjúkrahúsi Keflavíkur.
Það var og.
Og enn og aftur er húsfreyju boðaður niðurskurður og
kreppuaðgerðir á sínum vinnustað.
Skerðingu á launum sínum.
Sparnaður í bleyjum, hefur ekki séð undirbreiðslu
í mörg ár, hönskum, mjólk og djúsi, lyfjum (ódýrari lyf valin, þeim dýrari hætt),
rannsóknum og hverju ekki.
Allra leiða leitað til að minnka kostnað.
En naktar staðreyndir standa eftir sem áður óhaggaðar.
Fólk veikist á hvaða aldri sem er.
Fólkl verður gamalt og hjálpar þurfi.
Þá spyr húsfreyja: Vill heilbrigðisráðherra hlynna að þessu fólki
sem áður, veita því þjónustu lækninga, hjúkrunar og ummönnunar?
Og ef svarið er já, hvernig ætlar hann að skera niður
heilbrigðisþjónustu sem búið er að "naga inn að merg"
með sparnaði árum saman, án þess að það bitni á gæði þjónustu?
Húsfreyja telur að heilbrigðisráðherra sé úrræðalaus nema til þess eins
að boða niðurskurð enn og aftur,
og stendur svo eins og þvara í mótbyr og "ber höfðinu við stein".
Góðar stundir.
![]() |
Flögguðu í hálfa stöng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 4.10.2010 kl. 21:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
27.9.2010 | 21:49
Flóttinn.
Það var nótt.
Og ég gekk eftir götunni.
Og gatan var hljóðlaus og mannlaus,
því það var nótt.
Ég gekk föstum og ákveðnum skrefum
og sagði við sjálfan mig:
Sjá, ég er farinn brott.
Ég kem aldrei aftur.
Og engum skal takast
að finna felustað minn.
Þá heyrði ég snögglega
fótatak einhvers á eftir mér.
Og ég sneri mér við,
því ég vildi sjá hvort ég þekkti hann.
En það var ekki neinn.
Það var aðeins skóhljóð, sem elti mig.
Og ég hrópaði, skjálfandi röddu:
Hvað hef ég þá gert?
Mér var svarað með lævísum hlátri,
lengst úti í myrkrinu:
Ég er lífið sjálft. Og þú kemst ekki undan.
Ég elti þig.
Steinn Steinarr.
Sterkur Steinn.
Þung og flott undiralda í þessu.
Húsfreyja er einmitt í "flóttastuði" þessa dagana.
"Flótti" er einn af varnarháttum mannsins,
og flest höfum einhvern tímann beitt honum í erfiðri
stöðu.
Húsfreyja var lengi fram eftir aldri að berjast við
feimni, og flóttinn var þá hennar aðal varnarháttur.
Feimnin setti henni þröngar skorður, þegar hún var órétti
beitt, eða þá að henni var sótt.
Svo húsfreyja flýði fremur en að standa á rétti sínum eða
tala máli sínu.
Um þrítugt tókst húsfreyja að segja skilið við feimnina.
En flóttinn var nánast orðinn henni eðlislægur, og
og í mörg ár mátti húsfreyja hafa sig alla við
að snúast ekki á hæla og flýja, þá harðnaði á dalnum,
og hressilega blés á móti.
Nú er flótti ekki lengur einn af kostum húsfreyju í andstreymi.
Hún rís upp og berst með kjafti og klóm,
boðar til funda, þjappar fólki saman og vinnur í málunum
af ákveðni jafnvel hörku.
Hefur iðulega sjálf, ekki hugmynd hvaða kona þetta er,
sem svona hagar sér, enda allar hennar taugar þandar og
"organdi" á flótta innra með henni!
Húsfreyja ansar ekki.
Virðir ekki taugar sínar viðlits.
Vill bara berjast.
Síðan alltaf hægt að fá vægt taugaáfall að málalokum.
Þó húsfreyja hafni flótta í dag, telur hún flótta eigi að síður
nauðsynlegan varnarhátt mannfólkinu, og þarf enginn að skammast
sín fyrir að beita honum sjálfi sínu og tilfinningum til varnar.....stundum
er flótti bara eina leiðin.
Að festast í einum varnarhætti er hins vegar erfitt,
og getur hamlað þroska og dregið úr lífsfyllingu.
Svo flótti er "út" hjá húsfreyju, búinn með flóttakvótann,
"berjast" er málið.
Og það er hörku barátta framundan í kjaramálum.
Aðeins þetta sem húsfreyja vildi segja.
En Steinn segir þetta bara svo miklu flottar en húsfreyja.
Góðar stundir og góða nótt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.9.2010 | 13:08
Enginn gosórói-tvö?
Eitthvað ekki að virka hjá húsfreyju
kompjútertengingin, en pistillinn er hér fyrir neðan.
![]() |
Snarpur jarðskjálfti á Vatnajökli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2010 | 11:12
Enginn gosórói.
Helgafell er "útdautt" eldfjall,
var viðkvæðið í barnaskóla
Vestmannaeyja, þá húsfreyja var lítil skotta.
"Fjallið hefur ekki gosið í 5000 ár,
og telst því útdauð eldstöð" kváðu spakir
menn og gjóuðu skörpum augum til
suðurs, þar sem Surtsey reis kolsvort
við sjóndeildarhring.
Tveimur litlum jarðskjálftum
fann svo húsfreyja fyrir að kvöldi
dags 23 janúar 1973....ekki víst að
þeir hefðu verið taldir sem "gosórói",
nema vegna þess að nokkrum mínútum seinna
stóð austurhluti Eyjanna uppljómaður sem um hábjartan dag væri,
af einum ægilegustu eldsumbrotum
Íslandsögunnar á síðustu öld.
Og húsfreyja gat ekki betur greint, og það með
sínum eigin augum, að fjandans gossttrókarnir
ættu upptök sín í austuröxl "útdauða" eldfjallsins,
HELGAFELLI.
Og þarna duddaði hið útdauða eldfjall sér við að
spúa eldi og eymyrju upp í himinhvolfið,
á meðan það "drullaði" sirka 3000 stiga hrauni
yfir blómlega byggð, mánuðum saman.
Eyjamenn misstu heimili sín, hálfa búslóðina
margir, vinnustaði sína og samfélag sitt
á einu bretti.
Sorg þeirra yfir missinum var nánast áþreifanleg.
Húsfreyja gerir aldrei lítið úr jarðhræringum
nálægt eldstöðvum á litla Fróni,
"útdauðum" sem virkum, býttar engu.
Stórir skjálftar eða litlir, býttar engu.
Húsfreyja ber óbifanlega lotningu og virðingu
fyrir ógnakröftum "móður Jarðar", og veit að móðurinni
er ekkert ómögulegt.
Ekki einu sinni það að láta "útdauðar"
eldstöðvar gjósa.
Hvort "móðurinni" hentar svo að gefa oss örmum
og aumum jarðarbúum einhverjar aðvörun með
"gosóróa", þá hún hyggst brjálast af vonsku og ákveða
að spúa hressilega úr iðrum sínum til að létta sér lund
og til að hrista upp í "óværunni" sem sínkt
og heilagt plagar hana, er algjörlega í hennar valdi!
Svo ef eitthvað er farið að hristast uppi á Vatnajökli,
þá færi húsfreyja varlega í það að afneita "gosóróa".
Hefði svona frekar varann á.
Það er svona tilfinning húsfreyju, að "móðirin"
hafi ekki sagt sitt síðasta í eldstöðvum
Suðurlands, þetta árið.
En húsfreyja játar það fúslega að hún
er enginn spekingur, þaðan af síður vísindamaður
með gráður í jarðeðlisfræði, og ekki vill hún á nokkurn máta
telja sig jafn vísa sem hinir vitru
menn Eyjanna, sem sögðu Helgafell útdautt.
Nei, húsfreyja er hógvær kona og vill þekkja sín mörk og sína
annmarka.
En þið mynduð ekki finna húsfreyju uppi á Vatnajökli eða
í 50 kílómetra radíusi út frá honum um þessar mundir,
nema í dái eða steindauða!
Sei, sei, nei.
Það er svona "kjarnorkusprengju-upplifun" að
fá eldgos í andlitið úti í bakgarði á heimili sínu
að næturlagi um hávetur.
Og eitt slíkt er mikið meira en nóg ævilangt.
Markar sálina um alla ókomna tíð.
Enn þann dag í dag, dreymi húsfreyju eldgos
er það fyrir andláti í fjölskyldu hennar.
En húsfreyja er í letikasti á regnvotum sunnudegi í
borginni við sundin bláu....kötturinn búinn að æla,
svona eins og til að mótmæla "gosóróleikaleysi",
og níu ára djásnið er að jafna sig eftir samræmdu prófin.
Bóndi fastur í viðjum fótbolta í kompjúternum.
Dýrðar dagur framundan.
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)