Flóttinn.

62798

    Það var nótt.

        Og ég gekk eftir götunni.

    Og gatan var hljóðlaus og mannlaus,

        því það var nótt.

    Ég gekk föstum og ákveðnum skrefum

        og sagði við sjálfan mig:

    Sjá, ég er farinn brott.

        Ég kem aldrei aftur.

    Og engum skal takast

        að finna felustað minn.

    Þá heyrði ég snögglega

        fótatak einhvers á eftir mér.

    Og ég sneri mér við,

        því ég vildi sjá hvort ég þekkti hann.

    En það var ekki neinn.

        Það var aðeins skóhljóð, sem elti mig.

    Og ég hrópaði, skjálfandi röddu:

        Hvað hef ég þá gert?

    Mér var svarað með lævísum hlátri,

        lengst úti í myrkrinu:

    Ég er lífið sjálft.  Og þú kemst ekki undan.

        Ég elti þig.

                                   Steinn Steinarr.

 

  Sterkur Steinn.

  Þung og flott undiralda í þessu.

  Húsfreyja er einmitt í "flóttastuði" þessa daganaBandit.

  "Flótti" er einn af varnarháttum mannsins,

  og flest höfum einhvern tímann beitt honum í erfiðri

  stöðu.

  Húsfreyja var lengi fram eftir aldri að berjast við

  feimni, og flóttinn var þá hennar aðal varnarháttur.

  Feimnin setti henni þröngar skorður, þegar hún var órétti

  beitt, eða þá að henni var sótt.

  Svo húsfreyja flýði fremur en að standa á rétti sínum eða

  tala máli sínu.

  Um þrítugt tókst húsfreyja að segja skilið við feimnina.

  En flóttinn var nánast orðinn henni eðlislægur, og

  og í mörg ár mátti húsfreyja hafa sig alla við

  að snúast ekki á hæla og flýja, þá harðnaði á dalnum,

  og hressilega blés á móti.

  Nú er flótti ekki lengur einn af kostum húsfreyju í andstreymi.

  Hún rís upp og berst með kjafti og klóm,

  boðar til funda, þjappar fólki saman og vinnur í málunum

  af ákveðni jafnvel hörkuWink.

  Hefur iðulega sjálf, ekki hugmynd hvaða kona þetta er,

  sem svona hagar sér, enda allar hennar taugar þandar og

  "organdi" á flótta innra með henniW00t!

  Húsfreyja ansar ekki.

  Virðir ekki taugar sínar viðlits.

  Vill bara berjast.

  Síðan alltaf hægt að fá vægt taugaáfall að málalokumDevil.

  Þó húsfreyja hafni flótta í dag, telur hún flótta eigi að síður

  nauðsynlegan varnarhátt mannfólkinu, og þarf enginn að skammast

  sín fyrir að beita honum sjálfi sínu og tilfinningum til varnar.....stundum

  er flótti bara eina leiðin.

  Að festast í einum varnarhætti er hins vegar erfitt,

  og getur hamlað þroska og dregið úr lífsfyllingu.

  Svo flótti er "út" hjá húsfreyju, búinn með flóttakvótann,

  "berjast" er máliðNinja.

  Og það er hörku barátta framundan í kjaramálum.

  Aðeins þetta sem húsfreyja vildi segja.

  En Steinn segir þetta bara svo miklu flottar en húsfreyjaJoyful.

  Góðar stundir og góða nótt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

góð kollega !

það má segja að hjá hjúkrunarfræðingum sé flótti "út" og nú skal sko berjast. Við bara verðum að standa saman - hætta að láta "kúga" okkur og endalaust hamra á því að við séum heppin að hafa vinnu!! 

Eru ráðamenn LSH ekki heppnir að hafa okkur í vinnu - ég bara spyr ??

Sigrún Óskars, 28.9.2010 kl. 20:21

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Heyr heyr, kollega nú snúum við bökum saman og látum ekki kúga okkur til auðmýktar og undirlægjuháttar...lækka hjá okkur laun...vinna sömu vinnu fyrir lægri laun er bara kjaftæði....erum með HJÚKRUN allra landsmanna á okkar bökum....og sífellt verið að troða á okkur meiri ábyrgð og vinnu....en megum ekki vinna yfirvinnu....meiri ábyrgð á færri hendur...og við erum í stöðugri baráttu með að fá að viðhalda faglegum vinnubrögðum.  Það má hver vinnuveitandi innan heilbrigðiskerfisins  telja sig heppinn að hafa góða hjúkrunarfræðinga að störfum hjá sér....

Sigríður Sigurðardóttir, 28.9.2010 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband