7.2.2009 | 17:55
Konur eiga að vera forsetar landa..
...og forsetisráðherrar, sagði
góðkunni gamanleikarinn og
uppistandarinn Robin Williams
eitt sinn fyrir fullum sal af fólki
í Metropolitian Operahouse í
New York.
Konur væru ekki undir ægivaldi
testósterónsins líkt og karlar eru stöðugt,
sagði Williams, sem þýddi að karlar gætu
aðeins hugsað um eitt mál eða einn hlut
í einu.
Sæju aldrei heildarmyndina á einu eða
neinu, og væru í ofanálag árásagjarnir
pirraðir og með eilífan þorsta í völd í sínu
bullandi testósterónflæði.
Konur hins vegar væru hið mjúka skynsama
kyn, sem þyrftu ekki að díla við svona
"hormónaeitrun", nema í nokkra daga
á 28 daga fresti.
Og það kemur ekki að sök, sagði Williams,
því það versta sem kona getur "upphugsað"
þá hún er í hormónaflæði, er að láta öðrum,
"líða svolítið illa, eins og henni sjálfri"...í smá tíma.
Konur myndu "aldrei" sprengja upp heilu
borgirnar með kjarnorku eða eiturefnasprengjum
líkt og karlar gera, sagði Williams.
Né heldur senda ungt fólk í stríð að drepa
mann og annan, sei, sei nei!
Hjá konum við völd yrðu málin leyst með
viðræðum, hjálpsemi, og með vernd "barna"
heimsins í huga, sagði Williams.
"Að vísu yrðu viðræðurnar mjög "intense"
á 28 daga fresti" sagði sá góði Williams
og glotti, "en það er í lagi því eftir 5-7
daga er "hormónaspennunni" lokið.
Og engin þarf að heyja stríð eða deyja í stríði,
þá konur eru við völd!
"That's why there should be a woman PRERSIDENT
in America...don't you see"? lauk Williams
þessu máli sínu.
Vonandi gengu nýrri ríkisstjórn undir
stjórn Jóhönnu vel að hreinsa svolítið til
fyrir kosningarnar.
Íhaldið er sótrautt af vonsku yfir því að
hafa þurft að sæta ábyrgð líkt og
fyrrum kollegar þeirra í Framsókn.
Skammast heilaþvegnir aðdáendur íhaldsins
og kalla núverandi stjórn "kommúnista".
Ekki finnst húsfreyju þetta uppbyggileg og
góð gagnrýni, enda enginn kommúnistaflokkur
verið í framboði á litla Fróni frá því að hún fór
að mæta á kjörstað að kjósa.
En máske mætti þá bara skella "nasistanafninu"
á íhaldið ef íhaldsmenn halda kommúnistkjaftæðinu áfram.
Nei, bara svona grín!
Góðar stundir.
Öld testósterónsins lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er s.s. búið að gleyma Sarah Palin ?
Brynjar Frímannsson (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 20:35
Datt í hug að ég fengi viðbrögð frá karlþjóðinni við pistlinum. Thatcher og Palin þega komnar á svarta listann. Og ekki skulum við heldur gleyma Elísabetu I drottningu Breta, er háði stríð við Frakka árum saman. Og blessuninni henni Kleópötru, sem var ekki kvenna friðsömust. Og þær eru fleiri...bara að kíkja í sögubækurnar. Breytir ekki því að "stríðssaga" þjóðhöfðingja af karlkyni er mun lengri og stórbrotnari en kvenna, enda þeir mun fleiri sem hafa velgt veldisstóla um heim allan. Og langar líka rétt að minna á að, réttur kvenna til að taka þátt í stjórnum landa er víða af skornum skammti, og ekki svo ýkja langt síðan að vestrænar konur fengu þann rétt. En víst var grínarinn góði Williams þarna að gera hressilegt grín að kynbræðrum sínum, enda margir ágætir karlmenn við völd í heiminum í dag. En það mættu alveg vera fleiri konur! En þakka ykkur fyrir innlitið.
Kveðja S.S.
Sigríður Sigurðardóttir, 7.2.2009 kl. 21:35
Las greinina og í henni eru steríótýpur; karlar sem koma okkur í vandræði og konur sem þrífa upp eftir þá. Æi, það sem upphaflega var brandari er orðin að speki sem er höfð eftir Katrínu Ólafsdóttur sem ekki er titluð grínisti í greininni, heldur prófessor.
Benedikt Halldórsson, 7.2.2009 kl. 23:21
Já, Benedikt mér fannst þetta svolítið ódýrt þegar að ég las greinina. Alltaf billeg laus að skella öllu á "hormóna" þegar fólk gerir mistök. Hormónar eru hluti af eðlilegri líkamsstarfsemi bæði hjá körlum og konum, og mannslíkaminn mjög snjall í að halda öllu slíku í jafnvægi. Fólk, konur og karla bera ábyrgð á sínum verkum í starfi, og hver einsaklingur fyrir sig og svo innan síns verkhóps. Svo ég stóðst ekki mátið að setja inn grínið hans Robins Williams, því greinin minnti mig óneitanlega á þetta uppistand hans þarna í NY um árið.
Þakka innlitið.
Sigríður Sigurðardóttir, 8.2.2009 kl. 12:33
skemmtilegt grín frá Robins Williams
Svo er bara að sjá hvort kvenkyns-stjórnandinn á LSH sé betri en karlkynið sem hefur stjórnað alla tíð - fundur með henni á morgun, hjá okkur við Hringbrautina
Sigrún Óskars, 8.2.2009 kl. 23:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.