Helv..... kreppukjaftæði...

funny-animals  ..og pólitíkst bull og þvaður

  ALLTAF HREINT", hugsaði

  húsfreyja arfapirruð og

  ergileg, um leið og hún

  skipti um útvarpsstöð í þriðja

  sinn í bíl sínum á heimleið úr

  vinnuAngry.

  "Landinn á eftir að sitja upp með

  massív magasár, eftir þessa endaleysu

  þar sem hver BESSERVISSERINN veit

  allt miklu betur en hinn"!

  "Og það ÓMEÐHÖNDLUÐ magasár"

  hugsaði húsfreyja sótsvört, "allt í fjandans

  ekkisens niðurskurði í heilbrigðiskerfinu

  endalaust, og nú jafnvel verið að loka

  einum besta meltingafæraspítala landsins

  í Hafnarfirði"Pinch!

  AaaaaaaarrrrgghW00t!

  Húsfreyja var mun hughægra eftir að

  hafa sleppt "Tarzan-öskri" þessu frá sér

  í bílnum, og gjóaði augum sínum á ökumanninn í bílnum

  við hlið sér á rauða ljósinu.

  Sá var greinilega með mergjað "augnvandamál"

  í gangi, því annað auga hans stóð á stilk, á

  meðan hitt var dottið niður á undirskál...en

  bæði störðu þau í forundrun á húsfreyjuDevil!

  "O, jæja, hugsaði húsfreyja, "minn bíll og mitt

  mál að hljóðmenga hann hressilega í vikulokin"!

  Húsfreyja lagðist nú í þá skemmtilegu þanka,

  hvað skyldi eldað í kvöldmat, og hvort VISA-kort

  hennar þyldi yfirhöfuð matarkaupGetLost!

    Glæta.

    Nú bregður til beggja vona

    hvort bankamenn haldi út.

    Tóra þeir vetur og vorið

    eða veslast í eymd og sút?

    Aumir eru og krepptir,

    því er ekki kátlegt að lýsa.

    Nú eigum við bara eftir

    einlæga von

    - og VISA.

                     Arndís Sigurðardóttir frá Sleggjulæk (f.1940)

  Húsfreyja náði í 8 ára djásnið og Elinóru

  bestu vinkonu í frístundaheimilið.

  Ákvað að sleppa því að hætta VISA-korti

  í "klippingu" eða "gleyping", og hafa bara

  "annan í snarli" í kvöldmatinnCool.

  Átta ára vinkonurnar byrjuðu vel,

  en enduðu í stríðni, gráti og "heim í

  fússi ferð" ElínóruCrying.

  Og það þrátt fyrir að húsfreyja reyndi að

  sætta alla málsaðila og fá atburðarrásina

  á hreint.

    Eins og mál er á sviðið sett

    menn sannleik fá ekki greint,

    því allt virðist bæði rangt og rétt

    rotið og tandurhreint.

                                         Björg Bjarnadóttir frá Geitabergi (f.1901)´

 

  Ekki alltaf gott að henda reiður á atburðarrás

  í leikjum 8 ára dísa.

  Jaso!

  Og nú grætur 8 ára djásnið yfir skólabókunum,

  því henni leiðist svo án Elinóru.

  Svona gengur þetta í lífi húsfreyju:  Skin og skúrir.

  En hún samt ætíð þakklát fyrir það að geta

  hjálpað náunganum í starfi sínu, fyrir það að

  eiga nóg að bíta og brenna...þótt það sé

  aðeins "annar í snarli" -matur og síðast

  en alls ekki síst, að hafa góða heilsuInLove.

    Guði og mönnum geld ég hjartans þökk,

    það gleymist ei, þó hagli tímans fenni:

    Sálin mín þó sýnist stundum dökk

    sólskinsblettir finnast þó í henni.

                                               Júlíana Jónsdóttir (1838-1918)

  Góðar stundir.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

skemmtileg færsla

ég er sammála með útvarpsstöðvarnar alltaf sami gráturinn - maður má ekki gleyma því í eina mínútu að það er kreppa í landinu.

Góða helgi

Sigrún Óskars, 13.3.2009 kl. 22:03

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Takk fyrir það Sigrún...já mikið ósköp ætla menn að blaðra og þvaðra um andsk...kreppuna........hvernig væru að menn kjöftuðu minna en ynnu meira að því að finna lausnir á kreppuvandanum?

  Njóttu þín sömuleiðis sem best um helgina.

Sigríður Sigurðardóttir, 13.3.2009 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband