Skrapp í laugina...

BN23075_8-FB~People-in-Swimming-Pool-Gold-Coast-Australia-Posters  ...í hádeginu húsfreyja, með

  átta ára djásninu og bónda.

  Sat í hitakæsunni

  á sundlaugarbarminum.

  Skrapp svo í HEITU pottana og

  KÆLDI sig, húsfreyjaToungeCool.

  Laugin var tandurhrein og vatnið tært,

  og starfsmenn á þönum að halda

  öllu hreinu og fínu þrátt fyrir nánast

  "lamandi" hitann.

  Það var "hrein unun" að koma í Grafarvogslaug

  í dag, þrátt fyrir að vart væri þverfótað í

  pottum fyrir foreldrum með börn, börnum með

  foreldra, unglingum að bæta í brúnkuna,

  ellismellum að njóta lífsins og húsfreyjum

  að meta "hreinlætisstaðal" sundlaugarinnar....

  .....eehemmWhistling!

  Bara getum ekki að þessu gert, húsfreyjurnar!

  Er svona "ávanabindandi" eitthvaðWhistling!

  Allt múttu að kenna, uppeldinu og hreinlætisæðinu sem

  tröllreið öllu eftir menn fóru að sjá "bakteríur"

  og vírusa í smásjám!

  OJ BARASick

  Jamm!

  Smásjáin svona heldur óhuggulegt verkfæri

  að mati húsfreyju, og eitt það hrikalegasta sem

  hún varð að horfa í gegnum þá hún stundaði

  hjúkrunafræðinám sitt.

  Klæjaði vikum saman eftir að hafa rýnt í eitt

  slíkt í sýkla-og veirufræðitíma.

  Umhverfið er allt "kvikt og morandi"Pinch!

  Brrrrr....og bjakk!

  Hrollur!

  En treystið bara að húsfreyja sé að segja

  satt!

  Farið ekki að kíkja í smásjár!

  Það er bara fyrir hraustar taugar að berja slíkt augum!

  BELIEVE AND TRUST!

  En huggun harmi í:  Allt þetta kvika hefur sinn tilgang hér

  á jörð, og mannskepnan þarf á þessu "smotterísliði" að

  halda til þess eins að lifa af!

  Er "flest allt" að gera okkur gagn, þrátt fyrir miður fallegt

  útlit (ekki er öll fegurð í "andliti" fólgin....ef andlitið yfirhöfuð finnst á ÞESSUDevil).

  Það eru bara þessir "ógagnlegu" og jafnvel oggulítið "hættulegu"

  sem stundum bögga húsfreyju.....og allt mannkyn ef út í það er farið.

  En jafnvel slíkt "micro-lið" hefur sjaldnast nokkuð í sterkt ofnæmiskerfi

  mannsins að gera.

  Finnum upp "mótefni"við öllu saman, og strádrepum þá ógagnlegu

  næst er þeir berja dyra.

  Stórkostleg sköpun mannslíkaminn.

  Og þvílíkt innra vélvirki.

  Þvílíkar innri varnir, mótstaða, seigla...og einhver

  furðulegur "að komast af-vilji"!

  Jamm... en þetta var nú einkennilegur útúrdúr hjá

  húsfreyju...ætlaði að blogga smá um veðrið og sumarið.

  Átta ára djásnið þrælaði móður sinni að sjálfsögðu upp

  í stóru rennibrautina, heila salibunu með öldugangi upp á

  2 metra þegar hún mætti niðurGrin.

  Vatn gutlar svo vinalega í vinstri hlust húsfreyju eftir

  renniríið....en húsfreyja hefur ekki nokkrar áhyggjur

  af því, vatnið var svo hreint og tærtJoyful!

  Nú farið að styttast í sumarfrí húsfreyju.

  HALLELÚJA!

  Oft verið nauðsyn.

  En nú er ÞÖRF!

  Þrauka eina vinnuviku í viðbót,

  og halda svo á vit sumars, ferðalaga og ævintýra......nú eða bara í

  tandurhreina sundlaugina í GrafarvoginumLoL!

  Bóndi lofaði að grilla í kvöld í blíðunni...og það þó að

  hann sé ennþá sjónvarpslaus eftir "harakiri" þess gamlaWink.

  Húsfreyja búin að henda bökuðu kartöflunum í ofninn.

  Maíisinn inn næst!

  Góðar sólarstundir!

 

 


mbl.is Stefnir í heitasta dag sumars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

vá hitinn í Rvík fór yfir20 stig

stórfréttir  so what það eru engin tíðindi á Héraði

vigga og fjölsk. (IP-tala skráð) 12.7.2009 kl. 19:36

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Hana,hana...svona, svona!  Ekki foj yfir smá hitabylgju í höfuðborginni!  Bara gaman fyrir okkur sem ekki búum á Héraði, að fá smá fílingu fyrir bongóblíðunni sem þið njótið oft og iðulega.  Við samgleðjumst ykkur svo sannarlega þegar vel viðrar hja ykkur...og ekki er verra að vísitera ykkur á sumrin og upplifa stemninguna!

  Sumarkveðjur í Hérað.

Sigríður Sigurðardóttir, 12.7.2009 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband