Jeminn! Nú er það svart!

earth.thumbnail

  Húsfreyja fékk bækling frá

  hinni ágætu Bente og hinum

  ljúfa Abel Struksnes í Odnes í hinu mikla

  veldi Noregskonungs á dögunum.

  Þetta ágæta "frændfólk" húsfreyju

  í Noregi hefur miklar áhyggjur af

  líkamlegu atgervi húsfreyju en þó

  meira af hennar sálarheill.

  Hefur húsfreyja þó aldrei fregnað

  neitt frá ágætu fólki þessu áður.

  Veit eigi hverra manna þau eru,

  né hví þau sáu aumur á húsfreyju og

  sendi henni pistil þennan.

  Samkvæmt þessum ágæta bæklingi

  þeirra hjóna eða systkina nema hvortveggja sé,

  er "heimsendir" í nánd....í töluvert fjarlægri,

  "óártalsettri" framtíð...svolítið í það a.m.k,

  en eigi að síður í NÁNDW00t!

  Og Biblían, eða annar ritháttur bæklings þessa:

  "Bibblían" segir frá 3 englum sem boða okkur

  mannkyni ófagra framtíð, segja hin norsku hjú.

  Og lengi getur vont versnað í pistli þeirra vitru

  norsku spáhjúa:

  Katólska kirkjan er "skækja" segja þau fullum fetum!

  Og ber fram fyrir söfnuð sinn "saurlifnaðarvín"!

  BJAKK!

  Katólskir og mótmælendur báðir, misskilja

  alveg "skírnina", og eru í ofanálag að

  skíra "smábörn...þegar allir heilvita "rétttrúaðir"

  vita að "biblíuleg skírn" er í raun "greftrun í vatni"!!!

  Húsfreyja hefur lengi vel haldið að "grafist menn í

  vatni" DRUKKNI þeir, en viðurkennir fúslega að hún

  hefur ekki eldheita "rétttrú" Struksnes-ista.

  Og allar kirkjur er vilja vera í "samstarfi" við

  "skækjuna" hina katólsku, telja hin heilögu

  norsku hjú vera "dætur hórkvenna"!

  Ekki útskýra hinir skörpu norsarar HVERNIG

  "hórkonur" geta af sér kirkjur, sem hefði þó verið fróðlegt,

  ...né heldur segja frá hverjir "feður" þeirra eruWhistling.

  Telur samt húsfreyja, að þetta muni vera

  "mjög stórvaxið" fólk/kirkjuforeldrar, svona miðað við að

  kirkjur eru yfirleitt reisulegar og "háar" byggingarDevil.

  En nú kemur húsfreyja að því sem hún telur að

  sé aðalástæða þess, að hinir ágætu "vinir" hennar

  í ríki norska kóngsins sendu henni bækling þennan.

  Þeir hafa að sjálfsögðu séð til húsfreyju á leið til

  messu einhvern tímann, á "kolröngum" hvíldardegiPinch.

  Ja sei, og svei og þvílík ekkisens mæðaErrm.

  Slíkt athæfi segja hin góðu norsku hjú sé komið

  beint frá "Anti-Kristi sjálfum" eða "DÝRINU"!

  Þó húsfreyja þekki hvorki hin norsku Struksnes,

  "Dýrið" né heldur nokkurn "Anti-Krist", hljómar þetta

  hálfógnvænlega í eyrum húsfreyju.

  Sér í lagi þar sem "Dýr" þetta mun merkja allt

  "Sunnudagshvíldardagsfólk" með sínu frímerki....

  (á ennið, heldur húsfreyja),

  og sjá til þess að Sunnudagspakkið lendi

  í "eyðingu í eldsdýkið" (eða "eldsdíkið", annar ritháttur

  bæklings).

  "Laugardagshvíldardagsfólkið" mun að sjálfsögðu

  fá "frímerki" frá sjálfu almættinu og búa með

  Jesú Guðssyni í 909 Himnaríki, ElífðinniHalo.

  Jaso, húsfreyja er í djúpum ......Errm!

  Eða hvað!

  Vill hafa sinn hvíldardag á Sunnudegi áfram,

  og kærir sig ekkert um að láta "grafa sig í vatni".

  Þekkir engann af "vondu körlunum" í bæklingi

  hinna ljúfu norsku hjúa, því síður hefur hún nokkra

  hugmynd um hvar "Eyðingarstöðina Dýkið/Díkið"

  er að finna, og telur það jafnvel geta verið "sér-norskt

  fyrirbæri", svona í svipuðum dúr og Sorpa okkar

  Frónbúanna.....hmmmmmm!

  Og Dýrið og Anti-Kristur máski bara "óvinsæl", morðóð

  nágrannahjón þeirra StruksneshjúaWink??

  Ætlar húsfreyja því að skrásetja "varnaðarbréf"

  til allra sinna afkomanda um ókomna tíð,

  og mæla eindregið á móti því við þá, 

 að þeir flytji til Noregs, þar sem kolvitlausir

  Anti-Kristar og "dýr" fá að vaða uppi og "eyða"

  fólki og sálum með "Sunnudagsfrímerki" á enninu.

  Einnig að afkomendur hennar hafi ÆTÍÐ

  gott "límeyðandi" efni við hendina, svo auðvelt

  sé að losa  fúl "frímerki" af ennum og skella einu

  af íslensku Holtasóleynni þar í staðinnLoL!

  Er þá húsfreyja og hennar fólk allt í góðum

  málum, þá að "heimsenda" kemur, og getur

  altént spókað sig um í hinu "Frónverska Sumarlandi",

  908 Alheimi Almættisins, á meðan hinir eru hjá Jesú

  í Himnaríki Angel 2.

  Er þá kannski bara spurning um jafngóð "heimilsföng" eftir allt saman,

  samanber:  "Í húsi Drottins eru margar vistarverur",

   og svo "nágrannaerjur" í gangi hjá Struksneshjúum

  á fyrrum veiðlendum Noregskonungs.

  Og þá mega hinir norsku vinir húsfreyju eiga "eldsdýki, dýr og

  Anti-Krista".

  Þeirra höfuðverkur, ekki húsfreyju.

  Góðar stundir...fram að næsta heimsenda Too Funny !

 

 

 

 

 






« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Heiður Helgadóttir, 6.2.2009 kl. 10:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband