25.9.2010 | 22:38
Korter yfir sjö....?
Húsfreyja var rasandi.
"Þið eruð að grínast, er það ekki"?
Nei, ekki aldeilis.
Móðir húsfreyju og vinkonur hennar tvær héldu
fast við sinn keip.
"Rútan fer daglega frá Þorlákshöfn kl:07:15
til Reykjavíkur"!
"Ég gæti grátið", sagði hávaxnari vinkonan,
"ég er bíllaus, og ég sé mig ekki berjast í myrkri, snjókomu
og hálku niður í sjoppu, fyrir klukkan sjö á morgnana,
til þess eins að sitja svo í ruma tvo klukkutíma á BSÍ
með ógæfumönnum borgarinnar, bíðandi þess að
verslanir opni".
"Nú, maður hættir bara að skreppa til Reykjavíkur"
sagði lágvaxnari vinkonan, sem einnig er bíllaus.
"Ekki svo gott, ef maður á tíma hjá lækni í höfuðborginni"
svaraði sú hávaxna, "eins og ég þarf 5-6 sinnum á ári".
Húsfreyja blandaði sér aftur í umræðuna: "Og hvenær í
ósköpunum fer þá rútan aftur austur", spurði hún þær stöllur.
Annað hvort kl. fjögur eða fimm um eftirmiðdaginn, kom svarið.
Jaso!
Þær stöllurnar þrjár drúptu höfði bugaðar af þrá eftir
Herjólfsrútunni, og einstaklega heppilegri áætlun hennar.
"En kannski getur maður reynt að taka með sér prjóna
á BSÍ" sagði sú hávaxna dauflega.
"Nú það er ekki algalið, svaraði húsfreyja að bragði,
hægt að fara fram á að komið verði upp "prjónahorni" fyrir
búðabíðandi dömur á óræðum bíllausum aldri".
Mútta og vinkonur brostu dauflega.
"Við verðum sjálfsagt fyrir ógæfumönnunum"!
Húsfreyja varð hugsi 2 sekúndur.
"Nú það má alltaf fara fram á að BSÍ verði skipt niður í horn,
"MATARHORN, PRJÓNAHORN, SPILAHORN og RÓNAHORN"!
"Og þetta rímar meira að segja
Nú hlógu stöllurnar þrjár.
"Bara hægt að skella ferðamannabransanum og miðasölunni
í tjaldbúðir fyrir utan " hélt húsfreyja áfram.
Svo seljið þið bara afraksturinn af prjónamennskunni,
lopapeysur og sokka, í stórum stíl á sérlegum
"prjónamarkaði" rétt fyrir jólin og græðið grimmt"!
Aftur hlegið dátt, en eigi að síður varð loka niðurstaðan
sú að mun skárra hefði verið að fara kl: 8 eða 10 á morgnana
með rútunni.
Merkilegar samgöngur þetta við eina af stærstu verstöðum
Suðurlands....
Jamm, en húsfreyju datt í hug ef einhver af
útrásarliðinu ætti sem sosum eina þyrlu læsta inni
í leynilegri geymslu við eitthverja rauðsletta smáhöllina,
þá gætu máske yfirvöld snuðrað hana uppi,
gert hana upptæka, og síðan sent relluna tvisvar í viku til Þorlákshafnar
og flogið með vinkonur múttu, eldri borgara þorpsins, bíllausa á besta aldri
og bíllausa unglinga í skottúra í höfuðborgina við sundin bláu.
Gætu jafnvel flogið einn aukatúr í jólagjafavesen í desember.
Húsfreyja var á ferðinni í Þorlákshöfn með níu ára djásninu
í regninu og rokinu í dag.
Einkennileg bleikrauð birta í kringum Bláfjöllin þar sem
sólin reyndi að skína í gegn.
Samt ekki eins einkennileg og einn morguninn í vikunni,
þegar húsfreyja leit út um eldhúsgluggann, og
breið regnbogasúla sem náði frá hafi og upp
í grábláa skýjahuluna, blasti við sjónum hennar.
Hægra megin við súluna, nokkru fjær var örlítið daufari regnbogakúla,
svona eins og punktur yfir "i-ið"!
Við lá að húsfreyja yrði of sein til vinnu svo fallegt
var út að líta.
Kom samt djásni af stað í skólann og sjálfri sér í vinnu.
Töff ástand í vinnunni um þessar mundir hjá húsfreyju,
og margt í gangi sem dregur úr starfsánægju starfsfólks.
Ekki síst hjúkrunarfræðinga.
Vinnum ábyrgðarstörf, sem okkur finnast lítils metin.
Barátta framundan.
En nóg að sinni.
Góða nótt og góðar stundir.
Bloggar | Breytt 26.9.2010 kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.9.2010 | 13:18
Vissar líkur og ýtrasta sanngirni?
Furðulegir orðleppar atarna,
hjá skarpvitrum formanni
Sjálfstæðisflokksins.
Og hver er þá munurinn á "venjulegri"
sanngirni og "ýtrustu sanngirni?
Og því njóta sumir þess að nóg sé að gæta sanngirni,
á meðan "aðrir" verða fyrir því að þurfa að gæta
"ýtrustu sanngirni"?
Og "vissar líkur" ber að túlka hvernig?
Sextíu prósent líkur?
Eða 15 prósent líkur.
Eða jafnvel 90% eða þá aðeins 2% líkur?
Er máske til tölugildi fyrir "vissar líkur" í líkindareikningi?
Húsfreyja er engu nær, en telur að "alvarleikinn
hljóti að hafa dropið" af grein hins vísa formanns sjálfstæðis
í Mogganum í dag,
og "vissar líkur" hafi verið á því að lesendur hafi
þurrkað tár af hvarmi eftir lesturinn,
af einskærri gleði yfir því að hafa aldrei
þurft að gæta "ýtrustu sanngirni"!
Góðar og "sanngjarnar" stundir.
![]() |
Alvarleiki draup af andlitum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2010 | 17:44
Í upphafi var orðið....
..svo segir altént í þokkalega þekktri bókarskruddu,
sem húsfreyja gluggaði töluvert í hér í den.
Og "orð eru til alls fyrst" hefur einnig
klingt í eyrum húsfreyju, svo hún furðar
sig nokkuð á "orðafæð" í fundagerð þessari
í Reykjanesbæ.
Húsfreyja hefur hingað til talið að
mönnum yrði ekki "orða vant" í Reykjanesbæ,
fremur en í öðrum bæjarfélögum úti á landi.
Nei, öðru nær.
Áltént létu bæjabúar í Reykjanesbæ "vaða á súðum",
og "dæluna ganga" og
"mörg orð falla" þá húsfreyja bjó og
starfaði í bænum.
Og allt samviskusamlega "skráð", væru
formleg fundarhöld í gangi.
Húsfreyja var meira að segja skikkuð á
eitt herlegt námskeið í fundarhöldum og ræðumennsku...
ergo "kjaftavaðli og monti", þá hún starfaði á
sjúkrahúsi Keflavíkur.
En víst voru innan um og inn á milli gagnleg atriði
og góð fyrir framtíðina á námskeiði þessu,
þótt kjaftavaðallinn væri töluvert yfirþyrmandi.
Húsfreyja vill þó viðurkenna, að ræðumennska er
ekki í miklu uppáhaldi hjá henni, er mun hrifnari af
spjalli, gríni og glensi yfir kaffibolla, í bland við
fróðleiksmola, umræðu og skoðanaskipti.
Eigi að síður VARÐ húsfreyja á fyrrtéðu námskeiði
að semja "ræðu" og flytja hana frammi fyrir múg og margmenni.
Ó, húsfreyju arma.
Hún svitnaði og kólnaði á víxl af angist og og mergjuðum
ræðukvíða.
Datt ekkert í hug sem "ræðuefni" nema mikil ádeila
á Keflavíkurbæ, fyrir að gera ekkert til að stöðva
óheyrilega fjölgun á snaróðum "húsflugum" á sumrin,
sem dudduðu sér við það að troða sér inn um munn, eyru
og nasir á húsfreyju næturlangt...nótt eftir sumarbjarta nótt.
Húsfreyja hafði aldrei upplifað aðrar eins hremmingar,
síðan "flugnasumarið mikla" 1972, í Eyjum.
Húsfreyja óð samt í það að semja ræðuhelvítið um flugurnar,
og til að æfa sig, hélt hún þrumandi ræðu yfir salernisræflinum,
sem átti sér einskis ills von, og stíflaðist á stundinni.
Eftir hálftíma "strokkun" með drullusokknum var stíflan
á brott, en helvískur húsflugnasvarmurinn í kringum
höfuðið á húsfreyju var svartari en nokkru sinni fyrr.
Húsfreyja komst við illan leik fram af baðherberginu
með handklæði að vopni, og barðist sem óð væri
við bévískan flugnaskarann í hálfa aðra klukkustund.
Náði 40, gafst upp á hinum 440.
Svaf stutt og óvært yfir nóttina...bzzzz...bzzzz.. og mætti á námskeiðið með
rauðsprengd augu af svefnleysi, brennivínsrautt
nef eftir að fluguóféti hafði fest sig í annarri nös hennar,
þá hún snöflaði í sig seríósinu, og ráma og hása rödd
eftir öll sigurorgin þá henni hafði tekist að stúta einni vængjaðri
með handklæðinu kvöldið áður.
Steig þannig upp í pontu með ræðubleðla sína og leit
yfir margmennið.
"FYLLIBYTTA"!
"RÓNI"!
Samhljóma dómur áheyrenda yfir húsfreyju duldist ekki í
augnaráðum þeirra.
Húsfreyju sortnaði fyrir augum.
"Æran farin veg allrar veraldar" hugsaði húsfreyja sótsvört af angist.
Seríósið átti erindi AFTUR upp í kok húsfreyju,
ásamt súru galli og hún fann hvernig óstjórnlegur
tiringur hertók raddbönd hennar.
Hún kyngdi seríósfjandanum ásamt því græna með harmkvælum.
"Gu.....gu...gu...gu....gu..góðir"...NEI, sjitt...vitlaust.
"Hrummm"...húsfreyja ræskti sig, skjálftinn í
raddböndum hennar fór úr 7 á Richter niður í 4,5 á
Richter.
"Fundarstjóri og a..a..aðrir fundarmenn.....", húsfreyja
hefur enn þann dag í dag ekki hugmynd um hvað
hún síðan sagði.
Hvort hún megnaði að flytja flugnaræðuna góðu, eða hvort
hún flutti frumsamda lofræðu um fjölbreytt innanhúss skordýralíf á
litla Fróni, eða hvort hún úthúðaði stífluðum
salernum í 20 mínútur....ekki hugmynd!
Aukaatriði.
Fékk dúndrandi klapp og brilliant fína umsögn fyrir
ræðustúf sinn...og það sem meira var um vert:
Æruna aftur!
Allar götur síðan ber húsfreyja lotningarfulla
virðingu fyrir "orðinu" bæði því talaða og því ritaða.
Og gat hún ekki séð annað en slíkt hið sama væri í heiðri haft
hjá flestum íbúum Reykjanesbæjar, hér á árum áður.
En kannski eru tímar breyttir hjá stjórnendum öllum í
Reykjanesbæ í dag og þeirra mottó orðið:
"Fæst orð bera minnsta ábyrgð"?
Ekki gott að spá.
En góðar stundir og njótið kvöldsins.
![]() |
Hlegið að fátæklegri fundargerð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2010 | 18:38
Bíllaus dagur?
Hætt við að þá verði hann einnig að
vera "vinnulaus" dagur, ergo FRÍ-dagur
hvað húsfreyju varðar.
Og ástæða þess?
Jú, snilldarfyrirkomulagi íslenskra
barnaskóla er viðbrugðið,
og að sjálfsögðu byrjar ekki lengur
kennsla klukkan 08.00 eins og áður fyrr,
þá húsfreyja rölti í skólann sinn með tösku sína,
vandlega skreytta Mjallhvít og dvergunum 7.
Sei, sei nei.
Eftir að skólatími barna var LENGDUR, þá
telst það góð lenska að börn mæti kl. 08:30,
eða hálftíma seinna en fjölmargir foreldrar
þurfa að vera mættir til vinnu sinnar.
Húsfreyja er þannig búin að vera í SPRENG
á hverjum morgni síðustu 4 árin, eftir að
leikskóla lauk og barnaskóli tók við hjá ára djásninu,
með að koma sjálfri sér og djásni á lappir.
Þræla sér í gegnum morgunþvott, morgunverð,
og dagsskipulag með djásninu,
hlaupa út í bíl og bruna til vinnu til þess að
ná að stimpla sig inn 5 mínútum fyrir kl. 08:00.
Bíllaus tæki það hana 30 mínútur að ganga,
korter að hjóla, og......
35 mínútur með strætó að komast frá heimili
sínu á vinnustað.
Sér hver maður að slíka firru eins og "bíllausan dag" yrði
húsfreyja að skipuleggja í tætlur með löngum fyrirvara.
En merkilegt þetta með breyttan tíma á upphafi
kennslu í barnaskólum.
Allir krakkar reyndar velkomnir í "hafragrautsát" milli
kl. 08-08:30 upp í skóla níu ára djásnsins.
Je ræt!
"Mamma, mér finnst ekki hafragrautur góður"!
"Afhverju þarf ég að vakna um leið og þú og pabbi,
fyrst skólinn byrjar ekki fyrr en 08:30", og bara til að
borða vondan hafragraut, og það tekur bara 5 mínútur...
og svo verðum við bara að BÍÐA"?!
Morgnar eru djásninu erfiðir.
Fyrstu 2 skólaárin voru meiri háttar stórsamningar í gangi á
hverjum morgni við djásnið, sem var smeyk að vera
ein heima í heilar 15-20 mínútur án ástríkar og verndandi
móður....sem vísu var á barmi dulins taugaáfalls af stressi
yfir því að mæta of seint til starfa....en sem eigi að síður
hélt ró sinni nægjanlega til að renna upp erfiðum
kuldaúlpurennilásum þeirrar stuttu, og bjarga þannig
djásni frá mergjuðum morgunpirringi og kaldri skólagönguangist......
Seinni árin tvö hafa síðan morgnar allir farið
í massa morgunpanikk og spenning hjá húsfreyju,
þá skóli hefst, yfir heilsufari hennar einkadóttur.
Þá djásnið var 8 ára þróaði hún með sér skítlegan
mígrenissjúkdóm, sem samkvæmt öllum vísum mönnum
og spekilegum rannsóknum, er að hrjá 10% allra skólabarna.
Djásnið var ætíð verst að kvöldi eða snemma á morgnana
af sínu mígreni, og köstin vöruðu í 3-7 klst.
Verkir.
Ógleði.
Uppsölur.
Missti djásnið úr 2-4 daga í skóla á viku þegar,
hún var sem verst.
Húsfreyja lenti í vinnutapi.
Bóndi lenti í vinnutapi.
Jamm.
Barnaskólaganga er ekkert grín, og margt sem
getur valdið kvíða og angri hjá skólabörnum......fyrir utan það
að mörg þeirra, eins og níu ára djásnið,
hreinlega heyra EKKI í vekjaraklukkum.
Án bifreiðar sinnar væri húsfreyja "alræmd" fyrir
geta aldrei mætt á réttum tíma til vinnu sinnar.
Því hún reynir ætíð að koma djásni sínu af stað
á morgnana fullt jákvæðni og innri ró fyrir deginum,
og það þó húsfreyja sjálf sé að springa af óþreyju.
Húsfreyja DÁIR bílinn sinn.
Greyið kemur henni ætíð frá A til B á réttum tíma,
möglunarlaust og án teljandi vandræða......eitt hvellsprungið
dekk er ekkert til að tala um, á 5 árum.
Sjálfsagt bara gallaður dekkfjandinn......
LANGT í það að húsfreyja haldi upp á "bíllausa daginn" bíllaus.......
Góðar stundir og njótið kvöldsins.....bíllaust eður ei.
![]() |
Bíllausi dagurinn í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2010 | 16:46
Inn og út um gluggann....
..og alltaf sömu leið
,
söng húsfreyja hástöfum sem
lítl skotta ásamt jafnöldrum
sínum þá hún rólaði á Pétó í Eyjum.
Herjólfur rólar sér nú sem þá á milli lands og Eyja,
en fer hann alltaf sömu leið?
Það er stóra spurningin.
Og "hvert" á rútan að mæta, sem þjónar
bíllausum ferðalöngum um borð í Herjólfi?
Og hve oft á dag á hún að mæta á dag...og hvar?
Og fer Herjólfur á öðrum tímum en áður
þá hann verður að róla sér lengri leiðina í Þorlákshöfn?
Er einhver "áætlun" í gangi fyrir Herjólf sem hægt er að treysta?
Er máske hægt að nálgast þá "áætlun" símleiðis
með dags fyrirvara...eða jafnvel lengri?
Eða svara starfsmenn lendingastaða Herjólfs
ALDREI framar í símann?
Komnir allir sem einn með mergjaðan ofsakvíða vegna yfirvofandi
símhringinga með fyrirspurnum um "siglingaáætlun" Herjólfs,
og sitja með i-Poddinn klesstan inn í hlustirnar, með allt í botni?
Systir í Þorlákshöfn, reyndi að bjalla í gær í starfmenn
Herjólfs í Eyjum, til að afla sér upplýsinga um ferðir Herjólfs í gær.
Fékk símsvara.
Vinalegur karl leiðbeindi systur með "Eimskip og vöruhótel",
ræddi sáralítið um Herjólf og ferðir hans...eða minna en ekki neitt.
Hringdi í Landeyjahöfn, systir....riiiing.....riiiing, var svarið.
Hringdi í starfsfólk Þorlákshafnarmegin, umm...jú, Herjólfur
á að sigla til okkar í dag....ekki viss...en líklega á sama tíma og venjulega,
áður en Landeyjahöfn kom til....eða kannski eitthvað fyrr!
Anskotinn í grásúrri mysu.
Systir ruslaði Svölunni út í sinn herlega bíl,
rúmum klukkutíma fyrr en gamla áætlun Herjólfs sagði
til um.
Stóð heima.
Herjólfur að sigla inn, rútan mætt.
Svalan komin klukkustund fyrr í borgina við
sundin bláu, en venjan var hér á Þorlákshafnar-
árum Herjólfs.
Slembilukka, sagði systir pirruð, bara datt í hug að
taka Svölu með, ætlaði að spyrjast fyrir.
Jamm, siglingaráætlun Herjólfs fer að verða leynilegri
en bankaleynd Seðlabankans og hrundu bankanna.
En ánægjulegt að Herjófur skyldi komast í Landeyjarhöfn
í dag-HALLELÚJA.
Vonar húsfreyja að framhald verði á, og ekki þurfi að
breyta Landeyjarhöfn í hrísgrjónaakur að vori.
En níu ára djásnið og Svalan eru farnar í bíóferð mikla,
með Nonna, Viktor og Völu.
Sveppi, Villi og Gói í þrívídd skulu barðir augum.
Bóndi skroppinn norður í land með soninn,
og húsfreyja ein heima með köttinn, prjónana og
kompjúterinn.
Rólegheita laugardagur.
Prjóna meira næst.
Góða stundir og góða helgi.
![]() |
Herjólfur komst í Landeyjahöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.9.2010 | 18:21
Hrærigrauts-klúbburinn hinn síðari.
Það er varla að húsfreyja
þorir að skella inn pistli hér.
Þvílík endemis endaleysa,
argaþras, bull og þvaður sem
í gangi hefur verið um "kerlingarfáluna" hana Ísbjörgu.
Enginn er ábyrgur nema útrásarvitleysingarnir!
EÐA:
Allir á litla Fróni er ábyrgir því það voru gráðugir og
siðspilltir Frónbúar sem "stálu" peningum
hollenskra og breskra.
EÐA:
Ríkisstjórnin, Seðlabankinn, bankarnir og Fjármálaeftirlitið hið frónverska,
bera alla ábyrgð, því Haarder-stjórnin skeit
upp á bak í frjálshyggjuvitfyrringu með dyggri aðstoð hinna.....
og svo framvegis og svo framvegis.
Forseti vor meinar svo ýmislegt frá einum
degi til annars, virðist hata Ísbjörgu eins og pestina
og telur kerlingarfáluna búna að heilla alla
meðlimi Evrópusambandsins upp úr skónum.
Og síðan er endalaust þrasað:
"Evrópusambandið er eina góða lausnin fyrir oss
arma fjármálavitleysinga út í Ballarahafi".
EÐA:
"Evrópusambandið mun arðræna oss og rýja inn
að skinni"!
EÐA:
"VERÐUM að borga ICESAFE"!
EÐA:
"Borgum ALDREI, fyrr skulum við dauðir liggja"!
-DÆS-
Á meðan leitar fólk eins og húsfreyja að
"skjaldborg heimilanna" logandi ljósi,
en vinnuveitendurnir dunda sér við að skera niður laun hennar
sem annarra.
"Sama vinna, lægri laun" er boðorð dagsins!
Ekki spurning um miljarða á milljarða ofan hjá
hinum auðmjúka launamanni á Fróni,
þegar launin eru lækkuð.
Neipp!
En plokkaðir af honum nokkrir þúsundkallar,
sem hefðu dugað fyrir nýjum kuldaskóm á
krakkana, nýju dekki á bílinn í staðinn fyrir
það hvellsprungna, símreikningi unglingsins,
smá fjárhagsstuðningi til aldraðrar "ellilífeyris-niðurskornar" móður
og fyrir afmælisveislu yngsta barnsins.
Allt saman mergjaður LÚXUS sem ber að sleppa á krepputímum
og Ísbjargarbrjálun og í bankahrunsharðlífi.
Krakkarnir geta bara notað kuldaskóna frá því í fyrra...
botnlausir að verða og of þröngir?....húmbúkk!
Leggja bílandskotanum, enda ókeyranlegur á 3 dekkjum
og brúka "hraðvirka" strætisvagnakerfið borgarinnar....
hva vakna einni og hálfri klukkustund fyrr á morgnana
til að mæta á réttum tíma til starfa?....húmbúkk!
Nú svo má alltaf ganga þar sem engin er strætó!
Svo heilsusamlegt.
Mölva síma unglingsins...er hvort eð er alltaf á fésinu...eða
hverju ekki netvænu.
Senda múttu gömlu EINA á rjúpnaskytterí
uppi á fjöllum...áttavitalausa,
og fresta afmæli yngsta barnsins til 24 desember,
og slá þá tvær flugur í einu höggi.
Málið dautt!
Skjaldborgarmálið steindautt, sálað og andvana fætt frá upphafi!
Óþarft.
Lækkum bara launin.
Hækkum skattana.
Röflum, þrösum og rausum endalaust um Evrópusambandið
og Ísbjörgu í staðinn fyrir að taka höndum saman og vinna
að úrbótum heima fyrir.
Allt farið í einn hrærigraut enn og aftur.
Jamm.
Húsfreyja er ergileg, og telur frónverskt stjórnkerfi
"frumstætt", seinvirkt og "bloody embarrasing"!
En kvöldmatur næst.
Góðar stundir.
![]() |
Hvers konar klúbbur er þetta? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2010 | 21:40
Aldeilis brilliant! Herjólfur í Þorlákshöfn...
...og Perlan í Landeyjarhöfn
!
Og ekkert minnkar sandrifið úti
fyrir Landeyjahöfn og sölukassarnir
þar eru "out of buissness".
Eyjamenn fjarri góði gamni með Perluna
dólandi hring eftir hring í "hálftímahöfninni" í Landeyjum.
En Þorlákshafnabúar geta alltaf ruslað
upp einni "Perlu" svona í "Dabba-kóngs stíl" við
ágætlega djúpa höfn sína, og málið er dautt!
Eða hvað?
Góðar stundir, og vonandi rata allir í Eyjaferðahug
enn í Þorlákshöfnina.
![]() |
Herjólfur siglir áfram til Þorlákshafnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2010 | 18:40
Seinagangur, vandræðagangur og aulagangur...
..eru þrjár gangtegundir íslenska
stjórnkerfisins um þessar mundir.
Aðeins þrjár...og þrjár aðeins!
Íslenski hesturinn hefur til dæmis mun fleiri,
eða 5 gangtegundir.
Skýrslur eru samdar um skýrslur,
Haarderinn var "rangur maður á röngum tíma,
í vitlausu húsi" og er sár, á meðan Landsdómur
er mikið sjónarspil, sem stjórnmálafræðingar
mæla gegn, á meðan ekkert getur FLOTIÐ
í Landeyjahöfn, kannski sokkið,
en örugglega STRANDAÐ!
Jamm.
Húsfreyja reyndir stundum að brjóta þjóðmálin til mergjar,
en líklega er hugsun hennar komin í mergjaðan
"hægagang" af kreppuangist og niðurskurðarpínu,
svo hún botnar nánast ekki neitt í neinu lengur.
Eru þjóðmálin farin að minna hana óþægilega á
barnaþulu eina í Vísnabókinni einu og sönnu,
sem hún lá yfir sem lítil skotta.
Þulan sú var henni með öllu óskiljanleg,
og svei ef hún botnar nokkuð í henni enn.
Telur jafnvel að þulufjandinn geti verið leynileg
uppskrift handa bankahéðnum, sem kenni þeim að
plata peninga út úr sauðsvörtum almúganum.
Eða jafnvel há duló dulkóðað lagafrumvarp fyrir siðblinda
pólitíkusa, sem tryggi þeim mikilvæga stjórnarstöðu í Seðlabanka
þá þeir aldraðir gerast.
Hvað veit hhúsfreyja.
En hér er þulan....gjörsamlega óskiljanlega:
Konan mín í kofanum,
Vísar hún mér til stofunnar.
Ég vil ei til stofu gá.
Ég vil heim til Hóla
að hitta konu bónda.
Konan gekk til brunna,
vagaði, kjagaði,
lét hún ganga hettuna, smettuna,
rófuna, tófuna,
rítuna, trítuna.
Dinga lilla dumma dó
sofðu nú í nótt.
Nú er dauður Egill og Kegill í Skógum
og korríró.
Sem lítil skotta hafði húsfreyja miklar og þungar
áhyggjur af fólki því sem kynnt er til sögunnar
í seinni hluta þulunnar, henni Dingu lillu dumma dó,
sem á bara að sofa, sem og þeim bræðrum frá Skógum,
Agli og Kagli... aumingjarnir, steindauðir báðir saman!
Og hvernig á vesalings Dinga lilla að geta sofnað,
þegar greinilegt er að banvæn pest herjar á
bæinn Skóga, og fólk er að gefa upp öndina umvörpum saman
með ægilegu "korrhljóðum"?
(Samanber... "og korríró").
Og hverjum datt í hug að skíra blessað litla barnið:
"Dinga lilla dumma dó"?
Hvurslags ónefni er það?
Og hvað hefur villuráfandi konan í brunnaleitinni,
með harmsöguna á Skógum að gera?
Er sú kona kannski ennþá á labbinu, vansköpuð
með rófu, vagandi og kjagandi,
og fær ekki einu sinni hund með sér til
fylgdar, heldur arma "tófu"...og leitar brunna?
Var kona þessi máske gerð út af örkinni til að
færa fársjúku og þyrstu fólkinu í Skógum
vatnssopa?
Ja, ekki náði hún þá að redda Agli og Kagli frá
hroðalegum þorstlátum og korrandi dauðdaga!
Og hvaða máli skiptir þá bóndafrúin á Hóli
í stórkostlega drama þessu?
Og smettur, rítur og trítur eru "nákvæmlega HVAÐ"??
Jamm...andskotinn í súrri mysu!
Húsfreyja vill gjarnan fá góða útskyringu á
þulu þessari ekki seinna en í gær.
Hefur valdið henni mergjuðum martröðum árum saman.
Svona líkt og stjórnkerfið upp á litla Fróni gerir í dag.
Með sínar "þrjár gangtegundir"!
En á jákvæðari nótum:
Það var bíóferð seinni partinn með níu ára djásninu
og Elinóru.
Kíkt á Sveppa, Villa og Góa.
Fór nokkuð rólega af stað, en tók síðan aldeilis
flugið myndin hjá þeim félögum.
Guðjón Davíð Karlsson eða Gói biskupsins hlýtur að
vera einhver albesti gamanleikari okkar Frónbúa í dag.
Maðurinn stelur senunni slag í slag, og atriðið í kirkjunni
undirstrikar það rækilega.....lalalala...ó Happy day...!
Þröstur Leó leikur lítið hlutverk en er óborganlegur eigi
að síður...yessjúríbobb!
Húsfreyja skemmti sér konunglega, og báðir bíófélagar
hennar.
En sumir yngri áhorfendurnir grétu og urðu hræddir
þegar sómapiltarnir Sveppi og Villi með Góa skammt undan,
komu sér í heldur vond mál, því myndin er hörkuspennandi
í bland við grínið.
En fréttir og kvöldmatur næst.
Góðar stundir að kveldi sunnudags.
Bloggar | Breytt 23.9.2010 kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2010 | 20:06
Skýrsla um skýrslu frá...
... skýrslu til skýrslu!
Næsta víst að komist þingmannanefndin að samhljóða niðurstöðu
um að rannsóknarskýrsla Alþingis
hafið verið sönn og rétt,
og að menn "beri ábyrgð" á gjörðum sínum
í bankahruni og kreppufári,
verði að sjálfsögðu samþykkt tillaga um það á þingi
að stofna REFSINEFND, sem kanni og skoði
hvernig best sé að koma "ábyrgum mönnum"
þessum undir lás og slá.
Refsinefnd muni síðan á næstu mánuðum leggja
nótt við nýtan dag að finna "refsiúrræði
svo "ábyrgum aðilum" verði réttlátlega refsað,
miðað við stöðu þeirra, völd og fjárráð í þjóðfélaginu.
Og setur refsinefndin loks fram skýrslu þar að lútandi fyrir ríkisstjórn
og Alþingi á vordögum 2012....sem að sjálfsögðu skipar "nýja nefnd"
sem setja skal fram tillögur í skýrslu, um hvernig
best sé að "framfylgja refsingu" hinna ábyrgu!!
Í síðasta lagi skal skila skýrslu þessari fyrir 5. nóvember 2015.
Jamm.
Skilvirk og fruntagóð vinnubrögð í kerfinu.
Og allt skýrsludótið auðvitað lesið upp í Borgarleikhúsinu.
Svo eftir as, mas, röfl, ræður og þras líður svo langur tími
frá bankahruni og kreppu, að enginn man lengur hvers vegna
er verið að þrasa........svo.....reddum þessu....jamm...ákveðið!
Og þeir "hinir ábyrgu" fá 100.000 króna sekt hver,
og skilorðsbundið fangelsi í 2 mánuði, því þeir eru í svo
fínum og vel launuðum og merkilegum stöðum að þeir mega ekki
vera að því að gista Litla Hraun!!
Eða hvað?
Góðar stundir og gangi ykkur skýrslulesturinn vel!
![]() |
Skýrslan prentuð í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 11.9.2010 kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.9.2010 | 19:23
Vetrarhöfn Herjólfs.....
....um alla ókomna tíð, Þorlákshöfn
?
Verður Landeyjahöfn kannski eingöngu
brúkuð sem sparihöfn á sumrin, þegar flytja
þarf þúsundir erlendra ferðamanna á milli,
ásamt Eyjamönnum á sumarflandri?
Eða verður máske eingöngu "mokað upp" úr Landeyjahöfn
einu sinni ári, fyrir brennívínselskandi, hamingjusama,
sauðdrukkna og gjaldþrota Frónbúa á leið á Þjóðhátíð í byrjun ágúst?
Verður þá nafninu á Landeyjarhöfn breytt í "Þjóðhátíðarhöfn"?
Og nafn Herjólfs betrumbætt: "Herjólfur í Öskunni"?
"Herjólfur von Strand"?
"Þorlákur"?
Húsfreyju rennur til (sand-)rifja samgönguvolæði,
vandræðagangur og ferðakvíði Eyjamanna í vetur,
enda Eyjarnar hennar heimaslóðir.
Er það einlæg ósk hennar að ríkjandi veðurátt
verði "norðangarri" eða "vestanbál" þar syðra í sandinum
á vetrum næstu árin, eða uns hægt verður að splæsa
nýjum "flatbotna" Herjólfi á Eyjamenn, sem ekki ristir
nema 75 centimetra í Land....Þjóðhátíðarhöfn.
En níu ára djásnið þarf í kompjúterinn.
Góðar stundir og Almættið gæti ykkar í öllum ykkar Eyjaferðum.
![]() |
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar næstu daga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)