14.4.2009 | 18:23
Málþófsflokkurinn í vondum málum...og ekki einn.
Búinn að vera blankur
árum saman, enda á
stórum fátækrastyrkjum
frá góðhjörtuðum bönkum
og jafnvel FL-grúppurum!
Tómt helv... basl og
örbirgðarbúskapur alltaf hreint,
og það hjá (fyrrum) stærsta stjórnmálaflokki
litla Fróns.
Sjálfsagt ekki sést almennilegt skeini í Valhöll
mánuðum saman!
Nýbakaðir snúðar og vínarbrauð það eina sem
fæst með kaffinu....snittur, sushi og indverskur
frá Indíafaranum liðin tíð!
Ja, svei!
Svo skuldar hann víst "eitthvað" líka.
Jamm, og hinir flokkarnir með menn á Alþingi,
hafa einnig fengið "ölmusustyrki", (þó ekkert
á við "málþófsflokkinn") og eru sömuleiðis
í "skuldahalasúpunni".
Fjárhagslegur ræfildómur, betl, "skítlegir"
styrkir og peningaþunglyndi og auraharðlífi að hrjá alla
þingflokka....en allra mest þó vesalings "málþófsflokkinn".
Að það þrátt fyrir að "helmingur" þingheims sé
tengdur fyrirtækjum.
Það þó að flestir eigi þingmenn allsæmilega
stór einbýlishús, sumarbústaði, jeppa jafnvel, fái
ferðarisnur, dagpeninga, ökutækjastyrk og
aura í vasann fyrir nefndar- og fundarsetur.
Harðræði er þetta og vesaldómur sem frónverskum
"óspilltum, gegnheiðarlegum og lítilmagna-verndandi"
stjórnmálaflokkum er boðið upp á, hér á fornum slóðum
víkinga og ljóðskálda.
Ja, SVEI!
Vesalings fyrrum framkvæmdarstjóri í "þeim stærsta",
Sjálfstæðisflokknum/ "málþófsflokknum, reyndi jafnvel að fá "yfirstrump"
flokksins til að afþakka veglegustu "ölmusustyrkina",
en hann vildi víst endilega þyggja þá.
Og nú er enginn ábyrgur lengur innan flokksins,
fyrir hafa þegið "búbætur þessar".
Nema auðvitað Haarderinn, sem ber "alla" ábyrgð....
fíflið sem hann var!
Ekki fékk hann Darling og Brown til að
skilja fjármálastöðuna á litla Fróni,
svo flinkur sem hann er í engilsaxneskunni,
sei sei, nei!
Frónbúar "mergjaðir hryðjuverkamenn" og
fjármálafífl á eftir.
Vesen!
Vandræði!
Svínarí!
Veit Dabbi hvernig Haarderinn hefur EINSAMALL
rústað orðstý flokksins?
Haarderinn virðist bara ekkert kunna að ræða við erlenda
þjóðhöfðingja og stjórnmálamenn, líkt og Árni Matt.
og Dabbi kunna "svo vel"!
NEI!
Var bara að dudda sér við að þiggja himinháa styrki!
Halda æsispennandi fjölmiðlafundi.
Reyna að róa pottaberjandi mótmælendur.
Bjarga landinu úr fjármálakreppunni.
Málið "tært og hreint" á borðinu.
Haarderinn er erkisvíðingurinn.
Sökudólgur númer EITT!
Skítþvotti er lokið hjá "málþófsflokknum"!
Kvörtunum um spillingu, makk, vitleysisgang
og fjármálasvínarí ber að vísa beina leið til
Haarderans!
Hann ber ábyrgð!
Góðar stundir.
Samfylking stærst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
VIDBJÓDSLEGT ad sjá ad 22% aetla ad greida spillingarflokki atkvaedi sitt. VIDBJÓDSLEGT!!
Jalli (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 18:50
Minnir svolítið á góða íslenska þulu, dettur í hug Urð og grjót, upp í mót ....
Kannski dettur þessi þula þín Sigríður inn í Skólaljóð útg. 2012, hefði svo sem ekkert á móti því.
Betri stundir
Jenný Stefanía Jensdóttir, 15.4.2009 kl. 05:13
Jamm, Jalli það rennur ekki allt jafn ljúflega niður í kosningum og pólitík!
Þakka þér það, Jenný....aldrei að vita nema ég sendi "Þuluna um pólitíska skítþvottinn" inn til útgáfu í næstu Skólaljóðum!
Sigríður Sigurðardóttir, 15.4.2009 kl. 19:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.