Óumdeilanlega umdeilanleg aðferð....flugufólks?

  matahariAnsi skondin frétt atarnaWink.

  Húsfreyja varð að lesa hana tvisvar,

  áður en hún náði áttum.

  Það er óumdeilt að "flugumenn" hafa löngum

  verið á ferli hér á voru jarðarkríli, þó þeirra útlit sé ekkert líkt blessuðum

  flugunum, er flögra hér um voru frónversku grundir sumarlangt.

  Sei sei nei.

  Ekki aldeilis.

  Vængjalaust liðCool!

  Ósköp venjulegir menn og konur á að líta.

  Nema auðvitað Mata Hari, sem þótti fegurst allra "flugukvenna",

  á stríðsárum fyrri heimstyrjaldarinnar, hér snemma á síðustu öld,

  og Frakkar ákváðu að koma fyrir kattarnef, sem frægt er orðiðErrm;

  nú og svo auðvitað öðlingurinn og glæsimennið hann "Dobbúl ó Seven",

  uppdiktaður "flugumaður", sem fær allra kvenna hné til að nötra....."Oh, James"Kissing!

  Og nú virðumst við hafa fengið einn herlegan flugumann

  í þjónustu hennar konunglegu hátignar, Betu bjútíTounge,

  hér upp á litla Frón beint inn í "Saving Iceland-samtökin"Pinch,

  og sá er "Kennedy" hvorki meira né minnaWhistling.

  Húsfreyja hafði bara ekki gert sér grein fyrir því hversu hrikalegt

  "stórmál" það væri fyrir bretana, að bjarga oss mergjuðu "hryðjuverkapakkinu"

  og skeri voru hér úti í miðju ballarahafiW00t.

  Senda oss "flugumann" hvorki meira né minna.

  Jeminn einiHalo!

  Fara nú leikar að æsast.

  "Dobbúl ó Kennedy" eða "Mark Hari" máske næsta kvikmynd

  sem Balti smellir sér í að filma hér uppi á litla FróniLoL?

  Aðeins eitt sem er eitthvað að vefjast fyrir húsfreyju:

  "FORVIRK RANNSÓKN"... er HVAÐ nákvæmlega, Össur minnShocking?

  Hefur heyrt talað um "forherðingu, forgang, forföll, forfæringu,

  forgengileika, forheimsku, forkaup, forvitni, forkólf, forláta,

  forlið, fordæmingu og forhúð", húsfreyja,

  en aldrei nokkurn tíma heyrt orðið "forvirk...eða forvirkni"??

  Finnur það ekki heldur í nokkurri frónverskri orðabók.

  En kannski er það að vera FORVIRKUR allt ofantalið, eða hvaðPinch?

  Eða máske er þetta ekki forliðurinn "for" neitt, heldur gamla

  rammíslenska orðið FOR= hlandfor eða þá bleyta, aur, leðja?

  Og Össur þá að spjalla um "hlandforuga virkni" eða "haugdrulluga og blauta"?

  Og þannig virkni á einhverjum "flugumannarannsóknum"!

  BJAKKSick!

  Í hverju er hinn breski Kennedy að moðast?

  Frónverskum drulluflórPinch?

  Það líst húsfreyju ekkert á, og ættu bændur allir hér uppi á Fróni,

  að huga vel að flór sínum, og verjast sem mest þeir mega

  "forvirkum rannsóknum" breskra flugumannaTounge!

  Pússa jafnvel upp gömlu ryðguðu rjúpnabyssurnar úti í hjalli,

  og freta nokkrum aðvörunarskotum upp í loftið,

  heyri þeir á mál breskra við bæi sínaLoL!

  Jamm.

  En húsfreyja hefur engan fordæðuskap í gangi á sínu heimili

  á nýju ári og ætlar að fordrífa alla svartsýni ásamt tilfallandi flugufólki á braut,

  forbúin, fordegis og laus við alla fordildGrin.

  Góðar stundir.


mbl.is Össur: Mjög umdeilanleg aðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrðlegur páfi gerir andaðan páfa að dýrlingi.

 hc-romania-saint Jaso.

  Blessaður öðlingurinn, hann Benedikt sextándi..

  nei, verður víst að skrifa XVI, húsfreyja, svona til að vera ekki

  að blanda "sexinu" í málið, (því hinir heilögu

  katólsku eru mjög viðkvæminr fyrir öllu slíku

  um þessar mundirBlush), er búinn að kunngjöra að

  Jóhannes Páll II, fyrrum páfi verði að dýrlingi gjörHalo.

  Heittrúuð, bænheit og elskuleg nunna með Parkinsonsjúkdóm,

  fékk bót allra meina sinna, og finnst ekki nokkur minnsti

  vottur af illvígum sjúkdómi þessum, eftir að hún bað til

  verðandi dýrlings, Jóhannesar Páls II.Joyful

  Jamm.

  "Trú þín hefur gjört þig heila" (Markús 5:34) man húsfreyja eftir að hafa lesið í

  í einni ágætri bók, sem katólskir eru gjarnan sagðir glugga

  í af og til.

  Þar afþakkaði sjálfur Jesú frá Nasaret það, að eiga heiðurinn af því að

  hafa læknað mikið veika konu, er snart klæði hans og

  hlaut af góðan bata, því hún trúði því sjálf að svo yrði.

  En nú er blessaður sálaði Jóhannes Páll II ekki í neinni aðstöðu

  til að afþakka pent "dýrlingsnafnbótina" frá eftirmanni sínumErrm.

  Fluttur í "Sumarlandið" fyrir nokkrum árum síðan, sá góði páfi,

  og ekki líklegt að honum verði þaðan skilað í bráð á jörðu niður.

  Neipp, svo hann verður gerður að dýrlingi hvort sem honum líkar

  betur eða verr.

  Spretta þá sjálfsagt upp í katólskum kirkjum öllum,

  háar styttur af fyrrum páfa,

  klæddar fögrum klæðum og gulli prýddarPinch.

  Svo verður beðið og og beðið, og fyrrum páfi kallaður

  í alls konar reddingar hér á jörðu niðri.

  Þar með brjálað að gera hjá blessaða Sumarlandspáfanum.

  Allt tjúllaðW00t!

  Hallelúja.

  Hvað munar þá háheilögu í Róm um einn dýrling í viðbót?

  Hvort eð er farið að gráma yfir minningu eldri dýrlinga og

  páfa, og varla að fólk muni eftir "heilögum Nikulási"

  á JólumWhistling.

  En heilagur Jóhannes Páll II verður þá sjálfsagt í framhaldi

  dýrlingur allra Parkinsonsjúklinga..."Parkinsondýrlingurinn",

  eða hvaðDevil?

  Nema að blessuð bænheita nunnan, hafi veri með fjöldan allan

  af sjúkdómum; gyllinæð, ristil, asma, bronkítis, hjartaöng,

  þvagsýrugigt, mígreni, lugnaþembu, magasár, brjósklos,

  blöðrubólgu, tannholdsbólgu, eyrnabólgur, hálsbólgu og

  kvef einnig, þá hún hlaut ljómandi góða lækningu þessaHalo?

  Þá verður Jóhannes Páll II bara dýrlingur "allra almennra

  meina" er katólska hrjáWink.

  Jamm.

  Húsfreyja hefur miklu meiri áhuga á því að vita meira um

  "bænheitu" nunnuna, en það hvort sá sext... XVI sé að

  kokka upp nýja dýrlinga.

  Sú kona gæti hjálpað mörgum sjúkum manninum,

  með því einu að biðja fyrir honum.

  "TRÚ ÞÍN hefur gjört þig heila".

  Húsfreyja óskar katólskum til hamingju með nýjan "dýrling",

  en vill einnig benda þeim á, að biðja "læknuðu nunnuna" að

  biðja fyrir sjúkum og þeim sem minna mega sín.

  Góðar stundir.

  P.S við ættum kannski að stinga því að ríkisstjórninni að

  finna nunnu þessa, og biðja hana að "biðja fyrir Íslandi"Grin.

  Haarderinn með sitt "Guð blessi Ísland" klikkaði alveg

  á "trúnni" þarna um áriðAngry!

 


mbl.is Páfi gerður að dýrlingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sármóðgaður...

  harem2..og arfareiður, hann vesalings Suleman heitinn soldán

  um þessar mundirErrm.

  Þarna er hans jarðneska hylki búið að liggja steindautt og grafið

  í heilögum friði og islömskum andakt

  í hartnær hálfa öld, á meðan andinn hefur gist

  himnaríki rétttrúaðra, umvafinn perlum, djásnum,

  dýrindis "hreinum kjötréttum", einhverjum helv... helling af vatni og

  auðvitað hreinum meyjumTounge.

  Jamm, bara rólegheit og huggulegheit hjá Suleman blessuðum

  síðustu ár og aldir, og hann bara að dudda sér við að skoða perlurnar,

  spjalla við hreinu meyjarnar, DREKKA vatn og snæða eðal kjötrétti.

  Átti sér einskins ills von.

  En þá fara einhverjar tyrkneskar sjónvarpsblækur að rifja upp

  gamlar drykkjusögur hans og það sem öllu verra er,

  að rifja upp "kvennabósasögur" af honumAngry.

  Ekkert fær nú að vera í friði.

  Ekki einu sinni hálfrar aldar jarðneskt "dodo"

  er heilagt tyrknesku sjónvarpspakkiW00t.

  Ja, svei.

  Suleman sálugi hlýtur að vera bálvondur.

  Aldeilis búið að ryðjast inn í friðhelgi hans ööö... löngum

  liðna jarðlífs og einkalífs,

  svína út minningu hans, og minna hann hressilega á

  breiskleika sinn sem manns hér á jörðuCrying.

  Ó, Suleman arman.

  Suleman hlýtur auðvitað að vera sár og miður sín og nýtur sín

  engan vegin á spjalli lengur við hinar hreinu meyjar, sem auðvitað

  hljóta að fylgjast sjálfar vel með öllu jarðnesku sjónvarpsefni um soldáninn sinnPinch,

  og þetta hlýtur að skemma fyrir soldáninum perluskoðunina

  í a.m.k.hálfan himnaríkissólarhringWhistling.

  Jaso.

  Þar sem enn eru til "siðsamir" og "lögfróðir" menn í hinu merka

  ríki Tyrkja, hafa þeir að sjálfsögðu mótmælt árás þessari á

  "einkalíf" fyrrum soldáns....og það þó líferni hans hafi verið

  á allra vörum þá hann dró andann hér á jörðBandit

  Skráð í bækur sögurnar, jafnvel.

  Skiptir þá frómu menn engu þó Suleman hafi í sínu jarðlífi "spjallað" við

  ógrynni af hreinum meyjum í kvennabúri sínu, aldrei verið vatnslaus,

  perlulaus né kjötlaus og hafi dundað sér við að dýrka

  "Bakkus" strax að afloknu daglegu bænahaldi sínu í áttina til MekkaHalo.

  NEIPP.

  "Hafa skal  það sem HEILAGRA reynist"Pinch.

  Láti ekki illgjarnt sjónvarpsfólk þetta af árásum þessum á

  öðlinginn, hann löngu steindauða Suleman,

  verður sjónvarpsstöð þeirra "ritskoðuð" og sjálfsagt

  dæmd til að senda út EKKERT nema efni frá bænastundum á síðustu "Ramadan",

  næstu 5 vikurnarShocking.

  Nú ef það dugar ekki, er aldrei að vita nema Suleman sjálfur

  noti sín himnesku sambönd, og fái sitt almætti til að

  senda þeim meinlegu sjónvarpsmönnum,

  mergjað þrumuveður með elglæringum beint í sjónvarpsmöstur þeirraDevil.

  Jamm.

  Tyrkjar standa í ströngu.

  Allah blessi þá.

  Góðar stundir.


mbl.is Drykkfelldur og kvensamur soldán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ófært, illfært og snjóblint... á Húsavík '89.

china-snow-sculptures-27-snowman-snowwoman  Það hefur löngum loðað við

  Norðurlandið, að þar gæti snjóaðWhistling.

  Einkum þá kaldir vindar Vetur konungs blása að norðan,

  vestan, austan.... og jú jafnvel að sunnan einnigPinch.

  Þá húsfreyja var ung, fögur og heillandi meyja að sunnan,

  (nú er hún einvörðu fögur og heillandi), og með eðal

  hjúkrunarpróf upp á vasann, flaug henni það

  snjallræði í hug, þá 5 ára gjörgæsluhjúkrunaræði hennar hafði

  runnið sitt skeið, að skreppa norður í land og fá sér

  starf á ágætu sjúkrahúsi Húsvíkinga.

  Bjallaði norður og sótti um starf. 

  "Jú komdu á morgun", var svar Aldísar Friðriksdóttur hjúkrunarforstjóra

  "Öööömmm.. kemst ekki alveg á morgun, Aldís, á eftir að

  vinna 2 mánuði af uppsagnarfrest mínum".

  "Jæja, þá STRAX og honum lýkur" ákvað Aldís snarlega.

  Og 10 júlí 1989 var húsfreyja mætt til starfa á sjúkrahúsi

  allra Húsvíkinga, og Erna Ólafsdóttir deildarstjóri tók henni fagnandi.

  Húsfreyja var svo einnig heppin með afbrigðum, að eiga

  föðurbróður á Húsavík, hann Óla á Borgarhól, og hann og hans

  yndislega kona Guðlaug skutu yfir hana  skjólshúsi meðan

  hún dvaldi og starfaði á HúsavíkJoyful.

  Sumarið 1989 var hlýtt á Húsavík og fegurð umhverfisins heillaði

  húsfreyju upp úr skónum.

  Mannlíf var sömuleiðis sérstætt og skemmtilegt, og

  Húsvíkingar höfðu sitt eigið "Leiðarljós" í gangi á sjúkrahúsi

  sínu, þar sem húsfreyja jú starfaði, svo það var aldrei

  dauður tími hjá henniDevil.

  Það vetraði "snemma" að mati sunnlensku hjúkkunnar,

  veturinn 1989.

  Byrjaði að snjóa í September.

  Og það snjóaði.

  Og snjóaði.

  Og snjóaði.

  Til að byrja með, tóka snjó af og til upp, bætti í, tók upp, bætti í,

  svo snjór náði aldrei nema upp að hnjám húsfreyju.

  Iss, lítið mál, og húsfreyja gerði góðlátlegt grín að

  ægilegum snjósögum frænda sinna á HúsavíkTounge.

  En svo var það einn vetrarmorgun þá húsfreyja átti að

  mæta á morgunvakt, að eitthvað var ekki alveg eins og það átti sér.

  Húsfreyju fannst eins og "Borgarhóll" næði ekki alveg djúpa

  andanum þegar hún fór á fætur um sjöleytiðErrm.

  Hún pírði syfjulega út um glugga.

  Sá ekkert.

  Rúðan alhvít af snjó, þó var húsfreyja uppi á annari hæð.

  "Jæja, svo það hafði snjóað svolítið um nóttina.

  Best að drífa sig fyrr af stað, ekki gott að mæta seint

  til vinnu, þá fengu vinnufélagarnir færi á að stríða

  sunnlensku hjúkkunni fyrir ræfildóm í "smá norðlenskri

  snjókomu"Pinch!

  Húsfreyja snöflaði í sig morgunmat með hraði.

  Rauk í vetrargalla sinn og kuldaskó, og opnaði útidyrahurðina.

  Hvítur snjóveggur blasti við henniW00t.

  Jaso.

  Húsfreyja reyndi að ýta við fönninni, gæti bara verið þunnt lagWhistling.

  NEIPP.

  Gaf hvergi eftir fannfergið.

  Stóð og mændi á mjöllina sem fyllti dyragættina, þegar frændi

  mætti niður.

  "Við skulum reyna að finna aðra leið út úr húsi, Sigga mín".

  Frændi ekkert nema gæðin.

  Húsfreyja klöngraðist niður stigann niður í kjallarann,

  eftir rangölum og loks upp um gólfið í bílskúrnum,

  á eftir frænda.

  Þar tókst þeim loks að komast út úr húsinu... 3 og hálft skrefPinch.

  Snjór, snjór og meiri snjór... upp á bringu...herðar...höfuð,

  svo langt sem augað eygðiW00t.

  Og blindhríð í ofanálag.

  "KRÆST, og ég sem á að mæta til vinnu eftir 40 mínútur"

  hugsaði húsfreyja svörtErrm.

  Frændinn horfði sposkur á frænku sína:" Þú verður máske

  eitthvað seinni í vinnuna enn venjulega, frænka í dag.

  En þeir fara nú yfirleitt af stað á snjóbílum og sækja

  starfsfólk á sjúkrahúsið og fleiri vinnustaði um áttaleitið,

  ef fólk óskar þess".

  Húsfreyja tók snögga ákvörðun.  "Ég labba þetta frændi".

  Frændinn glotti:  Gerðu svo vel" og rétti henni skóflu,

  "bara týndu henni ekki"!

  Húsfreyja tók við að moka sér leið í áttina að götunni,

  þar grillti þó í ljósastaurana í hvítri ofankomunni.

  Mokstur, barningur, snjóug gleraugu tóku síðan

  við þegar kom að fyrsta ljósastaurAngry, vindur blés beint

  í andlit húsfreyju.

  Tvisvar hélt húsfreyja að nú yrði hún að grafa sig í fönn,

  eða verða úti öðrum kostiFrown.

  Ákallaði Guð og alla góða verndarengla sér til bjargar.

  Og hélt áfram.

  Einu sinni var hún rammvillt og búin að tapa öllum áttumW00t.

  "DJÍSUSS... var búið að færa fjandans sjúkrahúsið"Shocking?

  Sá andskotann ekki neitt nema alhvítan himinn, alhvíta jörð

  og allt hvítt þar á milli líka!Pinch

  Hékk utan í ljósastaur í vetrarstorminum góðar 10 mínútur áður en

  örlítið rofaði til og hún sá að hún var stödd fyrir framan öldrunarheimilið.

  "HAH, stutt eftir".

  Barðist sem óð væri, með skófluna á lofti síðustu metrana að

  andyri sjúkrahússins.... nær dauða en lífi af áreynslu datt hún þar inn.

  Klukkan var 08:54.

  Húsfreyja blautari en hundur á sundiPinch.

  Það stóð heima, þegar húsfreyja var sest niður

  í þurrum vinnufatnaði með heitan kaffibolla uppi á vakt

  og var þess albúin að  taka við rapportinu, að restin af morgunstaffinu mættiHalo.

  Allir skraufaþurrir, hafði verið ekið af björgunarsveitarmönnum

  í vinnuna af snjóbílum á "beltum"Shocking?

  "Hva, ert þú mætt"??

  "Þú varst ekki með okkur í bílnum"!

  "Hún kom gangandi", svaraði næturvaktarhjúkkan og glotti.

  "Hei, hún kom GANGANDI í vinnuna, sunnlenska hjúkkan"

  orgaði sjúkraliði niður stigann, á eftir björgunarsveitarmönnum.

  Tveir þeirra komu stökkvandi upp, til þess að berja

  vesalings fáráðinn augum, sem hafði nánast drepið sig á því einu

   að mæta í vinnuna, ...54 mínútum of seint,

  í stað þess að bjalla í þá og fá FARBlush!

  Glottu meinlega:  "En þú náðir að komast í vinnuna á undan

  öllum hinum, það er "auðvitað" mjög mikils virði.  (Fliss) LoL

  En við ætlum að keyra fólkið aftur heim klukkan fjögur,

   má kannski bjóða þér með...eða ætlarðu

  að "labba" aftur"Tounge?

  Tröllslegur hlátur fylgdi spurningunniGrin.

  Húsfreyja aðeins búin að jafna sig eftir hremmingarnar,

  rétti úr sér, þóttist líta til veðurs út um snjóugan glugga á ganginum:

  "Það fer nú eftir ýmsu, strákar. En ef að veðrið "versnar" eitthvað mikið,

  þigg ég auðvitað farið"Cool.

  Það var hlegið dátt, og auðvitað var húsfreyju ekið heim

  að lokinni vinnu þennan dag, sem öllu öðru starfsfólki.

  Sem betur fer kom brunakuldi í kjölfarið á brjáluðu snjókomu

  þessari, svo allt fraus, og hægt var að GANGA ofan

  á harðfenninu, í stað þess að þurfa að ösla í gegnum

  allt heila klabbið.

  Og þannig hélst þetta allan veturinn.

  Götur allar hækkuðu um 1 og hálfan metra af völdum

  snjóhríðar þessarar, og gangstéttar allar breyttust í

  snjófjallagarða.

  Húsfreyja hefur ALDREI hvorki fyrr né síðar séð jafn mikinn snjó,

  ekki einu sinni í "mikla snjónum" í Eyjum 1968Whistling.

  Frændur húsfreyju, Ólasynir staðhæfa, að svona veður sé ALVANALEGT

  á veturna á Húsavík.... "gerir þér grein fyrir því, að við búum

  við "ystu mörk" hins byggilega heims, frænka"Halo.

  Jamm.

  Það er smá föl á sólpalli húsfreyju.

  Læðan tiplar að klórstaurnum sínum yfir snjóinn,

  lyftir loppunum, eins og "megabeib á 20 sentirmetra hælum"Devil,

  og mjálmar í kvörtunartón til húsfreyju...."mjaavvvr..þetta er skítkalt

  og blautt...ekki hægt að bjóða heiðviðrum ketti upp á svona meðferð"Angry!

  "Iss, vorkenni þér ekki rassgat, köttur, mátt þakka fyrir að vera

  ekki köttur á Húsavík...og KLÓRAÐU svo"!

  En húsfreyja splæsti í pizzu á föstudagskveldi.

  Snæða næst.

  Góðar vetrarstundir.


mbl.is Nánast ófært á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mót ára um áramót.

  fireworksÍ minningu húsfreyju eru áramótin

  sveipuð ljósrauðri birtu bátaraketta,

  í snjóbyl og 14 vindstigum í VestmannaeyjumWhistling.

  Húsfreyja og systur hangandi á grindverkinu fyrir framan Grænuhlíð 20,

  svo þær feykist ekki með vindinum eitthvað út í buskann....með stjörnuljósin.

  Flugeldar og rakettur frá nágrönnum og vinum að skríða með jörðu niðri,

  við fætur þeirra eða rétt fyrir ofan höfuðin í veðurofsanum,

  aðeins bátaraketturnar, rauðu og fallegu "sólirnar" komast upp.

  Mútta húsfreyju hvít af hræðslu í dyragættinni:  "Siggi, gættu að

  stelpurnar fái ekki þetta dót í andlitið eða augun".

  Afi húsfreyju tvígstigandi fyrir aftan múttuna, þögull en spenntur.

  Faðir húsfreyju hlæjandi og stríðinn: 

  "Þar fjúka enn ein áramótin enn út í hafsauga, stelpur"Tounge!

  Fretar samt upp einni rakettu með "grænni sól", sem fýkur upp á

  þak hjá Berta á Kirkjubæ, og flengist þar til og frá með eiturgrænu

  ljósi sínu skamma stund, og slokknar síðanPinch.

  Og húsfreyja, þá grannvaxin skotta hleypur út á miðja

  götu, og leyfir vindinum að ná taki á sér og þeyta sér

  á ógnarhraða út á hornið hjá Erlu og Friðriki Ásmunds á 18,

  eftir Grænuhlíðinni baðaðri þessari ljósrauðu biru "sólanna"Joyful.

  Nær að spyrna við fótum og stöðva sig, hlær af spenningi og

  gleði, setur undir sig höfuðið og berst geng "Kára" aftur

  til baka. 

  Faðirinn kemur henni til aðstoðar, og allt í einu eru allar

  dætur hans komnar í fang hans, hlæjandi og skríkjandi.

  "Pabbi, okkur er kalt.  Við viljum fara inn og fá heitt súkkulaði

  með rjóma og líka smákökur".

  Og pápinn gefur eftir, enda lítið vit í að vera puðra rakettum

  upp á húsþök nágrannanna um áramót, í band-sjóðandi vitlausu

  veðriShocking.

  Múttan guðs lifandi fegin að fá börnin inn úr þessari líka

  lífshættu, reddar heitu súkkulaði og piparkökum á eldhúsborðið

  í einum hvelli.

  Afinn mætir líka a fljúgandi fart, þó bæklaður sé.

  "Andskotinn er að vita þetta!  Ekki hægt sprengja út árið

  fyrir djöfulgangi í veðrinu"Angry!  Yggldur á svip.

  Faðirinn hlær:  "Við klárum þetta á morgun pabbi", segir hann

  við afann, "sprengjum okkur ærlega inn í nýja árið"!

  Það hummar í afanum, en brúnin léttist eigi að síður,

  enda afinn alræmdur "sprengjusérfræðingur" Eyjamanna árum saman...

  þó ekkert hefði hann sprengjuleyfiðDevil.

  Síðan voru systurnar sendar í rúmið, en fullorðna fólkið

  tók í spil:  Þriggja manna vist.

  Aðeins einum áramótum man húsfreyja eftir blíðviðri í

  Grænuhlíðinni, köldu og stilltu veðri.

  Áramótin 1971-72, frekar en 1970-71....eitthvað farið að

  móa yfir ártölin í minni húsfreyju.

  Húsfreyja og systur hennar hlupu fagnandi með stjörnuljós

  eftir Grænuhlíðinni í ævintýraveröld rauðra "sóla" og litfagurra flugelda,

  en máninn glotti hvítur og kaldur á himninum á meðan stjörnurnar

  flissuðu að látunum í mannanna börnumWink.

  Eitthvað hefur áramótaveður snarlega skánað eftir að

  húsfreyja flutti upp á "stærstu eyjuna í Vestmannaeyjaklasanum".

  Nánast undantekning að lenda í snjókomu á Gamlárskvöld,

  og sjaldan eða aldrei fárviðriW00t.

  Kannski var þetta svona Vestmannaeyja-eitthvað, veðriðWhistling.

  Jamm.

  Hér í borginni við sundin bláu, er veður oft hið blíðasta

  á áramótum.

  Höfuðborgarbúar þar með allir gjörsamlega glórulausir

  frá miðnætti 31. des fram á þrettándann að "brenna" peninga sína,

  í formi "Tívolíbomba", flugelda og blysaPinch.

  Jamm, það er hasar í þessu.

  Húsfreyja og bóndi taka líka þátt í "peningbrunaæðinu" ár hvertLoL.

  Kaupa Tralla-fjölskyldupakkningu.

  Níu ára djásnið er alsæl.

  Henni duga stjörnuljósin líkt og húsfreyju forðum daga.

  Næsta víst að afi húsfreyju bölvi hressilega í Sumarlandinu

  yfir skorti á  "sprengjuæði" í genum sonardótturinnar

  og langafabarnsinsAngry.

  Náði því sjálfur eitt árið er honum áskotnaðist "púður"

  á ívið vafasaman mátaWhistling, og bjó til eina dúndur stóra sprengju

  úr, að "kolslútta" hálfum Vestmannaeyjabæ um háveturinnPinch.

  Júmm, flaug það í hug elskulegum afa húsfreyju, að best væri

  að koma sprengjunni fyrir undir ljósastaur niður við höfnina.

  Langur kveikjuþráður...kveikt... og svo BÚMM!!Devil

  Skari af fugl flúði gargandi úr Heimakletti, og svo piff...piff...piff..

  slokknaði smám saman á öllum ljósum langleiðina upp að LandakirkjuPinch.

  Afi snöggur heim með familíuna það kvöldið, enda sírenuvæl í lofti og

  lögreglubílar á hraðferð niður að höfn.Police

  En "hurufff...andskoti var þetta fínt púður sem ég fékk

  þarna í STÓRU BOMBUNA um árið, Siggi" Banditheyrðist á

  áramótum mörg ár á eftir.

  Og enn eru komin áramót.

  Síðasti dagur ársins 2010 runninn upp, og húsfreyja og djásn 

  aldeilis búnar að hamstra "stjörnuljós"...heila 6 pakkaTounge.

  Það verður stuð.

  Bóndi búinn að græja humarsúpuna og sushi-ið.

  Árið 2010 var töff ár, en eigi að síður eftirminnilegt.

  Ekki alslæmt ár, þó á ýmsu gengi.

  Húsfreyja spáir því að 2011 verði betra og bjartara ár,

  þó að á ýmsu gangiTounge.... og það verður aldeilis ekki alslæmt árGrin.

  Góðar stundir á Gamlársdag, látið ykkur líða vel, börnunum ykkar betur,

  og GLEÐILEGT ÁR!


...blésu þeir í sönglúðra...

 92841023 Það taldi húsfreyja næsta víst

  að stjórnarflokkur sá er kenndi sig við

  Framsókn, væri mikið meira en steindauður

  íslensku þjóðfélagi á vorum dögumWhistling.

  Taldi hún flokkinn þann sálaðan, jarðaðan

  og verulega farið að slá í 'ann neðan jarðarSick.

  Að hann væri að bera víurnar í "heilaga Jóhönnu"

  okkar Frónbúanna, kom henni því verulega spánskt fyrir sjónirW00t.

  Enda "blæs" forsætisráðherra á slíkar furðufregnir,

  af sama krafti og álfar blésu í sönglúðra hér á árum

  áður.

  "Heilög Jóhanna" hefur staðið í ströngu, að þrífa upp

  skítinn eftir flokk "blárra" og Framsóknar, er voru

  í einni sæng í stjórn árum saman í den.

  Hennar eigin flokkur heldur ekki "tandurhreinn" eftir

  "2007-Hrunadansinn" mikla....sei, sei nei.

  En að leggja lag sitt við morknaða og myglaða "Framsóknarmaddömu",

  telur forsætisráðherra ekki vænlegt, ekki frekar en

  lúðrablásandi álfum hugnaðist samneyti við "mannskrílinn"

  sem óð yfir allt hér fyrr á öldumErrm.

  Er reyndar orðið fátt um góða drætti, að mati húsfreyju, þá horft er til

  pólitískra flokka á Alþingi okkar Frónbúa.

  Líkt og búið sé að "tattúvera" orðið SPILLING svörtum

  stöfum á enni allra, er fjórflokkunum fylgja.

  Ja, sveiAngry.

  Á þeim tímum þá menn og álfar mættust reglulega á krossgötum

  og þrefuðu um grösuga hóla og álagabletti,

  fóru menn ríðandi á hestum sínum til Alþingis, og

  þrumuðu ræður sínar af hugsjón og andagift.

  Fyrst á Þingvelli, en seinna til borgarinnar við sundin bláu.

  Læðist samt sá illi grunur að húsfreyju, að fljótt hafi

  eiginhagsmunapotið hafist í pólitík, og samvinna aðeins

  viðhöfð, þá hægt var að hafa eitthvað meira upp úr

  krafsinu svona bak við tjöldinBandit.

  Enda "blésu" álfar og huldufólk á samneyti við okkur

  mannfólkið, lokuðu heimi sínum fyrir okkur og fundu sér

  nýja vegi og aðrar krossgötur að fara um á áramótum.

  GRÆÐGIN er mein okkar mannanna, og virðist því miður

  andskotans, ólæknandi sjúkdómur meðal fólks í stjórnmálaflokkum.Pinch

  Að vinna einhverjum gagn,

  vegna þess að það veitir gleði og sjálfsvirðingu,

  virðist vera hugsun víðs fjarri pólitíkusum.

  Þó þeir þyggi laun frá þjóðinni fyrir störf sín,

  virðast þau aldrei duga þeim.

  NEIPP, verða að GRÆÐA meira og meira og enn meira,

  virðist vera þeirra hugsun.

  Sama sýnist húsfreyju vera í gangi hjá stjórnendum bankanna.

  Sem og þeim sem milljarða afskriftirnar fá, svo þeir missi ekki villurnar sínar,

  sumarbústaðina, 12 milljónkróna-jeppana og pappírsfyrirtækin sínAlien.

  Fársjúkir af græðgi?

  Gróðrabraski?

  Ómennsku?

  Leti?

  Hvað veit húsfreyja?

  Hún er eins og álfur úti á hól, þegar hún reynir að

  botna eitthvað í stjórnarfari og fjármálum síns eigin landsCrying.

  Hennar eigin fjármál eru á tæru.

  Unir glöð við sitt á meðan laun nægja fyrir mat og skuldum.

  Þarf ekki meira fé en það sem tryggir afkomu hennar, níu ára djásns

  og bóndaWink.

  Þakkar hvern dag, er hún nýtur góðrar heilsu til að starfa

  og getur látið gott af sér leiða.

  Þetta er ekki flókið.

  Þarf ekki að vera svo bísna erfitt.

  Lærdómsríkt?

  Já, alltaf.

  Lífið er gott, ef maður man eftir að njóta þess.

  Góð verk gefa af sér góða hluti.

  Stjórnmálamönnum öllum um áramót vill húsfreyja þetta ráðleggja:

  Blásið spillingu og græðgi burt úr stjórnmálum á nýju ári, og

  berið virðingu fyrir sjálfum ykkur og störfum ykkar.

  Góðar stundir og GLEÐILEGT NÝTT ÁRWizard.


mbl.is Jóhanna blæs á framsóknarsögur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prins?... Al Gore...

ChallengeCoinUSA-AssHole1  ... og "feitlagna, þreytulega" konan hans í Ameríku

  þar með komin sína eigin mynt í

  í hinu mikla veldi BretannaTounge.

  Al Gore Kananna svífur þá líklega um á sæluskýi um þessar

  mundir, og hefur aldrei átt eins góð og "myntslegin" JólJoyful.

  Frú Gore, hans ektaspúsa, er hins vegar í fýlu aldarinnar,

  og pælir í því að lögsækja breska fyrir "myntfals",

  "einelti" og "kvenhatur"Angry....eða hvað?

  HeheheheGrin.

  Húsfreyja er engu nær, hvaða fólk þetta er á hinni

  nýju gullnu mynd BretannaShocking.

  Og þó!

  Konan gætti gott eins verið Sigga móðursystir á yngri árum,

  og maðurinn Gústi í Gíslholti nýrakaður á sunnudegi

  árið 1967....heheheDevil.

  En þar sem Sigga móða er löngu látin og bjó þar að auki

  á Ísafirði, en Gústi  rakinn Eyjamaður í húð og hár,

  og þau bæði verið vel gift allt öðru fólki, veit hún ekki hvers vegna

  Bretinn ætti að slá mynt af þeim tveim "saman" árið 2010Devil.

  En máske er Bretinn bara óflinkur í myntsláttu yfir höfuð.

  Gerir hesta að "úlföldum" á myntum sínum, dúfur að "strútum",

  og prinsa sína að Al Gore og prinsessur allar búlduleitar, þreyttar og feitarTounge?!

  Jamm, ekkisens óáranWhistling.

  Þeir bresku ættu máske að bjalla í  oss  mergjaða "hryðjuverkamenn" hér uppi á

  litla Fróni, og láta "myntsláttumenn" vora redda nokkrum

  góðum gullmyntum af kóngaslektinu fyrir brúðkaupiðHalo.

  Myndum aldeilis rúlla því upp hér uppi á Fróni.

  Erum svo hrikalega flinkir að ná góðum "freðýsum" á myntir okkar,

  sem og öðrum fisktegundumDevil.

  Kíkið bara á hundraðkallinn og krónuna!

  Góðar stundir og passið vel upp á "klinkið"...kemur sér oft vel að

  eiga nóg af því.


mbl.is Búlduleit prinsessa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gufusoðin...

 prunes ...leggöng?

  Já háLoL.

  Það var og.

  Og Kaninn fílar þetta í tætlurWhistling.

  Jæja, þarf ekki að koma húsfreyju á óvart,

  hjá þjóð sem fer með "kynfæri" sín og "endaþarm" til

  LÝTALÆKNA í "fegrunaraðgerðir"Pinch!

  Margt er skrýtið í kýrhausnum...skrítnara hjá þeim í

  S-Kóreu og AmeríkuTounge


mbl.is Ný tíska: Gufuböð fyrir leggöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðlægur köttur?

tf_funny_cats_screensaver_24297  Kattarrófan situr í viðbragðstöðu bak við tölvuskjáinn,

  hljóð og kengspent....eitt mjaaavvrrrr!Bandit

  Við öllu búin.

  Um leið og húsfreyja sest við kompjúter sinn og tekur

  að hamra á lyklaborðið, læðist kisa fram léttum þófum

  og tekur að rápa fram og til baka yfir tölvuborð húsfreyju..

  lkkadirijfd..notjrmværi...dfklriifjfjk..lkfjlfkdklfæad....Pinch

  Húsfreyja byrstir sig við kött og reynir að stroka út

  kattarsanskrítina jafn óðum.

  Köttur setur upp snúð, hlammar sér á óæðri endann

  skammt frá tölvumús húsfreyju,

  og þykist vera óhreinni en skrattinn sjálfur fastur

  í tjörupotti sínum í iðrum VítisWhistling um leið og hún þvær sér.

  Slær rófunni í átt að músinni, músin slæst utan í

  lyklaborðið svo húsfreyju fipast sláttartakturinn og

  slær inn nokkur orð á sinni eigin sanskrít...kloiip...fertoif....búff!

  "Er nú bráðnauðsynlegt að vera að ÞVO sér akkúrat

  hér uppi á skrifborði hjá mér" spyr húsfreyja köttGetLost.

  Læða virðir ekki húsfreyju viðlits...hægra eyra hennar virðist

  með versta móti af skít í dagHalo.

  "Það var og" hugsaði húsfreyja, "þá loksins ég hef stund

  í kompjúterinn, þá verður kötturinn athyglisjúkur"Crying!

  SJÍSS!

  En hana!  Köttur aftur farin á bak við tölvuskjá.

  MóðguðAngry!

  Látum vera.

  Aldeilis kominn tími á smá aðventu-pistil.

  Húsfreyja verið í miklum ham það sem af er desember,

  og á lítið eftir nema að skreyta jólatréð og pakka inn

  tveimur pökkum handa níu ára djásninu.

  Samt herjuðu á húsfreyju mergjaðar pestir af og til,

  hiti, beinverkir, hálsbólga, magakveisa og uppsölurSick.

  Tarna var ekki félega aðventan hjá húsfreyja á tímabili,

  en síðan bráði af húsfreyju, svo hún smellti sér í

  fimmta gír og reit jólakort í gríð og erg,

  verslaði jólagjafir handa venslafólki og ástvinum, þreif gardínur og

  eldhússkápa, reddaði fjárhagnum af stakri snilld (neipp, ekki lánWink),

  þreif glugga, skreytti þá seríum, pakkaði inn gjöfum,

  fór í jóladinnera eina þrjá, einn konukvöldverð, og fór í

  skólaföndur með djásninu og svo eina Húsdýragarðsferð..Cool

  Svona rétt náð að heilsa upp á Esjuna af og til,

  og dást af rauðbleikum skýjum yfir hvítum koll hennar,

  og að vísitera múttu sína austur í Þorlálshöfn.....TVISVAR.

  Og alltaf með níu ára djásnið á hælum sér:

  "Mamma, hvenær fáum við jólatréð"Joyful?

  "Mamma, nú eru bara 10 daga...7 dagar....5 dagar....osfr til jóla"Pinch.

  "Mamma, við eigum eftir að fara í Húsdýragarðinn".

  "Mamma, mig langar í svona....hitt....þetta... og alveg rosalega

   mikið í þetta hér í jólagjöf"Grin.

   Og svo klykkir hún út með:

  "Mamma, ég á svo afmæli STRAX í næsta mánuði.... hvenær má

  ég byrja að bjóða í afmælið mitt"W00t?

  Kattarloppa kemur skyndilega á fleygiferð undan skjánum,

  og ein kló krækir í húð á löngutöng hægra handar húsfreyju....ÁPinch!

  "Grálúsuga gráslemban"Angry!

  Húsfreyja potaði loppunni aftur undir skjáinn.

  Köttur læddist grautfúll framundan skjánum og settist aftur

  í "baðsæti" sitt við hlið tölvumúsar.

  "Sjóræningi og saltaður sjódraugur"....húsfreyja hvessti augum

  á læðu, um leið og hún las henni pistilinn upp á "Kolbeinsku"!

  Hefur húsfreyja annars minnst á að jólasveinar þeir er í

  skó gefa, næturlangt þennan mánuð, eru með snjallasta mótiTounge?

  Búnir að gefa níu ára djásninu tvær TINNA-bækur í skóinn!

  Bara SNILLD!

  Loftur Guðmundsson á heiður skilið fyrir snjallar þýðingar á

  bókum þessum.

  Húsfreyja er að lesa "Leyndardóm Einhyrningsins",

  og skemmtir sér sem aldrei fyrr yfir orðaleppum Kolbeins kafteins.

  Jamm, annríki en góðir dagar eigi að síður.

  Mútta húsfreyju hefur einnig verið í ham á jólaaðventunni þetta árið.

  Vegna mistaka hjá TR var henni OFGREIDDUR ellilífeyrir upp á 180.000,

  og auðvitað er þá mútta komin í bullandi skuld við þá

  ágætu en örlítið "heilabiluðu" stofnunWhistling.

  Eftir mikil bréfaskrif, símhringingar, heimsóknir á sýsluskrifstofur

  og  spjall á "forn-Grísku" við ýmsa aðila á TR í 5 mánuði, ákvað mútta húsfreyju

  fyrir rest að SEMJA um greiðslur á "óumbeðnu láni" þessuShocking.

  Jú, mútta mun næsta áratuginn eða tvo, greiða því sem samsvarar

  5000 krónur á mánuði, þar til 180. þúsund kallinn er að fullu

  greiddur ...með vöxtum að sjálfsögðu...svo eitthvað losar þetta

  200 þúsundin þegar upp er staðiðAngry.

  Allir pappírar undirritaðir og frágengnir í haust.

  Mútta alsælJoyful.

  EN......

  Viti menn.

  Mútta húsfreyju fær mánuð eftir mánuð rukkun upp á

  45 þúsundir, í stað fimmAngry.

  Svo mútta hringir í TR, sem af rammíslenskri visku

  vísar á sýsluskrifstofur og Landsbankann,

  og mútta síðan hringir í með hraði.

  Sýsli vill ekkert ræða málið, vísar á Landsbanka allar Frónbúa.

  Mútta hringir.

  Spjallar við ágæta konu í útibúi á Selfossi, sem veit EKKERT um málið,

  hringja "vinsamlega" aftur á morgunErrm.

  Mútta hringir morguninn eftir, og vinaleg stúlka í "Vík í Mýrdal"

  svarar henni.....öööö jú finnur eitthvað í tölvu sinni....

  ..."en við höfum aldrei fengið neitt um málið frá MIÐLÆGA KERFINU"Pinch!

  "Getur þú þá frætt MIÐLÆGA KERFIÐ um samninginn sem ég gerði við ykkur

  hér í Þorlákshöfn", spyr mútta örvæntingafull.

  "Jú", stúlkan telur það nokkuð öruggt, "hringdu aftur á morgun"Whistling.

  Næsta dag er mútta komin á myljandi spjall um sín mál við konu eina

  starfandi í útibúi Landsbanka á "SIGLUFIRÐI"W00t!

  Biður enn og aftur um að einhver RÆÐI við MIÐLÆGA KERFIÐ,

  svo hún fái réttar upphæðir á rukkanir sínar.

  Jaso!

  Síðast þá húsfreyja vissi, var málið í vinnslu í "jaðarkerfinu"?....."útlæga"

  kefinu?Pinch...og verið er að reyna að ná "einhverju" sambandi við

  MIÐLÆGA KERFIÐ... og takist það,  þá má mútta húsfreyju

  líklega vænta símhringingar frá útibúi Landsbankans í GRÍMSEY....Shocking?,

  og henni tilkynnt að málið sé orðið MIÐLÆGT og þar með DAUTT..

  ....eða hvað?GetLost!

  Nema að Landsbankinn sé kominn með útibú í

  Kúlusúkk á Grænlandi...þá á mútta húsfreyju "auðvitað" eftir að

  bjalla í einhverja góða konu þar, og ræða málið "frá byrjun"

  við hana núna í vikunniLoL.

  En nóg að sinni, kötturinn farinn að skralla í "miðlægum" jólapappír húsfreyju.

  Góðar og "miðlægar" stundir á jólaðventunniGrin.


Ráða við? Glætan!

  IMG 1628Nokkur hundruð þúsund vinnufærar hræður

  á skeri úti í Ballarahafi ráða

  ekki rassgat við svona dæmi,

  það eru hreinar línurCrying.

  Enda erum við þorri þjóðarinnar

  vön tölum frá 1 krónu upp í 290 þúsund kall,

  sem við höfum svona í höndunum til að þrauka

  heilan mánuð í einu.

  Teljumst góð ef við eigum 20- 50 þúsundir eftir

  í mat, þá búið er að borga alla mánaðarlega reikninga.

  Húsfreyja viðurkennir fúslega að hún hefur engan skilning á

  "stjarnfræðilegum" tölum í fúlu "Ísbjargarmáli" þessuPinch.

  Gæti kannski náð að höndla töluna "1 MILLJARÐUR" pæli hún

  rækilega í henni, en þegar verið er að tala um

  hundruði milljarða ....gleymið þvíW00t!

  Húsfreyju þykir næsta einsýnt, að ef það er "kolólöglegt" að

  skella þessu talnarugli á íslensku þjóðina,

  og yfirfæra í skuldir, þá ættum við bara

  að smella okkur með málið fyrir dómPolice!

  Við erum myljandi flink í því að þrasa og þrefa,

  gefumst aldrei upp finnist okkur við órétti beitt,

  og erum seigari en andskotinn þegar kemur að því að

  rekast í málum á erlendri grundDevil.

  Samanber "frelsisbarátta" okkar við Dani hér í denHalo.

  Eða þetta er mat húsfreyju eftir að hlusta á aldeilis makalausan

  blaðamannafund samningarnefndar Icesafe í gær.

  Og svo er þessi samningur sagður "mun hagstæðari"

  okkur FrónbúumShocking.

  Frónbúum sem vissu lítið sem ekkert um Icesafe á tímum

  góðæris og útrásarErrm.

  Sem nutu aldeilis ekki góðs af "arðgreiðslum", "bónusgreiðslum"

  og hverju ekki sem þá tíðkaðist.

  Neipp.

  Sáum bara myndir í sjónvarpinu af "veislunum" í London og víðar,

  þá "peningakóngarnir" eyddu grimmt arði sínum og bónusumPinch.

  En nú skulum við pöpullinn "flatskjáasjúki" fá að borga fyrir herlegheitinAngry.

  "Dýrurstu flatskjáir heims" þar með.

  main.php?g2_view=coreEn komin með nýjan og "hagstæðari" samning!

  Ó, vei, húsfreyja hefði þá fengi ærlegt hland fyrir hjartað

  hefði henni auðnast að berja fyrri samning augum og

  botna eitthvað í honumW00t.

  Svo mörg voru þau orð.

  Góðar stundir og passið vel upp á þúsundkallana ykkar....

  hef fregnað af "ófélegri kerlingu" á ferð... illvígari en jafnvel Grýla sjálfAngry!


mbl.is Íslendingar ráða ekki við skuldirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband