6.10.2009 | 18:18
Orð í tíma töluð.
Hörð kerla, Jóhanna.
Og þorir að láta skoðanir sínar í ljós.
Húsfreyja beið spennt eftir gagnrýni sem þessari
frá Geir Haarde eða Ingibjörgu Sólrúnu, á Mister Brown
á sínum tíma!
Og beið.
Og beið.
Uppskera þeirra biðar varð rýr, enda þau nú bæði komin
frá völdum hér uppi á litla Fróni.
Svo BRAVÓ Jóhanna.
Betra seint en aldrei.
Og þetta átti Mister Brown svo sannarlega inni hjá
íslensku þjóðinni.
Enda hryðjuverkalög hans á vinaþjóð með
ólíkindum.
Húsfreyja fór löngum í stuttar ferðir til London hér áður fyrr,
og naut sín vel í sögulegu umhverfi og formfestu breskra
þar.
Þegar kreppa hjaðnar og venjulegir launþegar geta aftur
farið að vísitera erlendar borgir endrum og eins,
mun húsfreyja sniðganga breska grund.
Gjaldeyri sínum vill hún ei eyða sem
"mergjaður hryðjuverkamaður" í nokkru landi.
Góðar stundir.
Jóhanna gagnrýnir Brown | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Frábær færsla hjá þér. Segir allt sem ég vildi sagt hafa. Kveðja.
Þráinn Jökull Elísson, 6.10.2009 kl. 18:29
Þakka þér hlý orð, Þráinn. Flaug sosum í hug að það yrði Jóhanna sem þyrði að gagnrýna "Brúnan"...brást mér ekki, konan sú.
Sigríður Sigurðardóttir, 6.10.2009 kl. 18:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.